Dagur - 29.05.1999, Side 16

Dagur - 29.05.1999, Side 16
vísir.is vísir.is vísir.is vísir.is vísir.is visir.is visir.is visir.is 1 Vísir.is er framsækinn netmiðill. Á Vísi eru um 20 samstarfsvefir sem bjóða upp áfréttir, íþróttir, verslun, smáauglýsingar o.m.fl. Meðal samstarfsaðila Vísis má nefna DV, Dag, Viðskiptablaðið, Stöð 2, Bylgjuna, Mono, Tölvumyndir, Hagkaup, Lánstraust og íslenskar getraunir. Html forritari m Markaðsstjórim STARFSLÝSING Markaðsstjóri vinnur í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra að uppbyggingu fyrirtækisins. Starfið er mjög krefjandi og krefst útsjónarsemi og skapandi hugsunar. Þar sem Vísir.is er frumkvöðull á sínu sviði er verið að móta nýtt viðskiptalíkan fyrir rekstur fyrirtækisins. Markaðsstjóri tekur virkan þátt í að skilgreina ný viðskiptatækifæri, gera nauðsynlega samninga við samstarfsaðila og koma hugmyndum í framkvæmd. Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í þróun Internetsins á íslandi! Verkefnastjóri(4oi) STARFSLÝSING Verkefnastjóri vinnur með framkvæmda- og markaðsstjóra að kynningarmálum. í starfinu felst að sjá um samskipti við fjölmiðla og rækta samstarf við tiltekna samstarfsaðila og önnur Internet fyrirtæki. Einnig þarf Verkefnastjóri að vera framsækinn og opinn fyrir nýjum tækifæmm sem gætu opnastVísi.is Sölumaður(446) STARFSLÝSING Sölumenn vinna í samstarfi við markaðsstjóra. Auk þess að selja auglýsingar og kostanir (sponsorship) á Vísi.is - er hlutverk þeirra að finna nýjar tekjuleiðir fýrir vefinn. Þar sem verið er að byggja upp nýjan markað þarf viðkomandi að hafa hæfileika til að hugsa sjálfstætt, finna nýjar leiðir til að skapa tekjur og vera frjór í hugsun. Gerðar eru miklar kröfur um sjálfstæði og skapandi vinnubrögð. Blaðamaður (476) STARFSLÝSING Vísir.is er ólíkur öðrum miðlum í því að hann er virkur 24 tíma á sólahring alla daga ársins. Stöðugt þarf að vera vakandi fyrir nýjum fréttum og miðla þeim jafnóðum. Blaðamaður starfar á ritstjórnVísis.is HÆFNISKRÖFUR ► Viðskiptafræði eða sambærileg menntun ► Reynsla af sölu- og markaðsmálum ► Góð mannleg samskipti ► Góð þekking á Internetinu ► Sjálfstæð vinnubrögð ► Sköpunarhæfni HÆFNISKRuFUR ► Mjög góð þekking á Intemetinu ► Góð mannleg samskipti ► Opin og frjálsleg framkoma ► Sköpunargleði HÆFNISKRÖFUR ► Reynsla af sölumálum ► Góð mannleg samskipti ► Opin og frjálsleg framkoma ► Góð þekking á Internetinu ► Sköpunargleði HÆFNISKRÖFUR ► Góð almenn þekking á þjóðfélagsmálum ► Ritfærni ► Mjög góð íslenskukunnátta STARFSLÝSING Vísir.is er þróaður á Informix gagnasafnskerfi og keyrir á Unix stýrikerfi. Html forritari vinnur í samstarfi við vefstjóra að útfærslu á nýjum vefum og viðhaldi á eldri vefjum í Html. Þar sem Vísir.is er í fararbroddi í nýtingu Intemetsins þarf viðkomandi að vera tilbúinn að tileinka sér nýjungar mjög fljótt, vera útsjónarsamur við útfærslu lausna og hafa næmt auga fyrir útliti. Forritari (4i6) STARFSLÝSING Vísir.is er þróaður á Informix gagnasafnskerfi og keyrir á Unix stýrikerfi. Forritari vinnur í samstarfi við vefstjóra að útfærslu á nýjum vefum og viðhaldi á eldri vefjum. Vísir.is nýtir sér eiginleika SQL gagnagrunna mjög mikið. Viðkomandi starfsmaður þarf að hafa reynslu af forritun og skilning á gagnagrunnshönnun og gagnagrunns- forritun. Grafískur hönnuður (46i) STARFSLÝSING Viðkomandi starfsmaður þarf að geta tekið við ómótuðum hugmyndum að virkni vefs og útfært leiðakerfi og útlit til samræmis við þær hugmyndir. Mikil áhersla er lögð á öguð vinnubrögð og samræmt útlit. HÆFNISKRÖFUR ► Reynsla í Html forritun ► Reynsla í uppbyggingu og/eða rekstri vefja ► Þekking og reynsla í Perl og Javascript forritun ► Þekking á Unk stýrikerfi HÆFNISKRÖFUR ► ÞekkingogreynslaíPerlog Javascript forritun ► Þekking á Java og C ► Þekking á Unix stýrikerfi ► Reynsla í uppbyggingu og/eða rekstri vefja HÆFNISKRÖFUR ► Reynsla við hönnun vefja ► Þekking á Photoshop og Freehand ► Góð mannleg samskipti ► Sköpunargleði Vísir.is býður upp á mjög frjálslegt og lifandi starfsumhverfi og einstaklega góðan starfsanda. Með þátttöku í Vísis- hópnum býðst einstakt tækifæri til að móta notkun Internetsins á íslandi og vera brautryðjandi í uppbyggingu á framtíðar notkunarmöguleikum vefsins. Nánari upplýsingar veita Ragnheiður S. Dagsdóttir og Hilmar G. Hjaltason hjá Gallup. Utnsókn ásamt mynd þatfað berast Ráðningarþjónustu Gallupfyrir mánudaginn 7. júní n.k.- merkt „Vísir.is" ásamt viðeigandi starfsheiti og númeri. GALLUP RAÐNINGARÞJONUSTA Smiðjuvegi 72, 200 Kópavogi Sími: 540 1000 Fax: 564 4166 Netfang: radningar@gallup.is

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.