Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 10
10-LAUGARDAGUK 18. SKPTEMBER 1999 i FRÉTTIR Mennmgarhús á uppfyllinguimi? Ýmislegt bendir nú til að fyrsta menningarhúsið sem ríkisstjórnin talaði um í vetur muni rísa á uppfyiiingunni út í Pollinn við Akureyri. Fyrir næsta íiimli menningarhúsnefndar Akureyrarbæjar munu liggja fyrir tölur um rýmisþörf frá t.d. LeiMélaginu, Tón- listarskólanum og Sin- fóníuhljómsveit Norð- urlands auk stærri kóra en einhver nidur- staða mun liggja fyrir í októhermánuði um hvers konar hús verð- urhyggt. Nefnd á vegum Akureyrarbæjar, sem í eiga sæti Kristján Þór Júlí- usson, bæjarstjóri; Jakob Björns- son, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri, Sigurður J. Sigurðs- son, formaður bæjarráðs, Agúst Hilmarsson og Þröstur As- mundsson, formaður menning- armálanefndar Akureyrarbæjar, hefur staðið fyrir þarfagreiningu á mikilvægi þess að hér rísi menningarhús. Sem kunnnugt er tilkynnti ríkisstjórnin á síðasta vetri að hún hyggðist beita sér fyrir því að víðs vegar um hinar dreifðu byggðir landsins yrðu reist menningarhús og yrði þátt- taka nkissjóðs í byggingarkostn- aði um 60%. Meira enmilljarður Þröstur Asmundsson segir að fyrir næsta fundi menningarhús- nefndarinnar muni liggja fyrir tölur um rýmisþörf frá t.d. Leik- félaginu, Tónlistarskólanum og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands auk stærri kóra en einhver nið- urstaða mun liggja fyrir í októbermánuði um hvers konar hús verður byggt. Þröstur segir að þegar fyrir liggur ákvörðun hér um, muni það álit verða kynnt fyrir Birni Bjarnasyni, menntamálaráðherra, og fleiri aðilum. Byggingakostnaður hússins liggur ekki undir einum milljarði króna, kannski nær 1,5 milljörðum króna, en verið er að tala um hús sem yrði áberandi á Akureyri og ákveðin vísbending um að Akureyri ætli sér ótvírætt að vera höfuðstaður Iandsbyggð- arinnar. Þröstur segir að menn ætli sér ekki minni hlut í þessum efnum, heldur er í ýmsum grein- um annars staðar. Akureyringar muni ekki sætta sig við neitt minna, allur kotungsbragur sé hluti af lágkúrustefnu sem eigi að tilheyra fortíðinni. Spurning hvenær „Menningarhúsið á að vera áber- andi í bæjarmyndinni og starf- semin þar er miðbæjarsækin þar sem húsið þarf einnig að njita fyrir ráðstefnuhald auk menn- ingarviðburða. Húsið þarf því að vera í göngufæri við hótel og veitingastaði í miðbænum, það er einnig sterkur vilji aðila í ferðaþjónustu. Akureyringar gera hærri kröfur um þjónustu- stig en önnur sveitarfélög sem nefnd hafa verið í sambandi við menningarhús. Húsið mun rísa, spurningin er aðeins hvenær og þar kemur uppfyllingin á horni Strandgötu og Glerárgötu mjög sterklega til greina að mínu mati. Það er bæjarfélaginu til vansa að eiga ekkert almennilegt hús til að hýsa stærri menning- aruppákomur, s.s. stórar hljóm- sveitir og kórsöng," segir Þröstur Asmundsson. — GG Sigurður Hróarsson leikhússtjóri með nokkra snemmborna klukkustrengi sem borist höfðu Leikfélaginu í gær. Klúkkustrengir fyrir tímaiin Fölsuð málverk 600? í grein eftir Jóhann Agúst Hansen í Listapóstinum, sem Gallerí Fold gefur út, er gefið i skyn að fölsuð mál- verk í umferð séu ekki 300 eða 400 heldur geti þau alls verið um 600, þar af um 150 í Danmörku. Sagt er að í sumar hafi bæst við enn fleiri „vafasöm“ málverk sem seld hafi verið í tíð fyrri eig- enda Gallerís Borgar og að fleiri eigi Iíklega eftir að verða ákærðir. Greinarhöf- undur telur nauðsynlegt að „hreínsa íslenska myndlist- arsögu og nöfn flestra höf- uðmyndlistarmanna þjóðar- innar af þeirri smán sem mál nú þegar er orðið að“ og nefnir sem dæmi að 40, jafnvel 50 myndir eignaðar Þórarni B. Þorlákssyni, sem seldar hafa verið undanfarin ár, séu ekki eftir hann. „Það er gífurlega mikið,“ segir ennfremur í Listapóstinum. Verið er að æfa af fullum krafti leikritið „Klukkustrengi" eftir Jök- ul Jakobsson, sem frumsýnt verður hjá LeikfélagiAkureyrar 1. október nk. Af því tilefni hvatti Leikfélagið alla þá sem eiga gamla og nýja ldukkustrengi uppá háalofti eða uppá vegg að mæta með þá í Sam- komuhúsið og taka þátt í sam- keppni um fallegasta, óvenjuleg- asta og stærsta klukkustrenginn. Ekki átti að taka á móti strengj- unum fyrr en í dag, laugardag, en í gær höfðu þegar borist fjölmargir strengir. I dag er Opið hús í Sam- komuhúsinu í boði Leikfélags Ak- ureyrar. Þar geta gestir og gang- andi brugðið sér á leikæfingu, far- ið skoðunarferðir um húsið, heyrt í leikhúskórnum og fengið að bragða á alls kyns góðgæti. Forseti til Austurlands Forseti Islands, Ólafur Bagnar Grímsson, fer í opinbera heim- sókn í Norður-Múlasýslu í næstu viku. Heimsóknin hefst á Reyðar- firði að morgni þriðjudagsins 21. september og þaðan verður með- al annars farið til Eskifjarðar, Neskaupstaðar, Fellabæjar, Bakkafjarðar, Vopnafjarðar, Borg- arfjarðar eystri, Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Heimsókninni lýkur næstkomandi Iaugardag. — SBS Þúsund á 2 fyrir 1 Ferðaglaðir Islendingar stukku á tilboð Flugleiða sl. fimmtudag á 2 fyrir 1 til Bandaríkjanna. Alls keyptu 800 manns slíkar ferðir fyrsta tilboðsdaginn. I gærmorg- un nálgaðist fjöldi bókana eitt þúsund. Búið er að selja ríflega helming þeirra sæta sem í boði eru og reikna Flugleiðamenn með því að uppselt verði í ferð- irnar upp úr helginni. Hægt er að kaupa eitt fargjald fyrir tvo ein- staklinga í beinu flugi til New York, Boston, Baltimore, Was- hington, Minneapolis eða St. Paul. Ferðatímabilið er frá 5. október til 12. desember og gild- ir tilboðið til 24. september, eða á meðan framboð leyfir. Úrslit í hjólareiðaJkeppni Nýlega fóru fram úrslit við Perluna í hjólreiðakeppni 12 ára grunnskólanemenda. Nemendur frá átta grunnskólum komust f úrslit úr forkeppninni, þar sem 180 börn tóku þátt. Tveir mættu í úrslitin frá hverjum skóla og Ieikar fóru þannig að Kristján Benedikt Kröyer Þorsteinsson og Örvar Már Jónsson frá Hallorms- staðarskóla urðu hlutskarpastir. I öðru sæti urðu þau Olga Rann- veig Bragadóttir og Jón Einarsson frá Grunnskólanum á Tálknafirði og í þriðja sæti höfnuðu Elma Sif Einarsdóttir og Guðjón Baldvins- son frá Garðaskóla í Garðabæ. 011 fengu þau vegleg verðlaun sem ýmis íyrirtæki gáfu auk bik- ars og verðlaunapeninga sem Umferðarráð gaf. Ráðið í sam- vinnu við Bindindisfélag öku- manna og lögreglu stóð fyrir keppninni Iíkt og mörg undanfar- in ár. Skattalaganefnd skipuð Fjármálaráðherra hefur skipað ráðgjafarnefnd um þróun skatta- Iaga. Nefndinni er einkum ætiað að fylgjast með réttarþróun á sviði skattaréttar, þróun skatta- laga erlendis og alþjóðlegum við- horfum á þessu sviði. Nefndina skipa Baldur Guðlaugsson hrl., sem er formaður, Helga Tatjana Zharov lögfræðingur og Olafur Nilsson endurskoðandi. Starfs- menn ráðuneytisins munu einnig vinna með nefndinni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.