Dagur - 27.06.1998, Síða 2

Dagur - 27.06.1998, Síða 2
J^LAUGARDAGUR 27. JÚXÍ 1998 SÖGUR OG SAGNIR Daguc. Ágúst Sigurðsson frá Möðru- völlum skrifar. I síðasta þætti um fjölskylduna í Hvassafelli í Eyjafirði á liðinni öld sagði frá örlögum Hallgríms Þorsteinssonar, elzta sonarins, en hann var holdsveikur geðsjúk- lingur, hlaut að þiggja af sveit, því að bræðurnir og Rannveig systir þeirra tóku engan arf nema ættarfylgjur. Þar í voru þeir afar- kostir, sem réðu úrslitum í ójöfn- um Ieik við harðneskju hvers- dagslífsins. Einnig greind, sem þó varð ekki notið, enda Iokaði fátæktin bók og skóla, og góðleiki yfirbragðsins, sem var fölt við dökka brá. Og þannig skildi hin opinbera þjónusta við Hallgrím, að hann fékk ómáanlegan skjalastimpil- inn: Niðursetningur. Þegar búið var að jarða í Hólum snemma í júlí 1876. Næstur honum í aldursröð var Jónas, einnig fæddur á Neðsta- landi í Öxnadal. Hann kom um haust eins og nafni hans og föð- urbróðir, Jónas Hallgrímsson skáld frá Steinsstöðum. 3. nóv- ember kom drengurinn á Neðsta- landi, skáldið þann 6. Jónas Þor- steinsson kvæntist náfrænku sinni, Rósu dóttur Ólafar frá Myrká og Guðjóns bónda í Sörla- tungu, sem hét ýmist Svellatunga og Skollatunga á jarðaskrám Möðruvallaklausturs. Rrúðkaup sitt til Rósu hélt Jónas ekki til að milda bráða barneign. Þau lifðu saman í sextán ár, áður en móð- urlíf hennar opnaðist. Heldur var hann að uppfylla síðustu ósk ekkjunnar móður sinnar. Dauð- inn var sestur um kyrrt og breytti blóðfallssjúkum bústað í frelsi sálarinnar hinn 22. nóvember. Pússunin var gerð í Miklagarðs- kirkju hinn 20. október. Allt Hð blæbrigði haustsins, þegar kalt landið deyr. Hvort sem ártalið er 1858 eða eitthvert annað mæðu- og sorgarár, þegar bráðapestin drap féð. Presturinn frændi þeirra, síra Jón E. Thorlacius, tók eftir, hvað þau voru hamingju- söm, þrátt fyrir öll ósköpin, sem á höfðu dunið í Hvassafelli. Hann vildi gleðja, hressa upp á hinn sára hversdagsleika, og skrifaði Jónas bónda í kirkjubók- ina, rósina hans bóndadóttur, einnig í Hvassafelli. Hið rétta var, að Guðný Þórðardóttir frá Sörlastöðum í Fnjóskadal, hin deyjandi ekkja, var bóndinn í dánarbúinu, en Guðjón var ný- kominn að Hvassafelli í því skyni að rétta við búskap, sem enginn var. Aðeins þetta eina fardagaár, þá hafði hann séð nóg, og fór með Þorstein bróður Jónasar sem vinnumann sinn út að Steðja á Þelamörk, þar sem karl faðir hans var fyrir. Annað hafði hann ekki, fyrst hann rann á svellinu í nafnmörgu tungu. Þre- menningarnir Jónas og Rósa fluttu vestur að Steðja 20 árum síðar. Þau og Hallgrímur voru til 1861 í sama ábúðarrétti og for- eldrar bræðranna höfðu átt í Hvassafelli, en eftir þrot og upp- gjör, urðu þau að vera í hús- mennsku á sinni feðraleifð, því að ekki var talað um vinnu- mennsku við Jónas, sem ætlað var, að yrði Hvassafellsbóndi eft- ir föður sinn. Hallgrímur yar veikur. Þá og lengi enn, eins og sagt hefur verið frá í Islendinga- þáttum, haldinn af góðvild. Fékk að vera vegna góðsemi annarra. 1862 fengu Jónas og Rósa ábúðina á Rútsstaðahjáleigunni Sámsstöðum í Öngulstaða- hreppi, en Grundarsókn. Þar var mjög votlent og bæjarstæðið ógott vegna vatnsagans. Býlið var talið með rýrustu kotum og bað- stofukytran lág og Iek nema væri Hjaltalínshúsin á Nunnuhóli. Hér hirti Sigtryggur Þorsteinsson fé Stefáns kennara á Möðruvöllum. - MYND ÁS. 1952. I kytnmi kotalífs jafnt og þétt viðhald. Svona voru Sámsstaðir kynslóð eftir kynslóð í gamla kotbændahluta hins ís- lenzka nauðþurftasamfélags. Rósa var hér einyrki árum saman með fíngerða, fríða manninum sínum, sem hún vissi, að var á rangri hillu. Mikið létti þó undir, að þau höfðu tekið elztu dóttur Rannveigar systur Jónasar að sér. Jóhanna Guðný var fósturbarn þeirra og hjá þeim til 16 ára ald- urs. Þá gat hún fengið vinnu- konukaup, sem var að vísu mjög lítið, nema húsaskjól og skorinn matarskammtur, en þó of hátt til að hjónin á Sámsstöðum gætu greitt það. Jóhanna Guðný Jó- hannesdóttir var þeim jafn kær og eigið ektabarn, einnig þegar Olöf fæddist, þeirra fyrsta og eina barn. Það var hinn 5. júlí 1875. Skyld- og venzlafólkið í Öxnafelli voru skírnarvottar og síra Sigurgeir á Grund kom yfir um af þessu tilefni. Ólafar nafn telpunnar var til heiðurlegrar minningar formóður beggja for- eldranna: Ólafar Jónsdóttur frá Völlum f Svarfaðardal, móður síra Þorsteins í Stærra Arskógi, sem var Iangafi þeirra. Og svo auðvitað í höfuðið á Ólöfu frá Myrká, ömmu barnsins. í vinnumennsku fram að Gilsá í Saurbæjarhreppi, tóku Rósa og Jónas saman það, sem Iauslegt var og þeim tilheyrði innan stokks og utan á Rútsstaðahjá- leigunni og bundu upp á láns- hesta, sem Jónas hafði sókt vest- ur á Þelamörk. Kindunum hafði verið komið þangað fyrir burð, en snemmgróið er og beitarhollt á Steðja. Þangað var nú flutt. Af hjáleigu í kot eitt lítið. Ur einni kytrunni í aðra, en hvort tveggja var þó betra, beitaijörðin og bær- inn á Steðja. Tilhlökkunin, sem var einlæg í von og gleði, snerist upp í andstæðu sína. Sorgin var chúp og dimmt varð yfir, þegar Ólöf litla, tæpra 4 ára, dó í Þorgerður Sigtryggsdóttir frá Nunnuhóli. Ung stúlka á Akureyri. annarri viku þeirra á Steðja. Hún var jörðuð hinn 20. júní á Möðruvöllum, þar sem moldin beið pabba hennar í 6 ár, en í meira en hálfa öld eftir Rósu Guðjónsdóttur. Leiði 7 barna, sem dóu í sókninni á þessu miss- eri úr umgeisandi andkafaveiki, voru þá löngu týnd, en Rósa geymdi sínar sorgir í 50 vetur og var hún þó næsta gömul móðir, þegar Ólöf fæddist. Öll sumur, sem þau áttu saman á Steðja, ræktu þau minningu barnsins síns í bæn og trúarlegri þökk lýr- ir þennan engil, sem hafði komið og horfið aftur burt svo óvænt, snöggt og sárt. Þegar vetur að þeim tók að sveigja, hafa þau Iík- ast til hugsað eins og aðrir Iand- ar þeirra, að dánu börnunum Iiði bezt. Hinn fyrsti vetur á Steðja lagðist snemma að og illa í hjón- in. Jónas varð 48 ára í nóvember, Rósa var 5 árum yngri. Sumarið hafði orðið Jónasi átakanlegust lífsreynd, frá því er faðir hans dó og örlög eignalauss bús voru fyr- irsjánleg, eymd og þrot, þegar skuldir væru greiddar. Mjög lítið til matar fyrir 5 fullorðna heimil- ismenn. Samt var vinnufólks- haldi ekki hætt. Guðjón og Ólöf komu með dóttur sína og nokkr- ar kindur og lögðu svolítið til. Laustenjfd vlð líkamann Sámsstaðir voru í Grundarsókn, Rúgstaðahjá/eigan, þar sem Jónas og Vorið eftir að Jóhanna Guðný fór Rósa áttu kotalif 1862-1879. Mynd Á.S. Ekki nóg til þess, að haldið yrði í horfinu. Þau forðuðu sér hið fyrsta. Tóku Þorstein með, en skildu Rósu eftir. I staðinn komu vinnuhjú, Jóhannes á Stijúgsá og Anna Jónsdóttir. 6 manns áttu að lifa af einni kú og um 30 kind- um. Snemma ársins 1861 var sýnilegt, að tvö börn bættust við. Ástarsamband Hallgríms og Önnu fór ekki lengur leynt og Jó- hannes og Rannveig voru nánir elskendur. Aðrir og ábyrgir fyrir sína sveit ákváðu að leysa þetta heimili upp um vorið. Þolin- mæðin hafði leitt til vandræða og á fátækum og erfiðum árum höfðu sveitarþyngslin aukizt. Ábúðarrétturinn var tekinn af þeim, Anna send burt og í aðra sveit með dóttur Hallgríms, Rannveigu tók Jón á Strjúgsá, faðir barnsföður hennar. Svo fljótt sem auðið yrði skyldu þau á burt úr hreppnum, Jónas og Rósa og Hallgrímur með. Forsjár- mennirnir í Saurbæjarhreppi höfðu sömu útsjón og ábyrgðar- menn annarra sveita. Með betri samvizku en virzt gæti, því að þeir höfðu umliðið fjölskyldu Þorsteins Hallgrímssonar, af því hve voðaleg lífslok hans urðu og ekkjan dauðvona. Börnum þeirra var ekki við bjargandi. Hallgrím- ur Tómasson fór úr hreppnum 1859 og síra Jón og síra Einar, sem báðir sátu í Saurbæ, gátu ekki, sóma síns vegna, látið þetta Iafa lengur. Abyrgð þeirra tók til allra sóknarbarnanna og annarra hreppsbúa. Daufur maður allt til dauðans Sama var, hvort Jónas rifjaði upp minningarnar frá Hvassafelli á síðari árum föður síns og foreldra eða þegar hann átti að heita bóndi á þeim litlu reytum, sem eftir voru. Allt var það á einn veg. Hvort hann kenndi sjálfum sér um eða var beizkur í garð ann- arra, er óvíst að ætla. En sýnin til baka var ekki uppörvandi mynd hugsunarinnar, þegar undirvit- undin dró hana upp eins og bak- svið dána barnsins. Þegar alls var gætt, voru hjáleiguárin á Sámsstöðum skársti ævitíminn. Dapur maður horfði út að Möðruvöllum af hlaðinu á Steðja. Nýtt og reist skólahúsið minnti hann á, að amma hans á Steinsstöðum hafði ekki efni til að Iáta Þorstein son sinn læra. Því varð hann bóndi án áhuga og getu. Fátækur og hafði engin ráð á að kosta syni sína til náms, nema hvað Þorsteinn lærði bók- band og vann fyrir mat sínum meðfram iðninni. Daufir voru dagar Jónasar Þorsteinssonar á Steðja. Þau þremenningarnir björguðust af, því að Rósa var upp alin á beitarjörð. Jónas dó hinn 6. ágúst 1895, á 64. ári sinnar óvissu ævi og eftir 16 gleðilaus ár á Steðja. Moldirn- ar á Möðruvöllum biðu sálaðs holds, sem hvarf aftur til duftsins. Rósa var lengi' ekkja á Steðja, húskona hjá nýjum bændum, fyr- irferðarlítil, nægjusöm og góð- gjörn. Kunni ljóð Jónasar Hall- grímssonar og voru einkum þýð- ingarnar hugleiknar, en hún hreykti sér ekki upp af venzlun- um, hreyfði því varla, hve skyld hún var skáldinu úr Öxnadal. - Þrettán árum eftir missi manns- ins síns fór hún út að Grjótgarði, sem er þremur bæjarleiðum utar á Mörkinni. Þar dó hún, án víls, en með ógleymdum harmi, á góu 1930. Líkið var borið til grafar á Möðruvöllum og jörðin opnuð með lílcakrak, þar sem gizkað var á, að týnd leiði Ólafar litlu og Jónasar væri nálægt. - Hún var hamingjumanr.eskja, trúi ég að síra Sigurður hafi sagt, hátíðleg-

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.