Dagur - 12.11.1998, Page 1

Dagur - 12.11.1998, Page 1
Verð í lausasölu 150 kr. 81. og 82. árgangur - 214. tölublað Vill ekki undirrita Kyoto sairaiinginn íslendingar verða ekki meðal stofnríkja alþjóða ranonasamn- ingsins um loftslags- breytingar, ef iðnaðar- ráðherra fær nokkru ráðið. Hann telur rétt að híða þar til ljóst sé hver verði afdrif til- lögu íslendinga um undanþágu vegna stórra verkefna. Vísinda- og tækninefnd loftslags- þingsins í Buenos Aires sam- þykkti í fyrradag að fresta ákvörðun um tillögu Islands um undanþágu fyrir losun gróður- húsalofttegunda frá stóriðjufyrir- tækjum, eins og greint var frá í Degi í gær. Nefndin ætlar að fjalla frekar um tillöguna en hana á að taka fyrir og afgreiða á næsta loftslagsþingi eftir ár. Ríki hafa frest til 15 .mars á næsta ári til að ger- ast stofnaðilar að rammasamningi Sameinuðu þjóð- anna um Ioftslags- breytingar sem gerður var í Kyoto í Japan í fyrra og gjarnan kenndur við borgina. Það er því ljóst að íslensk stjórnvöld verða að taka afstöðu til þess án þess að hafa nokkuð fast í hendi um afgreiðslu til- lögu þeirra. Finnur Ingólfsson, iðnaðarráðherra, telur einboðið að skrifa ekki undir samninginn fyrr en í fyrsta lagi eftir ár. „Eg held að menn séu nokkuð sammála um að skilningur á okkar sérstöðu hafi farið vaxandi á þessu ári sem liðið er síðan menn töluðu saman í Kyoto. Menn voru hins vegar ekki til- búnir til að ganga frá þessu og tillögunni þvf vísað aftur til tækninefndarinnar til skoðunar. Það er þess vegna að minnsta kosti ár f að menn fái niðurstöðu í málið. Ég tel að við getum ekki tek- ið ákvörðun um það hvort við skrif- um undir sam- komulagið eða ekki fyrr heldur en við vitum hver sú nið- urstaða verður. Þetta .ákvæði er okkur mjög mikil- vægt og þess vegna ekki eðlilegt að menn skrifi undir einhvern samning sem ekki er vitað hvernig kemur til með að líta út í endanlegri mynd,“ segir iðnað- arráðherra. Kannski seiima Finnur segir að íslendingar geti alltaf gerst aðilar að samningn- um á síðari stigum ef þeir telji hagsmunum sínum best borgið með því. Hann hefur ekki áhyggjur af því að það kunni að skaða ímynd Islands að vera ekki með frá upphafi. „Nei ég er ekkert hræddur við það. Það vita allir sem að þess- um málum koma hvar sem er í heiminum að það er verið að fjalla um sérstakt ákvæði sem snertir ísland mjög mikið. Og það að við undirritum ekki fyrir 15. mars segir ekkert til um það hvort við ætlum að gerast aðilar á seinni stigum eða ekki.“ Tilgangslaus sóun Náttúruverndarsamtök íslands skora á stjórnvöld að snúa sér nú að raunhæfum aðgerðum til að uppfylla Kyoto samninginn nú þegar Ijóst sé að undanþágutil- lagan hafi ekki fengist samþykkt. Raunhæfara sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Islandi og binda kolefni með skógrækt og landgræðslu. „Islenskum stjórnvöldum hefði mátt vera ljóst fyrir löngu síðan að frekari undanþágur til handa einni ríkustu þjóð heims, sem fælu í sér gríðarlega meðgjöf með stóriðju á íslandi, var borin von. Það má telja fullvíst að frek- ari sóun fjármuna og starfskrafta í þessa tillögu sé tilgangslaus," segir í ályktun Náttúruverndar- samtakanna. - VJ Finnur Ingólfsson, iðnaðar- ráðherra mgaherferð Vísir, félag skip- stjórnarmanna á Suðurnesjum, er að byrja auglýsinga- herferð sem er Iið- ur í fræðsluátaki í tilefni af ári hafsins. „LIU er að bæta sína ímynd og telja fólki trú um að hvítt sé svart og að kvótakerfið hafi verið að leiða af sér góða hluti, en við komumst að þveröfugri niðurstöðu. Þeirra hugmyndafræði er röng og vit- laus. Það er verið að rústa öllum fiskistofnum og í því felst engin hagræðing," segir Grétar Mar Jónsson formaður Vísis. Grétar Mar segir smærri út- gerðir hafa farið halloka fyrir stærri útgerðum í kvótabraskinu sem hafi keypt upp þær smærri. Lykilatriðið sé að taka upp nýja fiskveiðistefnu þar sem úthlutað sé ákveðnum dögum til sóknar en þó „þak“ á kvóta. — GG Grétar Mar Jónsson. Iðnskólinn í Hafnarfirði varð sjötíu ára í gær og var haldið upp á afmælið með flatbökuáti og tilheyrandi. 77/ stendur að bjóða einkaaðilum að taka þátt I starfi skólans I framtíðinni. mynd: e.ól Þrír meinatæknar endurréðu sig í gær en einn fór í sumarfrí. Nokkrir endurráðiiir Þrír meinatæknar af þeim tæp- lega 50 sem sögðu upp störfum um sl. mánaðamót hafa endur- ráðið sig hjá Ríkisspítulum. Þar af fór einn strax í sumarfrí. Guð- mundur G. Þórarinsson stjórn- arformaður Ríkisspítala segir að formlegum viðræðum við meinatækna sé lokið. Hann von- ar að sem flestir muni endur- ráða sig. 25% laimahækkiin Töluverður hiti var meðal meinatækna eftir fund þeirra í hádeginu í gær. Þá stóð styrinn um stöðu yfirmeinatæknis sem hafði verið auglýst. Meinatækn- ar óttuðust að fyrrverandi yfir- meinatæknir mundi kannski ekki fá stöðuna sína á ný og vildu fá úr því skorið. Sættir í því máli tókust síðan eftir fund með Vigdísi Magnúsdóttur for- stjóra Ríkisspítala. Hins vegar hafa Ríkisspítalar ekki hækkað Iaunatilboð sitt frá því fyrst. Af þeim sökum standa meina- tæknar frammi fyrir því að taka tilboði upp á 25% hækkun eða ekki. Það þýðir að taxtalaun margra þeirra mundu hækka í 130 til 150 þúsund krónur á mánuði. Félagsdómur Eftir fund meinatækna og for- ráðamanna Ríkisspítala í fyrra- kvöld þykir líklegt að ágreining- ur um túlkun kjarasamninga um afturvirkni launahækkana og röðun í launaflokka fari fyrir Fé- lagsdóm. Þá stóð einnig í meina- tæknum að útlit var fyrir að þeir fengju ekki að draga uppsagnir sínar til baka. -GRH ^SUBUUflV" *SUBUJflV' ^SUBUUflV*

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.