Dagur - 10.11.1998, Qupperneq 4

Dagur - 10.11.1998, Qupperneq 4
4 - ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1998 rDnpir AKUREYRI NORÐURLAND Vöm KA eitt gatasigti Það er ekki oft sem KA tapar á heimavelli í handboltamim. En það gerðist á sunnu- dag. Ósigur gegn Stjömunni varð staðreynd. I handknattleik í dag skiptir varnarleikurinn höfuð máli. Ef hann er ekki í lagi þá er erfitt að vinna sigur. Vörn KA-manna í leiknum gegn Stjörnunni úr Garðabæ á sunnudagskvöld var ekki góð og það var orsök ósigurs KA, 30-28 eftir að staðan í leik- hléi hafði verið 15-13 Stjörnunni í vil. Það var með ólíkindum hvað leikmenn Stjörnunnar, þeir Kon- ráð Olavsson og Heiðmar Felix- son, fengu að skora ódýr mörk af stysta færi. Það lá við að vörn KA-manna hefði tíma til að bjóða þeim gott kvöld um leið og þeir hleyptu þeim inn. KA á að vera með eina sterkustu vörnina i handboltanum í dag og þeir eiga að beija sig saman á heimavelli. Stjörnumenn höfðu allan tím- ann forystu í leiknum. Það var aðeins á upphafsmínútum leiks- ins sem jafnt var á með liðunum. KA-menn fengu í tvígang tæki- færi á að jafna leikinn í lokin en brást bogalistin þegar Lars Walt- Gott hjá körfu- strák- unimi Þórsarar eru komnír með átta stig í DHL- deildinni í körfubolt- anuiii. Svo góður ár- angiir hefur ekki náðst lengi hjá liðinu í upphafi móts. Allt virðist vera á ágætri leið hjá Agústi Guðmundssyni þjálfara Þórs í körfuboltanum. Tveir sigr- ar um helgina og liðið er komið með átta stig. En margir erfiðir leikir eru framundan og ekki má fara að slaka á núna. Þórsarar sigruðu Valsmenn á heimavelli í Iþróttahöllinni á Ak- ureyri á föstudagskvöld. Leikur- inn var slakur og bæði lið gerðu sig sek um ljöldan allan af byrj- endamistökum. Mistökum sem ekki eiga að sjást í úrvalsdeild- inni í körfubolta. Leikurinn var mjög spennandi í lokin og höfðu Þórsarar sigur 64-63. Valsmenn voru þó komnir með ágætis for- skot á lokamínútum leiksins en heimamönnum tókst með góðri baráttu og klúðurslegum sókn- um Valsmanna að knýja fram sig- ur. Davíð Guðlaugsson var maður leiksins og á hann svo sannarlega Danskir taktar í leiknum gegn Stjörnunni í fyrrakvöid. Lars Waiter reynir skot. mynd: brink. er misnotaði tvö vítaskot. En það er ekki sanngjarnt að kenna Lars um tapið þó að hann hafi mis- notað tvö vítaskot á lokamínút- um leiksins. Nei, það var fullt af öðrum mistökum KA-manna all- an leiktímann sem skóp sigur Stjörnunnar. Það var gleðilegt að sjá Jóhann G. Jóhannsson hægri horna- mann KA vera jafn ógnandi og hann var á móti Stjörnunni. Hann skoraði sex mörk og var með góða skotnýtingu. En aftur á móti er vinstra hornið enn áhyggjuefni og aðeins tvö mörk komu frá þeim leikmönnum sem vinna þar. Lars Walter stóð sig einnig vel í sókninni. Hann skor- aði ein tólf mörk þar af fimm úr vítaskotum. Það er gaman að sjá hvað hann er alltaf snöggur að hlaupa til baka í vörnina. Þá helst þegar hann er búinn að skora falleg mörk. Hafþór Ein- arsson markvörður leysti sitt hlutverk af hendi með hinni mestu prýði og varði alls tólf skot. Hann kom inn strax í byij- un leiks þegar ljóst var að Reynir Þór gat ekki leikið vegna meiðsla. Það er alltaf erfitt að koma inn á síðustu stundu og slá í gegn en Hafþór gerði sitt og vel það. Aðr- ir voru Iítt ógnandi í sókninni nema þó Halldór, sem stýrir leik liðsins ágætlega á miðjunni. Eins og áður sagði voru þeir fé- lagar Heiðmar og Konráð allt í öllu hjá Stjörnunni. Það var gam- an að fylgjast með nýja línu- manni þeirra Garðbæinga, hin- um rússneska Shamkuts. Hann skoraði mikilvæg mörk og hafði skemmtilega framkomu á velli sem Jón Þórðarson félagi hans í Stjörnunni mætti taka sér til fyr- irmyndar. Jón hefur sérstaka framkomu inn á velli sem hæfir ekki íþróttamönnum sem vilja vera í fremstu röð. Lúmsk brot og leiðinleg sem eru algerlega óþörf. Markmenn Stjörnunnar voru KA-mönnum mjög erfiðir og vörðu vel. Einar Einarsson þjálfari er að gera fina hluti með ungt lið Stjörnunnar og kominn er gamall „refur“ á bekkinn þjálf- aranum til aðstoðar. Sjálfur Eyjólfur Bragason. Maður með mikla reynslu. Stjörnumenn eru vel að sigrin- um komnir. Þeir stóðu sig vel á einum erfiðasta útivelli landsins og gerðu marga skemmtilega hluti. Nú þurfa KA-menn að spýta í lófana svo þeir missi ekki heimavallastyrkinn. Mörk: KA: Lars 12/5v, Jóhann 6, Halldór 4/2v, Sverrir 2, Heim- ir 2, Þórir 1 og Sævar 1. Mörk Stjörnunnar: Konráð 9/2v, Heiðmar 6, Hilmar 6/3v, Shamkuts 5, Jón 2 og Einar 2. -GS mmmmmmlmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm framtíðina fyrir sér ef hann æfir vel. Aðrir Ieikmenn Þórs voru lítt áberandi. Bergur Emilsson var bestur Valsmanna. Góður sigur á Skagamönnum Þórsrara halda áfram sigurgöngu sinni. Þeir lögðu IA á útivelli með næst minnsta mun, 69-67. Góður sigur það á erfiðum úti- velli. Þórsarar leiddu mest allan leikinn og voru lokamínútur leiksins mjög spennandi. Sem sagt góður sigur í höfn og nú kemur smá leikfrí hjá Þórsurum vegna úrslita í Eggjabikarnum næstu helgi. -GS Of ákafar Stelpumar í KA-Þór í handbolt- anum halda áfram að taka fram- förum. Á sunnudag léku þær við Hauka og héngu ágætlega í þeim. Þolinmæðin gæti orðið hels- ta vopn KA- Þórs stúlkna í fyrstu deildar baráttunni. En það er oft erfitt að vera ungur og ör og vilja vinna sigrana fljótt. Sóknar- leikur Akureyr- arstelpnanna gegn Haukum var agalaus og þolinmæðina vantaði. Leiknum lauk með sigri Hauka, 22-17. „Þetta leystist upp í algera vit- leysu í síðari hálfleik. Lélegustu menn vallarins voru dómararnir. Þeir réðu ekki við verkefnið. Stelpurnar mínar voru að spila við slakasta liðið sem ég hef séð í vetur og nýttu sér það illa. Sóknir okkar voru alltof stuttar og við vorum að nýta dauðafærin Stelpurnar í KA-Þór í handboltan- um halda áfram að taka framför- um. illa. Ég lagði það upp fyrir leik- inn að stoppa tvo af leikmönnum Hauka og það gekk ekki nógu vel. Þessar tvær skoruðu samtals ellefu mörk sem er of mikið. Svo verðum við að stoppa hraða- upphlaup," sagði Hlynur Jó- hannsson, þjálf- ari KA-Þórs. Haukastelpur voru ekki að spila þennan leik eins og þær væru efstar og bestar. Hörð vörn heima- manna fór í taugarnar á þeim og þær misnotuðu margar mikilvægar sóknir. Það vantaði að vísu nokkrar sterkar stúlkur en þær eru reynslumiklar og ættu að geta meira. Mörk KA/Þórs: Þóra 4, Ebba 3, Ásdís 3, Solveig 3, Arna 2, Heiða 1 og Jolanta 1. Mörk Hauka: Tinna 6, Hanna 6, Hekla 5, Harpa 2, Berglind 2 og Ásbjörg 1. -GS Þórsarar efstir Þórsarar í annarri deildinni í handknattleik eru að gera fína hluti. Þeir eru efstir í deildinni eftir jafntefli gegn Fylki á útivelli og sig- ur á Herði á heimavelli. Við vorum betri lengst af gegn Fylki en þeir náðu að jafna í blá- lokin, 21-21. Þetta var baráttuleikur og gott að ná stigi þó að það sé alltaf skemmtilegra að sigra. Flestir okkar voru að spila vel og átti Björn Sveinsson markvörður mjög góðan leik en hornamenn- irnir okkar hefðu mátt gera betur. Leikurinn við Hörð aftur á móti var frekar ójafn og alger skylda að vinna enda unnum við 24-15,“ sagði Ingólfur Samúelsson, fyrirliði Þórsara. -GS | i

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.