Dagur - 18.09.1999, Side 10
10-LAUGARDAGUK 18. SKPTEMBER 1999
i FRÉTTIR
Mennmgarhús á
uppfyllinguimi?
Ýmislegt bendir nú til að fyrsta menningarhúsið sem ríkisstjórnin talaði um í vetur muni rísa á uppfyiiingunni
út í Pollinn við Akureyri.
Fyrir næsta íiimli
menningarhúsnefndar
Akureyrarbæjar munu
liggja fyrir tölur um
rýmisþörf frá t.d.
LeiMélaginu, Tón-
listarskólanum og Sin-
fóníuhljómsveit Norð-
urlands auk stærri
kóra en einhver nidur-
staða mun liggja fyrir
í októhermánuði um
hvers konar hús verð-
urhyggt.
Nefnd á vegum Akureyrarbæjar,
sem í eiga sæti Kristján Þór Júlí-
usson, bæjarstjóri; Jakob Björns-
son, bæjarfulltrúi og fyrrverandi
bæjarstjóri, Sigurður J. Sigurðs-
son, formaður bæjarráðs, Agúst
Hilmarsson og Þröstur As-
mundsson, formaður menning-
armálanefndar Akureyrarbæjar,
hefur staðið fyrir þarfagreiningu
á mikilvægi þess að hér rísi
menningarhús. Sem kunnnugt
er tilkynnti ríkisstjórnin á síðasta
vetri að hún hyggðist beita sér
fyrir því að víðs vegar um hinar
dreifðu byggðir landsins yrðu
reist menningarhús og yrði þátt-
taka nkissjóðs í byggingarkostn-
aði um 60%.
Meira enmilljarður
Þröstur Asmundsson segir að
fyrir næsta fundi menningarhús-
nefndarinnar muni liggja fyrir
tölur um rýmisþörf frá t.d. Leik-
félaginu, Tónlistarskólanum og
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
auk stærri kóra en einhver nið-
urstaða mun liggja fyrir í
októbermánuði um hvers konar
hús verður byggt. Þröstur segir
að þegar fyrir liggur ákvörðun
hér um, muni það álit verða
kynnt fyrir Birni Bjarnasyni,
menntamálaráðherra, og fleiri
aðilum. Byggingakostnaður
hússins liggur ekki undir einum
milljarði króna, kannski nær 1,5
milljörðum króna, en verið er að
tala um hús sem yrði áberandi á
Akureyri og ákveðin vísbending
um að Akureyri ætli sér ótvírætt
að vera höfuðstaður Iandsbyggð-
arinnar. Þröstur segir að menn
ætli sér ekki minni hlut í þessum
efnum, heldur er í ýmsum grein-
um annars staðar. Akureyringar
muni ekki sætta sig við neitt
minna, allur kotungsbragur sé
hluti af lágkúrustefnu sem eigi
að tilheyra fortíðinni.
Spurning hvenær
„Menningarhúsið á að vera áber-
andi í bæjarmyndinni og starf-
semin þar er miðbæjarsækin þar
sem húsið þarf einnig að njita
fyrir ráðstefnuhald auk menn-
ingarviðburða. Húsið þarf því að
vera í göngufæri við hótel og
veitingastaði í miðbænum, það
er einnig sterkur vilji aðila í
ferðaþjónustu. Akureyringar
gera hærri kröfur um þjónustu-
stig en önnur sveitarfélög sem
nefnd hafa verið í sambandi við
menningarhús. Húsið mun rísa,
spurningin er aðeins hvenær og
þar kemur uppfyllingin á horni
Strandgötu og Glerárgötu mjög
sterklega til greina að mínu
mati. Það er bæjarfélaginu til
vansa að eiga ekkert almennilegt
hús til að hýsa stærri menning-
aruppákomur, s.s. stórar hljóm-
sveitir og kórsöng," segir Þröstur
Asmundsson. — GG
Sigurður Hróarsson leikhússtjóri með nokkra snemmborna klukkustrengi sem borist höfðu Leikfélaginu í gær.
Klúkkustrengir fyrir tímaiin
Fölsuð
málverk
600?
í grein eftir Jóhann Agúst
Hansen í Listapóstinum,
sem Gallerí Fold gefur út, er
gefið i skyn að fölsuð mál-
verk í umferð séu ekki 300
eða 400 heldur geti þau alls
verið um 600, þar af um
150 í Danmörku. Sagt er að
í sumar hafi bæst við enn
fleiri „vafasöm“ málverk sem
seld hafi verið í tíð fyrri eig-
enda Gallerís Borgar og að
fleiri eigi Iíklega eftir að
verða ákærðir. Greinarhöf-
undur telur nauðsynlegt að
„hreínsa íslenska myndlist-
arsögu og nöfn flestra höf-
uðmyndlistarmanna þjóðar-
innar af þeirri smán sem
mál nú þegar er orðið að“ og
nefnir sem dæmi að 40,
jafnvel 50 myndir eignaðar
Þórarni B. Þorlákssyni, sem
seldar hafa verið undanfarin
ár, séu ekki eftir hann. „Það
er gífurlega mikið,“ segir
ennfremur í Listapóstinum.
Verið er að æfa af fullum krafti
leikritið „Klukkustrengi" eftir Jök-
ul Jakobsson, sem frumsýnt verður
hjá LeikfélagiAkureyrar 1. október
nk. Af því tilefni hvatti Leikfélagið
alla þá sem eiga gamla og nýja
ldukkustrengi uppá háalofti eða
uppá vegg að mæta með þá í Sam-
komuhúsið og taka þátt í sam-
keppni um fallegasta, óvenjuleg-
asta og stærsta klukkustrenginn.
Ekki átti að taka á móti strengj-
unum fyrr en í dag, laugardag, en
í gær höfðu þegar borist fjölmargir
strengir. I dag er Opið hús í Sam-
komuhúsinu í boði Leikfélags Ak-
ureyrar. Þar geta gestir og gang-
andi brugðið sér á leikæfingu, far-
ið skoðunarferðir um húsið, heyrt
í leikhúskórnum og fengið að
bragða á alls kyns góðgæti.
Forseti til Austurlands
Forseti Islands, Ólafur Bagnar
Grímsson, fer í opinbera heim-
sókn í Norður-Múlasýslu í næstu
viku. Heimsóknin hefst á Reyðar-
firði að morgni þriðjudagsins 21.
september og þaðan verður með-
al annars farið til Eskifjarðar,
Neskaupstaðar, Fellabæjar,
Bakkafjarðar, Vopnafjarðar, Borg-
arfjarðar eystri, Seyðisfjarðar og
Egilsstaða. Heimsókninni lýkur
næstkomandi Iaugardag. — SBS
Þúsund á 2 fyrir 1
Ferðaglaðir Islendingar stukku á
tilboð Flugleiða sl. fimmtudag á
2 fyrir 1 til Bandaríkjanna. Alls
keyptu 800 manns slíkar ferðir
fyrsta tilboðsdaginn. I gærmorg-
un nálgaðist fjöldi bókana eitt
þúsund. Búið er að selja ríflega
helming þeirra sæta sem í boði
eru og reikna Flugleiðamenn
með því að uppselt verði í ferð-
irnar upp úr helginni. Hægt er að
kaupa eitt fargjald fyrir tvo ein-
staklinga í beinu flugi til New
York, Boston, Baltimore, Was-
hington, Minneapolis eða St.
Paul. Ferðatímabilið er frá 5.
október til 12. desember og gild-
ir tilboðið til 24. september, eða á
meðan framboð leyfir.
Úrslit í hjólareiðaJkeppni
Nýlega fóru fram úrslit við
Perluna í hjólreiðakeppni 12 ára
grunnskólanemenda. Nemendur
frá átta grunnskólum komust f
úrslit úr forkeppninni, þar sem
180 börn tóku þátt. Tveir mættu
í úrslitin frá hverjum skóla og
Ieikar fóru þannig að Kristján
Benedikt Kröyer Þorsteinsson og
Örvar Már Jónsson frá Hallorms-
staðarskóla urðu hlutskarpastir. I
öðru sæti urðu þau Olga Rann-
veig Bragadóttir og Jón Einarsson
frá Grunnskólanum á Tálknafirði
og í þriðja sæti höfnuðu Elma Sif
Einarsdóttir og Guðjón Baldvins-
son frá Garðaskóla í Garðabæ.
011 fengu þau vegleg verðlaun
sem ýmis íyrirtæki gáfu auk bik-
ars og verðlaunapeninga sem
Umferðarráð gaf. Ráðið í sam-
vinnu við Bindindisfélag öku-
manna og lögreglu stóð fyrir
keppninni Iíkt og mörg undanfar-
in ár.
Skattalaganefnd skipuð
Fjármálaráðherra hefur skipað
ráðgjafarnefnd um þróun skatta-
Iaga. Nefndinni er einkum ætiað
að fylgjast með réttarþróun á
sviði skattaréttar, þróun skatta-
laga erlendis og alþjóðlegum við-
horfum á þessu sviði. Nefndina
skipa Baldur Guðlaugsson hrl.,
sem er formaður, Helga Tatjana
Zharov lögfræðingur og Olafur
Nilsson endurskoðandi. Starfs-
menn ráðuneytisins munu einnig
vinna með nefndinni.