Dagur - 02.06.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 02.06.1999, Blaðsíða 4
4 - MIDVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1999 VÍKURBLAÐJD Útskriftarnemar á Húsavík ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. mynd: pétur jónasson. 3 6 útskrifast frá FSH Fjölmenni var við skólaslit og brautskráningu frá Framhalds- kólanum á Húsavík í Húsavíkur- kirkju 22. maí s.l. I ræðu sinni lagði skólameistari, Guðmundur Birkir Þorkelsson, út af hinum miklu og öru breytingum sem eiga sér stað í íslensku samfélagi og í heiminum öllum. Þessar að- stæður væru sannarlega spenn- andi og um leið fælust í þeim auknar kröfur til skólanna. Námsgreinar, námsefni og kennsluhættir þyrftu að vera í sífelldri endurskoðun. Símennt- un kennara væri afar mikilvæg og á upplýsinga- og tækniöld væri kunnátta við að leita upp- lýsinga og þekkingar sífellt mik- ilvægari hluti menntunar. Gunnar Baldursson, aðstoðar- skólameistari, flutti yfirlit um skólastarfið síðastliðinn vetur og Kristján Bjarni Halldórsson, áfangastjóri, gerði grein fyrir niðurstöðum prófa og verðlaun- um fyrir góðan námsárangur. 36 nemendur voru brautskráðir, 22 með stúdentspróf, 2 af iðnbraut- um, 2 með verslunarpróf og 10 af verknámsbraut. Bestum árangri á stúdents- prófi náði Karl Hreiðarsson, hlaut ágætiseinkunn 9,1. Krist- ján Þór Magnússon og Petrea Guðný Sigurðardóttir fengu 8,6 á stúdentsprófinu. Þessi ung- menni eru öll frá Húsavík og luku öll námi á sjö önnum eða þremur og hálfu námsári. Tveir nýstúdentar, Asta Magn- úsdóttir söngkona og Kristján Þór Magnússon saxófónleikari, fluttu nokkur lög af smekkvísi og kunnáttu. Að lokum ávarpaði skóla- meistari nemendur og óskaði þeim farsældar og árangurs í lífsglímunni sem framundan væri. Alls hafa 335 nemendur verið brautskráðir frá skólanum á tólf árum. Þar af hafa 60 nem- endur útskrifast af iðnbrautum, 119 af öðrum starfsnámsbraut- um og 156 með stúdentspróf. Fjölmörg verðlaun og viður- kenningar voru veitt fyrir náms- árangur á hinum ýmsu brautum. Petrea Guðný Sigurðardóttir fékk verðlaun fyrir árangur í ís- lensku, samfélagsgreinum og fyrir námsárangur á félagsfræði- braut. Karl Hreiðarsson fyrir ár- angur í raungreinum, fyrir fé- Iagsstörf, stærðfræði og tölvu- fræði og fyrir námsárangur á náttúrufræðibraut. Kristján Þór Magnusson fékk viðurkenningu fyrir félagsstörf og námsárangur á náttúrufræðibraut. Asta Magnúsdóttir fékk viðurkeningu fyrir árangur í ensku og dönsku og Hrönn Ivarsdóttir fyrir árang- ur í frönsku og þýsku. Sigríður Drífa Þórólfsdóttir og Kristján Júlíusson fengu viðurkenningu fyrir árangur og ástundun á verknámsbraut. Erla Dögg As- geirsdóttir og Ingibjörg Gunn- arsdóttir fyrir árangur í þýsku. Og Arnrún Sveinsdóttir og Guð- rún Inga Hannesdóttir fyrir fé- lagsstörf. — JS Blómlegt starf í Fram- haldsskólamim á Laugum Stúdentar frá Framhaldsskólanum á Laugum ásamt Sverri Haraldssyni áfangastjóra og Hjalta Jóni Sveinssyni skólameistara. Framhaldsskólanum á Laugum í Reykjadal var slitið við hátíðlega athöfn laugardaginn 22. maí s.l. Við skólann hófu 86 nemendur nám haustið 1998. Á fyrsta ári voru 32 nemendur, á öðru ári 24, á þriðja ári 20 og 10 byrjuðu á fjórða ári og af þeim útskrif- uðust nú 8 stúdentar. Nám á vorönn stunduðu 81 nemandi. Tveir nemendur fengu verðlaun fyrir góðan námsárangur, Laufey Lind Sturludóttir og Daði Lange Friðriksson. I ræðu Sverris Haraldssonar, áfangastjóra, við skólaslitin, kom fram að almennt séð hefði námið og skólastarfið gengið vel í vetur. Meðal nýjunga í skóla- starfinu var áfanginn verkgrein, þar sem nemendur lærðu ýmsa hagnýta hluti, svo sem úr- beiningu, bakstur, logsuðu og járnsmíði. Þetta tókst mjög vel og skapaði fjölbreytni í náms- framboði. Tónlistarlíf við skólann var með miklum blóma og mikil og góð tengsl við Tónlistarskólann í Reykjadal sem kom fram í sam- vinnu við kórstarf, hljóðfæraleik, leikstarfsemi og kringum söngvakeppni framhaldsskól- anna. Einnig varð framhald á samstarfi Framhaldsskólans og leikdeildar Eflingar og 20 nem- endur tóku þátt í uppsetningu leikdeildarinnar í vetur á söng- leiknum „Láttu ekki deigan síga, Guðmundur!". Þá stóð skólinn fyrir skemmstu fyrir Menningardegi sem helgaður var flóttamönnum frá Kosovo. Þar komu nemendur og fjölmargir aðrir listamen fram fyrir fullu húsi og afrakst- urinn var myndarleg Ijárupphæð sem send var Rauða krossinum til ráðstöfunar flóttamönnum til handa. — JS T>í$gut Lofaðnýjugati Við birtum á dögunum vísur úr 2. vfsnahefti Kveðanda, vísnafélags Þingeyinga, en ritið er nýlega komið út. All- ir vísnavinir þyrftu að eign- ast þetta bráðskemmtilega rit og til að æsa upp í mönnmum vísnalystina birt- um við hér nokkrar skemmtilegar stökur úr kverinu: Spurt var hvar menn vildu fá næstu jarðgöng. Sigríður Ivarsdóttir svaraði svo: Lítið verður oft wn efndimar, ú það sýnist best að lýsa frati, þeir keppast við þaðfyrir kosningar kjósendum að lofa nýju gati. Indriði Ketilsson kvað: Álit mitt er einkamúl, ykkur vil þó segja: Mikil göng und megin úl milli lands og Eyja. Ólína Arnkelsdóttir sagði: Um Víkurskarð er leiðin löng, ojt Ijótur skafl á veginum. I Vaðlaheiði vantar göng víð og há með útskotum. Og Sigvaldi Jónsson kvað: Þjóna skal sýslum Þingeyjar það gera okkar ráðherrar. Þau gleðja mun öll hin götóttu fjöll, og göng ættu að vera til Grímseyjar. Húsavík Stöðvarvík? Hagyrðingar veltu því fyrir sér hvað væri Iíkt með Húsavík og Stöðvarvík, sem var í sjónvarpinu á sínum tíma. Kristján Jónsson kvað: Hér er vit í heila sekki, hagmælskan er engu lík. En Húsvíkingar hafa ekki húmorinnfrá Stöðvarvík. Ingibjörg Gísladóttir mælti: Blaðamenn þeirra bestfæ séð með bjánaglott áfési. Þá búum við nú betur með bullið í Jóhannesi. Hreiðar Karlsson orti svo: Innrétting beggja er afar lík, ekki nokkru i heimi lík. Hagyrðingar á Húsavík hér um bil eins og í Stöðvarvik. Og Þorsteinn Jónsson hafði þetta að segja um málið: Húsavík er held ég rík, hún erfáum bæjum lík. Um það gesti alveg svík hvort eitthvað líkist Stöðvarvik.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.