Dagur - 18.09.1999, Síða 9
LAUGARDAGUR 18. SF.PTEMBER 19 9 9 - 9
Öxarfírði
Þeistareykjum, í Kröflu og Bjarn-
arflagi. Væntanlega verður stuðst
við þessar ransóknir við staðsetn-
ingu borhola í Bakkahlaupi.
gufu á svæðinu fyrir allt að 250 MW raforkuframleiðslu, verði árangur borana sá
snnan markað innan fárra ára. Frans Árnason stjórnarformaður fyrirtækisins sést
rinn Sleipni.
Norðlensk orkusprenging
Að sögn stjórnarmanna Islenskrar
orku ehf. eru verulegar líkur á að
afla megi gufu á svæðinu fyrir allt
að 250 MW raforkuframleiðslu,
verði árangur borana sá sem í
stefnir. Því geti félagið hugsan-
lega framleitt raforku fyrir stór-
iðju og almennan markað innan
fárra ára. Þeir benda á að gufu-
aflsvirkjanir séu tiltölulega
fljótreistar og stofnkostnaður
þeirra lægri en vatnsaflsvirkjana.
Orkuflutningar gætu átt sér stað
til Húsavíkursvæðisins og Eyja-
fjarðar sem eru kjörnir staðir til
stóriðju vegna hafnaraðstöðu,
mannfjölda og þjónustustigs.
Og það er unnið víðar á Norð-
urlandi að orkuöflun en í Öxa-
firði. A þessu ári var stofnað fé-
lagið Þeistareykir ehf. sem er í
eigu veitufyrirtækja á Húsavík og
Akureyri, auk Aðaldælahrepps og
Reykdælahrepps og er markmið
félagsins að rannsaka háhitasvæð-
ið á Þeistareykjum með orku-
vinnslu í huga. Þar hefur að und-
anförnu verið borað eftir köldu
vatni sem nota þarf til kælingar
þegar fyrsta háhitaholan á svæð-
inu verður boruð.
Þá standa Húsvíkingar í mikl-
um framkvæmdum við endurnýj-
un á hitaveitulöng frá Hveravöll-
um sem m.a. á að flytja 125 gráðu
heitt vatn til Húsavíkur þar sem
byggð verður rafstöð sem fram-
leitt getur um 2 MW af rafmagni
til sölu fyrir orkufrekan iðnað.
Þessi framkvæmd kostar um 800
miljónir.
Hreinn Hjartarson, orkuveitu-
stjóri á Húsavík segir að þau verk-
efni sem í gangi eru á þessu sviði
og sú orka sem er til staðar í
Kröflu og Bjarnarflagi gulltryggi í
raun möguleika orkufreks iðnaðar
í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum í
framtíðinni.
Endanleg orkulind?
Menn hefur greint á um það
hvort jarðhiti er „endanleg“ eða
„viðvarandi" orkulind. En í raun
mun ekkert enn hafa komið fram
sem staðfestir að jarðhiti á háhita-
svæðum landsins sé orkulind sem
gengur til þurrðar í fyrirsjáanlegri
framtíð, þó nokkur munur geti
verið á milli svæða. En hluti af
áætlunum um virkjanir í Bakka-
hlaupi og víðar miða að því að
meta áhrif á vinnslu á svæðinu
þannig að hægt sé að gera ráðstaf-
anir til að bregðast við hafi menn
grun um að til þess sé ástæða. A
þetta leggur stjórn Islenskrar orku
ehf. áherslu.
Aðspurðir um áhrif hugsanlegr-
ar raforkuframleiðslu á umhverfi
og lífríki í Öxarfirði, þá benda
stjórnarmenn á að í flestum til-
fellum séu áhrif jarðgufuvirkjana
á umhverfi og náttúru miklu
minni en vatnsaflsvirkjana. Þarna
sé ekkert land fært í kaf, og auð-
velt sé að flytja mannvirki og aðr-
ar bygginga sem tengjast jarð-
gufuvirkjunum burt ef ástæða
þykir til þannig að Iítil ummerki
séu eftir. Frá umhverfissjónarmiði
verði jarðgufuvirkjanir því að telj-
ast mun heppilegri kostur en
vatnsafIsvirkjanir, a.m.k. ætti að
vera nokkuð tryggt að þær fyrr-
nefndu ættu ekki að valda jafn
miklum deilum.
Niður-
í rnörgum stærðum
og gerðum
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Wesper
WESPER hitablásararnir eru
til í eftirtöldum stærðum:
352 CN 6.235 k.cal/ 7 kw.
353 CN 8.775 k.cal/10 kw.
453 CN 20.727 k.cal/ 24 kw.
453 CN 16.670 k.cal/ 19 kw.
503 CN 30.104 k.cal/ 35 kw.
503 CN 24.180 k.cal/ 28 kw.
900 sn/mín. 220V 1F.
900 sn/mín. 220V 1F.
1.400 sn/mín. 380V 3F.*
900 sn/mín. 380V 3F.*
1.400 sn/mín. 380V 3F.*/a
900 sn/mín. 380V 3F.*/a
*/*a eru einn og sami blásarinn, en 2ja hraða.
352 CN / 353 CN eru mjög hljóðlátir og 453 CN / 503 CN,
langt undir hljóðmörkum, 53/46 dBA og 49/57 dBA.
Allir blásararnir eru með rörum úr „Cubro Nickle'1 - blöndu,
sem kemst næst stálinu að styrkleika.
WESPER umboðið,
Sólheimum 26,104 Reykjavík,
s. 553 4932, fax 581 4932, GSM 898 9336, Boðt. 842 0066.
Áskriftarsíminn er
V 8oo 7080
lWir