Dagur - 19.03.1999, Síða 12
12-FÖSTUDAGVR 19. MARS 1999
LAVITA
ÉBELLA
Sími 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
7 TIINEFNINGAR TIL
OSKARSVERÐLAUNA,
M.A. SEM BESTA
MYNDIN, BESTI
LEIKARI OG BESTI
LEIKSTJORI. MYNDIN
HEFUR HLOTIÐ YFIR
40 VERÐLAUN A
KVIKMYNDA-
HATÍÐUM VÍÐS
VEGAR UM
HEIMINN.
Fostud. kl. 21
og 23.10.
WHAmra:.MMER
ÞEIR ERU EKKI KUL, ÞEIR ERU EKKI
FLOTJÍRlííIIR ERU ÞOKKALEGA
SUM LEYNDARMAL MUNU
ASÆKJA ÞIG ALLA ÆVil!
SPRENGHLÆGILEG
SUMA DAUDLANGAR AÐ EA
MY-NDjJM BUTAPI-BRÆÐUR SEM
ERU S.KE'MMTANAFÓKLAR SEM ÞRA
ANNAÐ TÆKIFÆRI
STRANGLEGA B.l. 16 ARA
AÐ „SKORA"!
HUMOR I ANDA AUSTIN POWERS!
Fostud. 1(1. 23
íFÖStUd. 1(1. 21
□□jaoLBv!
O I G I T A L
□□[dolÍy]
mMMm
ÍÁv/jjJty IKNC9VV A
ÍÞRÓTTIR
L.
/Dgptr
Kevin Keegan.
Tim Sherwood.
Chris Sutton.
Fátt kom á óvart
hjá Kevin Keegan
Kevin Keegan, nýr landsliðs-
þjálfari Engiands, hefur valið
íeikmannahópinn fyrir leikinn
gegn Pólverjum í Evrópkeppni
landsliða, sem fram fer á
Wembley þann 27. mars nk.
Fátt kom á óvart í fyrsta lands-
liðsvali Keegans, eftir að hann
tók við liðinu af Glenn Hoddle í
síðasta mánuði. Það sem kemur
þó á óvart er valið á Chris
Sutton hjá Blackburn sem ekki
hlaut náð fyrir augum Glen
Hoddle og einnig valið á Tim
Sherwood hjá Tottenham sem
nú er aftur kominn í hópinn.
Eftir að hafa verið mikið frá
vegna meiðsla og leikbanns í
vetur, er Sutton nú aftur valinn
sem framherji í landsliðshópinn,
þrátt fyrir að hafa leikið sem
miðvörður í síðustu leikjum með
Blackburn.
Það sem vakir fyrir Keegan er
eflaust að fá góðan framhetja
með Alan Shearer, en saman
Ieiddu þeir Blackburn á topp
ensku deildarinnar árið 1995,
þegar félagið vann enska meist-
aratitilinn.
Keegan sagði um valið á
Sutton að það væri samkvæmt
því sem hann hefði lofað í upp-
hafi, að ef menn stæðu sig þá
ættu allir möguleika á að kom-
ast í liðið. „Eg sagði það þegar
ég tók við og þó Sutton hafi lent
í leiðindamálum við Hoddle, þá
á hann þetta tækifæri fyllilega
skilið. Hann færir okkur
ákveðna kosti sem ég er viss um
að muni nýtast Iiðinu vel,“ sagði
Keegan.
Hvað varðar valið á Tim
Sherwood þá virðist hann vera
að uppskera íyrir góða frammi-
stöðu síðan hann fór að leika
með Tottenham og góða sam-
vinnu við Ian Walker.
Keegan valdi eftirtalda Ieik-
menn í hópinn:
Markmenn:
David Seaman, Arsenal
Nigel Martyn, Leeds
Vamarmenn:
Tony Adams, Arsenal
Sol Campbell, Tottenham
Rio Ferdinand, West Ham
Martin Keown, Arsenal
Gary Neville, Man. United
Phil Neville, Man. United
Graeme Le Saux, Chelsea
Andy Hinchcliffe, Sheff. Wed.
Gareth Southgate, Aston Villa
Miðjuleikmenn:
Ray Parlour, Arsi ... !
Paul Scholes, Man. United
David Beckham, Man. United
David Batty , Leeds United
Steve McManaman, Liverpool
Darren Anderton, Tottenham
Tim Sherwood, Tottenham
Jamie Redknapp, Liverpool
Sóknarleikmenn:
Andy Cole, Man. United
Alan Shearer, Newcastle
Michael Owen, Liverpool
Ro.bbie Fowler, Liverpool
ChriárSuhon, 'Ölackbilrn8 1,1 IA,U
Reykjavíkiirmót í pílukasti
Reykjavíkurmótið í pílukasti verður haldið í Laugardalshöll um helg-
ina. Mótið hefst klukkan 13:00 á laugardag og mun Össur Skarphéð-
insson alþingismaður þá ávarpa keppendur og mótsgesti áður en Ei-
ríkur Fjalar kastar fyrstu pílunni. Keppnin hefst með riðlakeppni
karla og kvenna, en úrslitin fara svo fram á sunnudag, en þá fer einn-
ig fram tvímenningskeppni.
Keppendur verða að skrá sig og greiða þátttökugjöld fyrir klukkan
12:00 á laugardag og fer skráning fram á Grandrokk, Smiðjustíg 6,
eða í síma 551 5522. Þátttökugjald í keppninni er kr. 1000,- í ein-
menningskeppninni, en kr. 1500,- í tvímenning.
Námskeið fyrir leiðbeiuendiir í vetr-
aríþróttum fatlaðra
Námskeið fyrir leiðbeinendur í vetraríþróttum fatlaðra verður haldið
á Akureyri dagana 10.-11. apríl nk. og hefst báða dagana klukkan
10:00. Kennd verður meðferð á skíðaútbúnaði fyrir fatlaða og aðstoð
við fatlaða til að stunda vetraríþróttir. Kennsla fer fram á Skíðastöð-
um og á skautasvelli SA og er æskilegt að þátttakendur á námskeið-
inu séu vant skíðafólk og hafi með sér skíði. Námskeiðsgjald er kr.
3000,- og fer skráning fram í Vetraríþróttamiðstöð Islands í síma 462
1000 og hjá vetraríþróttanefnd Iþróttasambands fatlaðra í síma 568
6301.
íslandsmótið í borðtennis um helgina
íslandsmótið f borðtennis verður haldið í TBR-húsinu um helgina.
Allt besta borðtennisfólk landsins verður þar meðal þátttakenda og
mun Islandsmeistarinn, Víkingurinn Guðmundur E. Stephensen,
þar freista þess að vetja titilinn í meistaraflokki karla í sjötta sinn.
Keppt verður í sjö flokkum karla og kvenna og hefst úrslitaleikur-
inn í meistaraflokki kvenna kl. 15:30 á sunnudag og í meistaraflokki
karla kl. 16:00. Verðlaunaafhending verður svo ld. 16:45.
íslandsmótið í listhlaupi á skautum
íslandsmótið í listhlaupi á skautum verður haldið í Skautahöllinni í
Laugardal um helgina. Mótið hefst í kvöld, föstudagskvöld, kl. 19:20
og heldur áfram á morgun, laugardag, kl. 08:00 til 13:00. Annað
kvöld verða síðan æfingar, en á sunnudagsmorgun heldur keppnin
áfram kl. 09:00 og lýkur með skautasýningu og verðlauiiaamcndin^.i
kl. 11:35 til kl. 12:30. Mótið er haldið á vegum listhlaupadeildar
Skautafélags Reykjavíkur og mun fjöldi ungra og efnilegra keppenda
á öllum aldri taka þátt í því, en erlendir dómarar munu dæma.
Listhlaup á skautum er ung íþróttagrein hér á landi, en sífellt að
ná meiri vinsældum, bæði hér og erlendis. Þetta er í fyrsta skipti sem
Islandsmótið er haldið í Skautahöllinni í Reykjavík.
limanhússmeistaramótið í sundi
Innanhússmeistaramót íslands í sundi í 25 m laug fer fram í Vest-
mannaeyjum um helgina. Keppnin hefst í kvöld og heldur svo áfram
á morgun og á sunnudag. Mikill fjöldi þátttakenda er á mótinu, eða
alls 118 keppendur frá 15 félögum, sem keppa í 38 greinum. Allt
besta sundfólk landsins verður meðal keppenda á má þar nefna nöfn
eins og Örn Arnarson, Kolbrúnu Yr Kristjánsdóttur, Hjalta Guð-
mundsson, Láru Hrund Bjargardóttur, Elínu Sigurðardóttur, Rík-
harð Ríkharðsson, Irisi Eddu Heimisdóttur, Friðfinn Kristinsson,
Halldóru Þorgeirsdóttur og fleiri.
Að þessu sinni eiga Keflvíkingar flesta keppendur á mótinu eða 20,
efi Yf&'átif'k'óíhá Háfrifirðingár'rrieð 19 ogÆgir með 16.