Dagur - 02.10.1999, Qupperneq 4
4-LAVGARDAGUR 2. OKTÓBKR 1999
300% auknmg á Thule-sölu
Þótt fæstir vilji kannist við að þeir láti auglýsingar hafa áhrif á sig þá
jókst sala á Thule-bjór um heil 300% eftir auglýsingaherferð sem
stóð í nokkrar vikur á sl. hausti, upplýsir auglýsingastjóri Islenska út-
varpsfélagsins í Viðskiptablaðinu - sem nefnir þetta sem dæmi þess
að það sé staðreynd en ekki tilgáta að það borgar sig að auglýsa jafnt
og þétt. „Allt byggist þetta á að auðvelda fólki Iífið og fækka ákvörð-
unum þess,“ segir Viktor Olason. Það sé því ekki að ástæðulausu að
öll stærstu fyrirtæki heims á sviði neysluvara auglýsi jafnt og þétt.
Baráttan um „hilluplássið" í hugum fólks sé ekki síður mikilvæg en
um hillupláss stórmarkaðanna, enda mun takmarkaðra, því langoft-
ast muni maðurinn aðeins eftir þrem til fimm vörumerkjum. - HEl
SH kaupir í Scandsea
Stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH, hefur veitt forstjóra
félagsins umboð til að ganga frá samningum við Scandsea AB um
kaup á 20% hlut í fyrirtækinu. Forráðamenn SH segja að með kaup-
unum renni félagið enn fleiri stoðum undir hráefnisöflun fyrir mark-
aðskerfi sitt og öðlist tengsl við mikilvæg útgerðarsvæði þar sem ís-
lensk fyrirtæki hafi hingað til ekki náð umtalsverðum árangri. FBA
Ráðgjöf hf. hafði milligöngu um þessi viðskipti.
Scandsea samsteypan, sem er sænsk, hefur sérhæft sig í fjármögn-
un, stjórnun og sölu frá skipum sem stunda veiðar víða um heim,
einkum í rússneskri efnahagslögsögu. Eigin fiskiskip samsteypunnar
eru 5, en skip samningsbundin henni eru á þriðja tug. Samtals eiga
um 40.000 tonn af fiski og fiskafurðum uppruna í verkefnum Scand-
sea samsteypunnar, einkum bolfiskur.
Eiga ekki aö reka vinveitingahiís
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra
sem greiddu atkvæði um
spurningu Dags á Vísi.is eru á
móti því að íþróttafélög reki
vínveitingastaði.
Spurt var hvort það sam-
ræmdist starfsemi íþróttafélaga
að þau reki vínveitingahús.
Meira en tveir þriðju svarenda,
eða 69%, sögðu nei, en 31%
svöruðu spurningunni játandi.
Hægt er að taka afstöðu til
nýrrar spurningar Dags á
Vísi.is. Hún er svo hljóðandi: Veldur fákeppni og samráð alltof háu
grænmetisverði á íslandi? Niðurstöður verða birtar í Degi eftir viku.
Vefslóðin er: visir.is
vísir.is
Björgimarrisi verður til
Slysavarnafélagið Landsbjörg,
Iandssamband björgunarsveita,
verður formlega til í dag með
sameiningu Slysavarnarfélags
Islands, SVFI, og Landsbjarg-
ar. Af því tilefni verður heilmik-
ið um að vera. Dagskráin hefst
með stofnþingi í Félagsheimili
Seltjarnarness um morguninn.
Eftir hádegið hefst hátíðardag-
skrá í LaugardalshöII kl. 14 að viðstöddu björgunarsveitafólki auk
innlendra og erlendra gesta. í hópi heiðursgesta verða Ólafur Ragn-
ar Grímsson forseti, biskupinn yfir Islandi og utanríkisráðherra.
Kvöldskemmtun hefst svo kl. 19 og reiknað er með á þriðja þúsund
matargestum. Síðan verður stiginn dans undir hljóðfæraleik og söng
Stuðmanna.
SLYSAVARNAFÉLACID LANDSBJORG
Landssamband björgunarsveita
Bæjarmálaráðstefna Kópavogslistans
Kópavogslistinn efnir í dag til bæj-
armálaráðstefnu í Þinghól í
Hamraborg. Megin umræðuefni
ráðstefnunnar verða bæjarmálin,
gerð fjárhagsáætlana sveitarfélaga
og helstu áherslumál Kópavogs-
listans á komandi vetri. Oddiviti
Iistans, Flosi Eiríksson, setur ráð-
stefnuna og síðan mun íjármála-
stjóri Kópavogsbæjar, Guðrún
Pálsdóttir, fjalla um Ijárhagsáætl-
anagerð sveitarfélaga með sér-
stöku tilliti til Kópavogs. Síðan
taka við umræður og fyrirspurnir
og málefnahópar taka til starfa.
Ráðstefnan er opin öllu stuðnings-
fólki Kópavogslistans.
Flosi Eiríksson.
Baskar á íslandi
Baskneskir hvalfangarar áttu náin samskipti við Islendinga á 16. og
17. öld segir breski sagnfræðingurinn Selma Huxley Barkham, sem
hefur rannsakað veru Baska hér á landi. Hún dregur þessa ályktun af
ítarlegu basknesk-íslensku orðasafni sem geymt er í Þjóðminjasafn-
inu. Baskneskir hvalfangarar voru menntaðir menn að sögn Selmu
og nefnir hún bréf Martins Biafranca, sem var einn þeirra sem drep-
inn var í Spánverjavígunum árið 1615, því til sönnunar. Selma er
stödd hér á landi í boði Sjávarútvegsstofnunar Háskóla íslands og
heldur fyrirlestur um rannsóknir sínar í Lögbergi, stofu 101, á mánu-
dagskvöldið.
FRÉTTIR
k. A
Gæsa-/refaskytturnar ásamt bændunum í Villingaholti. F.v Jón Gestsson, Friðrik Sigurbergsson með refinn,
Hannes Petersen, Karl Andersen, og Helgi Gestsson.
Gæsaskyttur
veiddu ref
Gæsatúr þriggja reyk-
vískra gæsaskyttna
tók óvænta stefnu um
síðustu helgi þegar
refur tók að narta í
nefbroddinn á gervi-
gæsum þeirra og reyna
að toga þær með sér.
Rebba þótti þær raunar nokkuð
staðar þessar annars mjög svo
spöku gæsir, enda hafði hann
ekki hugmynd um að þær voru
jarðfastar á sterkum stálteini,
eins og títt er um gervigæsir.
Þegar hann sleppti takinu á nef-
broddinum sveifluðust gæsirnar
hins vegar hressilega fram og aft-
ur.
Það voru þrír læknar af Sjúkra-
húsi Reykjavíkur, þeir Hannes
Petersen, yfirlæknir á háls-, nef-
og eyrnadeild, Friðrik Sigur-
bergsson, sérfræðingur f barna-
sjúkdómum, og Karl Andersen
hjartalæknir, sem lögðust út í
skurð í Villingaholti í Flóa eftir
að hafa stillt upp gervigæsum
sínum. Þeim segist svo frá að
þeir hafi fengið nokkur flug, en
hitt illa þannig að aðeins ein gæs
lá í valnum, sem Hannes mun
hafa skotið. Þegar leið á morgun-
inn fer þeim að leiðast þófið og
huga að brottför, enda orðið
bjart, en sammælast þó um að
gefa þessu hálftíma enn. Skiptir
engum togum að þeir Friðrik og
Hannes sofna í skurðinum en
Karl vakir. Þá heyrir hann eitt-
hvert þrusk hjá gæsunum og Iít-
ur upp úr skurðinum. Þar er þá
rebbi að togast á við gervigæsirn-
ar, en nokkrar áhyggjur grípa um
sig í huga Karls, því hann hafði
Iagt einu gæsina sem þeir höfðu
náð um morguninn hjá gervigæs-
unum, og óttaðist hann að refur-
inn myndi hirða af þeim veiðina.
Ihugaði hann að skjóta upp í
loftið til að fæla refinn frá, en
vakti svo Friðrik við hliðina á sér
og bað hann í guðs bænum að
kíkja á þetta mál með sér. Karl
segir að Friðrik hafi hrokkið upp
af blundinum. gripið byssuna,
litið í kringum sig, séð refinn,
miðað, skotið og hitt beint í
mark. Refurinn var dauður í fyrs-
ta skoti af 30 metra færi.
Nú mun gæsin bíða þess að
verða matreidd en refurinn verð-
ur stoppaður upp. Bændurnir í
Villingaholti, þeir Helgi og Jón
Gestssynir, sögðu að mjög óal-
gengt væri að sjá ref á þessum
slóðum, en þeir höfðu þó tekið
eftir því að óvenjumikið var um
dauðan mófugl þarna í kring, síð-
ari hluta sumars og í haust.
Engin andstaða
við flokksstofnun
Flokksstjómarfimdur
krata í dag. Lagt fyrir
íuiidiim að sam-
þykkja skipulagstil-
lögur um stofnun
stjómmálaflokks, þar
sem Samfylkingm er.
Alþýðuflokkurinn heldur flokks-
stjórnarfund í dag þar sem lagðar
verða fyrir skipulagshugmyndir
um nýjan stjórnmálaflokk, sem
Samfylkingin er. Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins, hefur að undanförnu
farið um landið, haldið fundi og
kynnt flokksfólki þessar hug-
myndir, sem hefur verið vel tekið
af flokksfólkinu.
„Það sem við væntum af þess-
um fundi er að fá samþykki fyrir
því að Alþýðuflokkurinn fyrir sitt
--é—
Ieyti fallist á að
þessari undir-
búningsvinnu
fyrir flokks-
stofnun sé lok-
ið og að flokk-
urinn og Al-
þýðuflokksfé-
lögin í landinu ^
gangi tnn t _,... .
5 &r „ . Bjorgvmsson.
Samfylkinguna. ---
Flokksstjórnar-
fundurinn getur afgreitt þetta en
hann getur hins vegar ekki sam-
þykkt að leggja Alþýðuflokkinn
niður. Það verður að vera flokks-
þing sem tekur hina endanlegu
ákvörðun um það,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson í samtali við
Dag í gær.
Varaformaiuiskj ör
Hann segist ekki eiga von á
neinni andstöðu í Alþýðuflokkn-
um við þetta mál. Hvergi þar sem
hann kom og hélt fundi á Iand-
inu, í fyrr nefndri fundaferð,
hefði komið fram nein andstaða.
Þvert á móti væri fólk afar
áhugasamt fyrir þessari flokks-
stofnun og þeir sem mæta á
flokksstjórnarfundinn í dag eru
vel upplýstir um málið og ekkert
þar að lútandi á að koma þeim á
óvart, að sögn Sighvats.
Á þessum flokksstjórnarfundi
verður kjörinn varaformaður Al-
þýðuflokksins eins og áður hefur
verið skýrt frá í Degi. Fastlega er
gert ráð fyrir að Guðmundur
Arni Stefánsson alþingismaður
verði kjörinn varaformaður. Þó er
vitað að þeir Pétur Jónsson borg-
arfulltrúi og Jakob Magnússon
tónlistarmaður hafa báðir áhuga
á starfinu. Samkvæmt heimild-
um Dags sækir enginn þeirra það
svo fast að ná kjöri að úr verði
varaformannsslagur. - S.DÓR
Sighvatur
Björgvinsson.