Dagur - 21.11.1998, Síða 9
8- LAVGARDAGUR 21. OKTÓBER 1998
LAVGARDAGUR 21. OKTÓBER 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
L
Háspeima á flokksþiiigi
SIGUKDÓR
SIGURDÖRS-
SON
SKRIFAR
Varaío rma ims slag ur
inn á flokksþingi
Fra ms ókiiaríl okksins,
sem liófst í gær, er í al-
gleymingi og loft lævi-
blandið.
Ofugt við aðra stjórnmálaflokka
hér á landi hafa afar sjaldan verið
hörð átök, hvað þá barátta eins og
hún getur orðið grimmust í pólit-
ík, um formennsku og varafor-
mennsku í Framsóknarflokknum.
Vanalega hefur verið búið að
undirbúa allt þegar kemur að
flokksþinginu. Þannig var það
þegar Eysteinn Jónsson tók við
formennskunni af Hermanni
Jónassyni, þegar Olafur Jóhann-
esson tók við af Eysteini, Stein-
grímur Hermannsson af Ólafi og
Halldór Asgrímsson af Stein-
grími. Og varaformennskan varð
aldrei að átakamáli.
Það er kannski til marks um
nýja og breytta tíma, að nú þegar
Guðmundur Bjarnason lætur af
varaformennsku í flokknum,
takast tveir ungir stjórnmála-
menn á um varaformennskuna í
flokknum og af mikilli hörku.
Þetta eru þau Finnur Ingólfsson
44 ára og Siv Friðleifsdóttir 36
ára. Undanfarnar vikur hafa
stuðningsmenn þeirra beggja
unnið grimmt að atkvæðasmölun
meðal flokksþingsfulltrúa.
Maður fann það þegar flokks-
þing Framsóknarflokksins hófst í
gærmorgun á Hótel Sögu að and-
rúmsloftið var rafmagnað. Það
var svo mikil spenna í Ioftinu
vegna þessa, að segja má að stór
hluti þingstarfa hafi farið inn um
annað eyrað og út um hitt hjá
flestum þingfulltrúum. I öllum
hornum og hliðarsölum voru tveir
eða fleiri þingfulltrúar að stinga
saman neljum, „að plotta," eins
og það er kallað á máli stjórn-
málamanna. Og þetta „plott“ á
eftir að aukast í dag og fyrrihluta
dags á morgun en þá fer kosning-
in fram. Hægt er að kjósa „utan-
kjörstaða'1 í dag fyrir þá þingfull-
trúa sem snúa heim í kvöld eða
snemma á morgun.
ímynd eða innihald
Eg hef enn engan hitt sem spáir
Siv Friðleifsdóttur sigri. Fyrir svo
sem viku síðan töldu flestir sem
rætt var við um varaformanns-
kjörið að Finnur myndi sigra,
hljóta 60% atkvæða en Siv 40%.
Þeir voru Iíka til sem töldu að
Finnur myndi sigra með meiri
mun. Eftir að hafa rætt við tugi
þingfulltrúa á flokksþinginu í gær
Kópavogsbær
fe I. ? Í?: ' X- I I'
f' 'A:Ƨ
Þessi tvö bítast um varaformannsstól Framsóknarflokksins, Siv Friðleifsdóttir og Finnur Ingólfsson. Kosið verður á morgun og er loft lævi blandið. Stuðningsmenn beggja hafa undanfarnar vikur unnið
ötullega að atkvæðasmölun meðal þingfuiitrúa Framsóknarflokksins.
Lausar stöður
við leikskóla
Arnarsmári v/Arnarsmára, sími: 564 5380
Staða matráðs.
Arnarsmári er nýr leikskóli í Smárahverfi. f starfinu er lögð áhersla
á frumkvæði, vináttu og gleði.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Brynja Björk Kristjánsdóttir.
Marbakki v/Marbakkabraut, sími 564 1112
Staða leikskólakennara með deildarstjórn.
Á Marbakka er unnið eftir hugmyndafræði sem kennd er við
Reggio Emilía, þar sem áhersla er lögð á skapandi starf og skap-
andi hugsun.
Upplýsingar gefa leikskólastjórar, Svana Kristinsdóttir og Þórdís
G. Magnúsdóttir.
Dalur v/Funalind, sími: 554 5740.
100% staða leikskólakennara
Dalur er nýr leikskóli í Lindahverfi. ( starfinu er lögð sérstök áher-
sla á samskipti og unnið með hugtökin virðingu, ábyrgð og sjálf-
stæði.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sóley Gyða Jörundsdóttir.
Fagrabrekka v/Fögrubrekku, sími 554 2560.
100% staða leikskólakennara og afleysingastaða
í Fögrubrekku er m.a. unnið eftir valkerfi sem myndar ramma um
frjálsa leikinn.
Ennfremur veitir leikskólafulltrúi, Sesselja Hauksdóttir, upplýsingar
í síma 554 1988.
Vakin er athygli á því að fáist ekki leikskólakennarar í stöðurnar
verðar ráðnir aðrir með uppeldismenntun eða leiðbeinendur, ófag-
lærðir starfsmenn í stöðurnar.
Starfsmannastjóri.
er Ijóst að þetta hefur breyst. Að
vísu spá enn allir Finni sigri en
flestir telja nú að munurinn verði
lítill. Sumir sögðu að örfá prósent
myndu skilja þau að, aðrir sögðu
að Finnur myndi sigra 55:45.
Mér var bent á af mönnum sem
þekkja vel til innan Framsóknar-
flokksins að Finnur hafi unnið
mun skipulegar að atkvæðasmöl-
un en Siv að undanförnu. Hann
hafi virkjað her manns til að
vinna fyrir sig á meðan Siv hafi að
mestu unnið ein að sínu máli.
Þingfulltrúar bentu margir á að
þegar valið stæði á milli Sivjar og
Finns stæði valið í raun á milli
ímyndar og innihalds. Þeir bentu
á að Siv væri ung og hefði aðeins
setið rúm þrjú á á Alþingi. Hún
væri glæsileg kona og efnilegur
pólitíkus en hún væri sem vara-
formannskandidat fyrst og fremst
ímynd og í raun góð ímynd. Hún
þyrfti ekki að standa ábyrg
frammi fyrir flokksþinginu eða
kjósendum og leggja verk sín í
dóm þeirra eins og Finnur Ing-
ólfsson verður að gera sem ráð-
herra.
Finnur hefur mun meiri póli-
tíska reynslu en Siv. Hann hefur
verið ráðherra í tveimur mjög erf-
iðum ráðuneytum þetta kjörtíma-
bil. Verk hans eru vissulega um-
deild hjá þjóðinni en eigi að síður
hefur hann ekki verið að fram-
kvæma neitt annað en þá stefnu
sem Framsóknarflokkurinn hefur
mótað á þeim sviðum sem ráð-
herradómur hans nær yfir. Menn
segja að hann sé því ekki ímynd
heldur innihald. Ef flokksþingið
hafnar honum sem varafor-
manni, þá sé það í raun að hafna
mótaðri stefnu Framsóknar-
flokksins í, virkjunarmálum, stór-
iðjumálum og viðskiptamálum,
málaflokkunum sem Finnur hef-
ur stýrt. Það væri því að vissu
marki höfnun á æðstu stjórn
flokksins, þar á meðal sjálfum
formanninum sem hefur mest
allra manna mótað stefnu flokks-
ins.
Og það gæti gerst hjá sumum
þingfulltrúum. Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi formaður
flokksins, gagnrýndi núverandi
forystu á dögunum. Hann sagði
flokkinn hafa færst til hægri og
væri hann orðinn hallur undir
frjálshyggjuna en félagshyggjan á
undanhaldi. Steingrimur er alls
ekki einn um þessa skoðun í
Framsóknarflokknum. Þeir eru
margir sem telja sig til Hnstri við
núverandi forystu og þeir geta
hugsanlega gefið forystunni gula
spjaldið með því að kjósa Finn
ekki. Þetta viðurkenndu margir
stuðningsmanna Finns í samtali
við Dag og höfðu af þessu
nokkurn beyg.
Fiiinur leggur allt imdir
Það er almenn skoðun meðal
flokksþingsfulltrúa að ef Siv nær
ekki kjöri en fær meira en 20%
atkvæða geti hún vel við unað.
Hún hafi í raun engu tapað,
standi upprétt eftir og geti reynt
aftur seinna. Hennar tími til að
krefjast eins af æðstu embættum
flokksins sé tæpast kominn. Hins
vegar eru allir sammála um að
það hafi verið snjallt hjá henni,
upp á framtíðina að gera, að gefa
kost á sér. Með því minni hún á
sig og framkvæmi liðskönnun. Ef
hún sigri sé það einstakt afrek
vegna ungs aldurs hennar og að
hún er að glíma við ráðherra.
Sif Friðleifsdóttir og hennar
stuðningsfólk bendir á að það sé
betri ímynd á forystu flokksins að
Halldór Asgrímsson væri með
unga konu sem varaformann sér
við hlið, heldur en að tveir „kall-
ar“ eins og þeir segja, leiði flokk-
inn. Stuðningsfólk hennar bendir
líka á að þar sem hún sé ung en
þó með all mikla reynslu í pólitík
muni hún koma með ferskan blæ
inn í forystu flokksins.
Fyrir Finn Ingólfsson, og raun-
ar forystu flokksins líka, skiptir
þetta allt miklu meira máli.
Nokkrir þingfulltrúar fullyrtu að
ef Finnur nær ekki kjöri sem
varaformaður muni hann „geng-
isfalla" eins og þeir komust að
orði. Þeir fullyrtu að ef Finnur
næði ekki kjöri væri annar þing-
manna flokksins í Reykjavík þar
með fallinn. Hann leggi í raun
pólitíska framtíð sína undir.
Margir sögðust ætla að kjósa
Finn vegna þess að hann hafi ver-
ið að framkvæma atvinnustefnu,
viðskiptastefnu og virkjanastefnu
Framsóknarflokksins. Það sé ver-
ið að dæma hana með því að
kjósa hann ekki varaformann. Þeir
hinir sömu sögðu undir öðrum
kringumstæðum hefðu getað
hugsað sér að kjósa Siv.
Menn benda líka á að í æðstu
stjórn flokksins séu nú 4 konur og
2 karlar. Ef Siv verði kjörin sé
Halldór Asgrímsson eini karlmað-
urinn í æðstu stjórn flokksins. Það
sé varla jafnvægi í því. Loks benda
stuðningsmenn Finns á að hann
hafi staðið sig vel, bæði sem þing-
maður og ráðherra. Hinar
hatrömu árásir stjórnarandstæð-
inga á hann sýni það hvað best.
Hann sé einfaldlega hæfasti mað-
urinn sem flokkurinn á í varafor-
mannsembættið og að hann sé
hæfasti arftaki Halldórs í for-
mennskuna. Svona tala stuðning-
menn Finns.
Stenunnmgsalda
Enda þótt menn spái almennt
Finni sigri, þótt hann verði ef til
vill naumur, Hðurkenndu allir að
ákveðin stemmning gæti myndast
á flokksþinginu sem enginn sæi
nú fyrir og engin gæti sagt til um
hvert myndi stefna. Konur sem
rætt var við vildu ekki kannast við
að í gangi væri neitt sem héti
„kvennabandalag“ til stuðnings
Siv. Þær sögðu að vísu að yngri
konur myndu eflaust flestar styðja
hana.
Það er í raun þekkt fyrirbæri
þegar stemmningsöldur rísa á
flokksþingum stjórnmálaflokka
eða líkum samkomum. Þegar slíkt
gerist slitna öll flokksbönd eða
ákvarðanir sem áður hafi verið
samið um. Ef þetta gerist á flokks-
þingi Framsóknarflokksins getur
allt gerst.
Þora ekki að spá
En hvað segja frambjóðendurnir
sjálfir um stöðuna?
„Eg tel afar erfitt að meta stöð-
una í varaformannskjörinu. Það er
stór hópur fólks sem hefur ekkert
gefið upp hvort okkar það ætlar að
kjósa og því þori ég engu að spá.
Það eru tveir góðir einstaklingar
að bjóða sig fram og það verður án
vafa erfitt fyrir marga að velja,"
sagði Siv Friðleifsdóttir í samtali
við Dag á flokksþinginu í gær.
Hún var spurð hvort hún liti á
það sem höfnun á henni til for-
ystustarfa ef hún næði ekki kjöri?
„Við viljum bæði ná þessu emb-
ætti og teljum okkur bæði vera
mjög hæfa fulltrúa flokksins sem
varaformenn. En þegar tveir góðir
einstaklingar bjóða sig fram þá
verður annar hvor undir, hjá því
verður ekki komist en það er í sjál-
fu sér ekki höfnun," sagði Siv
Friðleifsdóttir.
„Eg met stöðuna þannig að hún
sé mjög tvísýn og að um hörku
keppni verði að ræða. Þess vegna
þori ég engu að spá, við verðum
bara að bíða og sjá hvað setur,“
sagði Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra í gær.
Réttmdaskrá
þegnaima
Framsóknarflokkur-
iim vill veita næstu
ríkisstjóm forystu og
stefnir að því að fá til
þess styrk í kosning-
imuin í vor.
„Markmið allra stjórnmálaflokka
er að ná sterkri stöðu, hafa áhrif
og veita ríkisstjórn forystu. Það
verður markmið okkar framsókn-
armanna héðan í frá sem hingað
til. I samræmi við þetta stefnir
Framsóknarflokkurinn að því að
fá styrk til að veita nýrri ríkis-
stjórn forystu," sagði Halldór As-
grímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, í ræðu sinni á flokks-
þinginu sem sett var í gær.
YÍirskrift flokksþingsins er
„Vertu með á miðjunni" og með
því er verið að vísa til þeirra
breytinga sem orðið hafi á pólit-
ísku landslagi á undanförnum
árum. „Flokkar sem starfað hafa
til hægri og vinstri leita nú inn á
miðju stjórnmálanna. I því felst
að sjálfsögðu mikilvæg viður-
kenning á grundvallarsjónarmið-
um framsóknarmanna. En í
þessu felst einnig töluverð áhæt-
ta því ekki er hægt að treysta fyr-
irheitum stjórnmálamanna og
flokka þegar verkin tala öðru
máli,“ sagði Halldór ræðu sinni í
gær.
Arðiirn í framtíðiimi
Fyrir flokksþinginu liggja drög að
ályktun um sjávarútvegsmál þar
sem lagt er til að hluta af kvóta-
aukningu næstu ára verði haldið
eftir og ríkisvaldið leigi hann á
kvótaþingi. Einnig er talað um að
skattleggja hagnað af sölu veiði-
heimilda þegar útgerðarmenn
hætta í greininni. Búist er \dð að
tekist verði á um þessa ályktun á
þinginu og margir biðu spenntir
eftir að heyra hver væri afstaða
formannsins. Það kom hins veg-
ar ekki skýrt fram í ræðu hans.
Halldór sagði m.a.: „Að mínu
mati þurfum við fyrst og fremst
að beina athyglinni að þeim arði
sem við njótum síðar þegar við
höfum byggt fiskistofnana enn
betur upp. Eg sagði í ræðu á
flokksþingi fyrir 2 árum að það
kæmi til álita að taka hluta af
auknum veiðiheimildum og selja
þær á þeim sama markaði og
úvegsmenn versla á. Auðvitað
kemur líka til greina að úthluta
einhverjum hluta af auknum
aflaheimildum í framtíðinni með
öðrum hætti en nú er en við
megum aldrei fórna þeim árangri
sem við höfum náð og rústa
grundvöll byggðanna úti um allt
land.“
Græn framsóknarviðhorf
Það eru einnig skiptar skoðanir
meðal framsóknarmanna um hve
langt eigi að ganga í virkjanamál-
um. Halldór lagði áherslu á að
atvinnuppbygging og umhverfis-
vernd væru ekki andstæður.
„Framsóknarmenn hafa ævinlega
haldið því fram að samhengi sé
milli æskilegrar nýtingar auð-
linda og skynsamlegrar náttúru-
verndar. Græn viðhorf eru Fram-
sóknarviðhorf. Þennan arf viljum
\ið vernda og virða. En búseta í
landinu og batnandi hagur al-
þýðunnar byggist á skynsamlegri
nýtingu auðlindanna. Þessi sam-
eiginlegu sjónarmið, þessi heild-
arsýn, eiga að ráða ferðinni í
orkumálum og iðnþróun."
Næsta flokksþing Framsóknar-
manna verður árið 2000 og Hall-
dóri varð tíðrætt um viðfangsefni
næstu aldar. Þar nefndi hann
m.a. að upplýsingabyltingin og
þróun þekkingarsamfélagsins
kæmi til með að móta efnhag og
samkeppnisstöðu þjóða og
fræðslu og menntamálin yrðu því
að vera í öndvegi á næstu árum.
Hann sagði einnig að baráttan
við eiturlyfjavandann hlyti að
verða forgangsverk, ekki bara hér
á landi heldur í nánu samstarfi
þjóða heirns." Við stofnuðum
varnarbandalag til að berjast
gegn einræði og hnignun. Varn-
arbandalag framtíðarinnar þarf í
auknum mæli að beita sér gegn
hryðjuverkum, glæpum og ræn-
ingjum æskunnar sem eiturlyfja-
salarnir eru,“ sagði Halldór.
Vcrkefni á nýrri öld
„Það er verðugt viðfangsefni
nýrrar aldar að ráðast í að semja
sérstaka „Réttindaskrá þjóðfé-
Iagsþegnanna.“ Þar væri reynt að
skilgreina hvað það er sem þegn-
ar Iandsins eiga kröfu á af hálfu
almannavaldsins, bæði ríkis og
sveitarfélaga og stofnanna
þeirra. Þetta er vandasamt verk-
efni, en það er hlutverk stjórn-
málamannanna í víðtæku sam-
ráði við almannasamtök að skil-
greina sem best rétt einstaklinga
og fjölskyldna við ólíkar aðstæð-
ur í þjóðfélaginu,“ sagði Halldór.
Hann vék einnig að evrópsku
samstarfi og sagði þá: „Til að
taka af allan vafa er ég ekki þeirr-
ar skoðunar að Islendingar eigi
nú að sækja um aðild að E\TÓpu-
sambandinu." Hins vegar er
„ekkert því til fyrirstöðu að \ið
Iátum fara fram viðamikla athug-
un á því með hverjum hætti slfkt
gæti gerst og hvað væri viðun-
andi fyrir Islendinga. Slík könn-
un er nauðsynlegur þáttur í
metnaðarfullu starfi Islands við
að meta framtíðarmöguleika
þjóðarinnar. Asættanleg lausn af
okkar hálfu gæti falist í því að
um hafsvæðin í Norður-Atlants-
hafi verði settar sérstakar reglur
og sérstök stefna mótuð sem
væri óháð sameiginlegri yfir-
stjórn Evrópusambandsins,"
sagði formaður Framsóknar-
flokksins í ræðu sinni.