Dagur - 20.01.1999, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 - 23
Duj<ur_
LÍFIÐ í LANDINU
VEÐUR
FOLKSINS
MEINHORNIÐ
• Snjórinn getur
verið fallegur og
skemmtilegur
en snjórinn get-
ur líka verið
Ijótur og hættu-
Iegur, sérstak-
lega þegar
starfsmenn á
snjóruðnings-
tækjum í þétt-
býli hlaða upp
þvílíkum hrauk-
um af snjó við
innkeyrslur að
engin Ieið er
fyrir bifreiða-
stjóra að sjá
hvort von er á
umferð eftir
götunni og
hvort óhætt er
að renna sér í
slaginn.
Myrkrið hjálpar
stundum því þá
má ráða af
ljósagangi hvort
von er á bifreið.
Meinhymingur
býr í fjölbýlis-
húsi og þegar
hann á erindi út
fyrir heimilið,
til dæmis í vinn-
una, þá er það
með svita í lóf-
um og gæsahúð
á handleggjum
sem hann hættir
sér af bifreiða-
stæðinu og út á
götuna. Það er
nefnilega engin
leið að gera sér
grein fyrir hvort
óhætt er að fara
út á götuna.
Það hefur svo-
sem sloppið
hingað til...
Hver er ábyrgð og hvert er hlutverk meindýraeyða. í dagblaðinu Degi þriðjudaginn 15. des-
ember er frétt um rottueyðingu sem framkvæmd var á Stöðvarfirði íhaust með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum.
Hver er
memdýraeyða ?
ábyrgð
aevoa'?
JON SVANSSON
MEINDÝRAEYÐIR Á AUSTURLANDI
SKRIFAR
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
Hundar komust í eitur með þeim afleið-
ingum að einn drapst en annar slapp
naumlega. Starfsmenn Stöðvarfjarðar-
hrepps fengu nýtt hlutverk og starfa,
þ.e.a.s. að finna og tína saman rottueit-
ur sem dreift var á víðavangi óvarið og
aðgengilegt hverjum sem hafa viidi, og
unnu þar með verk þess verktaka sem
fenginn var til verksins og hafði fengið
greitt fyrir það. Um þetta vil ég hafa
nokkur orð.
A eitri fyrir mýs og rottur sem selt er,
eru varnaðarorð sem segja: „gangið
þannig frá að börnum og húsdýrum stafi
ekki hætta af ‘ og eiga allir sem fara með
eitur af þessu tagi að ganga þannig frá
að húsdjh: eða börn geti ekki komist í
það. Þetta á öllum sem við þetta starfa
að vera Ijóst.
Það sem á sér þarna stað er að verk-
takinn Arni Sigurbjörnsson sem gerir út
Meindýravarnir íslands fór mjög ógæti-
lega og stóð ekki rétt að frágangi á þeim
eiturefnum sem hann var að vinria með.
I stað þess að viðurkenna mistök sín,
opinberar hann vanþekkingu sína með
tilsvörum þeim og yfirlýsingum er hann
notar við að breiða yfir mistök sín. I
blaðinu segir Árni: „Það er mikið af
„grínpísum“ hérna. Hundar eru með
fimmhundraðfalt þefskyn mannsins og
lifnaðarhættir þeirra ekki þeir sömu og
mannsins. Auðvitað er sú hætta alltaf
fyrir hendi að hundar og kettir komist í
þetta.“ Þessi áhætta á að vera í lágmarki
en ekki regla og er það ef rétt er að far-
ið. Skemmtileg tjáning hans
um tvo tilgreinda hunda
undirstrika vandræðagang-
inn. Hann segir: „Þarna er
um að ræða vandræðahunda
sem aldrei voru í bandi."
Fullyrðing sem þessi skiptir
ekki nokkru máli og má líkja
svona tilsvörum, við kött á frosnum
sandi að klóra yfir skít.
Árni reynir með þessu að gera Iítið úr
viðskiptavinum sínum sem koma til með
að greiða reikninginn fyrir veitta þjón-
ustu. Síðan kallar hann mig kjána vegna
gagnrýni minnar á óvönduðum vinnu-
brögðum hans við meðferð og frágang
eiturs.
Þessi orðaleppur leitar strax til föður-
húsa og á tnjög vel við Áma og þá sér-
stkalega eftir lestur fréttarinnar:
Hver er ábyrgur í svona máli? Er það
verkkaupi eða verktaki?
Verktaki hlýtur að bera ábyrgð á þeim
verkum sem hann tekur að sér. Verk-
kaupi leysir sig að hluta til eða öllu leyti
frá ábyrgð með því að fá utanaðkomandi
fagmenn sem verktaka til að vinna
ákveðin verk og eiga þeir þá að vinna
sem slíkir.
Undirritaður rekur Meindýravarnir
Austurlands og hefur farið víða um land
undanfarin ár og unnið fyrir sveitarfé-
lög, einstaklinga og þó sérstaklega
bændur, án þess að verða frægur að
endemum fyrir stórkostlegar lýsingar á
eigin verkum. Og nú eftir að hafa lesið
og með því séð hvernig menn geta valt-
að yfir sjálfan sig með ógætilegum yfir-
lýsingum er ég sannfærður um að ég hef
farið rétta Ieið við mína starfsemi
þ.e.a.s. farið eftir þeim reglum sem í
gildi eru og taka ekki óþarfa áhættu við
meðferð eða notkun eiturefna hvort sem
er skordýraeitur fyrir nagdýr eða illgres-
iseyðandi efni. Síðast en ekki síst er það
viðskiptavinurinn. Mörg verk eru þess
eðlis að viðskiptavinur verður að geta
treyst á trúnað og að um þau sé ekki
fjallað á öðrum vettvangi. Viðskiptavinur
fái þá þjónustu sem hann biður um, á
sanngjörnu verði. Þessar vinnureglur
hafa skilað góðum árangri í starfi og
stórum hóp ánægðra viöskiptavina.
Læt ég nú lokið umfjöllun minni um
mál þetta.
Pennavtnir óskast
Blaðinu hefur borist eftirfarandi
bréf:
Nítján ára gömul írsk stúlka
óskar eftir karlkyns pennavinum
frá Islandi. Mig langar til að heyra
frá þér. Hafir þú áhuga, skrifaðu
þá til:
Shona McCormack
11 Foxhill Cresent
Baldoyle, Dublin 13, Ireland.
Veðrið í dag...
Fremur hæg norðlæg átt fram eftir morgni, síðan
norðvestan kaldi eða stinningskaldi um landið sunnanvert
en vaxandi norðanátt norðanlands. Úrkomulaust að mestu
á Suð-Austurlandi og léttir heldur til sunnan til á
Austfjörðum, éljagangur um landið vestanvert en vaxandi
snjókoma norðanlands. Hiti um frostmark suðaustanlands
en frost víða 2 til 6 stig í öðrum landshlutum.
ffiti 5 til 0 stig
Blönduos
Akureyri
CSL.
mm |c i ^CC)
M ■ ■ 1,1 ■,
Flm Fö'*
-10 0-
■5 -5-
0 -10'
■ ■■ 1 i
✓VÍS. í I
Egilsstaðir
WÍ1-. \ {
Bolungarvík
Þrl Miö Fkn Fös
'C) mrr ■« 1 Á -10 ; 0- ') mm ■ - - l T T t
B B. .M ■- - - ■5 -5- -o -io-
Mán Þrt Mlð Ftm Fös
//V—. I í sr/ rí { : ffíKIf.
Reykjavík
Kirkjubæjarklaustur
C&-
■ ■
C£L
-10 6
-5 0-
Þri Miö Flm Fö* Lau
í[{{{ f .
Stykkishólmur
Þri M.Ö Flm Fðs
! víKá ^
Stórhöfði
CQL
Þri Mið Flm Fös
í íll í /U
10 1 6-
-5 0-
■ ll ■ ■ ■
Mén Þri
:í\\\{
•^*
Veðurspárit 19.1.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði táknaður með
skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s. er
k
Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegiun
Vegna versnandl veðurs og snjóflóðahættu hefur þjóðvegi 1
um Ljósavatnsskarð verið lokað um óákveðinn tíma. Á
Vestfjöróum er Steingrímsfjarðarheiði og vegurinn um
ísafjarðardjúp talinn ófær. Á Norðaustur- og Austurlandi er
víðast hvar skafrenningur og vegir þungfærir. í öðrum
landshlutum er allgóð vetrarfærð.
SEXTÍU
OG
SEX
NORÐUR