Dagur - 26.08.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 26.08.1999, Blaðsíða 3
 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 - 19 LÍFIÐ t LANDINU Nemendur Sjávarútvegsskóla Há- skóla Sameinuðu þjóðanna. Fremri röð frá vinstri: Jackson Penxa, S- Afríku, Mathias-Shanghala Kashindi, Namibíu, Jimmy-Atyang, Uganda, og Bandu Ekanayake, Sri Lanka. Aftari röð, Jose Manuel Lima Ramos, Grænhöfðaeyjum, María Eygenia Cauhépé, Argentínu, Abdul Caklio A. Amade, Mosambík, Jagath Munasinghe, Sri Lanka, Margaret Masette, Uganda. Þið getið það lika! Um þessar mundir eru nemendur Sjávar- útvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna að Ijúkafyrsta hluta afþrem, í sex mánaða löngu námi hérá landi. Að þessu sinni eru nemendur níu talsins, sjö karlarog tværkonur, og koma þeirfrá þremur heimsálfum, Afríku, Asíu og Suður-Amer- íku. Skólinn sem er starfræktur hér á landi er í umsjón Hafrannsóknastofnunar en starfar sem sjálfstæð eining undir stjórn Tuma Tómas- sonar skólastjóra og Þórs Asgeirssonar aðstoðarskóla- stjóra. Námið er skipulagt í tengslum við Rannsókna- stofu fiskiðnaðarins, Há- skólann á Akureyri og Haf- rannsóknastofnun. Þegar nemendurnir urðu á vegi blm. Dags voru þeir að ljúka fyrsta hluta náms- ins með 12 daga prógrammi hjá Háskólan- um á Akureyri. Þór Ásgeirs- son, aðstoðarskólastjóri Sjávarútvegsskólans, segir að nemendur hafi sótt fyr- irlestra fyrir hádegi og farið í heimsóknir til fyrirtækja í sjávarútvegi eftir hádegi. Nemendurnir fóru meðal ann- ars til Húsavíkur, Dalvíkur og Lauga auk fyrirtækja á Akur- eyri. Þór segir nemendurna af- skaplega ánægða með þessa daga og að Magnús Magnússon hjá VSÓ eigi heiður skilið fyrir skipulagningu þeirra. Tveir seinni hlutar námsins fara fram í Reykjavík og þá velja nemendur eitt af þremur sér- sviðum, fiskveiðistjórnun, gæðastjórnun í matvælum eða veiðafæragerð. Inntökuskilyrði Þór segir að nemendurnir séu valdir í skólann eftir ákveðnum viðmiðum. „Nemendur þurfa að hafa fyrsta háskólapróf og koma á vegum ríkisrekinna stofnana, sem heyra beint eða óbeint undir ráðuneytin í þess- um löndum. Nemendurnir koma úr ólíkum geirum og núna eru hérna til dæmis lög- fræðingur, stjórnmálafræðing- ur, matvælafræðingar og skóla- stjóri. Það er valið úr nokkuð stórum hópi umsækjenda og þeir sem ekki komast að geta átt möguleika á því næst.“ Allir nemendurnir koma frá þróun- arlöndum eða löndum sem eru stutt á veg komin í tæknimál- um og stjórnun. Þór segir að skólinn sé aðallega fjármagnað- ur í gegnum Þróunarsamvinnu- stofnun fslands með hluta af framlagi íslands til þróunar- mála. Margaret Masette „Eg fer um Úganda, aðstoða við gæðamál, veiti starfsleyfi og Margaret Masett frá Uganda. fleira," segir Margaret Masette frá Uganda um starf sitt. Hún vinnur hjá stórum samtökum átta rannsóknarstofnana í land- inu og er gæðastjórnunarsér- fræðingur hjá þeirri sem sinnir rannsóknum i matvælaiðnaði og fiskveiðum. „í þessu námi hérna er gæða- stjórnun aðeins einn hluti af mörgum. Hér er einnig verið að kenna mat á stærð fiski- stofna, tölfræði og ferilskrán- ingu framleiðsluvöru. Mikil- vægast finnst mér þó að sjá hvernig íslendingar fara að í fiskveiðum því það getur hjálp- að okkur í Úganda við að ná stöðlum Evrópusambands- ins og þannig gert útflutning þangað mögulegan," segir Margaret. Margaret hefur áður dvalið í Bret- landi og ber það saman við ísland. „fsland er lítið og hér er kalt en fólk- ið vingjarnlegt og ólíkt Bretum. Þið íslendingar eruð að vinna ykkur upp en Bretar eiga Ianga sögu ríkidæmis, þykjast vita allt og nenna varla að kenna öðrum. Á ís- landi hins vegar eru menn raunsæir, vita hvert þeir stefna, hvetja aðra með sér og segja: „Ef við getum þetta þá getið þið það líka“.“ Jackson Penxa „Eg hef lært heilmikið um lífríki sjávar og fiskveiðistjórnun,1' seg- ir Jackson Penxa frá Suður-Afr- íku, sem fyrir er menntaður í al- mannatengslum og stjórnmála- fræði. Hann vinnur fyrir um- hverfisráðuneytið þar í landi, með yfirvöldum fiskveiða og starfar að stefnumörkun og áætlanagerð. „Þegar ég kem heim verð ég betur í stakk búinn til að veita ráðgjöf í fiskveiði- stjórnun og stefnumörkun. Lík- lega mun ég beita mér fyrir ein- hveijum breytingum." Jackson Penxa segir að kvótakerfin í löndunum tveim séu mjög ólík. „Hér er flytjanlegur kvóti en í Suður-Afríku er ekki svo heldur er kvótinn ákvarðaður árlega." Jackson telur að hann geti fund- ið nýjar Ieiðir til að bæta fisk- veiðar í heimalandi sínu eftir reynslu sína hér og samanburð á ólíkri fiskveiðistjórnun." Honum þykir ísland fallegt og segir að hér sé verið að gera stóra hluti í litlu landi. Jackson Penxa frá Suður-Afríku. Þór Ásgeirsson, aðstoðarskólastjóri Sjávar- útvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Úr digrum sjóöi Félagsvísindastofnun Há- skóla íslands og Háskólaút- gáfan hafa sent frá sér bók- ina Úr digruin sjóði, um fjárlagagerð á Islandi og er hún eftir dr. Gunnar Helga Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði. „Bókin veitir einstæða innsýn í ákvarðanatöku í íslenska stjórnkerfinu. Hún Iýsir hvernig útgjöld ríkisins mót- ast í samspili þeirra þús- unda Islendinga sem á hverju ári reyna með einum eða öðrum hætti að hafa áhrif á útkomuna. Reynt er að skýra hvaða þættir hafa mest áhrif á niðurstöðuna, þar á meðal hver sé hlutur þingkosninga, hefðarinnar, kjördæmapots, skriffinna rfkisins og hagsmunasam- taka,“ segir í kynningu. Seg- ir jafnframt að bókin fjalli um þá stórpólítísku spurn- ingu; hver fái það, hvenær og hvernig. Gunnar Helgi Kristinsson. Kynlegir kvisttr Dagnýjar Út er komið greinasafnið Kynlegir kvistir, sem er af- mælisrit til heiðurs dr. Dag- nýju Kristjánsdóttur bók- menntafræðingi og kemur það út í tilefni af fimmtugs- afmæli hennar þann 19. maí á liðnu vori. „I ritinu má finna ýmsa kynlega kvisti af meiði íslenskra og erlendra bókmennta. Hér má finna stuttar greinar skrifaðar með húmorinn að leiðarljósi en einnig Iengri og fræðilegri greinar. Efnið spannar allt frá miðaldabókmenntum til póstmódernisma," segir í frétt frá Háskólaútgáfunni, sem annast dreifingu bókar- innar. Fjölmargir mætir höfundar skrifa í Kynlega kvisti, þau Ármann Jakobs- son, Ásdís Egilsdóttir, Berg- Ijót S. Kristjánsdóttir, Gunnar Karlsson, Helga Kress, Jón Karl Helgason, Jón Yngvi Jóhannsson, Ólína Þorvarðardóttir, Sigþrúður Gunnardóttir, Silja Aðal- steinsdóttir, Soffía Auður Birgisdóttir, Svavar Sig- mundsson, Sveinn Yngvi Eg- ilsson og Úlfhildur Dags- dóttir. Dagný Kristjánsdóttir. J

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.