Dagur - 03.09.1999, Blaðsíða 12
. «rv
:
i
í
T
V í - « v v r 4 v, íí w rA % > P \\ \\ i , fe n W ’V V a
12 — FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
SJÁVARÚTVEGUR
i
i
l
i
t
i
i
: b it t
■ imT r ÉÉHil
Forseti íslands, hr. Úlafur Ragnar Grímsson, heimsótti sýningarbás Hampiðjunnar á opnunardegi ísiensku sjávarútvegssýningarinnar.
Þantækniframleidd flottroll
Hampiðjan leggur
áherslu á að kynna á
sýningunni fram-
leiðslu á Dyneema of-
urþráðum semfram-
leiddireru hjá Hamp-
iðjunni undirheitinu
Dynex. Einnig kynnir
fyrirtækið þantækni-
framleiddflottroll og
PE-trollnet sem heita
Magnnet.
Orn Þorláksson, sýningarstjóri
Hampiðjunnar, segir að fyrirtæk-
ið hafi nýlega keypt framleiðslu-
rétt vegna framleiðslu á flottroll-
um sem fengið hefur nafnið þan-
tækni. Með þessari nýju tækni á
flottrollið að taka fyrr við sér þeg-
ar það er komið niður í sjóinn,
þ.e. opna sig betur og vera þar
með „meira veiðandi".
„Þantæknin felst m.a. í því að
kaðlar og garn, sem notuð eru í
trollið eru framleidd á sérstakan
hátt, sem síðan er hnýtt í net og
raðað eftir sérstöku mynstri.
Þannig næst virkni sem þenur út
möskvana þegar sjór fer í gegn-
um netið. Það myndast litlir
straumkljúfar í köðlunum sem
þenja netið út svo möskvar trolls-
ins opnast betur en í venjulegu
neti við sömu aðstæður. Sam-
herjaskipið Þorsteinn hefur verið
með þantroll á kolmunnaveiðum
og hefur kolmunninn gefið sig
mjög vel í trollið svo vakið hefur
athygli hjá öðrum útgerðum.
Veiðihæfni trolla fer eftir því hve
vel þau halda lögun sinni á togi
og þær upplýsingar sem við erum
að fá af veiðum Þorsteins EA
benda eindregið til þess að þan-
trollið veiði betur en önnur troll
við svipaðar aðstæður. Við erum
einnig með nýja tegund af PE-
trollneti sem heitir Magnnet sem
er sterkara miðað við sverleika en
önnur net. Helstu kostir þess eru
þétt flétta og mikill mergur f
garni og netið er hannað til að fá
sem mestan styrk í hnútinn, sem
er veikasti hluti netsins. Auk þess
leggur Hampiðjan áherslu á að
kynna á sýningunni framleiðslu á
Dyneema ofurþráðum sem fram-
Ieiddir eru hjá Hampiðjunni
undir heitinu Dynex,“ segir Orn
Þorláksson, sýningarstjóri. -GG
Pökkunarvélar nýtast víða
Guðmundur Stefán Maríasson í sýningarbás sínum á Islensku sjávarút-
vegssýningunni. -mynd: gg
íslenska sjávarútvegs-
sýningin erað mati
Guðmundar Stefáns
Maríassonar húin að
fastsetja sig, virðist
vera orðin stærst, enda
hejurhún veríð að
drepa afséraðrarsýn-
ingar. „Þannig held ég
að „ World Fishing“ í
Kaupmannahöfn sé
búin að vera. “
G.S. Maríasson & Co sérhæfir
sig í búnaði til pökkunar, s.s.
kassa- og pokalokunarvélar,
bakkalokun með lofttæmingu
eða loftskiptingu, lóðréttar, lá-
réttar vaccum-pökkunarvélar,
brettavafningsvélar, límbönd alls
konar og ýmsar gerðir viðgerðar-
lfmvara. Guðmundur Stefán
Maríasson, framkvæmdastjóri,
segir fyrirtækið hafa reynt að
sérhæfa sig í sem fjölbreyttustu
úrvali pökkunarvéla, bæði herpi-
pökkunarvélum, kassalokunar-
vélum og pokalokunarvélum auk
stærri, sjálfvirkra pökkunarlína.
- Hvaðan koma þessar vélar
sem þúflytur inn?
„Þetta kemur víða að. Tvær
tegundir eru ítalskar en síðan
eru einnig vélar frá Hollandi,
Þýskalandi og Englandi en við
reynum að bjóða vélar sem hafa
góðan orðstír.“
- Eru þetta vélar sem fyrst og
fremst nýtast tfiskiðnaði?
„Nei, alls ekki. Þetta eru vélar
sem nýtast í flestum greinum
matvælaiðnaðar og jafnvel í ann-
ars konar pökkun, s.s. fyrir kjöt-
vinnslur, bakarí, prentsmiðjur og
ýmsan smáiðnað. Sjávarútvegur-
inn er sú atvinnugrein sem er
stærst á Islandi og viðskiptin því
eðlilega mest við hann. Annars
hafa viðskiptin farið vaxandi við
allar þessar greinar."
- Þú hefur komið ú sjúvarút-
vegssýningar erlendis. Hvemig er
þessi sýning t samanhurði við
þær?
„Þetta er mjög stór sýning og
að ég held góð. Eg hef verið á
sjávarútvegssýningum í
Skotlandi, Noregi og í Bella-
Center í Kaupmannahöfn og
þessi er með þeim stærri sem ég
hef séð og mjög mikið lagt í
hana. Það hefur komið mér á
óvart hvað það kom margt fólk á
sýningarsvæðið strax á fyrstu
klukkutímunum, og það var
strax hér mikið af útlendingum
sem er mjög jákvætt."
- Er íslenska sjúvarútvegssýn-
ingin ein af þeim sem sýnendur
vilja ekki missa af?
„Hún er búin að fastsetja sig,
virðist vera orðin stærst, enda
hefur hún verið að drepa af sér
aðrar sýningar. Þannig held ég
að „World Fishing" í Kaup-
mannahöfn sé búin að vera en
síðast þegar hún var, var hún
ekki stærri en það að hún hefði
komist fyrir í einu tjaldinu hér,“
sagði Guðmundur Stefán Marí-
asson. -GG