Dagur - 21.11.1998, Qupperneq 10

Dagur - 21.11.1998, Qupperneq 10
10 - LAVGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 Karl eða kona! Ert þú að missa hárið? APOLLO hefur þróað frábæra meðferð við hárlosi. Megaderm meðferðin dregur úr hárlosi eða stöðvar það alveg. Það hafa verið reyndar margar aðferðir, með misjöfnum árangri. En með þessari meðferð næst sýnilegur árangur eftir aðeins lmánuð. Okeypis ráðgjöf. Fullur trúnaður. Án skuldbindinga. APOLLO Hárstúdíó Hringbraut 119 - Sími 552 2099 Kópavogsbær Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við fjöl- skyldudeild Félagsmálastofnunar Kópavogs. Umsóknum á að skila á sérstökum eyðublöðum, sem fást á skrifstofu Félagsmálastofnunar við Fannborg 4. Staða deildarfélagsráðgjafa í fjölskyldudeild Um er að ræða afleysingarstöðu í veikinda- og fæðingarorlofi. Verksvið er barnavernd og felst í vinnu og meðferð barna- verndarmála og stuðningi við börn og fjölskyldur. Starfsmaður ber ábyrgð á skipulagningu og samhæfingu úrræða innan deildarinnar. Krafist er félagsráðgjafamenntunar og hið minnsta 3ja ára starfsreynslu í málaflokknum. Laun eru skv. launasamningi Stéttarfélags íslenskra félagsráð- gjafa og Launanefndar sveitarfélaga eða kjarasamningi Starfsmannafélags Kópavogs og Kópavogsbæjar. Hálf staða félagsráðgjafa í fjölskyldudeild. Um er að ræða starf til frambúðar. Verksvið er vinnsla og meðferð barnaverndarmála, stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra auk samvinnu við aðra aðila, er koma að málefnum barna. Einnig önnur þau verkefni, sem starfsmanni kunna að verða falin. Krafist er félagsráðgjafamenntunar og reynsla af vinnu við barnaverndarmál æskileg. Laun eru skv. launasamningi Stéttarfélags íslenskra félagsráð- gjafa og Launanefndar sveitarfélaga eða kjarasamningi Starfsmannafélags Kópavogs og Kópavogsbæjar. Hálf staða fulltrúa í fjölskyldudeild Um er að ræða starf til frambúðar. Verksvið er einkum mót- taka og úrvinnsla umsókna um fjárhagsaðstoð, almenn ráðgjöf og mat á aðstæðum umsækjenda um þjónustu, auk meðferð- ar einstaklingsmála. Einnig önnur þau verkefni, sem starfs- manni kunna að verða falin. Krafist er þriggja ára háskólanáms á sviði félagsvísinda auk reynslu og kunnáttu í mannlegum samskiptum. Laun eru skv. launasamningi Starfsmannafélags Kópavogs og Kópavogsbæjar. 75% staða deildarstjóra í Dalshúsi Um er að ræða starf til frambúðar. Starfið felur í sér ábyrgð á verkefnum og málaflokkum og umsjón þeirra verkefna, sem unnin eru í Dalshúsi hverju sinni, þ.m.t. kostnaðareftirlit og fjárhagsáætlun. Dalshús er sérstakt úrræði deildarinnar fyrir unglinga í vanda og fjölskyldur þeirra. Starfið felst einkum í hópastarfi með unglingum og foreldrum þeirra, svo og uppeldisráðgjöf auk annarra verkefna, sem starfsmanni kunna að verða falin.Menntunarkrafa er félagsráð- gjafamenntun eða sambærilegt nám á sviði fólagsvísinda eða sálfræði. Reynsla af starfi með unglinga og foreldra æskileg. Laun fara eftir menntun og eru annars vegar skv. launasamn- ingi Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa og Launanefndar sveitarfélaga og hins vegar skv. kjarasamningi Starfsmannafé- lags Kópavogs og Kópavogsbæjar. Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur yfirmaður fjöl- skyldudeildar í síma 554 5700. Opið hús í Nommahúsi Opið hús verður í Nonnahúsi á Akureyri á morgun, sunnudag, milli kl. 14 og 17. Þar verður jólastemmningin ríkjandi, enda hefjast jólin snemma á Akureyri að þessu sinni. Nýlega fékk Nonnahús til varðveislu merkan grip smíðaðan árið 1850, drag- kistu Voga-Jóns, móðurbróður Nonna. Verður hún sýnd á sunnudaginn. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 23. nóvember 1998 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Jakob Björnsson og Þórarinn B. Jónsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem að- stæður leyfa. Síminn er 462 1000. D 1 G I T A L BcrGAltMC SOUIMD SYSTEM www visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Auglýsing samkvæmt 53. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 Þann 1. janúar 1999 öðlast lög nr. 44/1998 um húsnæðismál gildi. Við gildistöku þeirra skulu Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna lagðir niður og sameinaðir. Frá sama tíma tekur íbúðalánasjóður við hlutverki, réttindum, eignum, skuldum og skuldbindingum Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Réttindi og undanþágur sem Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna njóta samkvæmt gildandi lögum skulu taka til íbúðalánasjóðs. Greiðslu- og vistunarstaður skuldaskjala sem eru í eigu eða til innheimtu hjá Byggingarsjóði ríkisins, húsbréfadeild Húsnæðisstofnunnar ríkisins, eða Byggingarsjóði verkamanna verður hjá íbúðalánasjóði þegar hann tekur til starfa. íbúðalánasjóður tekur við öllum réttindum og öllum skyldum tengdum skuldaskjölum í eigu þeirra eða aðild að dómsmálum sem þeir reka eða rekin eru gegn þeim. Ákvæði í veðskuldabréfum sem gefin hafa verið út vegna lána úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna skulu að öðru leyti halda gildi sínu. Reykjavík 19. nóvember 1998 HUSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.