Dagur - 08.10.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 08.10.1998, Blaðsíða 4
4 - FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 SUÐURLAND Eyjameim sáttir við skólann siirn Krakkar í Vestmannaeyjum glöddust mjög þegar þau fengu frí úr skólanum til að taka móti Keiko. Nemendur í barnaskóla Vestmannaeyja virðast hins vegar flest vera nokkuð ánægð með skólann sinn. Vestmannaeyingar virðast nokkuð ánægðir með bama- skólann sinn sam- kvæmt nýrri við- horfskönnun sem gerð var í Eyjum. Foreldrar barna í barnaskólan- um í Vestmannaeyjum virðast talsvert ánægðir með skólann, ef marka má könnun sem birt var á dögunum. Rúm 65% foreldra sögðu viðhorf sín til skólans já- kvæð og tæp 21% mjög jákvæð. Ekki er mikill munur á viðhorf- um foreldra eftir aldri nemenda, en þó eiga flestir neikvæðir for- eldrar börn á unglingastigi. For- eldrar voru hins vegar ekki jafnánægðir með stjórn skólans, samkvæmt könnuninni. Rúm 8% sögðu hana mjög góða og liðlega 30% í góðu lagi. Rúmur helmingur sagði að sumt mætti betur fara og Iiðlega 9% sögðu Verslunin Hornið á Selfossi tók formlega í notkun mikla stækk- un á verslunarplássi sínu s.I. föstudag. Eftir stækkunina er verslunin mun bjartari og vöru- úrvalið verður Iíka aukið. Þá er stór skáli við inngang verslunar- innar. Þar er aðstaða sem ef- laust verður mikið notuð af fjöl- brautarskólanemum og hafa þeir þar aðgang að örbylgjuofni. Einnig er ætlunin að nota skál- ann fyrir vörukynningar, grill og ýmsa skemmtan. Þetta er ein af fáum kaup- mannsverslunum á Suðurlandi henni í mörgu áfátt eða stórlega ábótavant. Sírákunuiii líður ver Nemendur voru einnig spurðir hvort þeim fyndist skólinn sinn góður eða slæmur og sögðu rúm 14% að hann væri mjög góður, nokkuð góður sögðu flestir eða tæp 46%, sæmilegur svöruðu og sú stærsta. Hjónin Gunnar B. Guðmundsson og Helga Jónsdóttir eiga allt Hornið, bæði húsið og Pizza 67 á staðnum. Elvar sonur þeirra stýrir pizzu- staðnum. Viðskiptavinum var boðið upp á veitingar á föstudaginn og sértilboð voru á Pizza 67. Fór aðsókn fram úr björtustu vonum að sögn Gunnars. Hann segir mikið hafa verið verslað þarna alla helgina og viðskiptavinir lýst ánægju sinni yfir stærri og betri búð. -FIA nærri þriðjungur, ekki góður sögðu tæp 5% og mjög slæmur sögðu rúm 2% nemenda. Tveir af hverjum þremur sögðu að þeim liði afar vel eða nokkuð vel í skólanum, sæmilega sögðu um 30%. Liðlega 4% nemenda sögðu að þeim liði illa í skólanum og 3% sögðust liða mjög illa. Þegar svörin eru skoðuð eftir kynjum sést að strákum líður ver í skólanum og er það í samræmi við aðrar hliðstæðar kannanir á landinu. Ef svörin eru skoðuð eftir bekkjum virðist nemendum líða verst í áttunda bekk eða 11,43% segjast líða mjög illa. Bæta skólastarfíð Jóna Olafsdóttir, aðstoðarskóla- stjóri Barnskólans, segir að til- gangurinn með könnununum hafi verið sá að bæta skólastarfið og reyna að fá fram sjónarmið starfsfólks, nemenda og foreldra á skólastarfinu og bæta það sem fólki finnst hafa farið miður og efla þá þætti sem jákvæðir eru. „Þetta er lfka liður í því að opna skólann og efla tengsl milli þeirra sem að þessum málum koma. Skólastarf hér á landi hefur verið Iokað fram að þessu og ekki mikið tillit verið tekið til skoðana for- eldra, nemenda og starfsfólksins. Með þessum könnunum vonumst við að geta metið hvar skórinn kreppir, til þess að gera megi skól- ann að þeim þroskavettvangi sem hann á að vera.“ Heilsugæslustöðv- ar sameinaðar Heilsugæslustöðvamar á Hellu og Hvolsvelli hafa verið samein- aðar og heita nú Heilsugæslu- stöð Rangárþings. Stjórnir heilsugæslustöðvanna beggja leituðu eftir því hvort vilji væri fyrir því að sameina þær undir einni stjórn fyrir nokkru. Þær sendu erindi um þetta til heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins sem óskaði eftir áliti sveitarfélaganna á starfssvæði stöðvanna. Hreppsnefndirnar á starfs- svæði heilsugæslustöðvarinnar á Hellu lýstu sig allar jákvæðar fyrir sameiningu. Hreppsnefnd Rangárvallahrepps setti það sem skilyrði fyrir samþykki sínu að þjónusta hvorrar stöðvar um sig minnkaði ekki frá því sem nú er, að því er fram kemur í frétta- bréfi hreppsins. I vikunni til- kynnti svo heilbrigðisráðuneytið að ákveðið hefði verið að sam- eina stöðvarnar undir einni stjórn. Úttekt á aðgengi fatlaðra Bæjarstjóm Vestmannaeyja hef- ur samþykkt að láta nú þegar gera áætlun um úrbætur í ferlimálum og aðgengi fatlaðra í stofnunum Vestmannaeyjabæjar. Jafnframt beindi bæjarstjórn því til fyrirtækja í bænum að þau gerðu einnig slíkar áætlanir þar sem þeirra væri þörf. BæjarfuIItrúar Vestmanneyja- listans fluttu um þetta tillögu og í greinargerð með henni var m.a. bent á að þótt þessi mál hefðu breyst til betri vegar und- anfarin ár væri víða Iangt í Iand og Vestmannaeyjar væru þar engin undantekning. Jafnframt var bent á að úrbætur af þessu tagi eru styrkhæfar. Fuiltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykktu tillöguna og var henni vísað til félagsmálaráðs sem fer með málefni fatlaðra. Stórt Hom Það er oft mikið að gera í Horninu á Selfossi og sýnist þröngt á þingi þótt nýverið sé búið að stækka verslunina verulega. S UÐ URLANDSVIÐ TALIÐ Brýnt að byggja íþrótta- hús við Fjöíbrautaskólaim Sigurður Sigursveinsson skólameistari Fjölbrauta- skóla Suðurlands Það sárvantar íþróttahús JyrirFjölbrautaskóla Suð- urlands á Selfossi því bág- borin íþróttaaðstaða erfar- in að standa skólanum fyrirþrifum. - Hvað líður óformum um byggingu íþróttahúss fyrir Fjöl- brautaskólann? „Það er á frumstigi. Skóla- nefnd er búin að marka ákveðna stefnu í því máli sem er að stefna að byggingu húss sem tæki fyrst og fremst mið af þörf- um skólans fyrir kennsluhús- næði fyrir íþróttir. Menntamála- ráðuneytinu og héraðsnefndun- um hefur verið ritað bréf þar að lútandi um að taka upp viðræð- ur um málið. Það er ekki komið lengra en þetta.“ - Þið hafið engin viðbrögð fengið ennþá? „Nei, ekki nema jákvæð hér í héraði. Þetta var kynnt á aðal- fundi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga og viðtökurnar þar voru jákvæðar, en þetta er allt án skuldbinga enda erum við að horfa dálítið langt fram í tím- ann. Við erum að tala um bygg- ingu eftir kannski 4 ár eða svo.“ - Er íþróttaaðstaða nemenda mjög slæm? „Hún er orðin mjög erfið. Við leigjum af bænum aðstöðu í íþróttahúsi sem er Iíka nýtt af grunnskólanum hérna, Sandvík- ur- og Sólvallaskóla. Það er gjör- samlega sprungið og mjög erfitt að koma íþróttum fyrir.“ - Er þetta farið að standa ykkur fyrir þrifum? „Já í rauninni. Iþróttakennsl- an er ívíð minni en hún væri ella. Við þurfum að beita aðeins meira aðhaldi og þetta hefst ekki nema allir leggist á eitt. Það er mjög erfitt að koma þessu fyrir. Við erum Iíka með íþróttabraut og þurfum því held- ur meira rými í íþróttahúsi en ella. Það hafa margir farið frá okkur með stúdentspróf á íþróttabraut og farið að Laugar- vatni. „ - Eruð þið ánægðir með að- stöðuna að öðru leyti? „Já. Það er reyndar orðið fleira í þessu húsi en gert var ráð fyrir. Það er orðið þröngt á okkur aft- ur en við leysum þau mál. Hitt hefur algjöran forgang að leysa úr íþróttaaðstöðunni." - Hver hefur þróunin verið varðandi aðsóknina að skólan- um, er alltaf að fjölga hjá ykk- ur nemendum? „Það hefur verið jafnvægi undanfarin 2 -3 ár, en svo fjölg- aði aftur í haust. Það eru 714 sem hófu nám í haust í dagskól- anum, en undanfarnar haust- annir hafa það verið um 670.“ - Eru þetta fyrst og fremst nemendur úr nágrannbyggð- um? „Já, af skólasvæðinu. Það eru alltaf nokkrir héðan og þaðan í gegnum Qölskyldutengsl eða eitthvað slíkt, en hlutfallslega er það mjög fátt. Það eru alltaf nokkrir frá Austfjörðum og úr Austur-Skaftafellssýslunni. Svo er einn og einn sem sækir í brautir hér sem eru ekki víða annars staðar, en fyrst og fremst eru þetta Sunnlendingar.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.