Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 12

Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 ÍÞRÓTTIR Thgtr ÍÞRÓTTIR Á SKJÁNUM Laugard. 21. nóv. Fótbolti Kl. 14:25 Þýska knattspyrnan Kaiserslautern - Dortmund Handbolti Kl. 1615 Leikur dagsins Nissandeildin Grótta/KR - ÍR Fótbolti Kl. 12:00 Alltaf í boltanum Leikir helgarinnar. Kl. 14:45 Enski boltinn Aston Villa - Liverpool Körfubolti Kl. 12:30 NBA-tilþrif Vaxtarækt Kl. 19:00 íslandsmótið Beint útsending frá íslandsmót- inu í vaxtarækt. Karla-, kvenna- og unglingaflokkur. Sunnud. 22. uóv. Fótbolti Kl. 12:50 Markaregn Svipmyndir úr þýska boltanum. Skíðaíþróttir Kl. 16:55 Heimsbikarmótið Bein útsending frá Park City. Sýnt frá fyrri umferð í svigi karla, þar sem Kristinn Björns- son er meðal keppenda. Sýnt frá seinni umferð í fréttum og í Helgarsportinu. íþróttir Kl. 21:55 Helgarsportið íþróttir Kl. 13:00 íþróttir á sunnudegi Fótbolti Kl. 13:25 ítalsi boltinn Fiorentina - Inter Milan Fótbolti Kl. 15:45 Enski boltinn Derby - West Ham Kl. 19:25 ítalski boltinn AC Milan - Lazio Kl. 21:15 ítölsku mörkin Ameríski boltinn Kl. 17:55 NFL-deiIdin Golf Kl. 18:50 19. holan Oðruvísi golfþáttur. Kl. 21:35 Golfmót í USA Íshokkívertíðm hafin UM HELGINA Laugard. 21. nóv. ■ HAXDBOLTI Nissandeildin Kl. 16:15 Grótta/KR - ÍR Kl. 17:30 Haukar - HK 1 ■ deild karla Kl. 13:30 Þór, Ak. - Víkingur Kl. 14:00 Breiðabl. - Völsung. ■ KÖRÍTIBOLTI 1. deild karla Kl. 14:00 Höttur - Stjarnan KI. 14:00 Fylkir - Selfoss 1. deild kvenna Kl. 16:00 Grindavík - ÍR Kl. 17:00 Keflavík - Njarðvík ■blak 1. deild karla Kl. 16:00 Stjarnan - KA 1. deild kvenna Kl. 13:30 Víkingur - KA ■ SIJ.M) Bikarkeppni SSI Kl. 10:00 2. deild Kl. 15:30 l.deild Mótið heldur áfram á sama tíma á sunnudag. ■ ÍSHOKKÍ Islandsmótið Kl. 17:30 SA - Björninn Sunnud. 22. nóv. ■ handbolti Nissandeildin Kl. 20:00 Stjarnan - Selfoss Kl. 20:00 Fram - KA Kl. 20:00 Valur - FH KI. 20:00 Afturelding - ÍBV 1 ■ deild karla KI. 13:30 Ögri - Völsungur Fyrsti leikurinn í íslandsmótinu í íshokkí fer fram á Akureyri í dag klukkan 17:30. Þrjú félög taka þátt í mótinu og eru það Skautafélag Akureyrar, Skauta- félag Reykjavíkur og Björninn frá Reykjavík. Þetta er fyrsti leikur liðanna síðan í úrslitakeppninni 1997, en þá sigraði SA lið Bjarnarins í þremur Ieikjum. A síðasta keppnistímabili sem var fremur stutt vegna byggingar Skauta- hallarinnar í Reykjavík, léku lið Bjarnarins og SR saman undir merkjum IBR. Að sögn Magnúsar E. Finn- sonar, formanns SA, á hann von á jafnara móti í ár, en oft áður, þar sem norðanmenn hafa misst fjóra leikmenn frá síðustu Ieik- tíð. Þrír þeirra leika nú með SR en einn dvelur við æfingar og keppni í Kanada. BRIDGE Farðu bara heim vinur Ekkert verður af því að norski framherjinn, Rune Lange, félagi Tryggva Guðmundssonar hjá Tromsö, fari til Coventry á Englandi. Félög- in höfðu komið sér saman um kaupin, 400 milljónir, en Lange var ósáttur við þau laun sem Coventry ætlaði honum fyrir framlag sitt. Hann fékk því tækifæri til að koma með gagntilboð þar sem hann setti fram launakröfur sínar. Brúnin á Gordon Strachan, stjóra Coventry, seig skjótt er hann sá Iaunakröfur leikmannsins og sagðist hann ekki vera tilbúinn til að gera hann að launahæsta Ieikmanni liðsins áður en hann hæfi að leika með því. Strachan sagði að það væri bara best fyrir hann að fara heim aftur og Ieika eitt ár í viðbót í norsku deidlinni. Coventry væri hætt við kaupin. Þar með varð Tromsö af fögur hundruð milljónunum og Lange verður að láta sér nægja 7-10 milljónir í stað 43 milljónanna sem Coventry vildi borga. Ekki betri fyrir borgun Ole Gunnar Solskjær, varamaður hjá Manchester United, hefur heldur betur fengið norska knattspyrnumenn upp á móti sér síðustu mánuðina. Hann var óþrjótandi að segja Egil „DriIlo“ Olsen til um hvernig lið Noregs átti að vera í HM keppninni í sumar. Ef Olsen fór ekki að ráðum hans stóð ekki á yfirlýs- ingum frá leikmanninum um dapran DriIIo-stílinn. Hann hefur einnig „hjálpað" nýja landsliðsþjálfaranum, N. J. Semp, með góð ráð. Þau hafa oftast fallið í grýtta jörð. Þar sem landsliðsþjálfararnir hafa ekki viljað nýta sér visku Sol- skjær rær hann nú á önnur mið, leikmennina í norsku deildunum. Ráð hans til þeirra eru að þeir skuli alls ekki fara fram á laun fyrir að leika fótbolta nema þeir séu í toppliðunum í úrvalsdeildinni. Hann segir að neðrideildar leikmenn verði ekkert betri þó þeir þiggi laun fyrir vinnu sína. Fyrrum félagi Solskjær, Ole Erik Stavrum hjá fyrstudeildarliðinu Clausenenengen, sendi gamla félaganum þau skilaboð að hann ætti að hætta yfirlýsingagleðinni. Hann hafi fyrst getað spilað fótbolta þegar hann varð múlti-milli hjá Manchester United. — GÞÖ Ole Gunnar Solskjær. Öruggur sigur Sigurbjamar Sveit Sigurbjörns Haraldssonar vann fádæma öruggan sigur á Norðurlandsmótinu í sveita- keppni sem fram fór á Akureyri um síðustu helgi. Þegar tveimur umferðum var ólokið, var sveitin búin að vinna mótið. Alls hlaut sveitin 246 stig í 11 leikjum eða 22,3 vinningstig í leik. Með Sig- urbirni spiluðu Magnús Magn- ússon, Pétur Guðjónsson, Grett- ir Frímanssson og Guðmundur Halldórsson. Lokastaða efstu sveita: 1. Sv. Sjgurbjörns 246 2. Setrið 203 3. Ingvar Jónsson 191 4. Stefán Stefánsson 183 Jafnframt var reiknaður út „butler“ og náðu Pétur Guðjóns- son-Magnús Magnússon bestum árangri. Þeir voru með 1,89 í spili að meðaltali. Sigurbjörn- Guðmundur voru með 1,78 og Pétur Guðjónsson-Grettir Frí- mannsson þriðju með 1,20. Pét- ur spilaði 6 leiki með Magnúsi en fimm með Gretti. Þess má í framhjáhlaupi geta að móðir Frí- manns, Soffía Guðmundsdóttir, heldur upp á áttræðisafmæli sitt nú um helgina. Mörg skemmtileg spil litu dagsins ljós á Norðurlandsmót- inu í sveitakeppni eins og endranær í löngu móti. Meðal viðfangsefna suðurspilara var áttlitur einn bólginn f spaða: Suður/Allir ♦ 9762 V ÁT7 ♦ K53 ♦ K52 ♦ 8 V KDG832 + ÁGT76 4 6 !* - V 96 ♦ 942 I* ÁDGT8743 é ÁKDGT543 ¥ 54 ♦ D8 * 9 Þannig gengu sagnir í opnum sal í leik sveita Þóris Aðalsteins- sonar frá Húsavík og Gylfa Páls- sonar frá Akureyri Suður Vestur Norður Austur Björn Óli Kr. Reynir Björgvin 4spaðar dobl pass 5lauf pass 5hjörtu 5spaðar pass pass dobl pass pass pass 5hjörtu og 5tíglar vinnast í AV en vörnin þarf líka að standa sig til að hnekkja 5spöðum. OIi spil- Pétur Guðjónsson var bæði bestur og í þriðja sæti í butlerútreikningi á sama mótinu um síðustu helgi. Pétur t.v. en Hörður Blöndal t.h. aði út einspilinu í laufi sem Björgvin drap og spilaði lágu laufi til baka. Ef Björgvin hefði spilað hjarta, er spilið dauða- dæmt en nú fæddist fótur. Suður drap á spaðaás og vestur henti rauðu spili. Spurningin er hvað gera skuli í þriðja slag? Eins og spilin liggja þvingast vestur ekki þótt öllum spöðunum sé rennt niður svo framarlega sem austur passi sig á að kasta ekki frá ní- unni í tígli. Annar möguleiki er að spila litlum tígli að heiman því vestur þarf að vera vel vak- andi til að dúkka. Best er að gera þetta strax í þriðja slag en ofan- ritaður tók fyrst spaða og auð- veldaði e.t.v. vörnina fyrir Óla með því. I fjórða slag kom tígull, en Óli dúkkaði fumlaust og spil- ið fór einn niður. I lokaða saln- um skrifuðu AV sömu tölu, 200 í sinn dálk í sama lokasamningi. Þar spilaðist vörnin öðruvísi þrátt fyrir sama útspil. Þegar austur spilaði laufi til baka, kast- aði sagnhafi hjarta (sennilega í þeirri von að vestur ætti engan spaða) og andstaðan fékk því slag á eina trompið sem var úti. Sumir spilarar opnuðu á einum spaða og einn þeirra fékk að spila þann samning redoblaðan. Vörnin gaf einn slag og niður- staðan varð því einn spaði + íjór- ir á hættunni, 2270. Hraðsveitakeppni BA Fyrsta kvöldinu af fjórum í hraðsveitakeppni Bridgefélags Akureyri er lokið. 10 sveitir taka þátt og er staða efstu para: 1. Preben Pétursson 268 2. Stefán Stefánsson 264 3. Setrið, Sunnuhlíð 259 4. Stefán Vilhjálmsson 258 5. Björn Þorláksson 255 Konur keppa Islandsmót kvenna verður spilað í Þönglabakkanum nú um helg- ina. Keppnisstjóri verður Jakob Kristinsson. Spilamennska hefst kl. 11.00 báða dagana. Bridgefélag Siglufjarðar Nú stendur yfir Siglufjarðar- meistaramót í tvímenningi sem er kennt við Steingrím heitinn Magnússon, fyrrum félaga í Bridgefélagi Siglufjarðar. 24 pör spila barómeter og er staða efstu para þegar 18 umferðum af 23 er lokið: 1. Asgrímur Sigurbjörnsson- Björk Jónsdóttir 190 2. Ingvar Jónsson-Jón Sigur- björnsson 171 3. Anton Sigurbjörnsson-Bogi Sigurbjörnsson 162 4. Birkir Jónsson-Jónas Tryggv'ason 148

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.