Dagur - 10.07.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 10.07.1999, Blaðsíða 2
 II-LAV GARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 SÖGUR OG SAGNIR Dgpu- Plágan mikta var kirkjunni mikil lyftistöng. Þær hörmungar sem henni fylgdu urðu til þess að menn fóru að leiða hugann að hverfulu mannlífi og sálarheill sinni. Djöfuiiinn og árar hans urðu voldugir í augum manna, enda var engu Hkar en að þeir réðu flestu í táradalnum. Menn leituðu því tii kirkjunnar sem efldist mjög í kjölfar farsótt- anna miklu. Á myndinni sést hvar Satan vitjar manns á banasænginni en hinu megin við rúmið er prestur með oblátu milli handa tilbúinn að veita hinum deyjandi síðasta sakramenti, en aðstoðarmaður hans krýpur og biðst fyrir með kyndil vonarinnar í hendi. Hér er barist um sálina í bókstaflegum skilningi. Svarti dauði FREYJA JÓNSDÓTTIR skrifar Framhald afforsíðu Til Belgíu og HoIIands barst pest- in sumarið 1349. Hún barst til Ungverjalands, Austurrfkis, Sviss og Þýskalands um svipað Ieyti og er talið að þangað hafi hún kom- ið frá Frakklandi, en til Frakk- lands frá löndunum sunnar í álf- unni. Sagnir eru til um að pestin hafi geisað í Englandi á þessum tíma og borist þaðan til Noregs og Svíþjóðar í kringum 1350 með ensku skipi sem kom í Björg- vinjarvog, hafi allir af skipi þessu andaðst úr pestinni. Ibúar á nær- liggjandi slóðum smituðust og hrundi fólk niður. Onnur saga sem til er um komu þessa enska skips til Björgvinjar, er þannig að allir hafi verið látnir á skipinu þegar það kom að Noregsströnd- um. Talið er að pestin hafi borist til Danmerkur með norsku skipi sem kom frá Englandi. Mannfækkim og hallæri Hér á landi seildist Noregskon- ungur til aukinna áhrifa. Höfð- ingjaættir beggja landanna tengdust meira en áður og kirkja Islendinga var undirkirkja frá Niðaróskirkju. Á þessum tíma var Island skattland Noregs og mót- aði það mjög verslun og allt sem snéri að efnahag þjóðarinnar. Mannfækkun í Noregi af völdum plágunnar jók einnig mjög á sam- drátt í allri framleiðslu þar í landi. Stór hluti akurlendis stóð ósáinn. Búfénaði fækkaði, fólk skorti til að sá í akra og afla vetr- arfóðurs, víða varð horfellir. Komið hafa fram kenningar um að veðrátta hafi kólnað á þessum árum og sannast þar máltækið, „Þegar ein báran rís er önnur vís“. Af þessum sökum reyndi Noregskonungur að jafna hall- ann með auknum álögum á Is- lendinga. I V'estfjarðarannál er talið að plágan mikla hafi borist hingað til lands seinni part sum- ars 1402 með skipi Einars kaup- manns Heijólfssonar sem kom í Hvalfjörð frá Noregi. Þá var Hvalfjörður ein mesta verslunar- miðstöð íslands. Pestin gerði hér mikinn usla og fór um allt land eins og eldur í sinu. Fólk féll unnvörpum enda í fyrsta skipti sem pest þessi kom hingað. (Það mun vera háttur margra bráðsmitandi sjúkdóma að verða vægari í seinni skiptin sem þeir ganga). Gekk veikin um haustið á Suðurlandi og drap fólk innan þriggja sólarhringa frá því að það kenndi sér meins. Menn tóku það ráð að heita þremur lofmess- um með sæmilegu bænahaldi og ljósbruna, eitthvað varð að gera til að reyna sporna við hörmung- unum. Einnig þótti ráðlegt að heita þvf að hafa þurraföstu íyrir kyndilmessu og vatnsföstu fyrir jól. Svo mögnuð var pestin að hún aleyddi Skálholtsstað af lærðum mönnum og leikum, en biskupinn einn lifði af hörmung- arnar. Um veturinn lést ábótinn í Viðeyjarklaustri. Manndauðaárið mikla 1403 lést úr veikinni Hall- dóra abbadís í Kirkjubæ og sjö systur, en eftir lifðu sex systur. Pestin eyddi staðinn af vinnufólki svo að systurnar urðu að mjólka og hirða um búfénaðinn sjálfar þó að þær væru ekki vanar þannig störfum. I bókinni Sóttar- far og sjúkdómar á Islandi 1400 - 1800 segir: „Pestin átti það sam- merkt, við ýmsar aðrar bráðar smitandi sóttir, að þeir verða ónæmir er lifa hana af. Skálholts- staður eyddist hvað eftir annað af þjónustufólki; hefur það komið til af því að hið nýja þjónustufólk hefur komið úr ósýktum stöðum, verið því bráðnæmt og smitast þegar það kom í pestarbælin." í annálum er þess getið að sóttinni hafi létt af um páska 1405. Það var ekki fyrr en löngu síðar að sótt þessi fékk nafnið Svarti- dauði. Tvær plágur Talið er að Svartidauði hafi kom- ið tvisvar hingað til lands. I síðara skiptið var veikin ekki eins þung og í fyrra skiptið. I Fitjaannál 1495 segir: „Þágekk sótt ogplága mikil um allt Island, nema um Vestfjörðu, frá Holti í Saurbæ; eyddust hreppar víða. Sagt hafi komið úr bláu klæði í Hvalfirði (eða Hafnarfirði, við Fornubúðir) og fyrst verið sem fugl að sjá, og úr því sem reykur upp í loftið, nema á Vestfirði og 4 bæi f Grímsnesi og Hreppum ... Þar sem voru 9 systkini á bæ, urðu eftir 2 eða 3. I öllu Kjalarnes- þingi fundust ekki nema 2 piltar 11 vetra og enginn þeirra jafn- aldri í allri þeirri sýslu .... Það mannfall stóð yfir um allt sumar- ið, og eyddi nálega allar sveitir og þeir bæir voru flestir, sem ekki urðu eftir nema 2 til 3, sumstað- ar 1 og sumstaðar enginn og sumstaðar börn, sem lágu á brjóstum mæðranna dauðra.“ Þá segir einnig frá því þó að færu 6 til 8 manns til kirkju að fylgja hinum dauðu komu eigi aftur nema 3 og mest 4. Konur sátu dauðar við keröld í búrum og úti á stöðlum. Algengt var að 3 til 4 væru jarðsettir í sömu gröf. Arið 1496andaðist ÁsgrímurÁs- grímsson ábóti og margt annarra kennimanna á Norðurlandi. Þá varð hver og einn prestur að þjóna 7 kirkjum. Einnig greinir Fitjaannáll frá því að fátækt al- þýðufólk hafi komið frá Vest- fjörðum, því fólk vissi auða bæi á Norðurlandi og völdu sér jarðir til ábúðar. Af sumum er talið að í annálnum séu stórlega séu ýktar frásagnir af pestinni sem gekk í seinna skiptið. Plágurnar tvær sem hér geisuðu í kringum 1403 og 1496 eru einu pestarfaraldr- arnir sem fullyrt verður að hafi gengið hér á landi. Hugsanlegt er að fleiri pestarfaraldrar, mun vægari, hafi komið hingað eftir þessar tvær pestir sem stráfelldu landann. I annálum er greint frá pestum sem geisuðu hér á 17. öld. Sótt og mannadauði varð í Múlaþingi 1625 og dóu þar alls 100 manns. Ári eftir varð tals- verður mannadauði á Norðaust- urlandi. Mikill krankleiki sótti á menn á Norðurlandi og dóu þar margir 1627, svo var einnig um Vesturland. Þá er einnig getið um að sóttinni hafí fylgt kvef mikið og önduðust margir, þ.á.m. Guð- brandur biskup. Um sóttarfarið sjálft er lítið til í heimildum annað en það að sótt- in var mjög bráð. Fólk lést á þriðja sólarhring eftir að hafa kennt sér meins. Meðganga veik- innar var varla nema þrír til fjórir sólarhringar. I Vestfjarðaannál er sagt frá Ála Svarthöfðasyni presti, sem fór til skips Einars Heijólfssonar þegar það kom í Hvalljörð. Þá segir að Áli og fylgi- sveinar hans hafí dvalið einn eða tvo daga í skipinu. Svo fast svarf pestin að þeim félögum að þeir komust aðeins örskammt frá skipinu, og önduðust allir átta saman í Botnsdal. Áhrif á aldarfar í annálnum kemur fram að pest- in hafí byijað með hörðum sting og eftir það sett að mönnum blóðspýja. Það er athyglisvert að á Englandi, Noregi og Islandi er talið að pestin hafí byijað að ganga undir haust og af því er hægt að ætla að veiran eða bakteían sem olli sjúkdómnum hafí þrifíst best við Iágt hitastig. Það er alkunnugt að pestin ásamt öðrum drepsóttum miðaldanna hafði víðtæk áhrif á aldarfarið. Þær minntu menn ávallt á hve heimslánið var fallvalt. Enginn gat nokkru sinni verið öruggur um sína hagi. Slíkt hlaut að gera menn annað hvort harðgeðja og miskunnarlausa gagnvart þján- ingum annarra, eða afhuga þessa heims striti. Þetta varð til þess að menn snéru sér æ meira að því að undirbúa sálina fyrir dauðann. Þessi hugsunarháttur var vatn á myllu kirkjunnar og voru ófáir sem gáfu henni allt sem þeir áttu. Ottinn við helvíti var magnaður og það var um að gera að gefa kirkjunni sem mestar gjafir, þeim mun frekar gat gefandinn átt von um sáluhjálp og vist í himnaríki. Þannig átti plágan óbeinan þátt í að auðga kirkjuna. Hér að framan hefur verið getið um Ein- ar kaupmann Heijólfsson. En lít- ið er vitað um hann annað en það að hann var maður ríkur og það að með skipi hans barst hingað til lands skæðasta drepsótt sem sög- ur fara af. Endalok þessa manns voru þau að hann var veginn með hníf í kirkjugarðinum að Skúm- stöðum við Eyrarbakka. NSfn Grettis- félaga fundin í íslendingaþáttum 13. febrúar 1999 birtist mynd af fimleikafélögum í Sundfélaginu Gretti og óskað eftir upplýsingum um nöfn þeirra sem á myndinni væru. Félagið var stofnað 1937 en lagt niður árið 1949. Flokkurinn á myndinni æfði hins vegar að- eíns i nokkur ár því námsmennirnir í hópnum fluttu burt úr bænum eftir stúdentspróf til frekara náms. F.v.: Bragi Freymóðsson, verkfræðingur; Halldór Þorsteinsson, tungumálakennari; Ottó Jónsson, menntaskólakennari; Olafur Guðmundsson; Hösk- uldur Steinsson þjálfari og bakari (sitjandi); Baldur Ilalldórsson, verkamaður; Geir S. Björnsson, prentsmiðjustjóri; Jónas Jakobsson, veðurfræðing- ur; Sigurbjörn Björnsson og Magnús Guðmunds- son, flugstjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.