Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 4
4 - FÖSTVDAGUR 12. MARS 1999
fDagjtvr
VESTURLAND
Fjöldi gesta mætti á „Opið hús“ Tónlistarskóla Borgarfjarðar um síðustu helgi. - myndir: ohr.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
með „Opið hús66 í Þinghamri
Hópur gesta naut tónlistarflutnings Tónlistarskóli Borgarfjarðar stendur og er greinilegt að það á vinsældum að
nemenda Tónlistarskóla Borgarijarðar fyrir „Opnu húsi“ með þessum hætti fagna.
í kaffihúsastemmningu í Þing-
hamri Varmalandi um síðustu helgi
í tilefni af Degi tónlistarinnar.
Það var Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar sem stóð íyrir „Opnu húsi“
og léku nemendur skólans á hljóð-
færi og sungu fyrir gesti og gang-
andi. Auk þess tóku gestir þátt í
fjöldasöng.
Boðið var upp á kaffi eða djús og
meðlæti.
Dagskráin stóð frá kl. 14 til kl.
17 og vakti athygli að almennt sátu
gestir sem fastast allan tímann en
segja má að fullsetið hafi verið í
salnum. Þetta er annað árið sem
Hópur Suzuki-fiðlunemenda undir stjórn Ewu Tosik-Warszawiak fékk mjög góðuar
viðtökur hjá gestum. Undirleikari var Zsuzsanna Budai.
VESTURLA NDSVIÐ TALIÐ
Það er heldur farið að
fara xrm „landsbyggðina"
á Vesturlandi. Niður-
staða prófkjörsins hjá
Samfylkingunni var
þannig að tveir Skagamenn uróu
í tveimur efstu sætum listans,
Jóhann Ársælsson og Gísli S.
Einarsson. Við það hætist að
efsti inaður á lista Framsóknar-
flokks, Ingibjörg Pálmadóttir, er
Skagamaður og annar maður á
lista Sjálfstæðisflokksins,
Guðjón Guðmundsson, sömu-
leiðis. Verði niðurstaða næstu al-
þingiskosninga á þá leið að Sjálf-
stæðisflokkurinn haldi tveimur
mönnum, Frainsóknarílokkur-
inn tapi manni og Samfylkingin
nái tveimur mönnum inn verða
þvl fjórir af fimm þingmönnum
Vesturlandskjördæmis Skaga-
menn, eða sömu Skagamennimir
og á þar síðasta kjörtímabili.
Bjartasta von „landsbyggðar-
hlutans" er því Vinstri hreyfing
in - grænt framboð þar sem eng-
inn Skagamaður er sjáanlegur í
efstu sætum listans samkvæmt
tillögu uppstillingarnefndar.
Bregðist sú von er ekki annað til
ráða við breytta kjördæmaskip-
an en kljúfa Vesturlandskjör
dæmi í tvennt. „Landsbyggðin
sameinist vestari hluta Norður-
landskjördæmis vestra og Vest-
fjörðum, en Akranes sameinist
Reykjaneskjördæmi eða jafnvel
Reykjavík, þangað standi hugur
Skagamanna hvort eð er segja
landsbyggðargáruiigamir.
Gísli S.
Einarsson
Guðjón
Guðmunds-
son
Ingibjörg
Pálmadóttir
Jóhann
Ársælsson
Halldór
Brynjúlfsson
stefnirá fyrsta sætiðlijá
Vinstri hreyfingu -
grænu framboði á Vesturlandi
Miðsvæðið er ákaflega af-
skipt áAlþingi og þess
vegrn erfitt að víkjast und-
an því að bjóða sigfram þeg-
ar eftir því var leitað.
Þmgmajmáhópimim
endurspegli samfélagið
Tillaga uppstillingarnefndar gerir rúð fyr-
ir þér í efsta sætið hjcí Vinstri hreyfingu-
grænu framboði « Vesturlandi, ekki rétt?
„Jú. Tillaga uppstillingarnefndar lítur
svona út í dag og verður lögð fyrir kjördæm-
isfund á sunnudaginn. Það hefur síast út
með fyrsta sætið en meiningin var að birta
ekki þennan lista fyrr en það væri búið að
afgreiða hann á félagsfundi. Þannig að ég
vil helst ekki segja þér meira af listanum þó
ég geti staðfest að gerð er tillaga um míg í
fyrsta sætið.“
Hver eru stefnumál framboðsins?
„Stefnumál framboðsins hér á Vesturlandi
verða þau sömu og framboðsins á landsvísu.
Sérmál okkar hér á Vesturlandi er ekki búið
að fara yfir nákvæmlega ennþá. En við mun-
um leggja megináherslu á byggðamál og
reyna að vera þátttakendur í því að stöðva
þann flótta sem er frá Iandsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins. Eg held að það verði
þær megináherslur sem við verðum með
sem sérmál fyrir kjördæmið. En hópurinn á
eftir að marka stefnu í þessu og því ekki
tímabært að ég sé að gefa miklar yfirlýsing-
ar f þeim efnum."
Nú er Jóhann Ársælsson orðinn efstur hjá
Samfylkingunni og þú hefur verið stuðn-
ingsmaður hans í Alþingiskosningum áður
fyrr.
„Mikil ósköp.“
Hvemig leggst í þig að fara að keppa við
hann?
„Eg kvíði ekki samskiptum við hann Jó-
hann, hvort sem við göngum hlið við hlið til
einhverra verka eða ekki. Jóhann er mikill
sóma- og ágætismaður og afstaða mín til
hans er blandin hlýhug og góðum tilfinning-
um þó við eigum ekki samleið að þessu
sinni."
Var það erfið ákvörðun að bjóða þigfram í
fyrsta sætið?
„Vissulega var það svolítið erfið ákvörðun.
Eg hef ekki gengið með slíka þanka á Iiðn-
um árum að ég ætti erindi í Iandsmálapóli-
tíkina. Minn vettvangur í pólitík hafði verið
heima í sveitarstjórnarmálunum f gamla
daga. Eg taldi að afskiptum mínum af pólit-
ík væri lokið nema sem almennur félags-
maður. En svona þróuðust mál og því er
ekkert að neita að sú staða sem er uppi í
framboðum hjá öðrum stjórnmálaöflum hér
á svæðinu er þannig að miðsvæðið er ákaf-
lega afskipti. Og kannski meðal annars í
Ijósi þess var erfitt að víkjast undan því að
taka þetta sæti úr því leitað var eftir því við
mig. Ég held að það sé mikil þörf á því að
þingmannahópur þessa kjördæmis spegli
sem best allt þetta samfélag. Miðsvæðið
hefur verið ákaflega afskipt í þeim efnum
undanfarin ár. Kannski ekki hvað sfst þess
vegna lét ég til leiðast að fara í þennan
slag.“
Hvernig heyrist þér stemnmingin verafyr-
ir framboðinu?
„Það er kannski erfitt að segja mikið um
það ennþá. Það hefur ekki nema takmarkað
frést ennþá hvernig skipan þessara mála 'er.
Eg hef þó fengið hvatningu frá mjög mörg-
um sem hafa rætt þessi mál við mig hér í
þessu samfélagi okkar og ekkert síður frá
mönnum sem ekki hafa verið í nágrenni við
mig pólitík á liðnum árum.“