Dagur - 05.06.1999, Blaðsíða 6
6 - LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
rD^tu-
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Adstoúarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Simar auglýsingadeildar:
Simbréf auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
omar@dagur.is
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 6171ÍAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Svikalogn?
í fyrsta lagi
Enn er óljóst hvaða áhrif nýjasta samkomulagið um Kosovo mun
hafa í reynd. Finnski forsetinn, sem lét sig hafa það að semja við
ákærða stríðsglæpamenn í Belgrad, lagði áherslu á að einungis
hefði verið stigið fyrsta skrefið af mörgum. Serbneskir leiðtogar
virðast hafa fallist á ýmsar helstu kröfur vesturveldanna, en öll
ffamkvæmdin er eftir. Og þeir sem nenna að kynna sér sögu síð-
ustu ára á Balkanskaga vita gjörla að Slobodan Milosevic er
undirförull og slægur bragðarefur sem kann þá stjórnlist til fulls
að segja eitt en gera annað. Það er því of snemmt að fagna sigri
fyrir hönd flóttafólksins frá Kosovo.
í öðru lagi
Ljóst er að samkomulagið felur í sér að alþjóðlegur her mun
halda til Kosovo og reyna þar að tryggja öryggi flóttafólksins ef
og þegar það snýr aftur til rústa heimila sinna. Friðargæsluliðið
þarf að vera þannig samsett og stjórnað að albanska þjóðin
treysti því til að veija sig; allt annað er einungis svikalogn. Þá er
þörf á stórfelldri efnahagsaðstoð til að byggja aftur upp manna-
bústaði og önnur mannvirki í Kosovo þannig að fólk geti lifað
þar og starfað með nokkurn veginn eðlilegum hætti. Þetta er
stórfellt verkefni sem kosta mun ógrynni fjár og fjölmennt lið
hjálparfólks árum saman.
í þriðja lagi
Samningamönnum lýðræðisríkjanna virðist ekki hafa orðið
bumbult af að setjast enn á ný að samningaborði með ákærðum
stríðsglæpamönnum í Belgrad. Það sýnir auðvitað hvílíkan
áhuga vestrænir Ieiðtogar höfðu á að losna út úr stríðsaðgerðum
sem þróuðust að ýmsu leyti með öðrum hætti en þeir gerðu ráð
fyrir í upphafi. En enginn skyldi ætla að það verði raunveruleg-
ur friður á Balkanskaga á meðan Milosevic og kumpánar hans
halda völdum í Serbíu. Enda væri það auðvitað hrein afskræm-
ing á sjálfsögðum kröfum um lýðræði og mannréttindi ef
serbneskir stríðsglæpamenn sitja áfram í valdastólum í stað þess
að svara til saka fyrir fyrir dómstólnum í Haag.
Elías Snæland Jónsson.
Forsætisráóherranum
berst bréf
Garri las með íhygli grein í Degi
um bréfaskriftir Davíðs í gegn-
um tíðina og sá ekki betur en að
bréf forsætisráðherra væru flest
prýðilega stíluð, gagnorð og
frussandi vinsamleg. En það
sem kom Garra
mest á óvart í þess-
ari umfjöllun var
að hvergi var
minnst á bréf til
Davíðs. Berst for-
sætisráðherranum
aldrei bréf? Ósköp
hlýtur það að vera
leiðinlegt að skrifa
uppstyttulaust bréf
og senda út um hvippinn og
hvappinn og vera svo ekki virtur
svars. Þetta er auðvitað óviðun-
andi ástand. Maðurinn á skilið
að fá að minnsta kosti eitt bréf
á ævinni, sem lítinn þakldætis-
vott fyrir öll bréfin sem hann
hefur sent þjóðinni.
Og Garri lætur ekki sitja við
orðin tóm, heldur sest hér með
niður og skrifar sínum elskaða
og dáða leiðtoga, Kim II Davíð,
eitt Iítið lettersbréf opið:
Kæri Davíó!
Garri heiti ég og geri ekki ráð
fyrir því að þú þekkir mig, þar
sem þú ert líkast til ekki fastur
lesandi Dags og þar með hinna
þjóðfrægu pistla minna. Mér
finnst ég hinsvegar þekkja þig
vel því ég hef lesið öll einkabréf-
in þín sem hafa birst í blöðun-
um.
Af mér og mínum er allt gott
að frétta. Mummi frændi er
reyndar búinn að missa vinnuna
í kaupfélaginu fyrir norðan og
Bóthildur systurdóttir mín er á
atvinnleysisbótum í Þorláks-
höfn, en þau hafa auðvitað bara
gott af því að kynnast alvöru
lífsins, eins og við, Davíð, sem
höfum svo oft lapið dauðann úr
V
skel og það ekki úr silfurskeið-
um. Eg tók númerin af bílnum í
gær, heimilisreksturinn þolir
nefnilega ekki síðustu bensín-
og tryggingahækkanir, en það er
hið besta mál, því þá geng ég
bara meira mér til
heilsubótar og lifi
sennilega Iengur.
Þetta er að vísu
slæmt fyrir ömmu,
en hún verður þá
bara að keyra
meira sjálf á hjóla-
stólnum sínum og
hefur bara gott af
því. Það er alltof
ósjálfbjarga þetta farlama fólk
og fatlaða og þarf að læra að
bjarga sér sjálft.
Vona að ástandið sé svipað
hjá þér og þinni íjölskyldu og
allir séu jafn hressir og glaðir og
ég og mfn fjölskylda.
Vertu svo æfinlega blessaður
og sæll og haltu áfram að stjór-
na okkur og skrifa þín bréf af
sömu ljúfmennsku og hingað
til.
Þinn vinur og kjósandi,
- GARRI
P.S
Húbertína kona mín (sem er
tannhvöss í meira Iagi) heimtar
að að fá að senda þér smá orð-
sendingu sem ég biðst fyrirfram
afsökunar á:
„Davíð, ert þetta þú sjálfur,
útvatnaði krullubelgur? Eg hef
sko aldrei kosið þig, þú skamm-
sýni skegglubaldur og Iang-
rækni lómagellir og tómi tunnu-
gerðarmaður! Má ég þá heldur
biðja um Sverri Hermanns og
hananú, þú fljótsprottni fýlu-
poki og örsöguafglapi! Og vertu
svo ævinlega ekki margblessað-
ur! HÚBERTÍNA (OG GARRl)
SIGURÐUR
BOGI
SÆVARSSON
SKRIFAR
Fyrir nokkrum dögum var dreift á
Akureyri fréttablaði bæjaryfir-
valda þar sem nefnd eru helstu
tíðindi í bæjarlífinu. Að þessu
sinni var sérstaklega gert að frá-
sagnarefni hve mikið væri byggt í
höfuðstað Norðurlands bæði á
vegum einstaklinga og hins opin-
bera. „Flestum ber saman um að
Iangt sé síðan jafn mikil umsvif
hafi verið í verklegum fram-
kvæmdum í bænum. Það er nán-
ast sama hvar er borið niður, alls
staðar er eitthvað í gangi,“ sagði í
fréttabréfinu. - Gott vel. í sjálfu
sér eru fréttir þessar ekki rangar,
en séu þær settar í samhengi við
annað sem hefur verið að gerast á
Akureyri upp á síðkastið virka
þær hjákátlega. Auðvitað þarf
alltaf að vera að byggja í 15 þús-
und manna bæ. En þegar upp-
sveifla á Akureyri er fyrirsögn í
fréttabréfi bæjarins sem dreift er
í sömu viku og 50 manns hefur
verið sagt upp störfum hjá fyrir-
tækjum í hænum spyr maður
hvað sé í gangi.
UppsveifLa á Akureyri?
Hafurtask í gámi
Alla jafna er uppsveiflan í at-
vinnulífinu mest
á vorin og upp-
sagnir ættu því
varla að eiga sér
stað á þessum
tíma árs. En í
þessari viku hef-
ur Kaupfélag Ey-
firðinga sagt upp
15 starfsmönn-
um, 11 starfs-
menn Húsa-
smiðjunnar hafa
fengið uppsagn-
arbréf og 17
starfsmenn hjá
Slippstöðinni
fengu að Ijúka í
þessari viku. Þá
hefur átta
manns verið sagt
upp hjá Sölu-
miðstöð hrað-
„Þegar uppsveifla á Akureyri er
fyrirsögn i fréttabréfi bæjarins -
sem dreift er í sömu viku og 50
manns hefur verið sagt upp störf-
um hjá fyrirtækjum i bænum - spyr
maður hvað sé í gangi."
frystihúsanna,
en um liðna helgi var skrifstofu
hennar á Akureyri lokað og allt
hafurtaskið sett í gám og flutt suð-
ur. Fregnir berast af allmörgum
sem hyggjast flyt-
ja af svæðinu og í
góðærið syðra -
og forráðamenn
ýmissa fyrirtækja
hafa það sama í
huga. Hyggjast
fara að dæmi SH,
loka „sjoppum"
sínum nyrðra,
setja sínar verald-
Iegu eigur í gám
og fara til Reykja-
víkur, þar sem
björt eru borgar-
Ijósin, að sagt er.
Sjálfsblekkwg
Landsbyggðar-
fælni, sagði Jón
Birgir Guð-
mundsson, for-
stöðumaður
ráðningaskrif-
stofunnar Ráðgarðs á Akureyri, í
viðtali í Morgunblaðinu fyrr í vik-
unni. Þetta er hárrétt hjá Jóni og
það er líka ljóst að vandi lands-
byggðarinnar er að verulegu leyti
hugarfarslegur. Víða eru mögu-
leikar til þess að byggðirnar megi
vaxa og dafna og hefur Eyjaíjarð-
arsvæðið verið sérstaklega nefnt í
því sambandi. Aðgerðir stjórn-
valda í byggðamálum, hversu
gáfulegar sem þær eru og skila al-
mennt miklu, sem er mjög um-
deilt, hafa ekki síst miðast við að
styrkja EyjaQarðarsvæðið.
Uppsveifla á Akureyri gæti
vissulega verið veruleiki og til
þess eru vissulega allar forsendur.
En meðan svo er ekki skyldi eng-
inn reyna að telja sjálfum sér trú
um hitt. Allra síst bæjaryfirvöld,
einsog þau hafa gert með grein-
inni um uppsveifluna í fréttablaði
sínu. Ber hún einna helst vott um
sjálfsblekkingu, sem gæti allt eins
leitt Akureyringa f enn verri stöðu
í atvinnu- og byggðamálum en
þeir eru þegar komnirí.
Hvemigfer kimtt-
spymulandsleikur ís-
lands ogArmeníu í dag?
Rúnar Júlíusson
tónlistarmaður.
„Þetta verður
hefðbundið,
við vinnum
leikinn eða að
minnsta kosti
jöfnum.
Landsliðið
hefur verið í
góðum mál-
um undir stjórn Guðjóns Þórðar-
sonar og engin breyting er þar á.“
Víðir Siguiússon
íþróttajféttamaðurá DV.
„Ég held að
íslenska liðið
komi til með
að vinna leik-
inn og eigum
við ekki að
segja að Ioka-
tölurnar verði
2-0. En erfitt
verður þetta. Þegar almennt er
búist við því að liðið sigri, þegar
styrkleiki mótheijanna er svipað-
ur og þegar heimavöllurinn er
annarsvegar þá verður pressan á
Ieikmenn Islendinga meiri en
ella. Þá eiga þeir að vinna að mati
þjóðarinnar og undir slíkum
væntingum er oft erfítt að standa
þó ég telji að karakter íslenska
Iandsliðsins sé reyndar sá í dag að
leikmenn eigi að geta staðið und-
ir pressunni."
Vatida Sigurgeirsdóttir
þjálfari kvennaliðsKR í knattspyniu.
„Ég spái því
að Island
muni vinna
með tveimur
mörkum. Is-
lendingar
gerðu jafn-
tefli við
Armeníu á
útivelli í fyrra og nú hafa þeir alla
burði til þess að sigra í þessum
Ieik. Þórður Guðjósson og sveit-
ungi minn frá Sauðárkróki,
Eyjólfur Sverrisson, munu skora
mörkin. Þetta verður skemmtileg-
ur Ieikur og íslendingar munu
sækja meira en þeir hafa gert á
móti sterkari Iiðum.“
Þorsteinn Gunnarsson
fonnaðwrÍBV.
„Öruggur ís-
lenskur sigur
er mín spá
um þennan
leik, þrjú
mörk gegn
engu. Liðið
bullar af
sjálfstrausti
og staða liðsins í riðlinum er þan-
nig að ýmsir möguleikar eru fyrir
hendi, sem hlýtur að verða til þess
að leikmenn leggi sig alla fram
um að ná næsta stórafreki ís-
Ienskrar íþróttasögu, sem er að
komast í úrslitakeppni Evrópu-
keppni Iandsliða. Það er raunhæf-
ur möguleiki að ná svo langt og
Guðjón Þórðarson hefur sýnt og
sannað að hann er réttur maður á
réttum stað og ég hef tröllatrú á
því að gott gengi landsliðsins
haldist áfram undir hans stjórn.
Ég er ekki að gera þá kröfu að
Iandsliðið komist í úrslitakeppn-
ina, þó farið sé að gæla við að sá
möguleiki sé til staðar."