Dagur - 16.02.1999, Qupperneq 12

Dagur - 16.02.1999, Qupperneq 12
hiiiiiiiiiiiiiiiiii iiTi .... mi ■ ■ ■ ■ ii ■ ■ i ■ 11 ii irriTTi 111111 rri i iiiiniiiiií iiiiiim iiiimii i itt 12 - ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 „ Irnvrlnr XI S 462 3500 STUDIO 54 vinsælasti og umdeildasti skemmtistaður allra tíma. Þar var allt leyfilegt og diskóið réði ríkjum. Þangað komst enginn inn nema að vera ann- aðhvort frægur eða moldríkur. Upplifðu diskóið uppó nýtt og sjóðu erótiska útgófu þessarar umdeildu myndar. □□ i polbv ] D I G I T A L Þriðjud. kl. 21.00 og 23.00. Takmark þeirra var að uppræta óvininn. Aðferðir þeirra voru mjög ólíkar. Frelsi fólksins hangir ó blóþræði. Denzel Washington, Annette Bening og Bruce Willis. THE SIEGE. B.i. 16 óra. Fróbær tryllihryllir fró sömu aðilum og gerðu I know what you did last summer. Fróbær spennu- mynd sem fær hórin til að rísa. Þriðjud. kl. 23. nn i potBY i D I G I T A L Þriðjud. kl. 21. 11 imom'l 0 I G I T A L nýjfl bío Sýnd kl. 5 og 7 (90 mín.) Isl. tal Sýnd kl. 9 og 11.15 ro^tr ÍÞRÓTTIR L > Bikarmeistarar Fram. Hugrun lokaði markiuu Hugrún Þorsteius- dóttir, markvörður Fram, átti frábærau leik þegar Fram vann Hauka 17-16 íúr- slitaleik SS-bikars kvenna í Laugardals- höU á laugardagiun. Hugrún lokaði hreinlega. mark- inu í upphafi leiksins og varði alls 25 skot í öllum Ieiknum. Hún fékk aðeins á sig tvö mörk í fyrstu fimmtán sóknunum, á meðan Fram skoraði tólf. Fyrir framan Hugrúnu lék svo geysi- sterk vörn Framara, sem hélt sóknarleik Hauka algjörlega niðri, lengst af fyrri hálfleiksins og var staðan í hálfleik orðin 12- 7. Marina tekin úr umferð Eftir góðan leik Marinu Zouevu í fyrri hálfleik brugðu Haukarnir á það ráð að taka hana úr um- ferð í seinni hálfleik. Við það riðlaðist sóknarleikur Framara verulega og mörkin létu á sér standa. Þær skoruðu ekki nema eitt mark fyrstu fimmtán mínút- urnar og á meðan minnkuðu Haukarnir sífellt muninn og höfðu náð eins marks mun rétt eftir miðjan hálfleikinn. En lengra komust þær ekki og Fram tókst að halda fengnum hlut, með mikilli baráttu í vörninni og frábærri markvörslu Hugrúnar, sem varði hvert dauðafærið eftir annað hjá Haukum. Marina Zoueva skoraði mest fyrir Fram, 5/3 mörk, en Svan- hildur Þengilsdóttir 4. Hjá Haukum átti Hanna B. Stefánsdóttir bestan leik og skoraði 3 mörk, eins og þær Björg Gilsdóttir, Judit Estergal og Sandra Anulyté. Góð vöm og markvarsla lagði grunninn að sigrinum Að vonum var Gústaf Björnsson, þjálfari Fram, hress með stelp- urnar sínar og sagði að góð vörn og markvarsla hefði lagt grunn- inn að sigrinum. „Ég er mjög ánægður með það hvað stelp- urnar opnuðu Ieikinn vel í upp- hafi og að því bjuggum við svo allan leikinn. Það var samt farið að fara um mig þegar Haukarnir minnkuðu muninn í 13-12 og höfðu tækifæri á að jafna og einnig stuttu seinna þegar þær komust í 14-13. Sem betur fer náðu mínar þá að skora tvö mörk í röð og tryggja okkur sigurinn á lokamínútunum.” - Áttirðu von á Haukunum steriiari? „Einhvers staðar stendur að ekkert lið spili betur en and- stæðingurinn leyfir og ég held að það hafi vel komið í ljós í þess- um leik. Mér fannst Haukarnir alls ekki spila illa, en það gerði gæfumuninn að við fundum varnartaktinn svona vel strax í upphafi og við því áttu Haukarn- ir ekkert svar. Við höfum verið að skora allt að 25 mörk í leik í deildinni og núna dugðu okkur 17. Það sem vantaði upp á voru mörkin utan af velli, en það hef- ur sínar eðlilegu skýringar." - Hvað viltu segja um frammi- stöðu Hugrúnar í markinu? „Hugrún hefur verið að leggja inn á sinn reikning að undan- förnu með því að vera markvörð- ur númer tvö, en nú er komið að því að hún fari að taka út. Hún hefur staðið sig mjög vel í vetur og er búin að spila sig inn í landsliðshópinn. Hún átti mjög góðan leik og átti sinn þátt í sigrinum." - Áttu von á góðu gengi í deild- inni eftir bikarsigurinn? „Það er mjög gott vegarnesti fyrir hópinn að taka einn af þess- um stóru titlum áður en lokaá- tökin hefjast í deildinni. Það verður allavega engin pressa á okkur og það er mjög þægileg til- finning. Pressan verður því hjá öðrum sem ekkert hafa unnið ennþá,“ sagði Gústaf Björnsson, þjálfari Fram. Speirna í DHL-deildimii MHdl barátta er iliii „þægHegt“ sæti í úr- slitakeppniiuii í DHL- deHdiimi í körfu- bolta. Átjánda um- ferðin hófst um helg- ina með spennandi úrslitum. Mikil barátta er um efstu sætin í úrvalsdeildinni í körfubolta. Keflvíkingar eru enn á toppi deildarinnar og ekkert bendir til þess að þeir mi'si það fyrir úr- slitakeppni. 1 nnbyrðisleikir efstu liða gætu að vísu breytt því. Sætabaráttan um annað til fjórða sætið er mjög spennandi í augnablikinu. Keflvíkingar, sem steinlágu fyrir Grindavík í síðustu umferð, unnu auðveldan sigur á Hauk- um á heimavelli sínum 107-82. Keflvíkingar fóru heldur betur í gang í síðari hálfleik eftir að ,jafnræði ^hafði. yerið .rneð liðun-. um í fyrri hálfleik. Damon John- son fór á kostum, skoraði 43 stig fyrir Keflvíkinga og virðist hann vera í ótrúlega góðu formi. Langt er síðan Haukar hafa verið svo neðarlega í deildinni, en þeir eiga nú í baráttu við Skagamenn um sæti í úrslitakeppninni. Skagamenn unnu góðan sigur á Þór á Akureyri, 112-95. Aðeins sex stig skildu liðin að í hálfleik, en gestirnír skoruðu fyrstu fjórt- án stigin í síðari hálfleik og það á aðeins tveimur og hálfri mínútu. Þórsarar eru í næst neðsta sæti og aðeins IJórum stigum fyrir ofan Valsmenn þegar fjórar um- ferðir eru eftir. Njarðvíkingar unnu tvo góða sigra um helgina. A föstudags- kvöld sigruðu þeir Isfirðinga á útivelli og á sunnudag sigruðu þeir Skallagrím með miklum mun, 107-77. Njarðvíkingar virðast vera í miklum ham og verða erfiðir á lokasprettinum. Leikmenn Iiðsins virðast vera hungraðir í fleiri titla en bara Bikarínn. ' sflrðingar unnu . mjög .mikil- vægan sigur á KR-ingum í bar- áttunni um gott sæti í úrslita- keppninni, 90-81. Keith Vassel, besti leikmaður KR-inga, var í miklum %álluvandræðum og kom það mikið niður á leik liðsins. Þetta nýttu Isfirðingar sér vel og gengu á Iagið og sigruðu á loka- sprettinum. Þessi tvö lið verða mjög áberandi í urslitakeppnii.ni með sterka heimavelli. Valsmenn færðust nær falli í Stykkishólmi. Snæfell sigraði 80-71. Jafnræði var með liðun- um í fyrri hálfleik og leiddu Vals- menn með fjórum stigum þegar flautað var til hálfleiks. Snæfell náði forystunni fljótlega í síðari hálfleik og hélt henni allt til loka leiksins. Valsmenn verða heldur betur að "spýta í lófana ef þeir ætla að halda sæti sínu í úrvals- deildinni. I gærkvöld fór fram síðasti leikurinn í 18. umferðinni þegar Grindvíkingar sóttu Tindastól heim til Sauðárkróks. Leikurinn endaði með sigri Tindastóls sem skoruði 90 stig gegn 71 stigi Grindvíkinga.,. ■ tt P5.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.