Dagur - 15.07.1998, Page 3
rDgpr
MID VIKVD AGUR 1 5 . JÚLÍ 19 9 8 - 3
FRÉTTIR
L.
Ráðherra sáttur við
skýringar bankanna
Viöskiptaráöherra tel-
ur ekki ástæðu til að
aðhafast frekar vegna
skýrslu Ríkisendur-
skoðuuar um lax- og
risnukostnað Búnað-
ar- og Seðlahaukans,
enda hafi bankamir
gefið fullnægjandi
skýringar á þeim at-
hugasemdum sem þar
séu gerðar.
„Eg tel að svör bankanna séu
fullnægjandi skýringar á þeim at-
hugasemdum sem gerðar eru,“
segir Finnur Ingólfsson við-
skiptaráðherra um skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um Búnaðar- og
Seðlabanka og svör forsvars-
manna bankanna við henni.
Hann telur ekki ástæðu til að að-
hafast frekar.
Finnur leggur áherslu á að það
sé grundvallarmunur á risnumál-
um Búnaðar- og Seðlabanka og
Landsbankans. Stjórnendur
þeirra fyrstnefndu hafi getað gef-
ið fullnægjandi skýringar á öllum
kostnaði en því hafi ekki verið að
heilsa í Landsbankanum. „Tveir
bankastjórar, Sverrir Hermanns-
son og Björgvin Vilmundarson,
gátu ekki skýrt risnukostnað sem
þeim tengdist upp á milljónir
króna. A þessu er mjög mikill
munur,“ segir hann.
Ámælisvert
Það er ekki þar með sagt að við-
skiptaráðherra sé ánægður með
allt sem fram kemur í skýrslu
Ríkisendurskoðunar. Honum
þykir vissulega alvarlegt að yfir-
menn Búnaðarbankans skuli
hafa gerst sekir um að kaupa
áfengi beint af heildsala. Þeir
segist ekki hafa vitað að það
mætti ekki og hafi fullvissað sig
um að slíkt komi ekki fyrir aftur.
„Það er auðvitað ámælisvert að
þetta skuli hafa verið gert með
þessum hætti og eru mistök af
hálfu bankans," segir viðskipta-
ráðherra.
Hann er einnig á því að það sé
best fyrir Búnaðarbankann að
losa sig við íbúðina sem leigð er
í London, en fram kemur í
skýrslu Ríkisendurskoðunar að
hún hafi stunduð verið lánuð
endurgjaldslaust fólki sem
tengdist bankanum. Finnur seg-
ist ekki hafa ástæðu til að efast
um að bankinn hafi getað dregið
úr ferðakostnaði með því að
leigja íbúð í útlöndum. „Eg er
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segir eftirtektarvert að ríkis-
bankarnir hafi allir gert þau mistök
að vanreikna risnukostnað sinn en
aidrei ofreiknað hann. Hann er
hins vegar viss um að þeir hafi
ekki reynt vísvitandi að blekkja
þingið.
hinsvegar þeirrar skoðunar að
það sé engin ástæða fyrir bank-
ann að hafa íbúð í London og
það er bara til þess fallið að sá
fræjum tortryggni," segir við-
skiptarráðherra sem telur að
bankastjórnin eigi að gaumgæfa
hvort ekki sé rétt að losa sig við
íbúðina.
Alltaf vantalið
Ríkisbankarnir hafa allir gefið
rangar upplýsingar um kostnað
sinn þótt skýringarnar á því séu
mismunandi. Það hefur hins
vegar vakið athygli að í öllum til-
vikum hefur kostnaður í raun
verið hærri en upp var gefið. „Jú,
það er auðvitað eftirtektarvert að
mistökin sem menn gera eru öll
á einn veg. Menn hafa frekar
vantalið en oftalið og kannski er
ástæðan sú að menn hafa viljað
halda kostnaði niðri á pappírun-
um. Eg tel hins vegar að það hafi
ekki verið gert vísvitandi í þeim
tilgangi að reyna að blekkja Al-
þingi og ég vil horfa á þessa
röngu uppíýsingagjöf fyrst og
fremst sem mistök," segir við-
skiptaráðherra sem hefur ákveð-
ið að fela Ríkisendurskoðun að
fara yfir öll svör við fyrirspurnum
af því tagi sem bornar voru upp
um bankana, áður en þau verði
lögð fyrir þingið. - VJ
Frá Hrísey
Vakningí
IIrísc*y fyrir
umhvems-
væimi ferða-
þjónustu
Hríseyingar hafa nú í samstarfi
við Iðnþróunarfélag Eyjaljarðar
ákveðið að Ieggja mikla áherslu á
vistvæna ferðaþjónustu í eyjunni
í nánustu framtíð. Ahugi er á því
að fara út í ferðaþjónustu sem
byggir á hugmyndum um lífræna
ræktun og vaenleika gagnvart
umhverfinu. Miklir möguleikar
eru taldir á því að fá styrki til
vistvænnar ferðaþjónustu, bæði
hérlendis og erlendis, sem yrði
ferðaþjónustu í Hrísey mikill
stuðningur.
Fjölmargir Hríseyingar hafa
komið að starfi í kringum stefnu-
mótunarverkefnið, bæði fólk
sem setið hefur í fjórum starfs-
hópum sem unnu að verkefninu
og eins hópur fólks sem tengist
Galleríinu Perlu. Töluverð vakn-
ing er nú í ferðamálum í Hrísey,
og er m.a. verið að laga gamla
gönguleið í eyjunni. Unnið er að
uppbyggingu safns sem kennt er
við Hákarla-Jörund en það hús
mun einnig hýsa löngu tímabæra
ferðaþjónustu í eyjunni. GG
Svo virðist sem nýmjólkin hafi orðið undir í ferðamannaversluninni.
Engin mjólk í boði
I einni fjölsóttustu
ferðamannaverslun
landsins geta fjölskyld-
ur á ferðalagi fengið
alla hugsanlega drykki
- nema nýmjólk.
„Nei, við seljum ekki litlar ný-
mjólkurfernur,“ var svarið sem
ungabarnsmóðir á ferðalagi fékk
í einni fjölsóttustu ferðaþjón-
ustuverslun landsins og skáhallt
á móti stærsta mjólkurbúi lands-
ins, Fossnesti á Selfossi, þar sem
örugglega var hægt að fá hund-
rað tegundir sætra drykkja af öll-
um hugsanlegum tegundum.
„Þetta hefur ábyggilega verið
bara hugsunarleysi hjá okkur að
prófa þetta ekki,“ sagði Lára
Traustadóttir sem stjórnar inn-
kaupum í Fossnesti. „Að vísu
prófuðum við þetta í fyrrasumar,
og það gaf ekki góða reynslu, því
það seldist óskaplega lítið af
mjólkinni þá. En það er sjálfsagt
að prófa þetta aftur," sagði Lára.
Mjólkin tapað fyrir Svalan-
um
Hefur nýmjólkin þá alveg látið
undan síga í samkeppninni við
sykraða drykki og safa? „Já, það
er komið svo rosalegt úrval af
söfum, Svölum, kakómjólk, gosi
og öllum hugsanlegum drykkj-
um, að mjólkin hefur bara fallið
mjög mikið fyrir þeim. Lára telur
Svala orðið lang mest selda
drykkinn fyrir yngstu börnin.
Sárafáir krakkar vilji drekka
mjólk - sérstaklega í ferðalögum.
Hún tekur fram að Fossnesti
selji nýmjólk í 1 lítra fernum og
Iíka G-mjóIk í litlum fernum, en
G-mjóIk Iangar auð\itað engan
að drekka, nema í kaffi eða því
um líkt.
Hálf lélegt...
„Mannig finnst þetta nú ekki
nógu gott,“ sagði Hólmfríður
Þorgeirsdóttir hjá Manneldis-
ráði. Telur hún það ekki bera
foreldrum ungra barna nógu fag-
urt vitni ef rétt er að þeir séu al-
mennt farnir að sniðganga
mjólkina og í staðinn ala ung\iði
nær eingöngu á sykruðum
drykkjum - til viðbótar við öll
önnur sætindi sem börn fá oftar
en ekki í miklum mæli þegar fjöl-
skyldan er í ferðalagi. „Manni
finnst þetta hálf lélegt,“ sagði
Hólmfríður. -HEI
Útbreiðsla eggja
Rannsóknarleiðangri Tiaf-
rannsóknaskipsins Bjarna
Sæmundssonar lauk fyrir
helgi. Guðrún Marteinsdótt-
ir, leiðangursstjóri, segir að
skoðuð hafi verið útbreiðsla
eggja og lirfa nytjafiska allt í
kringum landið og inni á
þeim hrygningarstöðvum
sem þekktar eru.
„Við munum reyna að meta
hversu mikill hluti er á reki að sunnan og hversu mikið kemur frá
öðrum stöðum. Sambærilegur Ieiðangur hefur ekki verið farinn áður
og því höfum við engan samanburð. Ég er ekki viss um að það verði
farinn aftur álíka Ieiðangur allt í kringum landið, heldur könnuð ein-
staka svæði,“ segir Guðrún Marteinsdóttir. gg
Öflugt og faglegt í Furuborg
I úttekt sem gerð var á leikskólanum Furuborg skólaárið 1997-98
kemur fram að þar fari fram öflugt, faglegt starf. Leikurinn sé í há-
vegum hafður í starfseminni og unnið með hann á afar fjölbrej'ttan
hátt og í samræmi við aldur og þroska barnanna. Menning, hefðir og
siðir í leikskólanum eru fastir liðir í námsáætlunum skólans og hefð
er fyrir því að nýta náttúruna og nánasta umhverfi leikskólans í dag-
legu starfi. Þó er einnig bent á að starfsmannaaðstaða sé ófullnægj-
andi sem og aðstaða til að sinna fötluðum börnum. Ennfremur að
leikskólinn njóti ekki sérstakrar ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu eins
og mælt er fyrir um í lögum.
Samkvæmt ákvæði í reglugerð um starfsemi leikskóla skal fara
fram úttekt á að minnsta kosti einum Ieikskóla á hverju ári á vegum
menntamálaráðuneytisins til að tryggja að starfsemi leikskóla sé í
samræmi við ákvæði laga, reglugerðar og uppeldisáætlunar fyrir leik-
skóla.
könnuð
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson.
AHaböHitm fækkar í Ólafsfirði
Allir stjórnarmenn í Alþýðubandalagsfélaginu í Olafsfirði hafa sagt sig úr fé-
laginu á síðustu dögum. Alls hafa tíu manns sagt sig úr félaginu en formað-
ur þess var Björn Valur Gíslason, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Olafsfirði.
UfnuKítHTÍ i Oí;an?TiiA-HJ
Gtlfi’ jfi TfiVt j fiTliQ
nrrii
rJ>í*i 1BQ9V
AiJ/A I fflUOít>
munol