Dagur - 02.10.1999, Side 9
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 - 9
vera í þessu frumvarpi en þekkst hafi um langt árabil.
TiiiilnmiK'im
Og eftir meira en 20% árlega
aukningu í fjárfestingum árin
1996-98 og síðan enga aukningu í
ár og aðeins 2% spáða aukningu
árið 2000 virðist sem „ljárfesting-
arfylleríið" hafi náð hámarki (en
endar vonandi ekki í „timbur-
mönnum").
Frumvarpssmiðir segja frum-
varpið líka leggja áherslu á aðhald
í ríkisrekstrinum jafnframt því
sem tekið sé á þeim umframút-
gjöldum stofnana sem orðið hafi á
þessu ári.
Heilbrigðiskerfið endalaus
hofuðverkur
Rekstrarkostnaður heilbrigðiskerf-
isins umfram heimildir segir frum-
varpið vera helsta vandann á út-
gjaldahUðinni.. /Vhersla hafi verið
lögð á að greina þann vanda og til-
lögur gerðar um 1,4 milljarða við-
bótarframlög til að styrkja rekstur
heilbrigðisstofnana. í frumvarpi til
fjáraukalaga verði einnig lögð til
veruleg hækkun á framlögum
þessa árs. Ljóst sé að áfram verði
að vinna að tillögum um hvernig
brugðist verði við miklum og vax-
andi útgjöldum í heilbrigðiskerf-
inu. Möguleikar á breyttu rekstr-
arformi séu m.a. til skoðunar
ásamt auknu samstarfi og verka-
skiptingu sjúkrastofnana, þannig
að nýjungar og fjölbreytni fái not-
ið sín. „M.a. verði skilið á milli
hlutverks rfkisins sem kaupanda
þjónustunnar annars vegar og
veitanda hennar hins vegar.“
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir klipptu í sameiningu á borða þegar brúin
yfir gatnamót Miklubrautar og Skeiðarvogs var vígð í gær. Einnig opnuðu þau formlega síðari áfanga tvöföldunar
Suðurlandsbrautar milli Grensásvegar og Skeiðarvogs, ásamt undirgöngum við Skeiðarvog. - mynd: eól.
Klippt á borðann
Vegagerðin og Reykjavíkurborg
stóðu sameiginlega að gerð mis-
lægra gatnamóta við Skeiðarvog
og brúarinnar yfir Miklubraut.
Heildarkostnaður við verkið var
470 milljónir króna, þar af
greiddi Vegagerðin 380 milljónir.
Þess má geta að heildarumferð
um gatnamótin er talin vera um
70 þúsund bílar á sólarhring.
Verktakar við framkvæmdina
voru Arnar Kristjánsson ehf.,
Völur hf. og Sveinbjörn Sigurðs-
son hf. Aðalhönnun var í hönd-
um Línuhönnunar hf.
Tvöföldun Suðurlandsbrautar
kostaði borgina 95 milljónir
króna. Verktaki þar var Háfell
ehf. Þá fjármagnaði Reykjavíkur-
borg gerð undirganga við Suður-
landsbraut sem kostuðu 45
milljónir króna. Göngin tengja
Mörkina við Skeifuna. Völur hf.
sá um gerð ganganna.
Þess má geta að í tengslum við
þessar framkvæmdir stóðu fyrir-
tækin við Mörkina fyrir fjöl-
skylduhátið í gær. Boðið var upp
á skemmtiatriði, veitingar, tón-
Ieika með Skítamóral og flug-
eldasýningu. Hátíðarhöldin í
Mörkinni halda áfram í dag.
Auðlindanefhdin
á endasprettinum
Jóhannes Nordal, for-
maður auðlinda-
nefndarinnar, segir
nefndarmenn stefna á
að skila skýrslu um
eða upp úr næstu ára-
mótum. Þjóðardeilan
um auðlindagjald
endurspeglast í
uefndinni, segir Lúð-
vík Bergvinsson al-
þingismaður.
Auðlindanefndin svokallaða,
sem skipuð var til að gera tillög-
ur um hvernig staðið skuli að
nýtingu auðlinda landsins, von-
ast til að skila skýrslu um eða
uppúr næstu áramótum. Stóra
málið þar er að sjálfsögðu fisk-
kvótinn og sú spurning hvort
upp skuli tekið auðlindagjald við
úthlutun hans. Jóhannes Nor-
dal, fyrrum bankastjóri Seðla-
bankans, er formaður nefndar-
innar. Hann var í gær spurður
hvort von væri á því að nefndin
fari að ljúka störfum og skila
lokaskýrslu?
„Það hefur ekki verið ákveðið
ennþá hvenær við skilum loka-
skýrslunni af okkur. Við skiluð-
um bráðabirgðaskýrslu og ýms-
um gögnum í mars sl. Þá var
reiknað með að við reyndum að
koma verkinu langt á þessu ári
Jóhannes Nordal, formaður
nefndarinnar.
og ég vonast til að okkur takist
það. Eg er að gera mér vonir um
að okkur takist að skila einhverj-
um niðurstöðum, ég fullyrði ekki
lokaskýrslu, um eða upp úr
næstu áramótum,“ sagði Jó-
hannes.
Hann segir að mikil vinna hafi
farið fram í nefndinni og að hún
hafi safnað miklum gögnum og
þau verið rædd. Hann sagðist
telja að verkinu hafi miðað eðli-
Iega áfram.
Ágremingui uin auðlinda-
gjald
Lúðvík Bergvinsson alþingis-
maður á sæti í auðlindanefnd-
inni. Hann segist ánægður með
þá vinnu sem þar hafi farið fram
sem og öll vinnubrögð innan
nefndarinnar.
. „Við erum hins .vegan ^ikkert
Lúðvík Bergvinsson,
nefndarmaður.
farin að ræða í neinni alvöru um
niðurstöður. Það er fyrst og
fremst undirbúningsvinna sem
fram hefur farið til þessa," segir
Lúðvík.
Stóra málið sem nefndin glím-
ir við er hið mjög svo umdeilda
auðlindagjald, kvótasala eða
hvað menn vilja kalla það. Að
Msu er mikill meirihluti þjóðar-
innar fylgjandi kvótagjaldi, ef
marka má fjölmargar skoðana-
kannanir þar um, en sægreifa-
valdið í landinu er sterkt og mál-
ið því hið erfiðasta.
„Auðlindagjald í sjávarútvegi
er auðvitað bið stóra ágreinings-
mál í íslenskum stjórnmálum.
Þess vegna er það fullkomlega
eðlilegt að sá ágreiningur endur-
speglist í auðlindanefndinni,“
sagði Lúðvík Bergvinsson.
. - . . ...........—S.DÓR