Dagur - 29.12.1998, Side 8
8 -ÞRIDJUDAGUR 29. DESEMBER 199 8
Dvupu-
Xfc^lU-
ÞRIÐJUDAG U R 29. DESEMBER 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
FRIÐRIK
ÞÓR
GUDMUNDS
SON
SKRIFAR
Fíknó meó byr í scglln
tarsiminn er
7o8o
L>
émtr
Taka á miklu magni
fíkniefna að undan-
fömu getur snúið mót-
byr gegn fíkniefnalög-
reglunni í meðbyr eft-
ir umræðu um týnd
fíkniefni og Steiner-
málin. Desember vin-
sælastur mánuða til
fíkniefnainnflutnings.
Áhyggjur af áhrifum
Schengen-aðildar.
Það er ekki langt síðan fíkniefha-
lögreglan á Islandi var hálf lömuð
vegna umtals um týnd fíkniefni
og vafasöm samskipti við þekkta
fíkniefnasölumenn eins og
Franklin Kr. Steiner, auk þess
sem skipulagsmál Iögreglunnar
almennt urðu yfirþyrmandi vegna
löngunar dómsmálaráðuneytisins
til að endurskilgreina stöðu
Böðvars Bragasonar Iögreglu-
stjóra. Það er ekki langt síðan
skopmynd Spaugstofunnar um
samskipti lögreglunnar og Stein-
ers þótti bara ansi nærri raun-
veruleikanum eins og hann kom
almenningi fyrir sjónir. En þetta
hefur verið að breytast og rassí-
urnar í desember fara langar Ieið-
ir með að gefa fíkniefnalögregl-
unni sína fyrri virðingarstöðu á
ný.
Eins og fyrir ári hafa komið
upp stórmál vikurnar fyrir jóla-
helgihaldið. Nú í desembermán-
uði hafa komið upp sex stór fíkni-
efnamál, fyrir utan hefðbundin
minni mál. Ahrifin eiga eftir að
skýrast á næstunni, en það ætti
að vera óhætt að fullyrða að stór
skörð hafi myndast á fíkniefna-
markaðinum.
Hefndaraðgerð gegn Geltin-
um?
Þrjú málanna eru til rannsóknar
hér á landi. Maður, sem ekki hef-
ur komið við sögu fíkniefnamála
áður, var handtekinn í Leifsstöð
með 630 grömm af kókaíni og á
sama stað fundust tvö kíló af
hassi í ruslafötu, en þar er giskað
á að smyglari hafi guggnað við til-
raun til að koma efninu í gegnum
eftirlitið. Þá uppgötvuðust alls
fjögur og hálft kíló af hassi í bíl-
skúr ojg íbúðarhúsi við Rauða-
gerði. I því tilfelli kom upp eldur
í bílskúrnum og veitti árvökull
lögregluþjónn pakka athygli sem
hann skoðaði nánar. Reyndist
innihaldið vera hass og var þá
fengin leitarheimild og fannst
meira hass í risi viðkomandi íbúð-
arhúss. Eiginkonan á staðnum
var tekin til yfirheyrslu, en eigin-
maðurinn, sem þekkist í undir-
heimunum sem Skuggi eða Gölt-
urinn, dvelst að Litla-Hrauni
vegna þáttar síns f mannsláti í
kjölfar átaka á veitingastaðnum
Um helgina uppgötvuðust alls fjögur og hálft kíló af hassi í bílskúr og íbúðarhúsi við Rauðagerði. Eldur kom upp í bílskúrnum og veitti árvökull lögregluþjónn pakka athygli sem hann skoðaði nánar.
Reyndist innihaldið vera hass og var þá fengin leitarheimild og fannst meira hass í risi viðkomandi íbúðarhúss. mynd: pjetur
Vegas í maí 1997. Vegna þess
máls hlaut hann tveggja ára dóm.
Annan dóm fékk hann nýverið
fyrir að hafa í hópi með öðrum
svipt mann í Grafarvogi frelsi.
Færðu þeir manninn nauðugan í
skott á fólksbifreið og óku á brott.
Var maðurinn um hálftíma í
skottinu.
Rannsókn Rauðagerðismálsins
er í fullum gangi og ekki á þessari
stundu fyrirvaralaust hægt að
eigna fanganum hasskílóin.
Heimildarmenn Dags eru og ekki
á einu máli um hvernig málið
komst upp; telja eldsupptökin
ýmist tilviljun eða hreina hefnd-
araðgerð. Einn viðmælandi í síð-
ari hópnum sagði að sú saga
gengi hástöfum í undirheimun-
um að einhver væri að hefna sín
á Skugga/Geltinum. „Þið vitið um
mannránið og náunginn á Vegas
var ekki sá fyrsti sem varð fyrir
hrottalegu ofbeldi frá þessum
manni - bara sá fyrsti til að
deyja,“ segir viðmælandinn.
Þrjú fíkniefnamál hafa komist
upp erlendis að undanförnu, þár
sem Islendingar koma við sögu.
Ung stúlka var handtekin í Þýska-
landi með 1,4 kíló af amfetamíni
auk 100 gramma af kókaíni.
Maður var handtekinn í sama
landi með tvö kíló af kókaíni í fór-
um sínum og hefur hann komið
við sögu fíkniefnamála hér á
Iandi. Og tveir voru handteknir í
Luxemborg vegna aðildar að
fíkniefnamáli. Hvorki í utanríkis-
ráðuneytinu né hjá Ríkislögreglu-
stjóra fengust upplýsingar um
þróun rannsóknar á málum þess-
um erlendis, en samkvæmt heim-
ildum blaðsins hefur ráðuneytið
þó gengið úr skugga um að Is-
lendingarnir njóti réttargæslu.
Desembermánuðiu' er vinsæU
til innHutnings
„Óhjákvæmilega gefum við þess-
um máli meiri gaum og viðhöfum
strangara eftirlit í desember, að
fenginni reynslu, því þá er eins og
menn reyni að nota hinn mikla
eril til að koma efnum til Iandsins
og í umferð,“ segir Ómar Smári
Armannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í samtali við Dag. Að-
spurður hvort hann telji að fíkni-
efnalögreglan sé á ný að fá vind í
seglin eftir neikvæða umræðu á
undanförnum mánuðum segir
Ómar Smári að í raun hafi lög-
reglan haft góðan meðbyr allt frá
skipulagsbreytingunum í júlí
1997.
„Fólk hefur að minnsta kosti
verið mjög viljugt til að vinna með
okkur og okkur hefur gengið
ágætlega að vinna úr upplýsing-
um. Árangurinn hefur líka verið
með ágætum. Umræðan út í
þjóðfélaginu hefur eflaust virkað
£ i 1111 viðmælandi í síð-
ari hópniun sagði að
sú saga gengi hástðf-
um í undirbeimunum
að einhver væri að
hefna sín á
Skugga/Geltinum.
„Þið vitið uin inann
ránið og náunginn á
Vegas var ekki sá fyrsti
sem varð fyrir hrotta-
legu ofbeldi frá þess-
um manni - bara sá
fyrsti til að deyja,“
segir viðmælandinn.
neikvætt á einhverja. Okkur þótti
hún oft og tíðum ekki réttmæt en
hún hafði ekki áhrif á starfsemi
okkar sem slíka. Við höfum hald-
ið ótrauð áfram.“
Stór þáttur í eftirlitinu er
byggður á uppljóstrunum, hund-
um og tálbeitum, auk hlerana og
að fylgja grunuðu fólki eftir. Og
auðvitað „detta“ fíkniefni stund-
um inn fyrir heppni. „Lögreglan
er gjörsamlega háð uppljóstrun-
um í þessum málaflokki. Mark-
miðið og megináherslan frá því ég
kynntist þessu starfi fyrst hefur
verið að rannsaka mál sem tengj-
ast innflutningi og dreifingu. A
þetta var lögð sérstök áhersla af
yfirstjórn lögreglumála, þegar ég
byrjaði f fíkniefnadeildinni. Með
þessu móti tekst vonandi hvort
tveggja, að leggja hald á fíkniefn-
in og ná höfuðpaurunum. Til að
hægt sé að rannsaka slík mál
verður lögreglan að hafa aðgang
að uppljóstrurum. Það eru ekki
nema fáir sem vita hvað er að ger-
ast,“ sagði Arnar Jensson í sam-
tali við Dag í upphafi árs, en
hann stýrði fíkniefnarannsóknum
hér á landi um árabil, en er nú
aðstoðaryfírlögregluþjónn í efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjórans.
Ahyggjur vegna Schengen
Hvað sem góðum árangri að und-
anförnu líður jrá fer samt ekki hjá
því að menn hafi áhyggjur af þró-
un fíkniefnaeftirlitsins ef og þegar
tsland tekur upp Schengen-aðild.
Þá verður mönnum heimilt að
fara yfir innri landamæri aðildar-
ríkjanna án þess að þeir sæti eftir-
liti. Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður hefur bent á hætt-
urnar þessu samfara og fær hann
ekki séð að eftirlitskerfi Schengen
sé sérstaklega sniðið til eftirlits
með ólöglegum flutningi fíkni-
efna inn á svæðið né að það vegi
upp á móti þeim möguleikum á
eftirliti með fíkniefnasmygli sem
tapast við afnám vegabréfaskoð-
únar. Eftirlit með fíkniefnanotk-
un og dreifingu fíkniefna er víðar
slakt innan svæðisins, meðal ann-
ars í Þýskalandi, og víða eru uppi
allt önnur viðhorf til fíkniefna og
baráttunnar gegn þeim en hér-
lendis og annars staðar á Norður-
löndum. I Schengen-samningn-
um er hvergi minnst á að vinna
beri gegn fíkniefnum til persónu-
Iegra nota, og í sex af aðildarríkj-
um Schengen hafa verið felldar
niður refsingar gegn því að hafa
undir höndum umtalsvert magn
fíkniefna til eigin nota.
Nokkrir íslenskir tollgæslu-
menn hafa í einkasamtölum lýst
þeirri skoðun sinni \ið Hjörleif að
Schengen-aðild muni gera eftirlit
með ólöglegum innflutningi fíkni-
efna til landsins mun erfiðara en
nú er. Sama sjónarmið kom fram
í grein eftir Kristján Pétursson,
fyrrverandi deildarstjóra, sem
hann ritaði í Morgunblaðið 18.
janúar 1997 um þessi efni. Þar
varar hann eindregið við hætt-
unni á auknum innflutningi fíkni-
efna um Keflavíkurflugvöll, verði
af aðild Islands aðSchengen.
Hann segir það eindregna skoð-
un þeirra löggæslumanna sem
vinni við eftirlit og rannsóknir
fíkniefnamála að Schengen-
samningurinn geri þeim illmögu-
legt að viðhalda því eftirliti sem
verið hefur, hvað þá að efla það. „I
Iangflestum tilvikum þegar fíkni-
efni finnast hjá farþegum við
komu til landsins Iiggur að baki
mikil og oft flókin upplýsingaöfl-
un tollgæslu og fíkniefnadeildar
lögreglunnar. Svo hægt sé að hafa
hendur í hári grunsamlegra
komufarþega, innlendra sem er-
lendra, verður að skoða skilríki
þeirra, þar sem oftast er um að
ræða ókunna aðila (burðardýr).
Eftir að vegabréfaskoðun
Schengen-farþega verður lögð af,
er ekki lengur fyrir hendi nein að-
staða til slíks eftirlits í fiugstöð-
inni,“ segir Kristján.
Breytir „sérsveit“ embættis-
manna einhverju?
Skiptar skoðanir eru um viðbrögð
stjórnvalda \að auknum fíkniefna-
innflutningi og -neyslu. Á síðasta
ári ákvað ríkisstjórnin að grípa
þyrfti til enn markvissari aðgerða
en áður varðandi ólöglegan inn-
flutning fíkniefna. Skipaði dóms-
málaráðherra vinnuhóp sem í eiga
sæti yfirmenn tollmála og Iög-
reglumála og fulltrúi utanríkisráð-
herra. Verkefni hópsins er að
skoða með hvaða hætti unnt sé að
stöðva innflutning ólöglegra fíkni-
efna til landsins. Enn hefur
rinnuhópur þessi ekki Iokið störf-
um. Þó Iiggur fyrir að settur hefur
verið upp formlegur starfshópur
sem í eiga sæti fulltrúar ríkislög-
reglustjóra, ríkistollstjóra, toll-
stjórans í Reykjavík, lögreglustjór-
ans f Reykjavík og sýslumannsins
á Keflavíkurflugvelli, sem vinna
að fíkniefnamálum hver hjá sínu
embætti. Þessum hóp var ætlað
að skila tillögum um framtíðar-
skipan formlegs samstarfs milli
þessara embætta á sviði fíkniefna-
mála fyrir 1. desember.
Víst er að seint verður nóg að
gert til að stemma stigu við aukn-
um innflutningi og neyslu fíkni-
efna. Nýleg rannsókn meðal
framhaldsskólanema sýnir að
tæplega 42% drengja og 21%
stúlkna höfðu neytt ólöglegra
fíkniefna. Á sama tíma er áætlað
að „aðeins“ sé lagt hald á innan
við 10% þeirra fíkniefna sem flutt
eru til Iandsins.
fagfólki matvælaiðnaðarins á íslandi fyrír frábærar
Olóft.
Frá USA
Flottastir fyrir fatnaðinn
DANBERG
^SkúlagöU^K^ím^G^bÁT^
Höldur ehf.
Skrifstofur okkar verða lokaðar frá
kl. 12.00 -16.00 þriðjudaginn
29. desember vegna jarðarfarar Ágústs
Steinssonar.
Höidur hf.
Akureyri
Til viðskiptavina Búnaðarbankans
Útibú Búnaðarbankans verða lokuð
mánudaginn 4. janúar 1999.
Upplýsingar um víxla sem falla í eindaga um
jól og áramót liggja frammi í útibúum.
® BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF
CMt
i