Dagur - 22.12.1998, Side 3
Ð^ur.
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
AKUREYRI NORÐURLAND
Reynir Stefánsson, verslunarstjóri, til vinstri ásamt viðskiptavini I hinni nýju
tölvuverslun Nett.
Nett opnar
tölvuverslun
Nett hefur opnað nýja tölvuversl-
un að Furuvöllum 13 á Akureyri.
Fyrirtækið var stofnað í júní 1996
og Iagði í upphafi megináherslu á
að bjóða internetþjónustu fyrir
einstaklinga og fyrirtæki. Nett er
nú langstærsti aðili á þeim mark-
aði á Iandsbyggðinni. Sala á tölv-
um og ýmsum búnaði sem þeim
fylgir hefur verið vaxandi þáttur í
starfseminni.
Nett er með einkaumboð á Is-
landi fyrir Zeus tölvur, Hansol
tölvuskjái, Compeye skanna,
Skywell skjákort og QDI móður-
borð. I nýju versluninni er einnig
til sölu tölvubúnaður frá ýmsum
öðrum viðurkenndum framleið-
endum. Má þar t.d. nefna HP og
OKI-prentara og Creative Labs
aukabúnað. Þá eru að sjálfsögðu á
boðstólnum allar almennar
rekstrarvörur fyrir tölvur og
prentara. Nett býður einnig
lausnir á flestum vandamálum
sem tengjast tölvunotkun. Starfs-
menn fyrirtækisins hafa áralanga
reynslu af viðgerðum á tölvum og
vinnu við netkerfi. Þeir annast
einnig ráðgjöf, heimasíðugerð og
tækjaleigu, svo og síma- og tölvu-
lagnir. Internetþjónustan er sem
fyrr einn meginþáttur starfsem-
innar. — GG
Bjarkartónar
' is.bí W'
IIAljKUR
AGUSTSSON
SKRIFAR
Samkórinn Björk starfar í Aust-
ur-Húnavatnssýslu. Kórinn var
stofnaður árið 1983. Hann er
skipaður fólki af Blönduósi og úr
nærsveitum. Núverándi stjórn-
andi kórsins er Thomas Higger-
son, kennari við Tónlistarskóla
Skagaíjarðarsýslu í Varmahlíð.
Samkórinn Björk hefur nýver-
ið gefið út geislaplötu, sem gefið
hefur verið nafnið Bjarkartónar.
Á henni er Ijölbreytt úrval söng-
laga eftir innlenda og erlenda
höfunda. I þeim sýnir kórinn
ýmsar hliðar getu sinnar og er
hún allrar athygli verð. Tíðast
tekst flutningur vel og kemur þar
ekki síst til, að greinilega er agi í
kórnum góður. Innkomur eru
oftast öruggar og einnig afslætt-
ir. Þá eru blæbrigðabreytingar
yfirleitt í góðu lagi, sem getur af
sér flutning, sem í sem næst öll-
um tilfellum fellur vel að jafnt
texta sem lagi. Því miður kemur
fyrir, að hljómar eru ekki alveg
hreinir og einnig að rödd lafi í
Harðlr
■USB
1 - /
l
sifeds þ^r a
netleilcur á Vlsi.is
Vísir.is og Hagkaup bjóða gestum Vísis.is
skemmtilegan jólabóka- og geisladiskaleik
Þátttakendur fara inn á slóðina vísir.is og skoða netverslun Hagkaups@Vísis.is
og svara laufléttum spurningum. Úrslit verða kynnt á Þorláksmessu á Vísi.is og
vinningar sendir heim með fyrirtækjaþjónustu póstsins.
Aðalvinningurinn verður svo dreginn út á Þorláksmessu en hann er matarkarfa
frá Hagkaupi að verðmæti 15.000 kr.
Ómissandi jólaplata sem
inniheldur m.a.
jólasmellinn Handa þér
eftir Einar Báröarson í
flutningi Einars Ágústs
og Gunnars Ólafssonar
lO eintölc
HAGKAUP @ W í S i r. i S
www.visir.is
■ ,.
tónhæð. í heiid er hljómur kórs-
ins samt fullur og líflegur.
Raddir kórsins svara sér í heild
tekið ágætlega. Sópran er styrk-
ur og nær yfirleitt vel og
áreynslulítið hæð. Að því má
finna, að tónn hans sé ívið
skarpur á stundum, en þar kann
til að koma mótun í upptöku.
Altinn fellur vel í hljóminn og
skilar sínum hlut allvel í sólóum,
þó að fyrir komi nokkuð þreyttur
tónn á stundum. Karlaraddirnar
eru þéttar og hafa góða fyllingu.
Einsöngvarar, sem koma fram
með kórnum á plötunni Bjarkar-
tónar, eru Sigfús Pétursson,
Steingrímur Ingvarsson og Elín
Osk Magnúsdóttir. Allir þessir
söngvarar gera vel og eiga veru-
legan hlut í því, hve aðlaðandi
geislaplata Samkórsins Bjarkar
er. Einnig syngur barnakvartett
með kórnum í einu lagi. Hann
hefði mátt æfa nokkru betur, en
söngur hans er því miður ekki
svo áferðargóður sem skyldi.
Undirleikur á plötunni er vel
af hendi leystur. Þar er söng-
stjórinn, Thomas Higgerson í
lykilhlutverki og gerir vel. Aðrir
hljóðfæraleikarar eru Hugrún
Sif Hallgrímsdóttir og Þóra Lís-
bet Gestsdóttir, sem leika á þver-
flautur, og Arndís Olöf Vfkings-
dóttir og Helga Kristín Gests-
dóttir, sem leika á klarinett.
Þessar stúlkur standa sig með
prýði.
Geislaplatan Bjarkartónar er
eigulegur gripur og vel þess virði
að á hana sé hlustað. Þó að
ýmsu smávægilegu megi finna,
er hún glöggur vitnisburður um
jrað, hve vel áhugamannakór
getur gert undir stjórn hæfs tón-
listarmanns. Einnig má finna á
hinni auðheyrilegu sönggleði
kórfélaga, hve mikils virði kór-
starfið er þeim, sem taka þátt í
því. Ekki skiptir síður máli það
framlag, sem starf Samkórsins
Bjarkar er til menningar og lista
er byggðum hans. Að því ber öll-
um að hlúa.
skyr með rjóma
rj ómapönnukökur
kaffí með rjóma
rjómasósur
ávextir með rjóma
rjómatertur
vöflur með rjóma
rjómaís
kakó með rjóma
rjómakökur
bláber með rjóma
rjóma