Dagur - 27.02.1999, Side 1
Laugardagur 27. febrúar - 8. tölublað 1999
- ■ ■
\m m\
Ðagleg ánægja I
mUljóna manna
um allan heim
myja
V ■
Byggingin með bogadregnu framhliðinni er hið upprunalega Nýja bíó. Skrifstofubyggingunni til vinstri var bætt
við síðar. mynd: g.v.a.
Upphaf og
hnui
• i
Bjarni Jónsson frá Galtafelli var einn af athafnaskáldum fyrri
hluta aldarinnar, sem breyttu Reykjavík úr fátæklegum bæ í
borg. Hann var bróðir Einars myndhöggvara og voru þeir Hkir
að listfengi og áræði. Báðir hleyptu þeir heimadraganum og
fóru til náms í Kaupmannahöfn. Bjarni lærði smíðar og tré-
skurð. Bjarni stofnaði Gamla kompaníið, þar sem vönduð hús-
gögn voru smtðuð og þegar hann lét byggja yfir Nýja bíó, var
það gert af menningarlegri smekkvísi. Galtafell við Laufásveg
er enn í dag eitt veglegasta íbúðarhús landsins og ber stórhug
og smekk Bjarna gott vitni.
Þegar húsin sem kennd voru við Nýja bíó við Lækj-
argötu og Austurstræti brunnu á síðasta ári, hafði
slökkviliðsmaður á orði að ógerningur væri að rata
um bygginguna, eða átta sig á leiðslum eða burðar-
virkjum, vegna þess að í raun væru um mörg sam-
byggð hús að ræða. I gegnum tíðina var búið að
bæta við og breyta og klastra svo að úr var orðinn
óskapnaður sem í raun var ekki annað en þakklát-
ur eldsmatur.
En Nýja bíó var ekki ætíð þannig, síður en svo.
Þegar það var byggt 1919 reis þarna falleg bygging
í jugendstíl, sem bar vitni um menningarlegan
metnað húsbyggjenda, sem síðar hvarf úr þjóðlíf-
inu. Kvikmyndasalurinn var á miðhæð, í kjallara
glæsílegt veitingahús og uppi á lofti ljósmyndaði
Loftur heilu kynslóðir Islendinga.
Síðar var kumbaldarisa tyllt framan við bygging-
una við Lækjargötu og Haraldarbúð breytt í alls
kyns gargön og pylsuskúr með viðeigandi hreinlæti
stofnsettur í innganginn frá Austurstræti. Stílleys-
ur tóku við af arkitektúr Finns Thorlacíusar húsa-
smíðameistara, sem teiknaði húsið upphaflega.
Allt hvarf þetta góðu heilli í brunanum í fyrra og
er nú búið að ryðja rústunum á brott. A grunninum
mun rísa ný bygging með nýjum hlutverkum og
vonandi verður hún eins uppbyggileg í miðkjarna
höfuðborgarinnar og Nýja bíó var á sínum tíma.
A næstu síðu er sögð byggingarsaga Nýja bíós og
skýrt frá þeim mörgu hlutverkum sem húsin hafa
gegnt allt frá því að metnaðarfullir menningar-
menn reistu fagra byggingu sem var þeim og borg-
inni til sóma, þar til kumbaldarnir brunnu ofan af
sjoppum og eiturmettuðum skrílsamkomum, sem
lítil eftirsjón er af.