Dagur - 21.11.1998, Page 11
LAV GARDAGVK 21 . NÓVEMBER 1998 - 1*1'
ERLENDARFRETTIR
$ SUZUKI
//....
Israel afhendir
land og frelsar
fanga
ÍSRAEL - Palestínskir lögreglu-
menn héldu strax í gær inn á
landsvæði norðantil á Vestur-
bakkanum svonefnda skömmu
eftir að ísraelskir hermenn
héldu á brott samkvæmt Wye-
samkomulaginu. Yíirmenn bæði
í palestínsku lögreglunni og
ísraelska hernum undirrituðu
afhendingarpappíra og Ianda-
kort þar sem sýnd eru þau land-
svæði sem afhent voru í gær.
Jafnframt Iétu Israelsmenn 250
Palestínumenn lausa úr fang-
elsi.
Ekki meirihluti
fyrir kæruá
Clinton
BANDARÍKIN - Svo virðist sem
ekki sé meirihluti fyrir því með-
al þingmanna í öldungadeild
Bandaríkjaþings að Bill Clinton
forseti verði kærður til embætt-
ismissis. Einn þingmaður
Repúblikana sagðist í gær vita
um 20 flokksbræður sína sem
ekki ætli að greiða kærunni at-
kvæði sitt. Meirihluti Repúblik-
ana í deildinni er ekki nema sex
þingsæti. Engar nýjar upplýsing-
ar um ákæruatriði hafa heldur
komið fram í yfirheyrslu deildar-
innar yfir Kenneth Starr, sér-
skipuðum saksóknara.
Bill Cllnton.
Vill opnari Jap-
ansmarkað
JAPAN - Bill Clinton, Banda-
ríkjaforseti, sem staddur var í
tveggja daga heimsókn í Japan
krefst þess að japanskir markað-
ir verði opnaðir mun meira en
nú er. I gær hitti hann Obuchi
forsætisráðherra að máli, en
hélt í gærkvöld til Seoul, höfuð-
borgar Suður-Kóreu.
Hungurverkfall
dauðadæmdra
FILIPSEYJAR - Fangar sem
bíða fullnustu dauðadóms í
fangelsum á Filipseyjum hófu í
gær hungurverkfall til þess að
mótmæla því að fyrsta aftakan í
landinu frá því 1976 verður
framkvæmd á næstunni, eftir að
síðustu tilraun til að fá Leo
Echegaray náðaðan var hafnað.
Echegaray var dæmdur til dauða
fyrir að nauðga tíu ára stjúpdótt-
ur sinni. Ekki verður skýrt frá
því hvenær aftakan á að fara
fram fyrir en skömmu áður en af
því verður.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
ítalskur stjórnmálamaður ásamt stuðningsmönnum Öcalans við mynd-
spjald af honum.
Öcalan laus
Dómstóll á Ítalíu úr-
skurðaði í gær að ekki
væri unnt að framselja
leiðtoga Kúrda til Tyrk-
lands.
Abdullah Öcalan, leiðtogi aðskiln-
aðarsamtaka Kúrda f Tyrklandi,
var í gær látinn laus úr fangelsi í
Róm, en hann var handtekinn þar
í síðustu viku. Hann má þó ekki yf-
irgefa borgina meðan beðið er þess
hvort framsalsbeiðni berist frá
Þýskalandi, og verður sennilega
hafður í stofufangelsi um hríð.
Frá Þýskalandi bárust þó þær
fréttir í gær að framsals hans verði
ekki krafist, jafnvel þótt handtöku-
beðni vegna morðákæru liggi íyrir.
Úrskurður dómstólsins var rök-
studdur með því að samkvæmt
ítölskum Iögum megi ekki fram-
selja neinn til annars lands ef
hann á þar yfir höfði sér dauða-
refsingu. Þess vegna sé ekki hægt
að framselja hann til Tyrklands, en
ekkert standi þó í vegi fyrir því að
framselja hann til Þýskalands.
Tyrknesk stjórnvöld hafa varað
Itali við afleiðingum þess, ef Öcal-
an yrði ekki framseldur til Tyrk-
lands. Líklegt er að úrskurðurinn
kalli á harðorð mótmæli Tyrkja,
sem segja Itali ekki hafa farið með
mál Öcalans í neinu samræmi við
það að hann sé eftirlýstur hryðju-
verkamaður.
Kúrdar víða í Evrópu hafa und-
anfarið Iýst eindregnum stuðningi
sínum við Öcalan og mótmælt
handtökunni. Öcalan er formaður
Verkamannaflokks Kúrdistans
(PKK), sem krafist hefur sjálfstæð-
is Kúrda og átt í vopnaðri baráttu
við Tyrkland um 14 ára skeið, en
haft bækistöðvar handan
landamæranna í Irak og á Sýr-
landi. Atökin hafa kostað um
30.000 manns lífið.
Italskir fjölmðilar hafa skýrt frá
því að Öcalan hafi sagt samtök sín
ætla að leggja vopnaða baráttu til
hliðar og vilji gera friðarsamning
við tyrknesk yfirvöld.
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
FJÖLSKYLDUBÍLLINN sem þú breytir í SENDIFERÐABÍL með einu handtaki!
i^V'Hleðslurými
Aðgangur
ELGSPRÓFIÐ
fagon R+ fer svig-
og stýrihæfniþrautir
án vandkvæða.
auto.motor und sport
60 KM/KLST.
Aksturseiginleikar
SUZUKI
WAGONR5
DRIF
= ÖRYGGI
= LIPURÐ
= RÝMI
ÚTSÝNI
WAGON R* er nýr fjölnota bíll ffá
Suzuki. Með frumlegri og skemmti-
legri hönnun hefur tekist að sameina
í einum bíl, nettan sendiferðabíl og
rúmgóðan fjölskyldubíl með f^nota-
gildi, f^öryggi og f?*þægindum
í fyrirrúmi.
Framhjóladrifinn
1.079.000 kr.
4X4 meS ABS
1.259.000 kr.
(mm) :