Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 28.11.1998, Blaðsíða 2
2-LAUGARDAGUR 28.NÓVEMBER 1998 FRETTIR Mjólkuriðn- aðinuni nmbylt Ef samvtnnufélög á Norð- urlandi koma sér saman um myndim nýs matvæla- risa verða miklar breyt- ingar á starfsemi mjólkur- bua í landshlutanum. Skagfirðingar ekki upp- næmir. Með fyrirhugaðri samvinnu kaupfélaga á Norðurlandi í matvælaframleiðslu verða að Iíkindum miklar breytingar á vinnslu mjólkurafurða. Þannig bendir margt til þess að nýmjólkurframleiðsla leggist af á Húsavík og jafnvel á Sauð- árkróki ef samstarfið verður að veru- Ieika. ÖII framleiðsla nýmjólkur færi fram á Akureyri sem og stærstur hluti hefðbundinnar ostagerðar. Á hinn bóg- inn er líldegt að jógúrtgerð yrði aðeins í einni mjólkurvinnslustöð og sérosta- gerð myndi eflast bæði á Húsavík og á Sauðárkróki. „Ef þetta samstarf næst, er ætlunin að hagræða milli þessara fyrirtækja í mjólkuriðnaðinum og það er ljóst að við myndum sérhæfa búin miklu meira frá því sem nú er. Einingarnar yrðu áfram í rekstri á einhvern máta og ólík- legt er að jógúrt yrði framleidd nema á einum stað. Sömu sögu er að segja um nýmjólkurpökkun en þessar hugmynd- ir eru algjörlega á frumstigi," segir Hólmgeir Karlsson, mjólkursamlags- stjóri KEA á Akureyri. KEA framleiðir um 45% allra osta, næst kemur KS á Sauðárkróki og þá KÞ á Húsavík. „Ég sé íyrir mér að þessi fyrirtæki verði öll áfram í ostagerð en það mætti hugsa sér að massaframleiðsla gula ostsins myndi aukast hér, en sérostagerð eflast á Húsavík. Til Iengri tíma yrði osta- framleiðslan minni á Húsavík en verð- mætari og skapaði fleiri störf hlutfalls- Iega,“ segir Hólmgeir. 45 íírinii á inidan Enn virðist Iangt í að gengið verði frá FRETTA VIÐTALIÐ Jón Bjamason skólastjóri Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal. Reiðmennska, sýningar- tækni, þjálfun hesta og reÐ- kennsla sem kennd ervið Bændaskólann á Hólum verðurmetiðsem hluti náms við húvísindadeildina á Hvanneyri. Öll framleiðsla nýmjólkur færi fram á Akureyri sem og stærstur hluti hefðbundinnar ostagerðar samkvæmt þeim hugmyndum sem nú eru uppi. þessum hugmyndum en hugmyndir um samruna á þessu sviði njóta ekki mikils fylgis í Skagafirði skv. heimild- um blaðsins. Augljósir hagræðingar- möguleikar eru hins vegar fyrir hendi, bæði í mjólkur- og kjötvinnslu en Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri KS á Sauðárkróki, segir málið ekki hafa verið kynnt fyrir KS, engin erindi borist eða málið verið rætt formlega. „Eyfirðingarnir verða sjálfir að klára sín mál og þótt einhverjir séu að brey- ta sínum fyrirtækjum breytir það ekki endilega neinu hjá okkur. Eyfirðingar eru núna að setja sjávarútveginn, versl- un, landbúnað og iðnað í aðskilin hlutafélög. Það eru 45 ár síðan skag- firskir sanvinnumenn ákváðu að setja alla sína útgerð og fiskvinnslu í hluta- félag og þannig hefur það verið allan þennan tima,“ segir Þórólfur. Kjötsamstarf þegar liafið Þorgeir Hlöðversson, kaupfélagsstjóri KÞ, segir að töluverðar viðræður hafi verið að undanförnu á milli kaupfélaga á Norðurlandi. „Hins vegar eru þær skammt á veg komnar og stjórn KÞ hefur ákveðið að einbeita sér inn á við í félaginu næstu vikur. Hugsanlega verður þetta skoðað nánar í janúar eða febrúar," sagði Þorgeir. Þorgeir aftók alls ekki að Húsvikingar gætu hugsað sér að drekka nýmjólk frá Akureyri og segir hann hagræðingarmöguleika í kjötvinnslu ekki sfðri. Þegar sé búið að taka stórt samvinnuskref í kjötfram- Ieiðslu meðal kjötverkenda. Þannig sé verkaskipting KÞ og Bautabúrsins á Akureyri þannig að Bautabúrið sér um alla svínaúrvinnslu en KÞ um dilka- kjötið. - BÞ Ússur. Pottverjar hafa glaðst mjög vegna yfirlýsinga- gleði Samfylkingarmaima vegna átakanna urn skipan framboðslistans í höfuðborginni. Þar hef- ur hver stórkanónan á fætur annarri látið til sín heyra með afgerandi hætti. Þetta hefur auðveldað blaðamönnum vixmu sína en gefið almenningi frekar dapra mynd af hinu sameinaða framboði. Nú heyrist úr herbúðum Samíylkingarinnar að allir helstu áhrifamenn hafi fallist á fjöhniðla- hindindi þar til lausn sé fengm á deilum þeirra sem að framhoðinu í Reykjavík standa. Það mun þvi enginn bjóða sig fram í efsta sætið í viðtali við fjölmiðla næstu daga. En auðvitað lætur rannsóknar- blaðamaðurinn í heita pottinum ekki eitthvert þagnarsamsæri aftra sér frá því að flytja nýjustu fréttir af framboðsmálunmn. Sem eru af tilboðinu til Össurar Skarphéðins- sonar um að hann geti fengið fyrsta sæti framboðslistans í Reykjavík ef hann samþykki að falla frá kröfunni um prófkjör. Samkvæmt heimildum pottverja hefur Össm nú hafnað þessu boði. Enda ljóst að ef hann hefði fallist á þessa lausn hefðu andstæð- ingar hans verið fljótir að fullyrða að krafa hans um prófkjör hefði bara verið íyrirsláttur. 1 Brekkuskóla á Akureyri var verið að vinna verk- efni í 6. bekk Hombjarg og var einn liður verk- efnisins að bregða sér í hlutverk blaðamanns og skrifa frétt þar sem Homgbjarg kom við sögu. Eréttimar vom síðan gefnar út í sérstöku frétta- hréfi þar sem eftirfarandi frétt birtist undir iýrir- sögninni „Hvalur strandar“:„Hvalur strandaði á Hombjargi í gær, en hvaluriim dó eftir rúman sólarhring. Um svipað leyti slapp maður út af geðveikrahæli. Með ótrúlegum hætti komst haim til Hombjargs og gæddi sér á heila hvalsins í þeirri von að geta talað við Keikó.“ í pottinum tclja menn framtíð íslenkrar blaðamennsku bjarta!... Hestameimska á háskólastigi Undirritaður hefur verið samningur milli Bændaskólans á Hólum og búvísindadeildar bændaskólans á Hvanneyri um að nám sem hefur verið skipulagt á Hólum í reið- mennsku, sýningartækni, þjálfun hesta og reiðkennslu verði metið sem hluti náms við búvísindadeildina á Hvanneyri. Jón Bjarnason, skólastjóri á Hólum, segir að þeir nemendur sem útskrifist frá búvís- indadeildinni á Hvanneyri geti komið til Hóla og tekið áðurnefndan námspakka þar sem val sem hluta af þeirra námi rétt eins og nemendur á Hólum geti farið til náms í búvísindadeildina á Hvanneyri. Verkaskipt- ing milli skólanna verði þó áfram skýr en samkomulagið vísir að meiri samskiptum en mun skerpa þeirra sérsvið. Hvernig er skipulagningu búvísin- dadeildar háttað? „Búvísindadeildin er þannig skipulögð að síðasta hálfa árið er valtími eða sérhæfing og þá geta nemendur valið hvort þeir velja áherslur í sauðfjárrækt, nautgriparækt, landnýtingu, og þá bætist námið hér í hesta- mennsku við sem einn valpakkinn inn í það háskólanám. Nemendur yrðu þá kandidatar í búfræði með reiðmennsku og reiðkennslu sem sérsvið. Þetta samkomulag hefur þegar tekið gildi því nemendur sem innrituðust í búvísindadeildina í haust geta valið þessa leið. Ég er líka sannfærður um að þetta samkomulag mun auka áhugann á námi, bæði á Hvanneyri og hér á Hólum.“ - Eykur þetta samkomulag áhuga á menntun í hestamennsku ? “Það gerir það verulega enda snýst hesta- mennskan m.a. um það að geta tamið og sýnt og með aukinni þekkingu eykst trú- verðugleiki viðkomandi en þessar faglegu kröfur eru allar skipulagðar með félagi tamningamanna og koma því ekki frá okkur og það gefur náminu gildi.“ - Er hætta á því að það myndist þrýsti- hópur innan hestamennskunnar af þeim sem eru hámenntaðir í greininni? “Það tel ég ekki vera því fyrst og síðast gildir það að geta komið fram. Þar hjálpa engin próf eða gráður, en þau gefa staðfest- ingu til þeirra sem kaupa þjónustuna af við- komandi. Öll próf og þekking gefa eðlilega eitthvað forskot og þetta nám hér verður mikilvægara í námi í hestamennsku og ekk- ert minna mikilvægt en að kunna fóður- fræði, kynbótafræði, líffræði eða lffeðlis- fræði." - Eykur þetta mikilvægi og áreiðanleika útflutnings íslenska hestsins? “Það styður að við komum fram með sannfæringahætti að hér sé unnið á skipu- lögðum og viðurkenndum þekkingagrunni og að stefnan sé byggð á faglegum vinnu- brögðum og viðbót við þann þekkingagrunn sem þegar er í gangi." - gc.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.