Dagur - 29.05.1999, Blaðsíða 1
ar því á bug að stefnu-
yftrlýsiug nýrrar rík-
isstjómar sé loðin og
óljós. Breytiugar á
skattkerfinu verða
gerðar í áföngnm til
þess að ýta ekki uiidir
þenslu.
„Það er ekkert sem er í raun
hönd á festandi, annað en það
sem þegar hefur komið fram um
áframhaldandi sölu ríkiseigna,“
segir Margrét Frímannsdóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
um stefnuyfirlýsingu nýrrar rík-
isstjórnar. I sama streng tekur
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs, sem segir yfir-
lýsinguna afar almennt orðaða.
„Þetta hljóta að hafa verið ein-
hverjar lengstu viðræður um
ekki neitt sem sögur fara af, því
segja má að fjallið hafi tekið jóð-
sótt og fæðst tvær litlar mýs, þ.e.
tveir ráðherrar í viðbót. Fjölgun
ráðherra er eina raunverulega
niðurstaðan og útkoman er
helmingaskiptastjórn „par excel-
lance" í tvöföldum skilningi;
helmingaskipti milli flokkanna
og helmingur þingflokks Fram-
sóknarflokksins kominn í ríkis-
stjórnina."
Hefðbimdin gagnrýni
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að gagnrýnin um að stefnu-
yfirlýsingin sé loðin og án tíma-
Siv Fridteifsdóttir með ráðherralyklavöld í fyrsta skipti í hennar sögu. - mynd: teitur
setninga sé „hefðbundin gagn-
rýni stjórnarandstæðinga" sem
hann sé ekki sammála.
„Þvert á móti finnst mér að
þessi sáttmáli sé góður að því
leytinu til að hann tekur á all-
mörgum meginþáttum og er
leiðbeinandi um í hvaða anda
flokkarnir vilji vinna að þessum
málaflokkum. Það hefur aldrei
staðið til að fara út í einstök at-
riði í slíkum sáttmála með því
t.d. að nefna hvenær bygging
eigi að rísa eða göng að bora.
Þannig stjórnarsáttmála vil ég
ekki hafa,“ segir Davíð.
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar er boðað að fæðingaror-
lof verði lengt og dregið verði úr
jaðarsköttum og tekjutengingu
barnabóta. Um tímasetningu
þess segir Davíð: „Það á að af-
greiða þessi mál samfleytt á kjör-
tímabilinu. Svo ég nefni sem
dæmi þá er talað um að persónu-
afsláttur hjóna skuli vera milli-
færanlegur að fullu. Hlutfallið er
núna 80% og ég sé fyrir mér að í
næstu fjárlögum verði þetta 85%
og svo koll af kolli. Þetta mun
því gerast í áföngum þannig að
það skelli ekki of hart á ríkissjóði
og ýti ekki um of á þenslu,“ seg-
ir forsætisráðherra. - FÞG
Sjá einnig hls. 8-9 og hls. 10.
Skatt abreyting -
ar í áföngum
Forsætisráðherra vís-
Nlgeríumaður fékk árs fangelsi
Nígeríski ríkisborgarinn Sixtus
Mbah Nto var í Héraðsdómi
Reykjaness í gær dæmdur í 12
mánaða fangelsi og til upptöku á
andvirði alls 2,7 milljóna króna.
Samlandi hans, Osaito Phamset
Lyorah, var hins vegar sýknaður,
en þeir voru ákærðir fyrir skjala-
fals og fjársvik.
Akæran gekk út á að þeir hefðu
notað tvo falsaða tékka, sem
Osaito hefði útvegað, til að
blekkja með þeim í lögskiptum,
en tékkana seldi Sixtus í banka.
Sixtus hefur rekið skreiðarsölu-
fyrirtæki hér á landi um nokkurt
skeið og var ákæran gegn Osaito
byggð á framburði Sixtusar gagn-
vart honum. Jónas Jóhannsson
héraðsdómari komst að þeirri
niðurstöðu að tékkarnir væru
falsaðir, en ósannað væri að SLxt-
us hefði mátt vita það. Hann
hefði hins vegar viðurkennt að
tilgangurinn hafi verið liður í
peningaþvætti.
Osaito neitaði sök allan tím-
ann og naut engra sannana gegn
honum utan breytilegs og mót-
sagnakennds framburðar Sixtus-
ar og var hann því sýknaður,
þrátt fyrir að framburður hans
hefði verið reikull og á honum
ólíkindablær á köflum, auk þess
sem dómarinn taldi veruleg lík-
indi til þess að hann hefði verið
viðriðinn málið. — FÞG
Loksins,
loksins
í Jerúsalem?
Þjóðin mun fylgjast með
Eurovision-söngvakeppninni i
Jerúsalem af óvenju miklum
áhuga í kvöld vegna þeirrar vel-
gengni sem sumir hafa spáð ís-
lenska Iaginu. Helgarblað Dags
lætur ekki sitt eftir liggja; það
fær sérfræðinga til að spá í spil-
in, rifjar upp gamla sigurdrauma
og færir ykkur svo flottar upp-
skriftir af hinum einu og sönnu
„júróvisionkokteiIum“ sem duga
jafnt til að fagna sigri eða
drekkja sorgum.
Varaliturinn gefur hugrekki,
lætur karlmenn taka eftir konum
og gerir það að verkum að konur
þurfa ekki að tala hátt til að
hlustað sé á þær. „Uff,“ segja
kannski femínistarnir en því er
samt ekki að neita að varalitur-
inn er pikkfastur hluti af menn-
ingu kvenna. Allt um það í Helg-
arblaði Dags.
Roar Kvam hefur í tuttugu og
átta ár starfað að tónlistarmálum
á Akureyri. Stjórnað kórum,
hljómsveitum, kennt, útsett og
fleira. Við fjörutíu ára kennsluaf-
mæli hans og
eiginkonunnar
stöldruðu þau
við og ákváðu
að leggja niður
Tónmennta-
skólann á Ak-
ureyri, sem þau stofnuðu fyrir
átta árum. Sjá viðtal í helgar-
blaði Dags.
Washington er borg borganna
segir Kolbrún Bergþórsdóttir,
sem lýsir heimsókn sinni til höf-
uðborgar Bandaríkjanna, þar á
meðal í safn sem sýnir hryllileg-
an veruleika helferðarinnar í
Þýskalandi nasismans.
Og svo er auðvitað allt hitt í
helgarblaði Dags: helgarpottur-
inn, maður vikunnar, bókahillan,
kynlífspistillinn, krossgátan,
sönn dómsmál, flugur og spurn-
ingaþátturinn.
Góða helgi!
Studentastjörnur
.'14 gnl»te.
OULLSMIÐIR g
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
u-\