Dagur - 05.06.1999, Síða 8

Dagur - 05.06.1999, Síða 8
8- LAUGARDAGUR S. JÚNÍ 1999 LAUGARDAGUR S. JÚNÍ 1999 - 9 FRÉTTA SKÝRING Tkypr FRÉTTIR Stutt en snarpt sumarþing BIORN JOJJANN BJORNSSON SKRIFAR Nýtt þing kemnr sam- an á þriðjudaginn. Bú- ist er viö stuttu en suörpu þinghaldi þar sem tekist verður m.a. á um kjördæmamálið. Meuu híða eiunig spenutir eftir stefnu- ræðu Davíðs Oddsson- ar í ljósi þeirra þeusluáhrifa sem hafa orðið á hveitihrauðs- dögum nýrrar ríkis- stjómar. Nýtt þing kemur saman næst- komandi þriðjudag í fyrsta sinn eftir kosningar. Stefnt er að því að ljúka þinghaldi fyrir 17. júní þannig að þetta verður stutt en af mörgum talið snarpt átakaþing. Fyrir utan hefðbundna dagskrár- liði eins og stefnu forsætisráð- herra, kjör þingforseta og í nefnd- ir og ráð á vegum Alþingis, þá liggur fyrir að afgreiða stjórnar- skrárbreytingu vegna nýrrar kjör- dæmaskipunar og eins að greiða atkvæði um Smugusamninginn. Halldór Ásgrímsson, sem hefur næstlengstu þingsetu að baki, stýrir fyrsta þingfundi í forföllum Páls Péturssonar sem setið hefur sleitulaust á þingi frá 1974. Þá var Halldór einnig kjörinn á þing en sat ekki þing frá 1978 til ‘79. Nafni hans, Blöndal, mun síðan taka við embætti þingforseta, ger- ist ekkert óvænt í atkvæðagreiðsl- unni. Að lokinni þingsetningu verður gert stutt hlé þar til Davíð Odds- son flytur stefnuræðuna síðdegis á þriðjudag. Á meðan yfirgefa gestir þingsins salinn, forseti Is- lands og fulltrúar erlendra ríkja. Þetta er breyting frá setningu síð- asta þings. Þegar Davíð hefur flutt boðskapinn verður aftur tek- ið hlé áður en umræður hefjast um stefnuræðuna um kvöldið. Margir bíða spenntir eftir ræðu Davíðs í ljósi umdeildra verð- hækkana í þjóðfélaginu á hveiti- brauðsdögum nýrrar ríkisstjórnar. Á meðan hann hefur setið árs- fund Bilderberg-samtakanna í Portúgal, þar sem margir helstu stjórnmálaforingjar og auðmenn vestrænna ríkja eru saman komn- ir, hafa verkalýðsforystan, stjórn- arandstaðan og Neytendasamtök- in mótmælt þessum hækkunum harðlega. Fróðlegt verður að heyra Davíð tjá sig um áhrif þess- ara hækkana en þeir ráðherrar, sem hafa tjáð sig opinberlega til þessa, telja þær ekki ógna stöðug- Ieikanum. Halldór Ásgrímsson hefur hins vegar gert athuga- semdir við hækkun iðgjalda trygg- ingafélaganna og ekki er ólíklegt að umræða fari fram um ný skaðabótalög á sumar- eða haust- þinginu. Formennska frá stjómarand- stöðu Eins og Dagur hefur skýrt frá í vikunni mun stjórnarandstaðan ekki fá formennsku í neinum þingnefndum heldur ætla stjórn- arflokkarnir að skipta á milli sfn þeim stólum. Sjálfstæðismenn fá formennsku í 8 nefndum og framsóknarmenn í 4. Á síðasta þingi var stjórnarandstaðan með formennsku í 3 nefndum á tíma- bili þegar Kristín Ástgeirsdóttir fór fyrir félagsmálanefnd, Stein- grímur J. Sigfússon var um tíma yfir sjávarútvegsnefnd, eða þar til Kristinn H. Gunnarsson tók við, og Ossur Skarphéðinsson var allt kjörtímabilið yfir heilbrigðis- og trygginganefnd. Kristín Ástgeirs- dóttir sagði sig síðan úr Kenna- listanum og gekk í flokk óháðra og Kristinn H. skipti úr Alþýðu- bandalaginu yfir í Framsókn. Össur skipti ekki um flokk en stjórnarflokkunum, einkum framsóknarmönnum, þótti hann óþægur ljár í þúfu og svo virðist sem öll þessi reynsla hafi fengið stjórnarflokkana til að taka við öllum formannsstólunum á ný. Stjórnarandstaðan hefur mót- mælt lágstöfum og virðist ætla að láta þetta yfir sig ganga. Össur sagði við Dag í vikunni að and- staðan yrði bara harðari fyrir vik- ið. Smjörþefinn af þeirri yfirlýs- ingu má sjá í ályktun sem þing- flokkur Samfylkingarinnar sendi frá sér í fyrradag. Þar átelur hann harðlega „blekkingar" stjórnar- flokkanna í nýliðinni kosninga- baráttu og að þrátt fyrir varnaðar- orð Samfylkingarinnar hafi stjórnarflokkarnir haldið því ranglega fram að stöðugleikinn væri ekki í hættu og að framund- an væri langvarandi góðæri. Fnrmpmnmir hittust Formenn þingflokkanna komu saman í Alþingishúsinu í gær til að bera saman bækur sínar um þinghaldið f næstu viku. Allir voru þeir nýskipaðir formenn nema bvað Valgerður Sverrisdótt- ir gefur ekki kost á sér til áfram- haldandi formennsku í þingflokki framsóknarmanna. Kosið verður í það embætti á þingflokksfundi á mánudaginn. Einungis fimm þingmenn koma þar til greina þar sem sex eru ráðherrar og einn, þ.e. Valgerður, á leiðinni í ráð- herrastól á kjörtímabilinu. Fimm- menningarnir eru Ólafur Örn Haraldsson, Kristinn H. Gunn- arsson, Hjálmar Árnason, Jón Kristjánsson og Isólfur Gylfi Pálmason. Ógjörningur er að spá hvernig sú kosning fer. Hún er hlekkur í miklu púsluspili flokks- ins svo að sem flestir þingmenn fái eitthvað fyrir sinn snúð. Ef ekki ráðherrastól, þá þingflokks- eða nefndarformennsku. Óánægjameð kj ördæmaskipan Aftur að þing- flokksformönn- unum. Að lokn- um fyrrgreindum fundi í gær heyrði Dagur í þeim hljóðið fyr- ir komandi sum- arþing. Fyrstur fyrir svörum varð Ögmundur Ogmundur Jón- jónasson. asson, þing- --- flokksformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns ætla sér að hafa þetta örstutt þing, fyrst og fremst til að afgreiða kjör- dæmamálið til umræðu síðari þings. Okkur ligg- ur mjög á hjarta að tala um það breytta ástand Rannveig Guð- sem nú blasir við mundsdóttir. frá þeirri umræðu ---- um stöðugleika, góðæri og efnahagsástand í þágu beimilanna í landinu, sem var rauður þráður í öllum boðskap stjórnarflokkanna fram að kjör- degi. Nú er umræðan önnur. Stofnanir á sviði efnahagsmála, sérfræðingar og stjórnmálamenn horfast í augu við, og ræða það opið í Qölmiðlum, að blikur eru á lofti og stjórnvöld hljóta að þurfa að bregðast við þeim breytingum sem fyrir löngu voru orðnar sýni- legar en stjórnvöld þrættu fyrir. Þessa umræðu viljum við fá og eigum eftir að taka upp við for- ráðamenn þingsins. Ekki er nóg að fara í umræðu um stefnuræðuna þar sem hún er bundin og við njót- um ekki svara og umræðu á sama hátt og í pólitískri umræðu. Við hljótum að óska eftir því að ýmis önnur mál verði rædd og flytja til- Iögur til þess að fá mál á dagskrá," sagði Rannveig og útilokaði ekki að stjórnarandstaðan færi fram á utandagskrárumræður á þessu sumarþingi. Formenn þingflokkanna komu saman í Alþingishúsinu í gær til að skipuleggja sumarþingið. - mynd: þök framboðs. Honum fannst ekki vera „nógu góður bragur" yfir byrjun þinghaldsins að hálfu stjórnarflokkanna. Að hans mati verður kjördæmamálið stærsta málið á sumarþinginu. „Stjórnarskrárbreytingin verður tekin fyrir en hins vegar er ekki nauðsynlegt að ganga frá skipt- ingu kjördæma. Óánægja er mik- il í þinginu, ekki síst hjá mörgum þingmönnum Reykjavíkur með að skipta borginni upp í tvö kjör- dæmi. Sjálfum fyndist mér eðli- legt að endurskoða þau áform og gefa sér góðan tíma til umræðu,“ sagði Ögmundur. Um nefndarformennskuna sagði Ögmundur rök vera með því og á móti að stjórnarflokkarn- ir gegndu henni. Honum fannst koma til greina að stjórnarand- staðan fengi formennsku í öllum þingnefndum til að styrkja þingið gegn framkvæmdavaldinu. „Eitt er alveg víst að menn vilja ekki þau vinnubrögð sem við urð- um vitni að, að ákveðið sé um allt án umræðu. Það er ekki góð byrj- un á þinghaldinu. Þetta verður stutt þing en margt þarf að koma til umræðu. Þess vegna er því ekkert til fyrirstöðu að lengja þinghaldið, ef út í það fer. Blikur eru á lofti í efnahagsmálum. Verðbólguhjólin eru farin að snú- ast og kolameistararnir koma bæði ffá tryggingafélögunum og hinu opinbera, sem eru að keyra verðlag upp og auka þar með út- gjöld heimilanna. Óvissa er einn- ig um ýmsa þætti, m.a. stjórnar- sáttmálann, sem ríkisstjórnin verður að gera betri grein fyrir. Stórar spurningar vakna varðandi orkumál og virkjanaframkvæmdir og síðan er margt alvarlegt að ger- ast í okkar þjóðlífi sem ástæða er fyrir Alþingi að hafa afskipti af. I því sambandi nefni ég fy'rirhugað- ar lokanir á sjúkrahúsum sem hafa haft í för með sér mikla erf- iðleika fyrir fólk á undanförnum árum, og undarlegt að menn skuli aldrei Iæra þar af reynslunni," sagði Ögmundur. Liður vel í stjómarandstððu Guðjón A. Krist- jánsson sat fundinn í gær af hálfu Fijálslynda flokksins. Miðað við áætlanir stjórnarflokk- anna um að þinghaldi Ijúki 15. júní sagðist hann ekki reikna með miklum af- köstum þingsins á þessum sjö dögum. „Við myndum vilja fá fjölmörg mál fram en tveggja manna þing- flokkur fær varla miklu ráðið um það. Eins og kjördæmamálið er vaxið þá Iátum við það líldega liggja eins og það er. Búið er að samþykkja það einu sinni og ekki komum við þar að málum. Eg tel það hins vegar ekki klárt að Smugusamningurinn verði af- greiddur. Er ekki einhver hæga- gangur á mönnum í Noregi með þann samning? Þingflokkarnir eiga síðan eftir að ákveða hvaða Guðjón A. Kristjánsson. mál þeir vilja fá á dagskrá. Við hjá Frjálslynda flokknum útilokum ekki að við tökum upp umræðu utan dagskrár um einhver mál. Tilefnin eru ærin,“ sagði Guðjón sem aðspurður sagðist líða vel að vera kominn í stjórnarandstöðu. Hann var sem kunnugt er vara- þingmaður á síðasta þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vestfjörð- Stutt og áferðarfagurt Valgerður Sverr- isdóttir, sem er að ljúka þing- flokksfor- mennsku hjá framsóknar- mönnum, sagð- ist reikna með að þingið yrði stutt og áferðar- fagurt. „Eg á ekki von á neinum átök- um. Pólitísk umræða verður eins og eðlilegt er í upphafi kjörtíma- bils. Eflaust mun stjórnarand- staðan eitthvað minna á sig en sannleikurinn er sá að háværar raddir hafa ekki verið í þjóðfélag- inu um að stjórnarandstöðuflokk- arnir ættu að koma inn í ríkis- stjórn. Ríkisstjórnin á mjög mik- inn stuðning. Fyrst og fremst er verið að koma starfseminni af stað í þinginu, skipa nefndir og ráð og fá umfjöllun um stjórnar- sáttmálann og ^ stefnuræðu for- sætisráðherra. Eg á t.d. ekki von á átökum um kjördæmamálið. Það er mál sem búið er að taka Valgerður Sverrisdóttir. Sigríður Anna Þórðardóttir. ákvörðun um og allt loft farið úr því, að mínu mati. Allir flokkar koma að málinu, með misjafnlega mikilli ábyrgð," sagði Valgerður. Ómögulegt að spá um átök „Helsta þingmál- ið er að sjálf- sögðu kjördæma- málið og stjórn- skipunarfrum- varpið. Eg á von á að þetta verið stutt þing,“ sagði Sigríður Anna Þórðardóttir, þingflokksfor- maður Sjálfstæð- isflokksins. Hvort einhver átök yrðu sagði hún ómögulegt að spá um. Það ætti eftir að koma í Ijós. Hún sagðist vel geta ímyndað sér að stjórnar- andstaðan vildi ræða ýmis mál. Aðspurð um Smugusamninginn sagðist Sigríður Anna ekki reikna með öðru en að hann kæmi til at- kvæðagreiðslu. „Þetta hefur verið á borði ríkisstjórnarinnar og ekki komið inn í þingflokkana enn. En von er á því máli, engu að síður.“ Utandagskrárumræður mögu- legar Við upphaf þings fannst Rann- veigu Guðmundsdóttur, formanni þingflokks Samfylkingarinnar, það standa upp úr að engin áform væru uppi hjá stjórnarflokkunum um að hefja pólitíska umræðu fyr- ir utan umræðu um stefnuræð- na. „Greinilegt er á öllu að menn SENDUB TfeKKl $2- - iSLfc»^ ,UR 7É.KW ****** OSfiT' ÍfAJi ***** '.SifspSH Gömlu tékkheftin voru ekki gjaldgeng eftir að bankinn var gerður að hlutafélagi. Hentu heftum 9 milljónir fjirir Breyting ríkisbank- anna í hlutafélög kostaði marga millj- ónatugi. Búnaðarbankinn þurfti að af- skrifa 9 milljóna birgðir af tékk- heftum og ýmsum skjölum, sem innihéldu heiti bankans í texta, þegar bankinn var gerður að hlutafélagi. Þetta var langt í helmingur þess kostnaðar sem bankinn hafði af hlutafélaga- væðingu og sölu bankans á sín- um tíma. Samkvæmt svari fjár- málaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Árna Stefánssonar, var annar kostnaður af breyting- unni tæpar 12 milljónir. Þriðj- ungurinn, rúmar 4 milljónir, fóru í þóknun til nefndarmanna og bankaráðsmanna, liðlega 3,3 milljónir fóru í auglýsingar og kynningamál, 2,7 milljónir í kynningarfund fyrir erlenda banka í London, rúmar 770 milljónir í ferðakostnað, 690 milljónir í útlagðan kostnað við- skiptaráðuneytis og 250 milljón- ir í sérfræðiþjónustu. Lansi fundaöi ódýrara í London í kostnaðaryfirliti Landsbankans kemur ekki fram hvað hann þurfti að afskrifa mikið í úreltum tékkheftum. En annar kostnaður var hátt á elleftu milljón. Þókn- un til bankaráðs- og nefndar- manna var álíka, en Landsbakn- inn borgaði hins vegar 3,8 millj- ónir fyrir sérfræðiþjónustu, eða 15 sinnum meira en bróðir Bún- aðarbanki. Kynningarfundur í London var aftur á móti 900.000 krónum ódýrari hjá Landsbankanum, sem ekki getur heldur um eina krónu í kynning- ar- og auglýsingakostnað. I yfirlitum beggja bankanna er tekið fram að ótalinn sé sá kostnaður sem fólst í vinnu starfsmanna innan bankans við undirbúning, kynningarmál og fleira. Skráning í hlutafélagaskrá og starfsleyfi kostaði hvorn banka aðeins um 165 þúsund krónur. Rafmagn hækkar Veröhækkanir hafa verið mikið í uinræð- unni imdanfama daga. Nýverið hækk- aði Landsvirkjun raf- orkuverð uin 3 pró- sent og mun það hafa áhrif á orkuverð um allt land. Allmargar verðhækkanir hafa streymt yfir landsmenn undan- farna daga. Þær raddir sem boða sívaxandi verðbólgu verða æ há- værari en ríkisstjórnin segir þessar hækkanir ekki ógna stöð- ugleikanum. Landsvirkjun hefur nýverið boðað hækkun á heild- söluverði raforku til almennings- veitna um 3 prósent sem tekur gildi 1. júlí næstkomandi. Um áramótin 1998 hafði raforkuverð Landsvirkjunar hækkað um 1,7 prósent. I kjölfarið á síðustu hækkun Landsvirkjunar ákváð stjórn veitustofnana Reykjavíkur að hækka verð á hita um 4,6 prósent og verð á rafmagni um 3 prósent. Líkleg hækkiut í Hafnarfirði Jónas Guðlaugsson rafveitustjóri Rafmagnsverð vítt um land hefur hækkað í kjölfar gjaldskrárhækk- unar Landsvirkjunar. hjá Rafveitu Hafnaríjarðar segir að Iíklega muni verð á rafmagni hækka um 3 prósent á næstunni hjá þeim en bann tekur fram að engin ákvörðun liggi fyrir og mun málið líklega Iiggja fyrir á stjórnarfundi næstkomandi mið- vikudag. Hann telur að hækkun Landsvirkjunar og almenn hækkun tilkostnaðar kalli fram hækkanir. Að auki segir Jónas að á undanförnum árum hafi raf- magnsverð frá Landsvirkjun hækkað töluvert meira en sem samsvarar almennu verðlagi. Svipaða sögu segir Svanbjörn Sigurðsson hjá Rafveitu Akur- eyrar sem hefur ákveðið 3 pró- senta hækkun frá og með 1. júlí og bendir á að raforkuverð Raf- veitu Akureyrar hafi hækkað mun minna á undanförnum árum en verð Landsvirkjunar og byggingarvísitala. Fundur hjá Rarik á þriðjudaginn Að sögn Kristjáns Jónssonar hjá Rarik liggja eins og stendur eng- ar ákvarðanir fyrir um breytingar á gjaldskrá Rarik en það mál verður tekið til umfjöllunar á stjórnarfundi þriðjudaginn 8. júní. Hins vegar telur hann það ekki ólíklegt að einhveijar breyt- ingar verði gerðar. Júlíus Jóns- son forstjóri Hitaveitu Suður- nesja segir að ekkert sé afráðið með breytingar á þeirra gjaldskrá en hins vegar telur hann minni líkur en meiri á því að breyting- ar verði gerðar. Að sögn Guð- laugs Sveinssonar hjá hitaveitu Þorlákshafnar eru engar fyrir- hugaðar breytingar á verði þar og það mál ekki einu sinni vera á dagskrá. Hitaveita Egilsstaða og Fella segir að ekkert liggi fyrir um breytingar á gjaldskrá og Akranesveita er sögð vera að skoða málin. — ÁÁ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.