Dagur - 18.11.1998, Síða 4

Dagur - 18.11.1998, Síða 4
20-MIDVIKVDAGVR ia. NÓVEMBER 1998 IDggur MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU , Það mátti heyra að ýmsir hiógu dátt að því sem fram fór á sviðinu og er það svo sem engum of gott. Eg vil hins vegar láta í Ijós þá frómu ósk að þeir tveir hópar sem að sýningunni standa skili miklu betri verkum næst, - hvor I sínu lagi, “ segir Gunnar m.a. í leikdómi sínum. Bara hallærislegt Stoppleikhópurinn & Hermóður og Háð- vör: VÍRUS. Höfundar: Armann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri: Gunnar Helgason. Leikmynd: Magnús Sigurðarson. Búningar: María Ólafsdóttir. Ljós: Kjartan Þórisson. Frumsýnt f Hafnarfjarðarleikhúsinu 11. nóv- ember. Oft hefur verið skemmtilegt á sýningum áhugaleikfélags- ins Hugleiks. Og líka hjá Hermóði og Háðvöru í Hafnarfj'arðaleikhúsinu. En þegar þessir aðilar leggja saman verður blandan ekki sem skyldi. Hinn frísklegi og heilsteypti svipur sem hefur ríkt í Hafnarljarðar- Ieikhúsinu snýst upp í gegndarlausan ofleik, tilgerð og hávaða. Hinn elskulegi amatörlegi hallærisblær sem hefur gefið sýningum Hugleiks þokka snýst upp í klúran klunnaskap. Utkoman verður bara hallærisleg hvernig sem á er litið: Verk- ið sjálft, leikstjórnin, leikurinn. Flatneskja Þannig var reynsla mín af Vírusi, tölvuskop- Ieik sem svo hefur verið nefndur. Það mátti svo sem búast við að leikskáld tækju tölvu- heiminn upp á sína arma og hann er sem sagt viðfangsefnið í þessum farsa. Hjá tölvu- fyrirtækinu Hugdirfsku er búið að hanna forrit sem á að sigla fram hjá vanda ártalsins 2000. Hjá fyrirtæki þessu vinna nokkrar manneskjur sem allar nema ein reynast í hæsta máta svikular og ómerkilegar. Sá eini sem er ærlegur (reyndar ótrúlega vitlaus framan af) tekur að lokum málin í sínar hendur og rústar öllu kerfinu, vopnaður vírusi sem smyglað hafði verið inn á verk- stæðið. Og hérna er vitanlega framhjáhald af ýmsu tagi, margháttaður misskilningur og annað sem til heyrir í svona Ieik. Fyrst um texta höfundanna. Hann er mest- an part flatneskja og byggist mjög á aula- bröndurum (kúk og piss) og útúrsnúningum sem kannski mætti brosa að einu sinni, en höfundar hafa ekki annað ráð en kreista æ ofan í æ. Einna verst kemur þetta niður á hlutverki hins atvinnulausa flagara Björns Pét- urssonar (Dofri Hermannsson). Hlutverk kvennanna eru alveg merglaus og viðleitni Erlu Ruthar Harðardóttur (sem leikur Stellu) og þó einkum Katrínar Þorkelsdóttur (sem leikur Erlu) til að gefa þeim eitthvert líf og skemmtilegheit var átakanleg lengst af. Hér kemur það lfka til að leikstjómin er alveg í molum og misheppnuð. Það er að vísu rétt að nefna að þetta er fyrsta leikstjómarverkefni Gunnars Helgasonar. En ég held að hann ætti fremur að halda áfram að leika, þar hefur hann margt vel gert undir stjóm smekkvísra leikstjóra. Sá ofleikur, handapat og hávaði sem sýningin einkennist af er ekki gæfuleg byrjun leikstjómarferils og vona ég að nafni minn at- hugi sinn gang vel fyrir næsta viðfangsefni af þessum toga. Uppskrúfaður leikstíll Af öðrum leikendum mæðir mest á Eggert Kaaber sem er raunar aðalmaður leiksins. Það hlutverk er svo sem ekki stórbrotið frá hendi höfunda en Eggert tókst þó langhelst að gefa hlutverki sfnu heillegt og mann- eskjulegt svipmót. Hinrik Ólafsson var utan garna sem Jón Þór kennari. Björk Jakobs- dóttir leikur hið slæga og vergjarna kvendi sem heitir Vera (hvað annað?) og Jón St. Kristjánsson er fígúran Agnar sem er þó for- stjóri fyrirtækisins. Leikstíll beggja er upp- skrúfaður en Jón gat þó búið til eitthvað sem mátti kallast karakter, - hann er í rauninni góður skopleikari. Það mátti heyra að ýmsir hlógu dátt að því sem fram fór á sviðinu og er það svo sem engum of gott. Eg vil hins vegar Iáta í Ijós þá frómu ósk að þeír tveir hópar sem að sýn- ingunni standa skili miklu betri verkum næst, - hvor í sínu lagi. BÆKUR Ævintýrasaga Norðurljós er nafnið á nýjustu bók Einars Kára- sonar, sem komin er út hjá Máli og menningu. Þetta er ævintýrasaga þar sem brugðið er upp ógnvekj- andi myndum af einsemd, ást og hetjuskap á myrkum tímum Islandssögunnar. Sagan gerist á átjándu öld og segir frá drengnum Svarti, sem er sonur dugandi bónda á Vesturlandi. Þótt hann fæðist á öld stórubólu og móðuharð- inda eru þeir hörmungarat- burðir ýmist liðnir eða ókomnir og ríkir góðæri í landinu. En óvandaðir menn vaða uppi, studdir af broguðu réttarfari og þegar Svartur er enn barn að aldri sundra þessir harðdrægu valdsmenn heimili hans og flæma bróður hans í útlegð. Upp frá því er ævi hans mörkuð þrotlausri leit að réttlæti sem hvergi finnst og hefnd fyrir misgjörðir. Norðurljós er 269 blaðsíður og kostar 3.980 krónur. Söguefni úr Sturlungu Thor Vilhjálms- J -------- son hefur samið skáldsögu sem styðst við frá- sagnir úr Sturl- ungu og er heiti hennar Morgun- þula í stráum. Sturla Sighvats- son er aðalper- I ____ sóna sögunnar sem fjallar um aðdraganda og eftirmála þess að hann fór suður til Rómar til að fá aflausn páfa og var leiddur þar milli höfuð- kirkna, eins og gjörla er sagt frá í Sturlungu. Sturla Sighvatsson var ris- mikil persóna sem ætlaði sér að ná æðstu völdum á Islandi, og hafði hann flest til að bera sem voldugan höfðingja má prýða. Bókin er hugvekja um vald- ið og drambið, ofbeldið og kærleikann og uppgjör við þá hetjuhugsjón, sem sumir Is- lendingar halda sig hafa tekið í arf. Mál og menning gefur bók- ina út, en hún er 290 blaðsíð- ur að lengd og kostar 3.980 krónur. li.lon Beðið eftir Beckett Sunnudagskvöldið í Iðnó sýndi að þetta fornfræga hús var ekki gert upp í sigurhæðir til að vera aðeins skrípakassi eins og óttast var í ákveðnum hlutum menn- ingarheimsins þegar einkarekstri var hleypt í það. Hátt upp í full- an sal áf fólki mátti sjá þegar ljósin dofnuðu á þrjá einþátt- unga eftir Samuel Beckett. Þor- steinn J. Vilhjálmsson hafði veg og vanda að og fékk valda leikara til að hjálpa sér: Róbert Am- finnsson, Astu Arnardóttur og Maríu Ellingsen, sem öll skiluðu sínu og meira en það. Eintal Þættirnir eru byggðir upp sem eintal sál- ar og fráleitt af því tagi sem fær fólk til að beijast til síðasta blóð- dropa í biðröð eftir miða. Verkin reyna á þolrif meðal værukærra hlustenda og maður þarf að sitja með bísperrta athygli til að vera samræðuhæfur um þættina á eft- ir; ekki hjálpa leikrænir tilburðir í tilviki sem þessu, tvisvar sátu Ieikararnir á stól og hlustuðu á sjálfa sig af segulbandi, milliþátt- urinn var aðeins hársbreidd líf- Iegri. Vei þeim manni sem ekki viður- kennir að hann hafi dottið út stöku sinnum. Gildi Svona dagskrá er mikilvæg í sjálfu sér og Iðnó á einmitt að tryggja að framboð svona kvölda verði jafnt og þétt. Sjálf- sprottið áhugafólk fær þarna frekar áhættulítið (vonandi) tækifæri til að setja upp sýningar sem auka fiölbreytni í menningarlífi. Það er nefnilega ágætt að láta reyna á sig á annan hátt en Sjón- varpið bauð uppá sama kvöld í öðrum hluta Svannasöngs Hlínar Agnarsdóttur. Ef Beckett kvöldið hefði verið sent út í sjónvarpi hefði Þjóðarsálin truflast. En í Iðnó fékk það hæfilega umgjörð fyrir hæfilega marga sem eru alveg tilbúnir að Iáta toga sig og teygja hingað og þangað. Ut fyrir hin stöðluðu mörk. Megi framtakið verða sem flestum hvatning til að búa til eitthvað ólíklegt til vinsælda. MENNINGAR VAKTIN Þorsteinn J. Vilhjálmsson: setti upp einþátt- unga Becketts.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.