Dagur - 16.02.1999, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGIJR 16. F F. R R Ú A R 1 999 - 11
ERLENDARFRÉTTIR
HEIMURINN
Samnmgsfrestiu framlengdur
FRAKKLAND - Serbar og Albanir hafa fengið rrest þar til á hádegi á
laugardag til þess að komast að bráðabirgðasamkomulagi um stöðu
Kosovo-héraðs, en þeir hafa nú setið í 10 daga að samningaviðræð-
um í Rambouillet-höll skammt utan við París. Serbar og Albanir hitt-
ust í fyrsta sinn augliti til auglitis um helgina meðan Madeleine Al-
bright, utanríldsráðherra Bandaríkjanna, kom við hjá þeim til að
hveja þá til samninga. Hótaði hún loftárásum á Serba eða einangrun
Albana ef þeim tekst ekki að semja.
trakar hóta
ÍRAK - Stjórnvöld í írak lýstu því yfir í gær að nágrannaríkin Kúveit
og Sádi-Arabía geti reiknað með hefndaraðgerðum af hálfu Iraka ef
þau haldi áfram að veita Bandaríkjunum og Bretlandi aðstöðu til að
halda uppi árásum á írak. Aðstoðarforsætisráðherra Iraks hélt einnig
til Tyrklands í gær, og var reiknað með því að hann hefði stjórnvöld-
um þar í Iandi svipaðan boðskap að færa.
Neðanjarðarlestir lamaðar
BRETLAND - Verkfall starfsmanna neðanjarðarlesta í London varð
til þess að u.þ.b. 40% neðanjarðarsamgangna í borginni Iágu niðri. 25
neðanjarðarstöðvar voru lokaðar í gær og hundruð þúsund farþega
þurftu að notast við strætisvagna eða leggja á sig langa bið og króka-
leiðir til þess að komast á áfangastað. Verkalýðsfélag starfsmannanna
krefst þess að allir starfsmenn neðanjarðarlestanna, 15.000 að tölu,
fái tryggingu fyrir áframhaldandi atvinnu, en þeir óttast mjög að
einkavæðing Iestanna leiði til uppsagna.
^ SUZUKI
-.' '
Frá Grænlandi.
sem blásin hafa verið upp,“ segir
Gunnar Bragi, „frekar en að taka
á raunverulegum vandamálum,
sem Grænlendingar þurfa að
takast á við. Þar má helst nefna
atvinnumál, fjármálin og afstöð-
una gagnvart Dönum. Oll þessi
stóru mál hafa einhvern veginn
legið í láginni." — GB
Búist við
úrslit þeirra.
Þetta eru fyrstu kosningar sem
haldnar eru eftir að Grænland
var gert að einu kjördæmi, en
áður var Iandinu skipt upp í átta
kjördæmi.
Aberandi hefur verið óánægja
með núverandi stjórnmálamenn
á Grænlandi, og svo virðist sem
mikill hluti Grænlendinga hafi
það á tilfinningunni að stjórn-
málamennirnir hafi aðallega
áhuga á því nota embættið til
þess að hagnast sem mest sjálfir
og notfæra sér ferðalög og önnur
fríðindi sem mest þeir mega.
Hópur frambjóðenda, sem
ekki eru í neinum flokki, hefur
myndað með sér bandalag
óháðra frambjóðenda og má
reikna með að sá listi fái verulegt
óánægjufylgi. Talsmenn flokk-
anna hafa þó óspart varað kjós-
endur við Frambjóðendabanda-
laginu, og segja það sundurlaust
samansafn einstaklinga sem
muni eingöngu stuðla að ringul-
reið í grænlenskum stjórnmál-
um.
I skoðanakönnun, sem birtist í
grænlenska dagblaðinu
Sermitsiaq á föstudag, segir að
þriðji hver kjósandi sé óákveð-
inn. Sama könnun bendir til
þess að báðir stjórnarflokkarnir,
Siumut og Atassut, missi veru-
legt fylgi. Svo gæti farið að Si-
umut eigi engu að síður kost á
því að mynda samsteypustjórn,
og þá annað hvort áfram með
Atassut, eða með IA, flokki
Inúíta, sem búist er við að vinni
nokkuð á í kosningunum.
Nýr
fjórhjóladrifinn
Baleno Wagon
verð aðeins:
1.675.000 kx
T3 A T T7KTO
1N Vy
Kynslóöaskipti
Gunnar Bragi Guðmundsson,
forstjóri grænlenska sjávarút-
vegslyrirtækisins NUKA, þekkir
vel til grænlenskra stjórnmála.
Hann segir að „ákveðin kyn-
slóðaskipti séu að eiga sér stað í
grænlenskum stjórnmálum,
jafnvel þótt þau muni ekki ná al-
veg í gegn í þessum kosningum.
Unga fólkið er samt greinilega
farið að láta meira í sér heyra og
verður örugglega áberandi á
næsta kjörtímabili."
„Búið er að skapa töluverðan
titring í kringum það að allir
frambjóðendurnir eru í einu
kjördæmi. Flokkarnir virðast
hafa sundrast svolítið og vantar
alla heildarframsetningu á
stelnumótun þeirra. Innbyrðis
ágreiningur hefur verið áber-
andi.“
Það eitt að Iandið er orðið eitt
kjördæmi breytir afar miklu.
„Það er alveg klárt að eftir þetta
eiga smáþorp Iitla möguleika á
að koma fólki inn á þing,“ segip
Gunnar Bragi. „Það var vonast
til þess að þetta myndi Iyfta Um-
ræðunni upp á meira landsplan,
að menn hætti þessum byggða-
umræðum þar sem hver var að
ota sínum tota. Það var einmitt
ástæða þess að ráðist var í þess-
ar breytingar, og verður að telja
vonbrigði hve umræðan hefur
samt verið á lágu plani."
„Athyglin hefur einkum verið
á bruðl hjá stjórnmálamönnum
og einstökum málum af því tagi
breytingnm
Grænlendingar ganga
til kosninga í dag, og
ríkir mikil óvissa uin
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Þægindi alla leið
• Nýtt stílhreint og glæsilegt útlit • Sérlega rúmgóður • ABS
• Sameinar mikið afl og litla eyðslu • Öryggisbúnaður eins og hann gerist bestur