Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 1

Dagur - 19.01.1999, Qupperneq 1
I Hann segist ekki vera mik- ill tölvugauren tókstþó að finna sérráðskonu á net- inu... „Það er nú alltaf vinnuaflsskortur hérna og við vorum eitthvað að Ieika okkur á netinu, ég og vinkona mín, þótt við kunnum nú eiginlega ekkert á það. Þá sáum við allt í einu auglýsingu frá konu í St. Pétursborg sem var matvælafræð- ingur og vildi fá vinnu á Vesturlöndum. Við djókuðum inn einhverju bréfi í sum- ar sem hún svaraði strax,“ segir Héðinn Sverrisson, bóndi á Geiteyjarströnd, um tildrög þess að honum hefur nýlega bæst liðsauki á búið, rússnesk kona sem hann kynntist á netinu. „Svo fórum við bara að skrifast á og senda myndir og urðum bara vinir á Netinu." Sjálfur seg- ist hann ekki vera mikill tölvugaur en vinkona sín hafi hjálpað sér við að kom- ast á netið og raunar líka við að skrifa bréfin. „Því ég er nú ekkert voða góður í enskunni. Reyndar ekki þessi rúss- neska heldur - hún kann að vísu rosa- lega góða skólaensku, er með góðan orðaforða en erfiðan framburð. En hún slípast fljótt í því.“ Hetmsótti hana til St. Péturshorgax Og þar sem Héðni leist vel á konuna og vantaði vinnukraft í Reykhúsið, þar sem hann reykir silung, var hann ekk- ert að tvínóna við hlutina. Keypti sér ferð til St. Pétursborgar í október og fór í vikuheimsókn til rússnesku vin- konu sinnar, hennar Rúfíu. Rúfía er fráskilin og bjó á 14. hæð í blokk ásamt 8 ára gamalli dóttur sinni og móður. Þótt Héðinn hafi ekki fallið fyrir híbýlum manna í Pétursborg („það er eins og það hafi elcki verið opnuð máln- ingardolla þarna í tíu ár“) þá þótti hon- um merkilegt að sjá hve fjölskyldurnar Jeltstn hurt og konmiúiiismaiiii aftur Rúfía vann við sitt fag í Pétursborg en það var hið almenna ástand í Rússlandi og lág laun sem hröktu hana til að aug- lýsa á netinu. „Þetta er náttúrulega bara landflótti og mér skildist á henni að það sé fullt af fólki sem sendi út svona neyð- arköll til Vesturlanda. Unga fólkið í fjöl- skyldunni hennar var með svona 100- 150 dollara á mánuði og af þessu voru þau að framfleyta fullorðnum foreldrum sínum. Sem er næstum því útilokað í dag. Núna t.d. getur maður keypt eitt brauð fyrir það sem maður keypti þrjú brauð fyrir í sumar. Annars er verðlagið þarna voðalega skrýtið. Margar nauð- synjar kosta lítið, t.d. brauð og fargjöld í strætisvögnum. Og íbúðirnar á ríkið og það er enginn borinn út þó menn eigi ekki fyrir húsaleigunni. Þannig að það er hægt að skrimta þama á engu - með því að éta brauðið eitt.“ Rúfíu mun hafa verið mjög létt þegar svar barst frá norrænu landi (þ.e. ekki frá Bandaríkjunum). „Það er svo ofboðs- lega neikvæð ímynd af Bandaríkjunum í þessari fjölskyldu. Eins og sá gamli sagði, móðurbróðirinn, þegar hann barði í borðið: Jeltsín burt og kommún- ismann aftur.“ Það er kannski ekki skrýtið að Rúfía og hennar fjölskylda skuli líta með söknuði til liðinna tíma, fyrir um áratug síðan höfðu þau það mjög gott. „Það er alveg ljóst að þetta fólk hefur verið mjög vel stætt. Enda voru allar hillur fullar af flottum stellum og konurnar með gull í tönnum." Komin til hiiimaríkis Rúfíu líst afar vel á sig í Mývatnssveit- inni og virtist Héðinn vongóður um að hún ílentist. „Eg held hún haldi bara að hún sé komin til himnaríkis. Enda ekk- ert venjulegt að koma hérna rétt fyrir jól- in og sjá öll jólaljósin og fíneríið og þetta gígantíska ofát. Eg er nú að segja henni að hún sé ekki alveg búin að fá rétta mynd af þessu. Stundum þurfum við að vinna mik- ið og hafa fyrir hlutunum..." LÓA Rúfía og Héðinn kynntust á Netinu fyrir tilviljun og nokkrum mánuðum síðar er Rúfía, sem var búsett í St. Pétursborg, flutt í Mývatnssveitina og farin að reykja silung við hlið Héðins. Virtist Héðinn nokkuð vongóður um að dvöl hennar ílentist. mynd: hari bjuggu þröngt, þrjár kynslóðir saman í kannski 30-50 fermetra íbúðum. „En það var gaman að sjá hvað þetta virtust samstæðar fjölskyldur. Fólkið hefur ekk- ert tíma til að vera í þessum fætingi sem við erum öll í.“ I Pétursborg hitti hann m.a. höfuð fjölskyldunnar, móðurbróður Rúfíu, sem hélt eðlilega að Islendingar væru afskaplega hamingjusöm þjóð af því þeir byggju í svo stórum húsum. „Ég sagði honum nú að Iífshamingjan byggð- ist ekki á stórum íbúðum." Þurrkari SG 510 'Barkitylgir 'Tekur 4,5 kg 'Snýr tromlu f báöar áttir ‘Ryöfrí tromla Hnappur fyrir kaldan blástur *Tvö þurrkkerfi 'Barki fylgir *Mál: hxbxd 85x60x54 cm Þurrkarf$Íf§600 Með þéttibúnaði (þarf ekki barka) 'Tekur 5,0 kg *Snýr tromlu í báðaráttir •Ryðfrí tromla * Valhnappur fyrir venjulegt eða viðkvæmt tau *Tvö þurrkkerfi 'Aðvörunarljós fyrir vatnslosun Þvottavéi WG1035 •Tekur 5,0 kg •Þvottakerfi 15 •Hitastillir stiglaus ’Vinduhraði 1000 - 600 sn/mín. •Sjálfvirk vatnsskömtun ‘Öryggislæsing 'Belgur ryðfrír •Tromla ryðfrí •Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 49.900.- stgr. Þvottavél WG 1235 •Tekur 5,0 kg 'Þvottakerfi 15 'Hitastillir stiglaus 'Vinduhraði 1200 - 600 sn/mín. •Sjálfvirk vatnsskömtun •Öryggislæsing •Belgur ryðfrír •Tromla ryðfrí •Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 52.900.-stgr. 'Þvottakerfi 15 “Hltastllllr stiglaus *Vinduhraði 900 - 500 sn/mln. ‘Sjálfvirk vatnsskömtun ’Aðvörunarljós fyrir lósigti Öryggislæsing Rúmmál tromlu 106 Itr. ‘Tromla ryöfrí *Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 39.900.- stgr. ‘Stórt huróarop 40 cm Hægt að breyta huröaropnun 'Mál: hxbxd: 85x60x60 cm Kr. 56.900.- «tgr. li’l-O j'j 1/ JHÍÚ iiJJil dilit;

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.