Dagur - 18.09.1999, Side 12

Dagur - 18.09.1999, Side 12
12- LAUGARDAGUR 18. SEPTEMRER 1999 -Ðugur ÍÞROTTIR KNATTSPYRNA Lárus SigUTÖsson til WBA Lárus Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, sem Ieikið hefur með Stoke City í ensku 1. deildinni að undanfömu, var í gær seldur til West Bromwich Albion, sem Ieikur í sömu deild og er söluverðið sagt um 350 þúsund pund. Brian Little, stjóri Albion, lét ekki þar við sitja og keypti h'ka miðheij- ann Andy Townsend ffá Middlesbrough, fyrir 50 þúsund pund að sagt er. Little þekkir báða leikmennina mjög vel, en Townsend lék með Aston Villa þegar Little var þar við stjóm og Lárus þekkir hann ffá því hann var stjóri hjá Stoke. Gert er ráð fyrir að báðir leikmennimir muni leika fyrsta leikinn fyrir Albion gegn Blackbum Rovers á morgun. Silvestre og Taibi með United gegn Wimbledon Nýjustu leikmenn Manchester United, þeir Mikael Silvestre og Massimo Taibi, verða aftur í liði United, þegar það mætir Wimbledon í ensku úr- valsdeildinni á Old Trafford á morgun, eftir að hafa hvílt í Evrópuleikn- um gegn Króatía Zagreb á þriðjudaginn, þar sem þeir voru ekki gjald- gengir. Kappamir áttu báðir frábæran Ieik gegn Liverpool um síðustu helgi og því sjálfskipaðir í hálf vængbrotið lið United. Líklegt byrjunarlið United: Taibi, P. Neville (eða Irwin), Stam, Berg, Silvestre, Scholes, Wilson, Beckham, Giggs, Yorke, Cole. Varamenn: Van der Gouw, Clegg, Jordi, Greening, Sheringham,Solskjær. United orðað við Vampeta Meistarar Manchester United hafa verið orðaðir við brasilíska miðheij- ann Vampeta, sem spilar með meistaraliðinu Corinthians í Brasilíu. Brasilískir fjölmiðlar sögðu f gær að United væri tilbúið til að borga sautján milljónir punda fyrir þennan snjalla 25 ára miðheija, sem áður hefur spilað með PSV Eindhoven í Hollandi. Alex Ferguson, framkvæmdastjóri United, vill ekkert kannast við þetta, frekar en fyrri daginn og neitaði að ræða málið við enska fjölmiðla, sem benda á að Ferguson hafi fyrr í haust Iýst því yfir, að búast mætti við stór- kaupum á næstunni. Kaupum sem ættu eftir að koma verulega á óvart. Palmer til Coventry Carlton Palmer, fyrrum landsliðsmiðvörður Englands, sem að undan- fömu hefur verið í herbúðum Nottingham Forest, er kominn til Coventry, þar sem hann verður á lánssamningi til þriggja mánaða. Búist var við að þessi fyrmm leikmaður Leeds og Southampton væri á leiðinni til Sheffield Wednesday, en Gordon Strachan varð fyrri til og krækti í kappann, sem hugsanlega verður keyptur til liðsins þegar láns- samingurinn rennur út. Búist er við að Palmer Ieiki með Coventry gegn Tottenham á sunnu- daginn. Sheringham til Fulham? Enn einu sinni hefur Teddy Sheringham framheiji hjá Man. United ver- ið orðaður við Fulham og því jafnveí haldið fram að gengið verði frá þeim málum um helgina. Þó allir séu með nafri hans á vörunum á Craven Cottage í Fulham, hefur enn ekkert verið staðfest, en sagt að Shering- ham sé orðinn langþreyttur á varamannshlutverkinu hjá United. Það hefur ekki farið Ieynt hjá Fulham að þeir eru enn að leita sér að nýjum framheija, eftir að hafa mistekist að ná í Ade Akinbiyi. Htyniir Birgisson hefur þegar tryggt sér Dagshikarinn Fyrir átjándu og síðustu umferð Landssímadeildarinnar í knattspymu hefur Hlynur Birgisson, Leiftri, þegar tryggt sér Dagsbikarinn í vali blaðsins á liði umferðarinnar. Hlynur, sem hefur verið valinn í Dagsliðið alls níu sinnum, eftir Ijórt- án Ieiki, er nú einn á toppi Dagslistans, en Stevo Vorkapic, Grindavík, kemur þar næstur og hefur verið valinn átta sinnum. Stevo getur enn jafnað metið við Hlyn í síðustu umferðinni, en þá ræð- ur leikjafjöldinn, og þar sem Stevo hefur leikið fleiri leiki, eða alls sautján, þá er Hlynur öruggur sigurvegari og hlýtur þar með Dagsbikar- inn glæsilega, sem gefinn er af fyrirtækinu Markómerkjum í Hafnarfirði. Staðan á toppi Dagslistans: (Hve oft valdir í sviga) Hlynur Birgisson, Leiftri (9) - Stevo Vorkapic, Grindavík (8) - Hlynur Stefánsson, ÍBV (6) - Bjarki Gunnlaugsson, KR (6) - ívar Ingimarsson, IBV (6) - Grétar Hjartarson, Grindavík (5) - Ivar Bjarklind, IBV (5) - Jóhannes Harðar- son, ÍA (5) - Jens Martin Knudsen, Leiftri (5). DajJsliðið 17. umferd Biarki Gunnlaupsson KR Hreiðar Biarnason Breiðabliki Þórhallur Hinriksson KR Guðmundur Oddsson Kristián Brooks Keflavík Ivar Ingimarsson IBV Sigursteinn Gíslason KR Che Bunce Keflavík Hlvnur Birgisson Þ( Breíðablíki ^rmóður Egilsson Leiftri KR lens Martin Knudsen Leiltri hópnum Þórður G. Lárusson, Iandsliðs- þjálfari kvenna, hefur tilkynnt 16 manna leikmannahóp fyrir lands- leikinn gegn Italíu í Evrópu- keppni landsliða, sem fram fer á Laugardalsvelli nk. miðvikudag. Landsliðshópurinn: Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki Rakel Ögmundsdóttir, Breiðabliki Sigrún Óttarsdóttir, Breiðabliki Þóra B. Helgadóttir, Breiðabliki Erla Hendriksdóttir, Fredriksberg Katrín Jónsdóttir, Kolbotn Ásthildur Helgadóttir, KR Edda Garðarsdóttir, KR Guðlaug Jónsdóttir, KR Guðrún J. Kristjánsdóttir, KR Guðrún S. Gunnarsdóttir, KR Helena Ólafsdóttir, KR Sigríður F. Pálsdóttir, KR Auður Skúladóttir, Stjörnunni Ásgerður H. Ingibergsdóttir, Val Rósa J. Steinþórsdóttir, Val ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 18. sept. ■ fótbolti Landssímadeild karla Kl. 14:00 Grindavík - Valur Kl. 14:00 ÍBV - ÍA KI. 14:00 Breiðabl. - Leiftur Kl. 14:00 KR - Keflavík Kl. 14:00 Fram - Víkingur ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM Laugard. 18. sept Fótbolti Kl. 13:45 Landssímadeildin Utending frá 18. umferð. Fótbolti Kl. 12:00 Alltaf í boltanum KI. 16:15 Enski boltinn Leicester - Liverpool Fótbolti Kl. 13:45 Landssímadeildin Grindavík - Valur Kl. 18:10 íslensku mörkin Hnefaleikar Kl. 01:00 Hnefaleikakeppni Oscar de la Hoya gegn Felix Trinidad. Sunnud. 19. sept. EEŒSnSEl- Handbolti Kl. 17:50 Evrópuk. landsliða Makedónía - ísland Iþróttir Kl. 22:45 Helgarsportið iTíl Akstursíþróttir Kl. 12:30 Deawoo-Mótorsport Hnefaleikar Kl. 10:30 Hnefaleikakeppni Endursýnt írá keppni Oscar de la Hoya gegn Felix Trinidad. Hestaíþróttir Kl. 13:30 Veðreiðar Fáks Bein útsending frá Fáksvelli. Fótbolti KJ. 14:50 Enski boltinn Leeds - Middlesbrough Kl. 17:00 Meistarak. Evrópu Fjallað almennt um keppnina og farið yfir leiki. Kl. 18:20 ítalski boltinn Inter Milan - Parma Golf KI. 20:25 Golfrnót í Evrópu nvjn bio ÐHÚSTORGI SÍMI 461 4666 Laugard. kl. 17,21 og 00.00 Sud.-má. kl. 18,21 og 23 Sýnd laugard. kl. 21 og 23 Sunnud. kl. 21 Mánud. kl. 21 “ Sýnd laugard. og sunnud. M kl. 15 og 17 Mánud. kl. 17 Komduoghitiu JyliuJWierh ogllush Crant S®- isUdwrmftihr. íotting Hill uqxmsth-t ■ í-ma?nwn Jmíunvw, jw .„•mmfrswjv œiTf. W M& ;W. wm Sýnd laugard. kl. 15 Sunnud. kl. 15 Sýnd kl. 18.50 ■ i i g j j § ■■■!■■■ § ■ 11 i i ■ ■¥« ■ i i ■ ■ ■ i i i i i ■ « ■ ■ ■■ i ■ i ■■ « i ■ ■■■■■■■■■■■■ ■ 11 iii § i ■ ■ i| |i i íiiii 11111 iíi illi i iiiiiiiimn 111111 rii

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.