Dagur - 26.01.1999, Page 1
BLAÐ
(íMfcníi
raiskantj
Ltengingl
^viSKipturmstalaril
mmmmm
—______
l augun og eyrun
IÞ.riisgj.a ár;2 á'tryngö
;á íölium IPíiorneer iRhofnfiutnirigstáSsjum
.M
ycfiskur
hliómfiutn i: n;g stæki JV1
utvarpsmaqnari imeó Jf M
ri f\n W úr í/ rrt • Ctofr-nn ♦ annin'rr
°/2Ef£flfl7
bassi og diskant >• Stafrsn ’.enginq
f-2 wáy) • ,SubwgffeSr >
kr! 44:900. •-•i(ekki'nnnitáíí3!ÍSér?T
59
HM
3ME5
830333;®
gfMm-ÍMgram
Þegar hijómtæki skípta máií
it*
: B
hátalarar.
satem)
otfcE^TfiiffCaafl
œrft
BRÆÐURNIR
PIOKMSSONHF
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Oðruvísi útvarp
íslenskt útvarp skráir söguna á hverjum degi og viðheldur jafnframt íslenskri dægurtónlist og dægurmenningu, því við skulum ekki
gleyma því heldur að tónlist er menning, “ segir Jón Axel Ólafsson hér í viðtalinu. Við tækniborðið er dagskrárstjórinn, Ágúst
Héðinsson. mynd: pjetur.
Útvarp ísland
sem leikuraðeins
íslenska dægur-
tónlistferíloftið
á næstu dögum.
Menningarlegt
útvarp, segirút-
varpsstjórinn Jón
Axel Ólafsson,
sem segirákveð-
na þörfá mark-
aðnum fyrirút-
varpsstöð afþess-
um toga.
„Við höfum gert kannanir
sem sýna glögglega að full-
ur markaður á að vera fyr-
ir útvarpsstöð sem myndi
einbeita sér að íslenskri
tónlist alfarið. Samkvæmt
niðurstöðum þessara
kannana förum við einmitt
í loftið með Utvarp Island,
en jafnframt ætlum við að
auka umsvif og rekstur Islenska fjölmiðlafé-
lagsins sem rekur Utvarp Matthildi, en
rekstur þeirrar stöðvar hefur gengið mjög
vel. Með Utvarp Islandi teljum við okkur
vera að fylla upp í ákveðna þörf sem er á
markaðinum og þá hygg ég að við séum að-
allega að höfða til útvarpshlustenda sem
eru þrítugir og þaðan af eldri,“ segir Jón
Axel Ólafsson, útvarpsstjóri.
„Þetta verður meimiiigarlegt
útvarp“
Utvarp Island fer í loftið strax uppúr mán-
aðamótum og starfsfólk íslenska fjöl-
miðlafélagsins vinnur þessa dagana við að
móta dagskrá stöðvarinnar og hnýta aðra
lausa enda. Jón Axel Ólafsson segir að vel
verði lagt í dagskrárgerð alla, til að mynda
verði efnt til víðtæks samstarfs við ís-
lenska tónlistarmenn um til dæmis tón-
leikahald og annað slíkt. Jafnframt verða
nokkrir tónlistarmenn í hópi þáttastjórn-
enda, en Jón vill þó á þessu stigi ekki upp-
lýsa hverjir þar séu á ferð. Hann segist
reikna með að um átta manna hópur muni
sjá um dagskrárgerð á stöðinni.
„Þetta verður menningarlegt útvarp,"
segir Jón Axel Ólafsson og skírskotar þar
meðal annars til þess samstarfs sem Ut-
varp íslands hyggst eiga við íslenska tón-
listarmenn í framtíðinni. „Islenskt útvarp
skráir söguna á hverjum degi og viðheldur
jafnframt íslenskri dægurtónlist og dægur-
menningu, því við skulum ekki gleyma að
tónlist er menning án þess þó að ég sé að
tala um að við séum að fara af stað með
rekstur útvarpsstöðvar, sem starfa mun í
anda þess sem við þekkjum af Rás 1.“
Frá Hauki til Bubba
Aðspurður um íslensku tónlistina á Ut-
varp íslandi segir Jón Axel
hana vera allt frá árunum í
kringum 1957, eða frá þeim
tíma sem íslensk dægurtón-
list fór fyrst að heyrast fyrir
alvöru, óg síðan állt það sem
á eftir hefur komið; það er
fram til líðandi stundar.
Þetta verða lög frá Hauki
Morthens til Bubba frænda
og frá Ellý Vilhjálms til
Bjögga Halldórs. Og allt þar
á milli.
„Nei, ég hef ekki nokkrar
áhyggjur af því að úrvalið af
íslenskri tónlist sé ekki það
mikið að við lendum í ein-
hverri síspilun á sömu lög-
unum. Síður en svo óttast ég
þetta sem þú nefnir, í raun-
inni þvert á móti. Við höfum
úr miklu að velja," segir Jón
Axel.
Að íslensk tónlist fái
sérstakan sess
Vegna stefgjalda til eigenda
flutningsréttar þá er nokkru
dýrara að leika íslenska tón-
Iist en erlenda í útvarpi. Og
þetta segir Jón Axel að vissu-
lega geri rekstrargjöld vegna
Utvarps Islands nokkru dýr-
ari en ella, en engu að síður
ætli menn að setja markið
hátt með dagskrárstefnu af
þessum toga. Sem áður seg-
ir fer hin nýja útvarpsstöð í loftið fljótlega
eftir mánaðamótin og verður þá kynnt
frekar senditíðni hennar og fleira slíkt, en
til að byrja með munu útsendingarnar að-
eins nást um Faxaflóasvæðið.
Utvarp Island ætlar að vera öðruvísi en
hinar útvarpsstöðvarnar, sem enginn veit
líklega lengur hvað eru orðnar margar.
„Það er löngu tímabært að islensk tónlist
fái sérstakan sess í íslensku útvarpi á fyrsta
al-íslensku útvarpsstöðinni," segir Jón
Axel Ólafsson. -SBS.