Dagur - 22.05.1999, Side 5

Dagur - 22.05.1999, Side 5
 LAUGARDAGUR 22. MÁÍ 1999 5* FRÉTTIR Aðgerðuni hótað gegn Síma og híói Sjálfstædismenn í borgarstjórn telja að borgarbúar muni mótmæla bygg- ingu Landssímans og áformum um bíó og leiktækjasal í Laugardal með einhverjum mestu undirskriftum sem borist hafa til borgarinnar. Andstaða gegn úthlut- un lóða til fyrirtækja og stofnana í Laugar- dal. Fólk hringir í hundraðavís. Við- kvæmt svæði. Útivist og íþróttir. „Fólk hefur verið að hringja í mig í hundraðavís. Ég heyri það á íbúum sem þarna búa að menn vilja fara af stað með undir- skriftasöfnun og þrýsta á borgina að hætta við þetta. Það kæmi mér því ekki á óvart að við færum að sjá einhverjar mestu undir- skriftir sem borist hafa til borgar- innar,“ segir Júlíus Vífill Ingvars- son borgarfulltrúi sjálfstæðis- manna. Andstaða Svo virðist sem töluverð and- staða sé meðal íbúa í nágrenni Laugardalsins og víðar í borginni gegn þeirri ákvörðun borgaryfir- valda að leyfa Landssímanum að byggja nýjar höfuðstöðvar sínar þar. Sömuleiðis virðist vera mikil andstaða við það að leyft verði að byggja stórhýsi undir bíó og leik- tækjasali fyrir unglinga í Laugar- dalnum. Fyrir utan andstöðu sjálfstæðismanna í borgarstjórn hefur Iþróttabandalag Reykjavík- ur, IBR, skorað á borgaryfirvöld að láta af úthlutun lóða í Laugar- dal tii hinna ýmsu fyrirtækja og stofnana. I ályktun IBR til borg- arstjórnar er vakin athygli á mik- ilvægi þess að Laugardalurinn verði áfram eingöngu nýttur sem íþrótta- og útivistarsvæði. Villigötur Júlfus VífiII Ingvarsson segir að ályktun IBR sýni það að hans mati á hvaða villigötum borgaryf- irvöld séu í skipulagsmálum Laugardalsins ef þessar stórbygg- ingar verða að veruleika. Hann telur hinsvegar að hugmynd sín um byggingu Víkingagarðs í Laugardal mundi verða mikil Iyftistöng fyrir staðinn og borg- ina. Ef af verður mundi garður- inn ná frá Glæsibæ og að nýja Þróttarvellinum. Að auki mundi garðurinn vekja mikla athygli ferðamanna. Júlfus minnir á að engin andstaða hafi komið fram gegn þessari hugmynd hans sem sé til skoðunar hjá borgaryfir- völdum. Viðkvæmt svæði Guðrún Agústsdóttir, forseti borgarstjórnar og formaður skipulags- og umferðarnefndar, segir að það sé búið að gera samning við Landssímann um byggingu skrifstofuhúsnæðis í Laugardalnum. Hinsvegar sé ekki búið að taka neina ákvörðun um byggingu bíós og leiktækja- salar. Það mál sé í skoðun sem og skipulag svæðisins. Hún segir að fólk geti auðvitað sent inn undir- skriftalista. Hún segir að Laugar- dalurinn sé viðkvæmt svæði og ekkert óeðlilegt við það að fólk hafi skoðanir á því hvað þar verð- ur. Eiríkur S. Jóhannsson segir þetta hafa valdið óþægindum. Sögðu KEA vera í þroti Tilkynning á heimasíðu Islands- banka á fimmtudag um að Kaupfélag Eyfirðinga (KEA) hefði farið fram á greiðslustöðv- un, vakti mikla athygli, og raun- ar enn meiri athygli hversu lengi Islandsbanki var að leiðrétta mistökin. Hið rétta var að það var Kaupfélag Þingeyinga sem fór fram á greiðslustöðvun. - Hefur þetta valdið Kaupfélagi Eyfirðinga óþægindum? „Þetta hefur valdið okkur óþægindum en ég vil ekki að öðru leyti tjá mig um það með hvaða hætti. Viðbrögð okkar eru Islandsbanka kunn. Það er mjög ldaufalegt að athuga ekki hvað verið sé að gera. Ég á hins vegar ekki von á því að þetta mál hafi nein eftirmál," segir Eiríkur Jó- hannsson, kaupfélagsstjóri KEA. - GG „ Aðfor velvildarmaima ríkisstjómariimar66 Garðar Sverrisson, stjórnarmað- ur í MS félaginu, segir í samtali við Dag um frétt blaðsins um klofning félagsins, að það sem formaður félagsins beitti sér fyr- ir hafi verið marklaust og ólög- legt. „Ef Hafdísi Hannesdóttur og Eiríki Vernharðssyni verður meinað að gegna þeim trúnaðar- og skyldustörfum sem aðalfund- ur fól þeim þá hljóta félagsmenn að þurfa að leita réttar síns,“ seg- ir Garðar. Atök innan félagsins Ieiddu til þess að kjör Hafdísar og Eiríks í stjórnina á aðalfundi var ógilt á framhaldsfélagsfundi með 78 at- kvæðum gegn 61 og gengu þá um 60 fundarmenn af fundi. Aðspurður um pólitíska flokkadrætti segir Garðar að hann heyri það vissulega „að í hópi þeirra sem komu í þeim til- gangi að fá ógilta Iöglega niður- stöðu aðalfundar hafi verið fólk sem á það sameiginlegt að vera Garðar Sverrisson: „Ég læt mér í léttu rúmi liggja þótt einhver hafi talið sig vera að þagga niður í mér.“ velvildarmenn ríkisstjórnarinnar. Það er umhugsunarvert að þetta góða fólk, sem lætur hag okkar MS sjúklinga sig svo mjög varða, sé tilbúið til að taka þátt í sið- lausri aðför að réttkjörnum stjórnarmönnum, með skipu- lögðum rógi. Ég læt mér í léttu rúmi Iiggja þótt einhver hafi talið sig vera að þagga niður í mér með þessari tillögu, sem fékkst samþykkt með 55% greiddra at- kvæða á kolólöglegum forsend- um. Framferði af þessu tagi er einungis til þess fallið að efla mig og okkur sem viljum styrkja stöðu fatlaðra," segir Garðar. Hann segir enn fremur að „þessi uppákoma og skrípaleik- ur“ hljóti að leiða hugann að því „hvort ekki sé nauðsynlegt að fylgja fordæmi annarra félaga fatlaðra; að breyta lögum okkar þannig að allir hafi málfrelsi og tillögurétt, en þeir einir kjör- gengi og atkvæðisrétt sem eiga við sjúkdóminn að strfða." - FÞG Enn halli á sveitarfélögum Ekkert lát hefur orðið á halla- rekstri sveitarfélaga á síðasta ári samkvæmt reikningum 13 af stærstu sveitarfélögunum, segir í nýjum hagtölum Seðlabankans. Skatttekjur sveitarfélaganna fóru 4% fram úr áætlun - hækkuðu um 12,4% milli ára, sem sagt er í takt við hækkun launatekna og örlitla hækkun útsvarshlutfalls- ins. Útgjöldin fóru aftur á móti 7% fram úr áætlun og hækkuðu um 12,8%, þannig að afkoman versnaði milli ára. Seðlabankinn áætlar að 3,5 milljarða halli hafi verið á rekstri sveitarfélaganna á síðasta ári, sem svarar 9% af skatttekjum þeirra. Hreinar skuldir sveitarfé- laganna hafí verið 25 milljarðar í árslok 1997, væntanlega vaxið um 4 milljarða í fyrra vegna halla og verðbóta og muni hækka um ríflega 4 milljarða á þessu ári. Með sama áframhaldi muni skuldabyrði sem hlutfall af tekj- um vaxa mjög hratt um leið og harðnar í ári. „Brýn þörf er því á úrbótum í fjármálum sveitarfé- laganna,“ segir Seðlabankinn. - HEI Reyndu að svíkja út 220 milljónir Bíræfnir erlendir afbrotamenn reyndu f síðustu viku að svíkja út alls um 220 milljónir króna af sjö íslenskum stórfyrirtækjum og hefur Ríkislögreglustjóri vitneskju um að sömu aðilar hafí aflað sér árs- reikninga allra þessara fyrirtækja og sex annarra hjá íslensku þjón- ustufyrirtæki. Frásagnir Qölmiðla af máli þessu í síðustu viku leiddu til upplýsinga sem beint hafa augum rannsakenda að tilteknum ein- staklingi erlendis og er hans og teymis hans nú leitað. Dagur greindi í síðustu viku frá misheppnaðri en kunnáttusamlegri og flókinni tilraun til að svíkja tugi milljóna króna út úr KEA, Mjólk- ursamsölunni og ATVR, en síðan hefur komið í Ijós, að því er Jón H. Snorrason saksóknari og Arnar Jensson fulltrúi hjá Ríkislögreglu- stjóra upplýsa, að tilraunir voru gerðar til að svíkja fé út úr Ingvari Helgasyni hf., Flugleiðum, Samherja og Islenska járnblendifélaginu. - FÞG Kristján aíþakkar hækkim Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hef- ur afþakkað þá launahækkun sem hann hefði fengið samkvæmt ráðningarsamningi vegna teng- inga við hækkun þingfararkaups. Eftir dóm Kjara- dóms hefðu laun Kristjáns hækkað um 165 þús- und krónur samkvæmt útreikningum RÚVAK. Kristján segir óeðlilegt að embætti bæjarstjóra fái meiri launahækkanir en aðrir starfsmenn bæjarins og að viðmiðun við þingfararkaupið beri að endur- skoða. Rafmagnshækkim Akvörðun Landsvirkjunar að hækka verð á rafmagni til almennings- veitna um 3% mun að líkindum valda víðast hvar beinni hækkun á raforkuverði til neytenda. A Akureyri segir Svanbjörn Sigurðsson raf- veitustjóri að hann muni leggja fyrir stjórn veitustofnana 3% hækkun til neytenda. Það sé í hans huga óhjákvæmilegt. Landsvirkjun hækkaði síðast verð á rafmagni til almenningsveitna fyrir tæpu einu og hálfu ári. Þá hækkaði gjaldskráin um 1,7%. Svan- björn segir að raforkuverð á Akureyri hafi lækkað verulega undanfar- in ár og fyrirtækið hafi tekið tvær síðustu gjaldskrárhækkanir Lands- virkjunar beint á sig. Nú sýnist honum hins vegar sem svigrúmið sé uppurið. Svanbjörn segir langtímaspár Rafveitu Akureyrar benda til þess að hægt verði að lækka rafmagnsverð til neytenda í framtíðinni. - BÞ Kristján Þór Júlíusson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.