Dagur - 22.05.1999, Side 11
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Italir óttast fleiri hryðjuverk
Massimo D’Antona, lögfræðingurinn sem myrtur var á fimmtudag, hafði
unnið mikið starfað efnahagsiegri endurreisn Ítaiíu.
Fáir áttu von á að
hryðjuverkasamtökm
Rauða herdeildin
myudi láta til síu
taka á ný.
Rauða herdeildin, skæruliða-
samtök á Italíu sem hafa lítt Iát-
ið á sér kræla í áratug, hafa lýst
ábyrgð sinni á morðinu á lög-
fræðingnum Massimo D’Ant-
ona, sem féll fyrir byssukúlu í
Róm í gærmorgun. D’Antona var
myrtur fyrir framan heimili sitt
þegar hann var á leið til vinnu.
A.m.k. tveir ungir menn sátu fyr-
ir honum.
Morðið hefur vakið óhug á
Italíu og ótta um að fleiri hryðju-
verk séu á döfinni. Dagblöð og
aðrir fjölmiðlar á Ítalíu hafa
slegið upp fyrirsögnum um að
nú sé martröðin að heljast á ný.
Rauða herdeildin segir í yfir-
lýsingu sinni að hún hafi á ný
tekið upp vopnaða baráttu gegn
stjórnvöldum, en D’Antona var
ráðgjafi atvinnumálaráðherra
Iandsins. I sömu yfirlýsingu eru
loftárásir Nató á Júgóslavíu
gagnrýndar í löngu máli.
Sérfræðingar sem skoðað hafa
yfirlýsinguna telja lítinn vafa
Ieika á því að hún sé ófölsuð.
Orðalagið er í nákvæmlega sama
dúr og var á yfirlýsingum frá
Rauðu herdeildinni á áttunda
áratugnum, þegar hvert hryðju-
verkið á fætur öðru var framið í
nafni hennar. Hvernig staðið var
að morðinu hafði auk þess þegar
vakið grunsemdir um að skipu-
lögð hryðjuverkasamtök bæru
ábyrgð á því.
D’Antona hafði unnið ötullega
að því að endurskipuleggja efna-
hagslífið á Italíu og átti stóran
hlut í þeim breytingum sem
stjórnin hefur staðið að í at-
vinnumálum og fjármálum.
Deiltiun
ályktun
Hægt miðar í viðræð-
ii in iiiii lausn á
Kosovodeilunni.
Rússar og Bandaríkjamenn hafa
ekki enn náð samkomulagi um
orðalag á ályktun um
Kosovostríðið sem leggja á fram
til samþykktar í Oryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Deilur
þeirra snúast um það hvort eftir-
Iitssveitir, sem senda á til
Kosovo eftir að Ioftárásum lýkur,
verði undir forystu Nató eða
Sameinuðu þjóðanna og hvernig
þær verði samsettar að öðru
leyti.
Fulltrúar Rússlands og sjö
helstu iðnríkja heims hafa verið
í Þýskalandi undanfarið við að
reyna að koma saman slíkri
ályktun. Ekki er von á því að
þeir komist að niðurstöðu í bráð
sem bæði Rússar, Kínverjar og
Natóríkin geta sætt sig við.
Viktor Tsjernómyrdin erind-
reki Rússlands, Marti Ahtisaari
forseti Finnlands og George Tal-
bott aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem setið höfðu
á fundi í Moskvu, frestuðu í gær
frekari fundum þangað til í
næstu viku.
Nató bar í gær til baka fregnir
um að þar á bæ væru menn að
velta fyrir sér í alvöru þeim
möguleika að hætta loftárásum
hið fyrsta.
Talið er að hann hafi orðið fyrir
valinu sem skotmark hryðju-
verkasamtakanna einmitt þess
vegna, þvi hann hafi verið orð-
inn eins konar tákn fyrir endur-
reisn ítalska efnahagslífsins.
Massimo D’AIema, forsætis-
ráðherra Italíu, sagði stjórnvöld
vera staðráðin í að vinna bug á
þessum hryðjuverkasamtökum
og koma morðingjunum á bak
við Iás og slá.
Rauða herdeildin bar ábyrgð á
Ij'ölmörgum hryðjuverkum á átt-
unda áratugnum, þar á meðal
voru það Iiðsmenn hennar sem
rændu og myrtu stjórnmála-
manninn Aldo Moro, sem þá var
Ieiðtogi Kristilegra demókrata.
Italir stóðu í þeirri trú að
þessi samtök væru löngu Iiðin
undir Iok. Næstum því hver ein-
asti meðlimur samtakanna var á
sínum tíma handtekinn og
dreginn fyrir dóm. Sumir hafa
nú þegar afplánað þann dóm og
eru frjálsir menn að nýju, og
mikil umræða hefur verið um
það hvort ekki sé rétt að náða
marga þeirra. -GB
HEIMURINN
Tveir hútúar dæmdir fyrir þjóðar-
morð
RUANDA - Alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll dæmdi í gær tvo hútúa
vegna þátttöku þeirra í Ijöldamorðunum í Rúanda árið 1994. Annar
þeirra, Clement Kayishema, sem er fyrrverandi fylkisstjóri í Rúanda,
hlaut ævilangt fangelsi en hinn maðurinn, Obed Ruzindana, var
dæmdur í 25 ára fangelsi. Meira en hálf milljón manna var myrt í
Rúanda árið 1994, flest tútsar eða hófsamir hútúar. Sérstakur stríðs-
glæpadómstóll var settur á stofn í nóvember 1994, og hafa nú alls
íjórir menn verið dæmdir fyrir þátttöku í fjöldamorðunum.
Jeltsín farinn í frí
RÚSSLAND - Boris Jeltsín Rússlands-
forseti hélt í gær til Svartahafs þar sem
hann hyggst veija tveimur vikum í fríi.
Forsetinn hefur staðið í ströngu undan-
farið í baráttu sinni við dúmuna, neðri
deild þingsins, en vann þar mikla póli-
tíska sigra þar sem dúman bæði sam-
þykkti tilnefningu Sergeis Stepasjíns í
embætti forsætisráðherra og felldi til-
Iögu um að kæra Jeltsín vegna embætt-
isglapa. Vangaveltur hafa verið um
heilsufar Jeltsíns undanfarna daga, en
sjálfur hefur hann borið til baka sögu-
sagnir um að hann hafi fengið lungna-
kvef að nýju.
Skenuntiferðaskip sökk
MALASIA - Eldur kom upp í skemmtiferðaskipinu Sun Vista utan
ströndum Malasíu í gær og sökk skipið skömmu síðar. Allir sem voru
um borð, 1100 manns, björguðust en 16 manns slösuðust lítillega og
þurftu að fara á sjúkrahús.
Tannlæknar heita dáleiðslu
ÞYSKALAND - Æ fleiri tannlæknar í Þýskalandi eru farnir að beita
dáleiðslu til þess að losa sjúklinga sina við bæði hræðslu og sársauka.
Alls eru tannlæknar í Þýskalandi um 70.000, en þar af hafa um
2.000 gripið til þessa ráðs, sem virðist duga vel þegar ekki er um
stærri aðgerðir að ræða.
Boris Jeltsín Rússlandsforseti.
PERMANENT
MIDNICHT
Sýnd kl. 9 og 11.10
Sýnd kl. 5, 9 og 11
□□l.qggti
OIGITAL
HÚSTORGI
SÍMI 461 4666 | H X
Sýnd lau., sun. og mán kl. 3
Sýnd lau., sun. og mán. kl. 3
Þriðd. kl. 5
Sýnd kl. 6.50