Dagur - 02.10.1999, Page 5
Xfc^nr
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 - S
FRÉTTIR
L
Vegagerð um Tj ör-
nes veröur flytt
HúsvíMngar segjast
ima niðurskurði á
hafnarframkvæmdiiin
vegna jiess að vega-
framkvæmdum um
Tjömes verði flýtt.
Áform ríkisstjórnar Davíðs Ods-
sonar um frestun opinberra
framkvæmda til þess að draga úr
þenslu í þjóðfélaginu koma víða
niður. Meðal þeirra framkvæmda
sem fresta á eru viðamiklar hafn-
arframkvæmdir við Húsavíkur-
höfn, eins og Dagur hefur skýrt
frá. Húsvíkingar eru ekki sáttir
við að verið sé að fresta fram-
kvæmdum við höfnina á Húsavík
vegna þenslu á suðvesturhorni
landsins en hins vegar hafa stað-
ið yfir viðræður við samgöngu-
yfirvöld um það hvenær fram-
kvæmdum verður fram haldið.
Reinhard Reynisson, bæjar-
stjóri á Húsavík, segir að Húsvík-
ingar geti sætt sig við frestun á
framkvæmdum við höfnina enda
hafi það verið kynnt í tengslum
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík
við ákveðnar breytingar í áfanga-
skiptingu í vegagerð út á Tjör-
nes. Varnargarðurinn mun sam-
kvæmt þeirri breytingaráætlun
hins vegar koma að notum
haustið 2001, eins og núgildandi
áætlun gerði ráð fyrir. Kostnað-
aráætlun vegna brimvarnar-
garðsins nemur 475 milljónum
króna en því til viðbótar kemur
kostnaður vegna stálþils upp á
130 milljónir króna og 70 millj-
ónir króna vegna þekju á garð-
inn, eða alls 675 milljónir króna.
Verklok vegna vegar um Tjörnes
eru hins vegar áætluð árið 2003
og þá verður komið bundið slit-
Iag allt austur að Lundi í Oxar-
firði, til mikilla hagsbóta fyrir
Norður-Þingeyinga.
„Rygging gijótvarnargarðsins í
höfninni verður unnin í einum
áfanga árið 2001 í stað þess að
dreifa því á tvö ár. Það eru ýmis
rök sem mæla með því, fram-
kvæmdin verður hagkvæmari því
það er fólginn í því aukinn kostn-
aður að leggja út hálfan brim-
varnargarð og ganga síðan frá
endanum fyrir veturinn og opna
síðan aftur að vori og keyra hann
síðan út til fullnustu ári síðar.
Það á að vinna í Tjörnesvegi
næsta sumar og það er ljóst að
ekki hefðu verið keyrðir um 50
þúsund rúmmetrar af grjóti úr
Tjörnesnámunni við Máná eftir
veginum á sama tíma og verið er
að vinna í honum. Því hefði önn-
ur hvor framkvæmdin þurft að
færast til. Það sem við sjáum nú
er aukinn kraftur í vegagerð út á
Tjörnes þannig að um mitt ár
2001, þegar við þurfum að flytja
allt þetta stórgrýti eftir veginum
frá Máná, sem er stærsta grjótið
og það síðasta sem fer utan á
garðinn, verður það flutt eftir
vegi með fullum burði og
bundnu slitlagi. Það mun enn-
fremur daga úr kostnaði við
verkið, því verktaki þarf þá ekki
að sæta þungatakmörkunum,“
segir Reinhard Reynisson, bæj-
arstjóri á Húsavík. - GG
STAK vill
einnig 44%
Formaður Stak
segir Kristján
ÞórJúlíusson
hafa breytt um
skoðun.
Tillögur bæjar-
ráðs Akureyrar
um að hækka
mánaðarlaun
bæjarfulltrúa
um liðlega 44%,
eða úr 45 þús-
und kr. í 65.000
þúsund krónur,
vekur athygli
Jakobínu Björns-
dóttur, formanns
Starfsmannafé-
lags Akureyrarbæjar (STAK), og
segir hún að bæjarfulltrúar hljóti
að ætla öðrum launþegum Akur-
eyrar sem eru að bera sig saman
við höfuðborgarsvæðið, sömu
umbun, þ.e. þessi hækkun gangi
jafnt yfir alla. Þessi ákvörðun
hljóti að benda til þess að hægt
sé að greiða hærri laun. Jakobína
segist hins vegar reikna með að
það kosti STAK-félaga harða
baráttu ef þeir eigi að gera sér
vonir um 44% kauphækkun í
næstu kjarasamningum, en
samningar eru lausir 1. maí árið
2000. „Samkvæmt könnunum
eru meðallaun á Akureyri lægri
en í Reykjavík. Þetta hljóta að
vera skilaboð til allra annarra at-
vinnurekenda hér á svæðinu að
svæðið verði ekki Iengur undir í
samanburðinum við Hafnarljörð
og Reykjavík. Nú sé lag að
hækka launin.“ - GG
Áhersluinunur
til kröfugerda
Efling áttar sig ekki á
Samiðn og VR. Ekki
hægt að auka kaup-
mátt nema hækka
launin. Ólíkur samn-
ingstími innan Efl-
ingar.
Svo virðist sem töluverður
áherslumunur sé að verða á af-
stöðu stéttarfélaga til kröfugerða
í komandi kjarasamningum. I
það minnsta telur Halldór
Björnsson, formaður Eflingar -
stéttarfélags, að á fundum
Samiðnar og Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur í vikunni hafi
komið fram að fólk hafi það svo
gott að það þurfi ekki að gera
neinar kaupkröfur heldur fá ein-
hverja aukningu kaupmáttar.
Svo sé ekki hjá Eflingu. Halldór
segist því ekki átta sig á því
hvernig sé hægt að auka kaup-
mátt öðruvísi en að hækka laun-
in. Ef einhver kaupmáttaraukn-
Halldór Bjömsson, formaður Eflingar.
ing sé sótt til ríkisins þá sé það
aðeins ávísun á skattahækkanir.
Mismunandi gildistími
Kjarasamningar Eflingar - stétt-
arfélags renna út í febrúar nk. að
undanskildum samningum
Sóknar sem verða ekki Iausir fyrr
en í október á næsta ári. Halldór
Björnsson segir að vegna þessa
hafi tvær leiðir verið ræddar.
Annars vegar að semja til ein-
hvers lengri tíma og reyna þá að
semja við viðsemjendur Sóknar
um einhverjar breytingar á
þeirra samningi. Hins vegar að
semja til skamms tíma, eða til
árs þannig að samningar Sóknar
og Eflingar verði lausir á svipuð-
um tíma. Helstu viðsemjendur
Sóknar séu ríki og borg.
Ekkert verr en aðrir
Stjórn Eflingar fundaði um síð-
ustu helgi f Haukadal þar sem
farið var yfir stöðu mála og
hvernig félagsfólk hefur komið
út úr gildandi samningum. Þar
voru hins vegar ekki lagðar nein-
ar línur vegna komandi kjara-
samninga. Halldór Björnsson
segir að þessi mál muni skýrast á
næstunni. Hann segir að félags-
fólk Eflingar hafi ekki komið
neitt verr út úr þeim en aðrir,
þótt vissulega hafi ýmsir hópar
fengið viðbót með aukasamning-
um eins og kunnugt sé. - GRi-i
3 milljónjr fyxir skattsvik
Hæstiréttur dæmdi á fimmtudag
mann til að greiða 3 milljónir
króna í ríkissjóð vegna vanskila á
virðisaukaskatti, sem Iagður var á
Raf-Ós hf. og Raf-Ós ehf. á ár-
unum 1993-1996 er hann var
framkvæmdastjóri og formaður
stjórnar beggja félaganna. Ekki
var fallist á kröfu framkvæmda-
stjórans um frávísun málsins.
Hæstiréttur mildaði dóm héraðs-
dóms sem hljóðaði upp á tveggja
mánaða fangelsi. Akærði hélt því
fram að rannsókn málsins hafi
verið ófullnægjandi að því leyti,
að félagið hafi átt verulegar ijár-
hæðir í frádráttarbærri veltu,
sem ekki hafi verið dregnar frá
áður en virðisaukaskattur hafi
verið á lagður.
Greiði framkvæmdastjórinn
ekki milljónirnar þrjár innan
fjögurra vikna frá uppkvaðningu
hæstaréttardómsins þarf hann að
sæta fangelsisvist í þrjá mánuði.
Einnig þarf hann að greiða helm-
ing málskostnaðar fyrir Hæsta-
rétti. - BJB
Ný jpóstmiðstöð íslandspósts
Islandspóstur opnar síðdegis í dag nýja póstmiðstöð við Stórhöfða í
Reykjavík með aðstoð Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Mið-
stöðin tekur við hlutverki núverandi póstmiðstöðvar í Armúla 25.
Nýja miðstöðin er 5.700 fermetrar að stærð en gamla aðstaðan var
um 3.500 fermetrar. Húsið er hannað af Arkitektum sf. í Skógarhlíð
og aðalverktaki framkvæmda var ÓG Bygg. Forráðamenn íslands-
pósts segja miðstöðina marka tímamót í starfsemi fyrirtækisins og að-
staðan gefi möguleika á að innleiða nýjar og spennandi áherslur í
þjónustu við viðskiptavini Islandspósts.
Sigur lífsins gaf 45
mflljónir
Fjársöfnun SÍBS, er bar heitið Sigur lífsins,
lauk formlega í gær með því að Ólafur Ragnar
Grímsson forseti tók skóflustungu að Endur-
hæfingarmiðstöð á Reykjalundi. Fyrir afrakstur
söfnunarinnar, sem gaf 45 milljónir króna,
verður byggingin reist. Þar verður göngudeild ólafur Raqnar Gríms-
með fullkomnum þjálfunarsal og sérhæfðri son tók fy^u skóflu-
sundlaug. stunguna að Endur-
_ , - - hæfingarmiðstöð ígær.
Samkaup kaupir Voruval ------------------------
Samkaup hf. hefur keypt verslunina Vöruval í Bolungarvík af Bene-
dikt Kristjánssyni kaupmanni. Nýir eigendur hafa þegar tekið við
rekstrinum og mun Benedikt stjórna versluninni áfram fyrir hönd
Samkaups. Verslunin verður rekin með óbreyttu sniði fyrst um sinn
en síðar í vetur mun hún bætast í hóp svokallaðra Sparkaupsverslana
sem verða þá einnig á Suðurnesjum, Austfjörðum og í Reykjavík.
Vöruval mun þá fá nýtt útlit og breyttan afgreiðslutfma.
framkvæmdastj óri
Svanhildur Kaaber hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs og þingflokks VG. Hún tók formlega
til starfa nú um mánaðamótin en hún hefur
verið virk í stafi VG frá upphafi og er nú vara-
formaður. Svanhildur var um árabil formaður
Kennarasambands Islands. Steinþór Heiðars-
son, sem verið hefur starfsmaður hreyfingar-
innar frá upphafi og var kosningastjóri hennar
á landsvísu sl. vor, starfar áfram fyrir flokkinn
fram á næsta ár en þá hyggst hann snúa sér að
frekara námi. - S.DÓR
Svanhfldiir
Svanhildur Kaaber.