Dagur - 02.10.1998, Blaðsíða 10
10 - FÖSTUDAGUR 2.QKTÓBER 1998
SMÁAUGLÝSINGAR
ERLENDARFRETTIR
Atvinna óskast
Vantar góða framtíðaratvinnu, er með
meistarabréf í vélvirkjun, meirapróf og rútu-
próf, margt kemur til greina.
Upplýsingar í s: 462-5659.
Kirkjustarf
Til sölu
Til sölu fjögurra kóra Brandoni hnappa-
harmonika, Casotto king. Sænsk grip 15
skiptingar, hljómborð, og sjö í bassa.
Jón Sigurjónsson sími 464-3148.
Skrautskrift
Skrautskriftarnámskeið 6., 7. og 8. októ-
ber.
Kvennfélagið Baldursbrá sími 462-2773.
Felgur
Eigum mikið úrval af stálfelgum undir
flestar gerðir japanskra og evrópskra
bíla. Tilvalið undir vetrardekkin.
Bilapartasalan Austurhlíð, Akureyri.
Opið 9-19 og 10-16 laugardaga.
Sími 462 6512, fax 461 2040.
Reiki
Frá Reikifélagi Norðurlands, næsti fundur
félagsins verður laugardaginn 3. október kl.
17 í Brekkuskóla. Gestur fundarins verður
miðillinn Skúli Lórenzson. Mætum öll.
Stjórnin.
Neskirkja
Félagsstarf aldraðra: Á morgun verður farin
haustlitaferð i Heiðmörk og Hafnarfjörð.
Kaffiveitingar í Hafnarborg. Farið frá Nes-
kirkju kl. 15. Kírkjubillinn ekur um hverfið.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri
(kvöld kl. 21 Gospelkvöld.
Laugardaginn 3. október kl. 14 verkleg
þjálfun fyrir unglinga, kl. 20 bænastund.
Hjálpræðisherinn Akureyri
Major Daníel Óskarsson mun stjórna og
tala á kvöldvöku laugardaginn 3. okóber kl.
20. Happdrætti og veitingar.
Ólafsfjarðarkirkja
Messa laugardaginn 3. október kl. 11 í
upphafi héraðsfundar. Sr. Magnús Gamalíel
Gunnarsson prédikar, sr. Sigríður Guð-
marsdóttir og sr. Hanner Örn Blandon
þjóna fyrir altari.
Hallgrímskirkja
Orgelandakt í dag kl. 12.15-12.30. Orgel-
leikur, ritningarlestur og bær.
Langholtskirkja
Opið hús í dag kl. 11-13. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12.10. Eftir stundina verður
boðið uppá súpu, brauð og salat.
Laugarneskirkja
Mömmumorgun kl. 10-12.
Frá Guðspekifélagið
á Akureyri
Glerárgötu 32, Akureyri.
Takið eftir
Laugardaginn 3. október kl. 15.00 og
sunnudaginn 4. október kl. 15.00flytur
Deildarforseti fslandsdeildar Guðspeki-
félagsins Jón L. Arnalds flytur 2 erindi
sem hann nefnir: Um hug og hugljóm-
un.
Guðspekifélagið
Glerárgötu 32, 4 hæð, gengið inn að
austan.
Þríhyrningurinn andleg
miðstöð
Þórunn Maggy Guðmundsdóttir
miðill starfar hjá okkur 8.-12. október.
Tímapantanir í síma 461-1264 milli kl. 16
og 17. Ath. heilun á laugardaginn milli kl.
13 og 16.
±
Minningarspjöld Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga fást hjá Pedromyndum,
Skipagötu 16.
Minningarspjöld Zontaklúbbs Akureyrar
fást í Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti og
Blómabúðinni Akri, Kaupangi.
Hornbrekka Ólafsfirði.
Minningarkort Minningarsjóðs til styrktar
elliheimilinu að Hornbrekku fæst í Bókvali
og Valbergi, Ólafsfirði.
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást i
Bókabúð Jónasar og Blómabúðinni Akri.
Ástkær einkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR ODDSEN,
sem lést þann 23. september sl. verður
jarðsungin frá Egilsstaðakirkju laugar-
daginn 3. október kl. 14.00.
Ólafur Þ. Stefánsson,
Þórunn Guðlaug Ólafsdóttir, Einar Rafn Haraldsson,
Gunnlaugur Oddsen Ólafsson,
Oktavía Halldóra Ólafsdóttir,
Margrét Pála Ólafsdóttir, Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir,
Stefán Sigurður Ólafsson, Hrafnhildur Ævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GRÉTAR RÓSANTSSON,
Þórunnarstræti 119, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. októ-
ber kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknar-
stofnanir.
Dísa Sigfúsdóttir,
Hreinn Grétarsson, Margrét G. Magnúsdóttir,
Heiða Grétarsdóttir, Jón Sveinbjörnsson,
Líney Grétarsdóttir, Friðrik Max Jónatansson,
Jóhanna Grétarsdóttir,
Rósant Grétarsson, Sigrún R. Vilhjálmsdóttir,
Sigmar Grétarsson, Hóimfríður Þórðardóttir
og barnabörn.
Þýskaland getur orð-
ið forysturíki
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Eftir kosningasigur í Þýskalandi
Ieggur leiðtogi Jafnaðarmanna,
Gerhard Schröder, höfuðáherslu
á að róa flokksmenn sína og nán-
ustu samstarfsþjóðir með stjórn-
arsamvinnu með Græningjum.
Það liggur beint við að Jafnaðar-
menn og Græningjar
myndi stjórn eftir úrslit
kosningana sl. sunnudag.
En það er ekki einfalt fyr-
ir þessa flokka að koma
saman stjórnarsáttmála
sem hægt er að sættast á.
Leiðtogi Græningja,
Joschka Fischer, verður
þá væntanlega utanríkis-
ráðherra. Hann er gamall
í hettunni í stjórnmála-
baráttu og á þingi. Hann
var róttækur götuvígja-
fantur á yngri árum, en
hefur róast með aldri og
reynslu og er með hóf-
samari umhverfisverndarsinnum í
sínum flokki. En vandinn er sá,
hvernig honum tekst að fá flokks-
menn sína og meðþingmenn til
að fallast á þær málamiðlanir í
mikilvægum málum, sem gera
verður ef Græningjar eiga að vera
samstarfshæfír í ríkissjórn Þýska
sambandslýðveldisins.
Leiðtogar þýsku Græningjanna
hafa breytt stefnu sinni í málefn-
um eins og afstöðu til samstarfs
við vestræna granna sinna og
þátttöku Þýskalands í mikilvæg-
um fjölþjóðasamtökum. Þeir eru
til að mynda hættir að æsa sig út
í Atlantshafsbandalagið og eru
ekki fráhverfir þátttöku Þýska-
lands í Evrópusambandinu.
Breytt lífssýn
En vel má vera að ábyrg þátttaka
Græningja í stjórn Þýskalands
verði ríkinu til góðs og jafnvel
Evrópu allri. Þegar þeir láta af
öfgafullri afstöðu sinni til ýmissa
umhverfisverndarmála og þjónk-
un við róttæka og úrelta vinstri-
stefnu í stjórnmálum geta hug-
sjónir þeirra sem best notið sín til
að gera umhverfið manneskju-
vænna. Þeir verða áreiðanlega
Leiðtogar þýskra Græningja á tali við þýska friðargæslu-
iiða í Bosníu. Joschka Fischer fyrir miðju.
duglegir að sporna gegn mengun
og glæða áhuga á náttúru og
hennar gæðum, án þess að spilla
umhverfi.
Ef þau kreppueinkenni sem nú
sjást víða vegna hagvaxtargræðgi,
offjárfestinga og ofneyslu, leiða
til minnkandi efnahagslegra gæða
munu umhverfissinnar sjá sér
Ieik á borði að vfsa veginn til
bættra lífsgæða, sem byggjast á
virðingu fyrir náttúruöflunum og
hófsemi í daglegu Iífi.
En þar er við ramman reip að
draga þar sem neysluhungrinu er
viðhaldið með skefjalausum
heilaþvotti auglýsingamennsku
Fleiri fjöldamorð í
Kosovo
JÚGÓSLAVÍA - A.m.k. þrenn
fjöldamorð hafa verið framin í
Kosovo-héraði síðustu daga, og
rúmlega fimmtíu manns látið
þar lífið. M.a. voru 18 meðlimir
sömu fjölskyldu drepnir. Örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna kom
saman í gær til að ræða þessa at-
burði, en ekki var búist við
neinni ákvörðun í gær. Mary
Robinson, framkvæmdastjóri
mannréttinda hjá SÞ, krafðist
þess að gripið verði til aðgerða
HEIMURINN
sem allra fyrst. Rússar vara hins
vegar sem fyrr við því að hervaldi
verði beitt gegn Serbum.
Verðbólga í ESB
kpmin iiiöiir í 1,3%
LÚXEMBORG - í ágúst mældist
verðbóiga í aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins ekki nema
1,3% að meðaltali, en hún var
1,5% í júlímánuði. Mesta verð-
bólgan var á Grikklandi og Ir-
landi, en minnst var hún í Frakk-
landi, Svíþjóð, Þýskalandi og
Austurríki.
Eiginmaður minn,
EIRÍKUR JÓNSSON,
Einilundi 6 e,
Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, deild 1, þann 1. október 1998.
Fyrir hönd aðstandenda:
Sigrún Jónsdóttir.
sem hvetur sífellt til bruðls í
formi eyðslu og óþarfa fjárfest-
inga í lausu sem föstu.
A hitt ber að líta að ýmsar hug-
myndir umhverfissinna eru tæp-
ast framkvæmanlegar nema með
því að gjörbreyta lifnaðarháttum,
eins og þeim sem fólk í iðnríkjum
hefur tamið sér. Þar má nefna, að
leggja beri niður öll kjarnorkuver
og að einkabílnum verði nánast
útrýmt með stjórnvaldsaðgerðum.
Verði orkuverin lögð niður í nú-
verandi mynd og brennsla jarð-
efna takmörkuð eða bönnuð er
erfitt að sjá hvemig nú-
tímalegt þjóðfélag fær
staðist.
Hér sem víðar verður
að finna málamiðlun og
kannski gengur Schröder
og Fischer það betur en
margir spá. Þegar efna-
hagskerfi kapítalista og
sósíalista ganga sér til
húðar, eins og nú er að
gerast, mishratt samt, er
ekki ólíklegt að stefnu-
laus sósíalisti og laus-
beislaður umhverfissinni
detti niður á lausnir sem
duga til að halda lífskjör-
um í sæmilegu lagi án þess að
eyðileggja þann lífskraft náttúr-
unnar, sem líf vort byggist á hvort
sem menn fást til að viðurkenna
það eða ekki.
Valasanitir ásetningiir
Ekki er hægt að draga alla um-
hverfisverndarsinna í einn og
sama dilkinn. Þeir hafa misjafnar
áherslur og eru sumar fráleitar,
aðrar peningavænar (frelsun
Willys) og enn aðrar sjálfsagðar
og eðlilegar.
En góður ásetningur þarf ekki
alltaf að leiða til góðs. Til dæmis
er bent á, að ef Svíar loka sínum
kjarnorkuverum, eins og stjórn-
völd stefna að, neyðist þeir til að
kaupa enn meiri orku að austan
en þeir gera nú. Það þýðir enn
meiri keyrslu atómstöðva í Aust-
ur-Evrópu, og þykir sumum nóg
um nú þegar. En kjarnorkuverin
fyrir austan eru mun ótryggari en
verin í Svíþjóð, sem eru með þeim
öruggustu í heimi. Það er því
stórhættulegt fyrir alla Evrópu ef
Svíar loka sínum atómstöðvum.
Sama gildir um Þýskaland.
Umhverfissinnar eru yfirleitt á
móti orkuvinnslu. Þeir vilja ekki
vatnsorkuver og atómstöðvar eru
fordæmdar og ekki má vinna orku
úr kolum eða olíu. Þá er eftir
vetnisorkan, sem seint ætlar að
verða brúkleg þrátt fyrir miklar
tilraunir og væntingar.
Verndun lífríkisins er Græn-
ingjum mikið áhugamál og fara
þeir víða offari, eins og íslending-
ar hafa illilega orðið varir við.
Víða færa þeir sig upp á skaftið og
vilja banna nánast alla nýtingu
dýraríkis og takmarka vinnslu úr
jurtaríki og vinna að framgangi
hugmynda sinna með ofstopa.
Með því færa þeir andstæðingum
sínum sífellt vopn í hendur og
koma óorði á umhverfisvernd.
En taki Græningjar í Þýska-
landi ábyrga afstöðu í stjórn Sam-
bandslýðveldisins og starfi af heil-
indum og ef Jafnaðarmenn láti
ekki undan þrýstingi um að bæta
lífskjörin með auknu neyslubruðli
ríkis, fyrirtækja og einstaklinga,
getur Þýskaland gengið á undan
öðrum þjóðum með góðu for-
dæmi um skynsamlega stjórn og
lífshætti.