Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 28. NÚVEMBER 1998 - S
FRÉTTIR
Erai einn flokk-
itdrai stofnaður
Fjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur borgaralegt og stjórnmálalegt jafnrétti
og frelsi að leiðarljósi og hafnar hvers kyns sérhagsmunum og einokun,
manna, flokka eða samtaka. Stefnuyfirlýsing flokksins var kynnt í gær í
höfuðstöðvum Samtaka um þjóðareign. mynd: gva
Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn stofnaður
á Nesinu. Jafnrétti til
nýtingar auðlinda.
Gegn spillingu. Raf-
rænar þjóðaratkvæða-
greiðslur.
Akveðið hefur verið að stofna
Frjálslynda lýðræðisflokkinn í
dag, laugardag. Stofnfundurinn
verður haldinn í Félagsheimili
Seltjarnarness og hefst hann
klukkan 9:30. Einkunnarorð
flokksins eru frelsi, jafnrétti og
samstaða.
Ileiri en fjórir
Óvíst er hversu margir munu
mæta á stofnfund þessa nýja
flokks, eftir að Sverrir Fler-
mannsson stofnaði Frjálslynda
flokkinn í fyrradag. „Þeir verða
örugglega fleiri en fjórir," segir
Bárður Halldórsson formanns-
efni nýja flokksins og formaður
Samtaka um þjóðareign. Sem
kunnugt er þá voru fjórir ein-
staklingar sem kynntu stofnun
Frjálslynda flokksins í fyrradag,
flokks Sverris Hermannssonar.
Rafræn þjóðaratkvæði
I stefnuyfirlýsingu Frjálslynda
lýðræðisflokksins, sem kynnt var
á blaðamannafundi í gær, kemur
fram að flokkurinn er jafnframt
stjórnmálahreyfing Islendinga.
Flokkurinn vill m.a. koma á
beinum og gagnkvæmum tengsl-
um milli stjórnvalda og kjósenda
með svokölluðum „lýðræðistil-
raunum“. Það er beinu lýðræði á
sveitarstjórnarstiginu, rafrænum
þjóðaratkvæðagreiðslum og
stefnumarkandi málstofum.
Þetta er hugsað sem viðbót við
formlega kosningakerfið. Þá
verði fiskveiði- og hálendislögum
breytt þannig að öllum Islend-
ingum verði tryggður jafn réttur
til nytja lands og sjávar. Kosið
verði til stjórnlagaþings þar sem
landið verður eitt kjördæmi og
stjórnarskráin færð til nútíma-
legs horfs.
Gegn spillingu
Flokkurinn aðhyllist frjálst
markaðskerfi, ætlar að standa
vörð um velferðarkerfið með ör-
yggis- og tryggingakerfi og vill
jafnrétti til menntunar óháð
efnahag eða búsetu. Þá mun
flokkurinn berjast gegn hvers
kyns spillingu í þjóðlífi og stjórn-
málum, efla frelsi og virðingu
fyrir mannréttindum og stuðla
að því að Islendingar Ieggi sitt af
mörkum til að aðstoða íbúa
landa og heimshluta til sjálfs-
hjálpar sem búa við neyð. - GRH
Björn Grétar Sveinsson: Undirbún-
ingur að nýjum kjarasamningum
hafinn.
Styttist
í nýj a
sammnga
Forysta Verkamannasambands-
ins átti í gær fund með rílds-
stjórninni til að skýra viðhorf sitt
til þróunar mála á vinnumark-
aðnum og þess mikla misgengi
sem þar hefur átt sér stað í
launa- og kjaramálum frá 1997
að mati VMSÍ.
„Þetta misgengi gefur ekki til-
efni til þess að segja upp kjara-
samningum en við vorum að fara
yfir atburðarásina á innanlands-
markaðnum, ekki síst í Ijósi um-
ræðna á ráðstefnu sveitarstjórn-
armanna um fjármál. I framhaldi
af þeim umræðum er ástæða til
þess að hafa áhyggjur af hækkun
á sköttum, útsvari og þjónustu-
gjöldum. Þetta er fyrsta skrefið í
átt að nýjum kjarasamningum,
en það er styttra í þá en margur
ímyndar sér,“ segir Björn Grétar
Sveinsson, formaður VMSI. — GG
Uppsagnir á
Austur-Héraði
Garðyrkjustjóri og
uinh verfis íul It rú i
Austur-Héraðs hafa
báðir sagt upp og
segja skýringima eink-
iiiii metnaðarleysi í
unihverfisinalimi.
Sigrún Theodórsdóttir, garð-
yrkjustjóri sveitarfélagsins Aust-
ur-Héraðs, hefur sagt starfi sínu
lausu vegna nýs skipurits sem
samþykkt hefur verið af nýjum
meirihluta Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn,
en eitt þriggja sviða er umhverf-
issvið. Sigrún segir að einnig hafi
afstaða bæjarstjórnar og metnað-
arleysi í umhverfismálum ráðið
ákvörðun sinni. Egilsstaðir hafi
tekið markvissa forystu f um-
hverfismálum en að ekki sé lögð
áhersla á að halda þeirri forystu,
á sama tíma og um 30 sveitarfé-
lög séu að fara af stað með sam-
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, um-
hverfisfulltrúi á Austur Héraði, hef-
ur sagt upp af óánægju með
stefnu nýs meirihluta í umhverfis-
málum og það hefur garðyrkju-
stjórinn einnig gert.
bærilega vinnu og muni líta til
þess brautryðjendastarfs sem
hafi verið unnið á Egilsstöðum.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
umhverfisfulltrúi, sem var verk-
efnisstjóri umhverfisverkefnis
sveitarfélagsins, hefur einnig
sagt starfi sfnu lausu og jafnvel
er að vænta fleiri uppsagna.
Undir forstöðumann hins nýja
umhverfissviðs eiga að heyra
garðyrkjustjóri, umhverfisfull-
trúi, verkstjóri áhaldahúss og
skipulags- og byggingafulltrúi en
þessir starfsmenn heyrðu áður
undir bæjarstjóra, að frátöldum
verkstjóra áhaldahúss sem heyrði
áður undir bæjartæknifræðing.
Fráfarandi meirihluti Framsókn-
arflokks og F-lista, Félagshyggju
við Fljótið, klofnaði einmitt
vegna ágreinings um áherslur f
umhverfismálum og skipuriti.
„Athugasemdir starfsmanna
varðandi skipuritið voru ekki
teknar til greina og það ásamt
Iitlum skilningi á gildi þess um-
hverfisstarfs sem hér hefur verið
unnið eru ástæður uppsagnar
minnar. Menn ættu ekki að
velkjast í vafa um hversu mikil-
væg umhverfismál eru atvinnu-
málum í sjálfu græna landbúnað-
ar- og skógræktarhéraðinu," seg-
ir Sigrún Theodórsdóttir. — GG
Samvinna Tryggingafélaga
Stjómir Tryggingamiðstöovarinnar og Tryggingar hafa samið um að
stefna að hlutabréfaskiptum þannig að hluthafar í Tryggingu fái
hlutabréf í Tryggingamiðstöðinni fyrir hluti sína og hefja með því
samvTnnu um rekstur félaganna. Hlutafé í Tryggingamiðstöðinni
verður aukið um rúmar 50 milljónir króna í þessu skyni og hækkar í
um 233 milljónir.
Hluthafar í Tryggingu munu eignast 21,75% hlut í Tryggingamið-
stöðinni. Stefnt er að samruna félaganna síðar. Samanlagðar ið-
gjaldatekjur félaganna voru á síðasta ári 3,6 milljarðar króna sem var
28% markaðshlutdeild. — GG
Frjálslyndir opna skrifstofu
Frjálslyndi flokkurinn opnar skrifstofu að Hlíðar-
smára 10 í Kópavogi um eða eftir helgina. Margrét
Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri flokksins, segir að
þar verði bæði kosningaskrifstofa og aðalskrifstofa
flokksins. Frjálslyndir séu þegar farnir að nota skrif-
Margrét stofuna undir fundahöld en búið verði að tengja síma
Sverrisdóttir. 4 mánudaginn. - ghs
Helgarstrætó á Akureyri
Tímamót verða hjá Strætisvögnum Akureyrar í dag þegar helgarakst-
ur hefst í tilraunaskyni í 4 mánuði. Lengi hefur verið gagnrýnt að
ekki sé hægt að ferðast með strætó nema virka daga og hefur þetta
ástand einkum bitnað á eldri borgurum og ungu fólki.
Kostnaður vegna helgarakstursins er talinn nema um 4 milljónum
á ári. Ókeypis verður í strætó í dag 1' tilefni dagsins.
Thule þrefaldast í sölu
Sala á Thule bjór, sem framleidd-
ur er á Akureyri hjá Sól-Víking,
hefur margfaldast í verslunum
Á'fi'R í kjölfar verðlauna sem
bjórinn hlaut í sumar og auglýs-
ingaherferðar sem á eftir fylgdi.
Baldvin Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Sól-Víking, segir
að söluhlutdeild bjórsins hafi
verið 2,64% í verslunum ÁTVR
áður en bjórinn var valinn sá 3.
besti í heimi og 10. söluhæsti.
Núna hefur salan meira en þre-
faldast, þ.e.a.s. farið úr 2,64% í
8,75% og er hann sá fimmti sölu-
hæsti sem stendur. Segir Baldvin
fá eða engin dæmi um viðlíka
söluaukningu á þessum markaði.
Gott fólk sá um gerð auglýs-
ingaherferðarinnar og á sama
tíma sá auglýsingastofan Ari &
co á Akureyri um breytt útlit á
dósunum. „Þetta kom allt saman
á besta tíma og við höfum fengið
mjög sterk viðbrögð frá neytend-
um. það er svona Bjarkareffekt í
þessari sölu,“ segir Baldvin. — Bt>
Framk væmd astj óraskipti
hjá Flugfélaginu
Páll Halldórsson, framlcvæmdastjóri Flugfélags ís-
lands, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með ára-
mótum, en hann hefur verið framkvæmdastjóri þess
frá stofnun fyrir einu og hálfu ári.
Við starfi framkvæmdastjóra tekur Jón Karl Ólafs-
son, sem verið hefur forstöðumaður austursvæðis
Flugleiða sem nær til allra landa Evrópu utan
Skandinavíu og Bretlands. Flugleiðir, sem eiga 65% hlut í Flugfélag-
inu, gera ráð fyrir að endurfjármagna rekstur Flugfélags Islands fyT-
ir næstu áramót. — GG
Páll Halldórs-
son.