Dagur - 29.07.1999, Side 3
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 - 3
SUÐURLAND
Skútuclraumurinn sem
varð að veruleika
Gunnhildur Emilsdóttir er Eyjamaður að uppruna og eignaðist í æsku þann draum að sigla um
höfín blá. Og nú er hún á leið suður um höfín að sólgylltri strönd. mynd. beg
Húii er úr Eyjum og hefur
aUtaf haft sjómannsblóð í
æðiun. GimnhUdur Enuls-
dóttir siglir suður á bóginn
á skútu með fjölskyldu
sinni og verða þau minnst ár
í ferðinni.
Eitthvað hefur verið um að skútur hafi ver-
ið að koma til hafnar í Eyju m það sem af er
sumri. Blaðamaður var á bryggjurölti á dög-
unum og sá þar konu nokkra um borð í
skútu sem lá í austurhöfninni. Þetta var 40
feta skúta sem ber nafnið Black Bear og er
skráð í St. Johns í Kanada. Um borð hittum
við konu, hún kvaðst heita Gunnhildur og
vera Emilsdóttir og það sem meira er, brott-
fluttur Eyjamaður. Hún var að þrífa dekkið
og tók vel í dulítið skútuspjall og eylegan
uppruna sinn.
Skútan keypt í Kanada
Gunnhildur segir að skútuáhuginn hafi
kviknað fýrir tveimur árum þegar hún og
eiginmaður hennar hafi ákveðið að kaupa
sér skútu. „Eg hef alltaf haft áhuga á smá-
bátum og siglingum. Er úr Eyjum og þótti
alltaf rosalega óréttlátt að strákarnir einir
gætu verið á sjó. Var hins vegar fljót að
reyna að koma mér á sjó og komst sem
kokkur og háseti. Eg fann mér í tvígang yfir
sumartímann pláss á handfæraveiðum og
hef því haft áhuga á sjó mjög lengi. Skútu-
draumurinn varð svo að veruleika íyrir ári
síðan þegar við keyptum okkur þessa skútu
í Kanada og hér erum við aftur komin.
Gunnhildur er fædd og uppalin í Eyjum.
„Eg hugsa að flestir Vestmannaeyingar á
mínum aldri og eldri þekki mig. Móðir mín
er úr Vallatúni og í föðurætt er ég frá Fag-
urhóli. Afi minn og amma bjuggu þar. Eg
var sautján ára þegar ég fór héðan og svo
sem ekkert meira um það að segja. Reynd-
ar kom ég hingað aftur í gosinu, því mér
þótti það svo mikið ævintýri að fá að taka
þátt í öllu kringum það. Eiginlega var það
ævintýri lífs míns. Eyjan var bæði sorgleg
og stórfengleg meðan á þessum hamförum
stóð.
Áírain inn í Miðjarðarhafið
„I fjármögnun skútukaupanna leiddi hvað
af öðru,“ segir Gunnhildur. „Við höfum
verið að safna og ég seldi fyrirtæki sem ég
átti. En okkur hefur langað til þess að gera
eitthvað þessú líkt í mjög mörg ár. Við
erum þijú sém ætlum á skútunni suður á
bóginn. Það er ég maðurinn minn og son-
ur. Eigum einnig dóttur, en hún ætlar að
hitta okkur f Miðjarðarhafinu í sumar.
Héðan ætlum við að halda til Irlands og
þaðan til Portúgal og áfram í Miðjarðar-
hafið, en annars eru engin plön í gangi og
engar fastar tímasetningar. Við verðum að
vera komin eitthvert um mánaðamót sept-
ember og október þar sem við getum ör-
ugglega komist í samband við skólayfir-
völd hérna heima svo sonur okkar geti
byijað nám gegnum Netið.“ Gunnhildur
reiknar með að fjölskyldan verði komin
heim í september á næsta ári. „Þá byrjar
strákurinn aftur í skóla. Eg held að það sé
ekki forsvaranlegt að vera lengur en ár.
Það á hinsvegar eftir að koma í ljós hvern-
ig okkur gengur að aðstoða hann við nám-
ið og temja hann. - Eg geri mér ekki grein
fýrir því hvort skútulífið sé einmanalegt.
Er nú búin að vera á dekkinu hérna í
morgun og það hefur verið mjög rólegt í
kringum mig og ég hugsaði hvort það væri
þetta sem koma skyldi. Eg ein á dekkinu.
Þessa stundina Iíður mér mjög vel, því það
er búinn að vera svo mikill erill í kringum
okkur. Ættingjar og vinir að kveðja okkur
og svo framvegis. I kringum skútur og
skútulíf er mjög mikið líf, þannig að ég
held að maður eigi alltaf eftir að finna sér
félaga og vini hvar sem maður er í heimin-
um. Kvíði því að minnsta kosti ekki,“ seg-
ir Gunnhildur. -BEG.
16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl
Vökva- og veltistýri • Hæðarstilianleg kippibelti
Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar
Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan
Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar í hurðum
Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi
Rafstýrð hæðarstilling framljósa
Litaðar rúður • Samlitaðir stuðarar
$ SUZUKI
—•tTJ* ---
Bfll sem er algjörlega hannaður fyrir þig.
Og það leynir sér ekki...
Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Ertu að hugsa utn:
• Rými?
• Þægindi?
• Öryggi?
• Gott endursöluverð?
• Allt þetta sem staðalbúnað:
Renndu við hjá okkur í dag
og reynsluaktu Suzuki Baleno.
Hann ketnur þér þægilega á óvart.
TEGUND:
1.3 GL 3d
1.3 GL 4d
1,6 GLX4d, ABS
VERÐ:
1.195.000 KR.
1.295.000 KR.
1.445.000 KR.
1.575.000 KR.
1.495.000 KR.
1.675.000 KR.
1,6 GLX 4x4, 4d, ABS
1,6 GLXWAGON, ABS
1,6 GLXWAGON 4x4, ABS