Dagur - 02.10.1999, Síða 10
PP«n
v >« h u- m n c nin f‘ n n i> ,> n t i
Rússar komnir inn í Téténíu
RUSSLAND - Rússnesk stjómvöld staðfestu í gær fréttir af því að rúss-
neski herinn sé byijaður að fikra sig inn í Téténíu, en það þykir merki um
að brátt muni bardagar á landi hefjast þar. Sergejev utanríkisráðherra
sagði markmið hersins vera að tryggja ákveðið öryggisbelti meðfram
landamærunum, en vildi ekki útiloka að herinn ætli sér að halda áfram
allt til Grosní, höfuðborgar Iandsins. Loftárásir Rússa á Téténíu hófust
fyrir tíu dögum.
Ætla að umkrmgja ftna hverfið
JÚGÓSLAVÍA - Stjórnarandstæðingar í Júgóslavíu hyggjast breyta um
aðferðir við að láta andstöðu sína við stjóm Slobodans Milosevic í ljós,
eftir að lögreglan hefur í tvígang beitt valdi gegn mótmælendum, sem
ögmðu stjómarherrunum með því að ganga inn í hverfið Dedinje í
Belgrað, en þar búa m.a. Slobodan Milosevic og fleiri ráðamenn. Nú
ætla mótmælendumir ekki að fara í mótmælagöngu, heldur loka umferð-
inni inn í hverfið með bílum.
Elementin og orkustöðt’arnar
Samspil orkti og htigar
Sköpunarorkuna í dansi og jóga
Opnun á œðra sjálfi í hugleiðslu
Snertijóga
Gleði og kœrleika
Kennart Kristbjörg Kristmundsdóttir
Námskeiðið verður haldíð:
15.-17. oktober nk.
að Glerárgötu 32 Akureyri.
Vpþlýsingar og skráiiing i símum:
557 3913 og 861 1373.
Samráðsvettvangur um gerð Rammaáætlunar
um nýtingu vatnsafls og jarðvarma
íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að vinna rammaáætlun um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma. Markmið Rammaáætlunarinnar er að leggja
mat á og flokka virkjunarkosti vatnsafls og jarðvarma. Tekið verður tilliti
til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis virk-
janahugmynda, samhliða því að skilgreina, meta og flokka áhrif þeirra á
náttúrufar og náttúru- og menningarminjar. f þessu sambandi verður
einnig litið á hagsmuni allra þeirra sem nýta viðkomandi svæði.
Skipuð hefur verið sérstök Verkefnisstjórn til að vinna að þessu
verkefni. Fjórir faghópar munu starfa með Verkefnisstjórn og skoða
einstaka þætti þeirra virkjanahugmynda sem lagðar verða fram til
mats.
Skráning félaga og samtaka
Stjórnvöld leggja áherslu á að halda uppi samráði við almenning og
félagasamtök á meðan unnið er að gerð Rammaáætlunarinnar. í þes-
sum tilgangi hefur Landvernd verið falið að koma á virkum sam-
ráðsvettvangi.
Til að stuðla að uppbyggingu slíks samráðsvettvangs óskar Landvernd
eftir því að frjáls félög og samtök sem hafa hug á að fá reglulega
upplýsingar um framvindu verkefnisins sendi beiðni þess efnis til
Landverndar.
í tilkynningunni þarf að koma fram nafn, heimilisfang og netfang viðko-
mandi félags eða samtaka auk nafns þess einstaklings sem er
tengiliður vegna þessa verkefnis.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn laugardaginn 16. október nk. kl.
14.00-16.00 í fundarsal sem heitir Náman í Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands (við Tæknigarð, Dunhaga 5), og með fjarfundabúnaði
á Akureyri (Háskólanum, Þingvallastræti, stofu 16), Egilsstöðum
(Menntaskólanum), Höfn í Hornafirði (Fjarfundaverið í
Framhaldsskólanum) og á fsafirði (Þróunarsetur Vestfjarða,
Árnagötu 2-4).
Á fundinum verður m.a. gerð grein fyrir tilgangi og markmiðum
Rammaáætlunarinnar, skipulagi og stjórnsýslu verkefnisins, þróun
aðferða við mat á virkjunarhugmyndum og rannsóknum sem unnið er
að vegna þessa verkefnis.
Landvernd - Samráðsvettvangur
Landvernd, Skólavörðustíg 25,101 Reykjavík Sími: 552 5242
Netfang: landvernd@landvernd.is
Tk^ur'
Afjiiælisiiátírt með
heriirn í aðalhlutverki
Zhu Rongji segir að
vegna afskipta Banda-
ríkjamanna sé stríð
við Taívan orðið nán-
ast óhjákvæmilegt.
Kinverjar héldu upp á það með
pomp >g pragt í gær að fimmtíu
ár væru liðin frá því Mao Zedong
lýsti yfir stofnun Kínverska Al-
þýðulýðveldisins.
Sjálf alþýðan fylgdist einkum
með þessum hátíðarhöldum í
sjónvarpinu, en á Torgi hins
himneska friðar í Beijing voru
saman komnir um 500.000
manns, þar á meðal allir helstu
ráðamenn landsins ásamt úr-
valssveitum kínverska hersins,
sem sýndu bæði leikni sína í lík-
amsæfingum og nýjustu og
bestu stríðsvopnin. Oryggis-
gæsla var gríðarlega mikil, torgið
var vandlega lokað af og þess
vandlega gætt að enginn óhoð-
inn kæmist inn á svæðið.
Hersýningin var sú stærsta
sem sett hefur verið á svið í
hálfrar aldar sögu Alþýðulýð-
veldisins. 400 skriðdrekar og far-
artæki með kjarnorkuflugskeyt-
um og sprengjuvörpum óku yfir
torgið og orrustuþotur, sprengju-
flugvélar og þyrlur flugu yfir
höfðum mannfjöldans.
„Kínverska þjóðin hefur aldrei
borið höfuðið jafn hátt né notið
jafn mikillar athygli alls um-
heimsins eins og í dag,“ sagði í
leiðara helsta dagblaðs kínverska
Kommúnistaflokksins, Dagblaði
alþýðunnar.
I hátíðarræðu sinni boðaði Ji-
ang Chemin, forseti Kína, að
mikil verkefni væru framundan,
hvatti þjóðina til að sýna dugnað
sinn í verki og sagði stjórnvöld
stefna á viðamikla „sósíalíska
nútímavæðingu“ á næstu árum.
Jafnframt Iofaði hann „glæstan
árangur“ eftir hálfrar aldar sögu
Alþýðulýðveldisins og sagði:
„Reynslan hefur sýnt svo ekki
verður um villst að sósíalisminn
er eina leiðin til að bjarga og
halda áfram þróuninni í Kína.“
Einnig vék hann að Taívan í
ræðu sinni og sagði að Kínveijar
myndu halda áfram þeirri stefnu
sinni, sem gerir ráð fyrir „frið-
samlegri sameiningu og að ríkið
sé eitt, en kerfin tvö“ líkt og
gerðist þegar Bretar afhentu
Kínverjum Hong Kong og
Macao.
Zhu Rongji, forsætisráðherra
Kína, notaði hins vegar tækifær-
ið í hátíðarræðu sinni í gær m.a.
til að gagnrýna Bandaríkin vegna
afstöðu þeirra til Taívans. Sagði
hann að stuðningur Bandaríkj-
anna við Taívan hafi orðið til
þess að efla kjarkinn í Lee Teng-
hui, forsætisráðherra Taívans,
sem noti hvert tækifæri sem
gefst til að færa sig upp á skaft-
ið. Nú sé svo komið að stríð milli
Taívans og Kína sé nánast óhjá-
kvæmilegt, allt vegna afskipta
Bandaríkjamanna, segir Zhu
Rongji.
Ohugur í Japönum
Kjamorkuslys eru
ekkert nýmæli í Japau.
Hættuástandi var aflýst að hluta
til í Japan í gær og hundruð þús-
und manna fengu Ieyfi til að fara
aftur heim til sín, en meira en
300.000 manns voru beðnir um
að rýma heimili sín á fimmtudag
vegna hættu á geislavirkni í kjöl-
far kjarnorkuslyssins sem varð í
úranvinnslustöð í Tokaimura,
skammt norður af Tókíó.
Hins vegar var enn talið ríkja
hættuástand í sjálfri vinnslustöð-
inni og næsta nágrenni hennar,
og þangað fékk enginn Ieyfi til að
fara nema þeir sem unnu að því
að koma ástandinu aftur í viðun-
andi horf.
Þetta er alvarlegasta kjarnorku-
slys sem orðið hefur í Japan. Þrír
starfsmenn úranvinnslustöðvar-
innar urðu fyrir það mikilli geisl-
un að þeir liggja nú á sjúkrahúsi,
þar af voru tveir taldir vera í Iífs-
hættu.
Slysið hefur valdið töluverðum
óhug meðal Japana, en auk þre-
menninganna urðu 49 manns fyr-
ir geislun en þurftu þó ekki að
Ieggjast inn á sjúkrahús. Mannleg
mistök ollu slysinu, og barst
geislavirk lofttegund út í and-
rúmsloftið. Stjórnvöld viður-
Japanskir Grænfriðungar krefjast þess að úranvinnslustöðinni verði lokað.
kenndu einnig í gær mistök sem
ollu því að viðbrögð við slysinu
urðu ekki nógu hröð.
Kjarnorkuslys eru samt sem
áður ekki ýkja óalgeng í Japan.
Þetta er annað kjarnorkuslysið
sem á sér stað þar á þessu ári, en
þann 12. júlí í sumar brast rör í
kjarnorkuveri í Tsuruga. Yfirvöld
halda því fram að engin geisla-
virkni hafi þó borist út í andrúms-
loftið þá.
Árið 1998 varð eitt kjarnorku-
slys í Japan, þann 6. apríl, og
þurfti þá að loka einum kjarna-
ofni eftir að kælipumpa hætti að
virka.
Þrjú kjarnorkuslys urðu árið
1997, og urðu 37 verkamenn fyr-
ir geislavirkni í einu þeirra. Árið
1995 varð eitt kjarnorkuslys í Jap-
an. - GB