Dagur - 22.05.1999, Page 11

Dagur - 22.05.1999, Page 11
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Italir óttast fleiri hryðjuverk Massimo D’Antona, lögfræðingurinn sem myrtur var á fimmtudag, hafði unnið mikið starfað efnahagsiegri endurreisn Ítaiíu. Fáir áttu von á að hryðjuverkasamtökm Rauða herdeildin myudi láta til síu taka á ný. Rauða herdeildin, skæruliða- samtök á Italíu sem hafa lítt Iát- ið á sér kræla í áratug, hafa lýst ábyrgð sinni á morðinu á lög- fræðingnum Massimo D’Ant- ona, sem féll fyrir byssukúlu í Róm í gærmorgun. D’Antona var myrtur fyrir framan heimili sitt þegar hann var á leið til vinnu. A.m.k. tveir ungir menn sátu fyr- ir honum. Morðið hefur vakið óhug á Italíu og ótta um að fleiri hryðju- verk séu á döfinni. Dagblöð og aðrir fjölmiðlar á Ítalíu hafa slegið upp fyrirsögnum um að nú sé martröðin að heljast á ný. Rauða herdeildin segir í yfir- lýsingu sinni að hún hafi á ný tekið upp vopnaða baráttu gegn stjórnvöldum, en D’Antona var ráðgjafi atvinnumálaráðherra Iandsins. I sömu yfirlýsingu eru loftárásir Nató á Júgóslavíu gagnrýndar í löngu máli. Sérfræðingar sem skoðað hafa yfirlýsinguna telja lítinn vafa Ieika á því að hún sé ófölsuð. Orðalagið er í nákvæmlega sama dúr og var á yfirlýsingum frá Rauðu herdeildinni á áttunda áratugnum, þegar hvert hryðju- verkið á fætur öðru var framið í nafni hennar. Hvernig staðið var að morðinu hafði auk þess þegar vakið grunsemdir um að skipu- lögð hryðjuverkasamtök bæru ábyrgð á því. D’Antona hafði unnið ötullega að því að endurskipuleggja efna- hagslífið á Italíu og átti stóran hlut í þeim breytingum sem stjórnin hefur staðið að í at- vinnumálum og fjármálum. Deiltiun ályktun Hægt miðar í viðræð- ii in iiiii lausn á Kosovodeilunni. Rússar og Bandaríkjamenn hafa ekki enn náð samkomulagi um orðalag á ályktun um Kosovostríðið sem leggja á fram til samþykktar í Oryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Deilur þeirra snúast um það hvort eftir- Iitssveitir, sem senda á til Kosovo eftir að Ioftárásum lýkur, verði undir forystu Nató eða Sameinuðu þjóðanna og hvernig þær verði samsettar að öðru leyti. Fulltrúar Rússlands og sjö helstu iðnríkja heims hafa verið í Þýskalandi undanfarið við að reyna að koma saman slíkri ályktun. Ekki er von á því að þeir komist að niðurstöðu í bráð sem bæði Rússar, Kínverjar og Natóríkin geta sætt sig við. Viktor Tsjernómyrdin erind- reki Rússlands, Marti Ahtisaari forseti Finnlands og George Tal- bott aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem setið höfðu á fundi í Moskvu, frestuðu í gær frekari fundum þangað til í næstu viku. Nató bar í gær til baka fregnir um að þar á bæ væru menn að velta fyrir sér í alvöru þeim möguleika að hætta loftárásum hið fyrsta. Talið er að hann hafi orðið fyrir valinu sem skotmark hryðju- verkasamtakanna einmitt þess vegna, þvi hann hafi verið orð- inn eins konar tákn fyrir endur- reisn ítalska efnahagslífsins. Massimo D’AIema, forsætis- ráðherra Italíu, sagði stjórnvöld vera staðráðin í að vinna bug á þessum hryðjuverkasamtökum og koma morðingjunum á bak við Iás og slá. Rauða herdeildin bar ábyrgð á Ij'ölmörgum hryðjuverkum á átt- unda áratugnum, þar á meðal voru það Iiðsmenn hennar sem rændu og myrtu stjórnmála- manninn Aldo Moro, sem þá var Ieiðtogi Kristilegra demókrata. Italir stóðu í þeirri trú að þessi samtök væru löngu Iiðin undir Iok. Næstum því hver ein- asti meðlimur samtakanna var á sínum tíma handtekinn og dreginn fyrir dóm. Sumir hafa nú þegar afplánað þann dóm og eru frjálsir menn að nýju, og mikil umræða hefur verið um það hvort ekki sé rétt að náða marga þeirra. -GB HEIMURINN Tveir hútúar dæmdir fyrir þjóðar- morð RUANDA - Alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll dæmdi í gær tvo hútúa vegna þátttöku þeirra í Ijöldamorðunum í Rúanda árið 1994. Annar þeirra, Clement Kayishema, sem er fyrrverandi fylkisstjóri í Rúanda, hlaut ævilangt fangelsi en hinn maðurinn, Obed Ruzindana, var dæmdur í 25 ára fangelsi. Meira en hálf milljón manna var myrt í Rúanda árið 1994, flest tútsar eða hófsamir hútúar. Sérstakur stríðs- glæpadómstóll var settur á stofn í nóvember 1994, og hafa nú alls íjórir menn verið dæmdir fyrir þátttöku í fjöldamorðunum. Jeltsín farinn í frí RÚSSLAND - Boris Jeltsín Rússlands- forseti hélt í gær til Svartahafs þar sem hann hyggst veija tveimur vikum í fríi. Forsetinn hefur staðið í ströngu undan- farið í baráttu sinni við dúmuna, neðri deild þingsins, en vann þar mikla póli- tíska sigra þar sem dúman bæði sam- þykkti tilnefningu Sergeis Stepasjíns í embætti forsætisráðherra og felldi til- Iögu um að kæra Jeltsín vegna embætt- isglapa. Vangaveltur hafa verið um heilsufar Jeltsíns undanfarna daga, en sjálfur hefur hann borið til baka sögu- sagnir um að hann hafi fengið lungna- kvef að nýju. Skenuntiferðaskip sökk MALASIA - Eldur kom upp í skemmtiferðaskipinu Sun Vista utan ströndum Malasíu í gær og sökk skipið skömmu síðar. Allir sem voru um borð, 1100 manns, björguðust en 16 manns slösuðust lítillega og þurftu að fara á sjúkrahús. Tannlæknar heita dáleiðslu ÞYSKALAND - Æ fleiri tannlæknar í Þýskalandi eru farnir að beita dáleiðslu til þess að losa sjúklinga sina við bæði hræðslu og sársauka. Alls eru tannlæknar í Þýskalandi um 70.000, en þar af hafa um 2.000 gripið til þessa ráðs, sem virðist duga vel þegar ekki er um stærri aðgerðir að ræða. Boris Jeltsín Rússlandsforseti. PERMANENT MIDNICHT Sýnd kl. 9 og 11.10 Sýnd kl. 5, 9 og 11 □□l.qggti OIGITAL HÚSTORGI SÍMI 461 4666 | H X Sýnd lau., sun. og mán kl. 3 Sýnd lau., sun. og mán. kl. 3 Þriðd. kl. 5 Sýnd kl. 6.50

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.