Dagur - 21.11.1998, Page 2

Dagur - 21.11.1998, Page 2
2 — LAUGARDAGUR 2 1 ■ NÓVEMBER 1998 FRÉTTIR Da^iíir Hæstiréttur hefur nú ákveðið að seinagangur Skattmanns geti ekki leitt til þess að álögð gjöld falli niður. Skattmann fær sitt þótt hann sé svifaseinn. Skattmaim má ásér Nokkuð málastapp varð, sem leiddi til þess að yfirskattanefnd úrskurðaði ekki fyrr en í október 1996 - eftir tveggja ára meðferð. Lækkaði nefndin viðbót- arálagninguna nokkuð. Þess ber að geta að Friðrik var af dómstólunum talinn hafa tafið málið frá sinni hendi hjá yfirskattanefnd. Frá upphafi málsins til úrskurðar yf- irskattanefndar liðu fimm ár (og síðan Iiðu tvö ár í víðbót fyrir dómstólunum) en það dugði ekki til að ónýta álagn- inguna. Hvað segir Steinþór Haralds- son, lögfræðingur hjá ríkisskattstjóra, um niðurstöðuna? „Hér er alltaf verið að vinna að því að stytta afgreiðslutím- ann og er þessi niðurstaða ekki síst ít- rekun á því markmiði að hafa máls- meðferðina í senn jafn hraða og jafn örugga og hægt er. Starfsaðstaða emb- ættisins hefur lagast töluvert, en mannaskipti eru tíð og það er jafn- framt töluvert álag vegna mikils mála- fjölda hjá okkur. Málin þróast í rétta átt, en sum mál taka því miður of lang- an tíma.“ — FÞG FRÉTTA VIÐTALIÐ vera seiirn Hæstiréttur hefur feHt sinn dóm: Maður losnar ekki við álagningu þótt Skattmann sé áram sam- an að skoða mál hans. Mikið álag hjá ríkisskatt- stjóra, en áhersla lögð á öryggi. Langur armur skattyfirvalda er stund- um lengi með krumlurnar á öxlum þeirra skattgreiðenda sem lenda í út- tekt og endurálagningu; afgreiðsla mála getur teygst mánuðum saman og stundum nokkur ár. Hæstiréttur hefur nú ákveðið að seinagangur Skatt- manns geti ekki leitt til þess að álögð gjöld falli niður. Skattmann fær sitt þótt hann sé svifaseinn. I málinu Friðrik Rúnar Friðriksson gegn íslenska ríkinu vildi Friðrik að viðbótarálagning á hann yrði felld nið- ur vegna seinagangs. Dómararnir voru sammála um „verulegan misbrest" á málshraða skattyfirvalda, þau hefðu farið langt út fyrir lögmælta fresti. Friðrik naut þess aðeins að litlu leyti; þurfti ekki að greiða skattyfirvöldum málskostnað. Þrír dómarar af fimm ákváðu þetta, en hinir tveir vildu að Friðrik greiddi Skattmann 400 þúsund króna málskostnað. I stöku skattsvika- málum hefur það gerst að dómarar hafa tekið tillit til seinagangs skattyfir- valda við ákvörðun refsingar. Fimm ár frá upphafi til úrskurðar Ferill máls Friðriks: Ríkisskattstjóri hóf athugun á fjármálum hans síðari hluta árs 1991. Rúmu ári síðar fór málið til skattrannsóknarstjóra, sem lauk sínum þætti í nóvember 1993. Fimm mánuð- um síðar kom endurákvörðun skatt- anna - viðbótarálagning nam nokkrum milljónum króna. Þessu var mótmælt í maí 1994 og hafnaði ríkisskattstjóri þeim mótmælum í september. I októ- ber var málið kært til yfirskattanefnd- ar, sem lögum samkvæmt á að úr- skurða á innan við þremur mánuðum. Fullyrt er í heita pottinum að skammt sé í niðurstöðu um hvemig staðið verði að fram- boðsmálum samíylkingarinnar. Og þá jafnframt að vaxandi líkur séu á því að gengið verði til próf- kjörs í fjóruin kjördæmmn fljót- lcga upp úr áramótunum. Þetta á össur Skarp- við um stóru kjördæmin syðra, héðinsson. Reykjavík og Reykjanes, en ein- nig er talið mjög líklegt að prófkjör fari fram í háðum kjördæmunum á Norðurlandi. Mesta at- hygli mun væntanlega vekja baráttan í höfuð- borginni, ekki síst ef Margrét Frímannsdóttir gerir alvöru úr því að hella-sér út í prófkjörsbar- áttuna þar og keppa um fyrsta sætið við Össur Skarphéðinsson... Hin póltíska skák berst víða um taflborðið. Eftir að umræðan um að Svavar Gestsson færi í Suður- landskjördæmi fór af stað, hefur heldur þótt á brattan að sækja fyrir Áma Gunnarsson forstjóra Náttúralækningahælisins um að fara þar fram fyrir Samfylk- Gunnarsson. inguna. Nú heyrist að kratar á Norðurlandi eystra hafi mikinn áhuga á að fá Áma í framboðslaginn fyrir norð- an, en Ámi var í eina tlð þingmaður Norður- lands eystra... Því er líka haldið fram í heita pottinum að stutt sé í að gengið verði endanlega frá kosninga- stefnuskrá samfylkingarhmar. MiMl vimia hafi verið lögð í að velja út úr málefnasMánni frá þvi í haust það sem mestu máli sMpti á komandi kj örtímabili, og svo í að reikna út hvemig eigi að fjármagna kosningaloforðin. Að þcssu sinni verði allir útreikningar á hreinu. Árni Heiðar Jón Hannesson eðlisfrædingur Þaðerhætta á að íslenskt mál dagi uppi efekki tékstað koma því inn íþær tungu- tæknilausnir sem ríkjandi eru á tölvumarkaðnum. íslenskan og tungutækni verða rædd á ráðstefnu Skýrslutæknifélags- ins í byrjun desember. Um Hf og dauða að tefla fyrir íslenskuna - Hvað er tungutækni? „Tungutækni snýst um að koma málgetu inn í upplýsingakerfi, hugbúnað og vélbún- að. Stafsetningar- og málfræðileiðréttingar eru dæmi um þetta, einnig vélrænar þýðing- ar og búnaður sem breytir tali í texta og texta í tal og svo eitthvað sé nefnt.“ - Hver er staða íslenskunnar í þessum efnum? „Staða íslenskunnar er ekki góð í dag. Lít- ið málsvæði eins og íslenskan mun ekki lifa af nema með staðföstum vilja talenda máls- ins. Við þurfum að kaupa íslenskuna inn í þessar lausnir. Við þurfum að vinna ákveð- na vinnu sjálf og hugsanlega kaupa vinnu af öðrum til að koma íslenskunni þarna inn. Stærstu málsvæðín fá þessar lausnir vegna þess að það er markaður fyrir það. Þeir sem eiga tæknina munu einfaldlega taka stóru málin upp.“ - Er þetta þá spuming um að rikisvald- ið þutfi að kosta ákveðnum peningum til þess að koma málinu inn í þetta tölvuum- hvetfi? „Það gerist ekki öðruvísi en að Ijármunir komi frá íslendingum sjálfum til þess að bera kostnaðinn af ýmsu þróunarstarfi. Það er ljóst að stjórnvöld verða að koma að þessu máli. Það má einnig hugsa sér að fyr- irtæki leggðu fé í þetta en það væri þá ekki á arðsemisforsendum. Þetta er ekki þannig dæmi.“ - Skiptir það miklu máli fyrir íslend- inga að koma málinu inn í tölvumar? „Islenskan hverfur einfaldlega ef það verður ekki gert. Málið verður ónothæft nema sem eitthvert hátíðamál. OIl þjónusta sem við munum hafa aðgang að í náinni framtíð mun byggja mikið á málgetu. Fjar- stýringar detta upp yfir og talskipanir koma í staðinn, slíkar lausnir verða í hraðbönkum, bílum, sjónvörpum, símum. Raftækjabún- aður mun nýta einfaldar talskipanir og þetta er spurning um hvort við viíjum nota ís- lensku eða ekki. Talgreining er notuð í tölv- um og það eru komnar á markað lausnir fyr- ir ensku þar sem hægt er að lesa inn og setja upp bréf með talskipunum í staðinn fyrir að nota lyklaborð. Það er allt í húfi. Ef við ætl- um að tala íslensku á næstu öld þá verðum við að koma málinu þarna inn.“ - Ertu bjartsýnn á að það takist. „Það er að rofa til. Menntamálaráðherra hefur tekið mjög eindregna afstöðu með því að íslendingar verði að leggja í mikla vinnu og allnokkurn kostnað vegna tungutækni fyrir íslensku og íslenskan megi ekki verða utangarðs í þessum lausnum. Eg er búinn að vera að nuða í mönnum útaf þessu í þrjú ár og er því mjög kátur með að vera kominn með liðsmann eins og Björn Bjarnason. Við erum að tala um nokkur hundruð milljónir. Á næstu 2 árum þyrftum við sennilega að leggja um það bil 400 milljón- ir í þetta.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.