Dagur - 29.01.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 29.01.1999, Blaðsíða 10
10 Jtó'ÍfoM'ÁfChfR $¥*)'áW'ÁwWí9 SMAAUGLYSINGAR Til sölu Til sölu kelfdar kvígur. Burðartími febrú- ar/mars. Upplýsingar í síma 466 1842. Atvinna______________________________ Stærsta atvinnutækifærið á Islandi. Hálft starf 50-150 þúsund. Fullt starf 150-500+ þúsund. Kynningarfundur á Fosshótel KEA laugardaginn 30. janúar 1999 klukk- an 10.00. Nánari upplýsingar í síma 852 9709. Jó- hanna Harðardóttir. Takið eftir Minjasafn Slysavarnafélags Islands. Minjasafnið er opið í vetur á laugar- og sunnudögum kl. 13.00-17.00. Á safninu eru til sýnis munir og myndir úr 70 ára starfi fé- lagsins sem tengjast þáttum eins og björg- unarbátum, björgunarskipum, þyrlubjörgun, sjúkraflugi, fræðslustarfi og fjarskiptatækni, auk slysavarna- og björgunarstarfs. Hópar sem óska eftir að heimsækja safnið utan opnunatima er vinsamlega bent á að hafa samband við safnvörð, Unnar Guð- mundsson í síma 422 7253. Minjasafn Slysavarnafélags íslands Þorsteinsbúð við Gerðaveg, Garði. Sími 422 7560. Minningarkort Slysavarnafélags Islands. Minningarkort Slysavarnafélags íslands fást á skrifstofu félagsins. Kortin eru send bæði innanlands og utan og hægt er að styrkja hvaða björgunarsveit eða slysavarnardeild- innan félagsins sem er. Gíró- og greiðslukortaþjónusta. Slysavarnafélag íslands, Grandagarði 14, Sími 562 7000. Hjálpræðisherinn Akureyri Fatamarkaður alla föstudaga milli kl. 10 og 17 i húsi Hjálpræðishersins að Hvannavöll- um 10. Minningarkort Krabbameinsfélags Akur- eyrar og nágrennis eru seld á eftirtöldum stöðum: Blómabúðinni Akur, Blómabúð Ak- ureyrar, Blómaval, Bókabúð Jónasar, Bók- val, Möppudýrinu og Islandspósti. Minningarspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá Pedromyndum, Skipagötu 16. Minningarspjöld Zontaklúbbs Akureyrar fást í Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti og Blómabúðinni Akri, Kaupangi. Hornbrekka Ólafsfirði. Minningarkort Minningarsjóðs til styrktar elliheimilinu að Hornbrekku fæst í Bókvali og Valbergi, Ólafsfirði. Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást i Bókabúð Jónasar og Blómabúðinni Akri. Kirkjustarf Hallgrímskirkja Orgelandakt kl. 12.15-12.30. Orgelleikur, ritningarlestur og bæn. Langholtskirkja Opið hús kl. 11-13. Kyrrðar- og bænastund kl. 12.10. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð. Laugarneskirkja Mömmumorgun kl. 10-12. Fella- og Hólakirkja Opið hús fyrir unglinga á laugardögum kl. 21. Þvottahúsið Glæsir Skógarhlíð 43, 6€1 Akureyri fyrir ofan Byggingavörudeild KEA Tökum alhliða þvott allt fró útsaumuðum dúkum og gardínum til vinnu- og 461-1735 og 46M386 skíðagalla Opið fró 12 -18 virka daga Sœkjum - sendum cm SNJOMOKSTUR Tökum að okkur snjómokstur á litlum og stórum plönum. Góðar vélar vanir menn. s Gerum verðtilboð ef óskað er. Sími 8996220 og 8938887 (Þengill) Hafnarverk ehf. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi ÓLAFUR ÞORSTEINN STEFÁNSSON fyrrum bóndi Víðihóli, Fjöllum, til heimilis að Miðvangi 22, Egilsstöðum, áður Löngumýri 12, Akureyri, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14.00. Gunnlaug Ólafsdóttir, Sigurður Sveinsson, Þórunn Guðlaug Ólafsdóttir, Einar Rafn Haraldsson, Gunnlaugur Oddsen Ólafsson, Oktavía Halldóra Ólafsdóttir, Margrét Pála Ólafsdóttir, Lilja S. Sigurðardóttir, Stefán Sigurður Ólafsson, Hrafnhildur L. Ævarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. PETUR GAUTUR eftir Henrik Ihsen Sýningar: fös. 29. jan. kl. 20 lau. 30. jan. kl. 20 fös. 5. feb. kl. 20 lau. 6. feb. kl. 20 Glefsur úr leikdómum: „Hið vandasama aðal- hlutverk leikur Jakob Þór og ferst það vel úr hendi. Framsögn hans er til fyrir- myndar og leikurinn af- burðagóður." „Leikur, búningar, tónlist, leikmynd og lýsing mynda mjög sannfærandi heild þar sem textinn er gerður að lifandi afli sem hrífur áhorfandann með ser. Sveinn Haraldsson MBL „Uppsetning Leikfélags Akureyrar á Pétri Gaut hlýtur að teljast leiklist- arunnendum á Akureyri og í nærsveitum kær- komið tækifæri til þess að njóta einnar af perlum leikbókmenntanna. Þeir ættu ekki að láta það fram hjá sér fara." Haukur Ágústsson Degi „Sveinn Einarsson leik- stjóri hefur skilað hreint frábæru verki. Svona á leikhús að vera og það er einfaldlega fullkomin synd að láta þessa sýn- ingu fram hjá sér fara." Þórgnýr Dýrfjörð RÚVAK „Leiftrandi skemmtileg sýning þar sem ævintýrið er höndlað í eftirminni- legum atriðum. Ógleym- anlegt." Auður Eydal DV TEATER G£ DANS I NORDEN fy LEIKFELAG AKUREVRAR SÍMI 462 -1400 ÞJÓÐMÁL Býð mig firam í þágu heil- brigðismála GUÐRUN SIGURJÓNS- DOTTIR sem gefur kost á sér í 2. sæti i prófkjöri samfylkingarinnar SKRiFAR Hvetux starísíoJk í heilbrigðisþjdnustu að fyHcja liði, því aHir geta kosið í prófkjör- inu. Heilbrigðismálin hafa ekki verið í öndvegi á Alþingi Islendinga. Þau hafa mætt afgangi í seinni tíð; að ekki sé fastar að orði kveðið. Því er haldið fram að stöðugt séu að aukast fjárfram- lög til heilbrigðismála. Það er rétt að þau hafa aukist en þjóðfé- lagið hefur allt bólgnað út í efna- hagslegum stærðum. En það er ekki þar með sagt að heilbrigðis- málin hafi haldið sínum hlut. Ekki hefur verið sýnt fram á það. Þvert á móti: Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhagsstofn- un hafa framlög tilheilbrigðis- mála sem hlutfall af vergri lands- framleiðslu farið lækkandi. Framlögin til heilbrigðismála á árinu 1997 voru 7,88% af lands- framleiðslu,en voru árið áður 8,15%. Þarna á milli eru 0,27% eða um einn og hálfur milljarður króna. Það er með öðrum orðum þannig að hlutfall heilhrigðis- mála af landsframleiðslunni hef- ur lækkað. Og þó segir þetta ekki allt því einstaklingarnir borga nú meira en áður vegna þess að íslendingar húa við hærra hlut- fall lyfjakostnaðar frá sjúlding- unum en nokkurt annað ríki í Vestur-Evrópu. Þessar stað- reyndir segja vonandi sitt. Það er nauðsynlegt að menn geri sér ljóst að heilbrigðisþjón- ustan á Islandi er ekki dýr. Hún er ódýr. Söngur ráðamanna um að heilbrigðisþjónustan sé dýr hefur heyrst úr ólíklegustu átt- um; jafnvel úr heilbrigðisráðu- neytinu sem á þó að standa vörð um hagsmuni heilbrigðisþjón- ustunnar sem slíkrar, sjúklinga jafnt og annarra sem þar sækja þjónustu. Staðreyndin er sú að kostnaður við heilbrigðismál á Islandi er svipaður í röð þróaðra ríkja og hann ætti að vera miðað við þjóðartekjur á mann. Hvað er hægt að gera á Al- þingi? Það er hægt að beita sér fyrir heildarstefnu í heilbrigðismálum tilnokkkurra ára. Sú stefna er ekki til. Það er hægt að knýja það fam að stjórnvöld hafi samvinnu við- starfsfólkið í heilbrigðisstofnun- um. Það hefur ekki verið gert. Það er hægt að skapa sam- stöðu stjórnvalda og starfsfólks um nýja stefnumótun til langs tíma. Ég býð mig fram í hólfi AI- þýðubandalagsins í prófkjöri samfylkingarinnar. Það er opið prófkjör og allir geta kosið. Eg skora á starfsfólk í heilbrigðis- þjónustu að veita því athygíi að ég er að bjóða mig fram í þágu heilbrigðismála. Það gerir eng- inn annar frambjóðandi. Verum samferða. Röðirn í sæti eftir atkvæðamagni Ein villa var í þeim hluta greinar Svavars Gestssonar alþingis- manns í Degi í gær sem sýndi hver gæti orðið röð flokka sam- fýlkingarinnar eftir atkvæða- magni í prófkjörinu um helgina. Hér birtist útreikningurinn rétt- ur: Segjum að hæsti flokkur fái 100 atkvæði, næsthæsti 90 at- kvæði og þar næsti flokkur 40 at- kvæði. Þá raðast sætin þannig: 1. sæti samfylkingarinnar fær hæsti flokkurinn með 100 at- kvæðum og er það 1. sæti þess flokks. 2. sæti fær næsthæsti flokkur með 90 atkvæðum og er það 1. sæti þess flokks. 3. sæti fær hæsti flokkur með 100:2 - það er með 50 atkvæðum - en þetta sæti er 2. sæti þess flokks sem flest atkvæðin fær. 4. sæti fær flokkurinn sem þá er ekki kominn enn á blað með 40 atkvæði og er þetta þá fyrsta sæti þess flokks sem hefur fæst atkvæði. 5. sæti fær svo næsthæsti flokkurinn á ný með 90:2 eða 45 atkvæðum og er þetta annar fulltrúi flokksins. 6. sæti fær hæsti flokkurinn með 100:3 eða 33 1/3 atkvæð- um og er þetta þriðja sæti hæsta flokksins. 7. sætið verður svo þriðja sæti næsthæsta flokksins eða 90:3 eða 30 atkvæði. 8. sæti fær sá flokkur sem nú hefur aðeins fengið einn mann, eða 40:2 með 20 atkvæðum. 9. sætið fær hæsti flokkurinn °g 10. sætið fær næsthæsti flokk- urinn samkvæmt sérstakri reglu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.