Dagur - 06.11.1999, Blaðsíða 4
IV-LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999
J&gur
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999 -V
- '(
GIVHNLAND
’V
BRATTAHLIÐ
ISLAND
REYKJAVIK
Tákn endurfundanna er sigling víkingaskipsins
íslendings um Grænland og Kanada til Bandaríkjanna
Vor og sumar 2000
ENDURE UNDIR
GIMLI
WINNIPEG
KANADA
Október 2000
Eitt þúsund ár eru liðin frá því islendingar og Ameríkumenn hittust fyrst; frá því
Leifur Eiríksson, Guðríður Þorbjarnardóttir og fleiri stórhuga íslendingar sigldu vestur.
Löngu síðar, fyrir 125 árum, námu íslendingar land í Vesturheimi og nefndu það
Nýja-ísland. Árið 2000 er því tími endurfunda, við fögnum afmæli þessara sögulegu
viðburða og eigum í leiðinni fræðandi endurfundi við sameiginlega sögu þjóðanna.
FJÖLBREYTT DAG5KRÁ
Á vegum Landafundanefndar hafa nú verið skipulagðir um 230 íslenskir viðburðir
á tæplega 70 stöðum í Bandaríkjunum og Kanada á næsta ári og ber þar hæst
tónleika, listsýningar, kvikmyndavikur, sögusýningar, málþing og leiksýningar, auk
útgáfu margmiðlunarefnis, kvikmynda og bóka. Dagskráin hefur að markmiði að
kynna lifandi íslenska menningu í Vesturheimi, efla tengsl við Vestur-íslendinga og
aðra (slandsvini og styðja við markaðsstarf fyrirtækja.
viltu TAKA þátt?
Dagskráin er nú þegar mótuð í stórum dráttum, en þeir sem vilja nýta sér viðburðina
á eigin vegum er velkomið að slást í för. Kynntu þér helstu atriði dagskrárinnar hér
á síðunni og fáðu nánari upplýsingar á heimasíðunni www.leifur-eiriksson.org
5EATTLE
OTTAWA
12. apríl 2000
MINNEAPOLI5
LEIFUR
EIRIKSSON
NYEUNDNA-
_____LAND
• BOSTON
5ALT LAKE CITY
September 2000
NEWYORK
WA5HINGTON
1000-2000
BANDARIKIN
Desember 1999
20.október 2000
Apríl-maí 2000
11.-18. október 2000
Landafundanefnd, Aðalstræti 6
sími 575 2020 fax 575-2025
E-mail: millennlumQfor.stjr.is.
vefsíða www.leifur-eiriksson.org
L05 ANGELE5
ATLANT5 HAE
Útgáfustarfsemi, bókakynningar, myndlistarsýningar, sjónvarpsmyndir, leiksýningar, tónlistarviðburðir, málþing og ráðstefnur að ógleymdum vöru-og þjónustusýningum og fyrirlestrum sem vekja athygli á framsæknu og fjölbreyttu nútímasamfélagi á íslandi.
Eftirfarandi eru dæmi úr
dagskrá Landafunda-
nefndar, með fyrirvara um
breytingar.
3.-9. desember
New York: Kvikmyndahátíð í
Quad Theater á Manhattan. Nýjar
kvikmyndir auk þess helsta sem
Islendingar hafa gert á kvik-
myndasviðinu. Viðstaddur opnun:
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson. Islenskir kvikmynda-
höfundar verða á hátiðinni.
Snemma í apríl
Minneapolis: Kvikmyndahátíð,
leiksýningar fyrir börn og
fullorðna. (slandsvika, kynning á
framleiðsluvörum og þjónustu.
12. apríl
Ottawa: Museum of Civilization,
eitt glæsilegasta menningarsafn
í heimi. Forsætisráðherra Davíð
Oddsson afhendir forsætisráð-
herra Kanada, Jean Chrétien,
Tryggvason geimfari verður
viðstaddur.
20. apríl
Reykjavík: Opnunarsýning
Þjóðmenningarhússins við Hverfis-
götu. Sýningin fjallar um siglingar
og landafundi íslendinga á mið-
öldum.
29. apríl
styttu Ásmundar Sveinssonar af
Guðríði Þorbjarnardóttur og syni
hennar Snorra. Hátíðahöld til að
minnast fyrsta barnsins í Ameríku
af evrópskum uppruna. Bjarni
Washington: Glæsileg og viða-
mikil sýning á sögu og menningu
víkinga á norður- og vesturslóðum
í Smithsonian safninu. Einstakt
safn muna frá helstu söfnum á
Norðurlöndum. Frá íslandi koma
dýrgripir frá stofnun Árna
Magnússonar og Þjóðminja-
safninu. Rakin saga landafunda í
máli og myndum. Þessi vikinga-
sýning mun ferðast til stærstu
borga Bandaríkjanna á næstu
tveimur árum. Búist er við tug-
milljónum gesta.
4. -10. maí
Los Angeles: Kvikmyndahátíð í
hinu víðfræga kvikmyndahúsi
Egyptian Theater við Hollywood
Bouleward. Allt það nýjasta og
besta úr íslenskri kvikmyndagerð
Á sama tíma málþing um tengsl
Islendingasagna og Hollywood,
popp- og jasstónleikar,
tiskusýningar og leiksýningar.
íslenski hesturinn fær umfjöllun
og jafnframt verða haldnar
kynningar á íslenskri vöru og
þjónustu.
24. maí
Washington: Opnun stærstu
sýningar sem haldin hefur verið
á íslenskum handritum erlendis í
Library of Congress, þingbókasafni
Bandaríkjanna í Washington,
Living and Reliving the Sagas:
lcelandic Life and Legend.
Sýningin sem er unnin af
Árnastofnun og Landsbókasafni/
Háskólabókasafni er fyrst sett upp
hér á landi og fer frá Washington
til Cornell og þaðan til Winnipeg.
17. júní
Reykjavik: Víkingaskipið
íslendingur heldur af stað í kjölfar
Leifs Eiríkssonar áleiðis til Græn-
lands og þaðan til austurstrandar
Kanada og Bandaríkjanna.
15.-20. júlí
Brattahlíð á Grænlandi:
Hátíðahöld með þátttöku stórs
hóps víkinga þegar víkingaskipið
fslendingur kemur við á leið
vestur. Miðpunktur hátíðahald-
anna verður kirkja Þjóðhildar og
bær Eiriks rauða sem eru tilgátu-
hús sem íslendingar standa að.
28. júlí-20. ágúst
Nýfundnaland, L'Anse aux
Meadows: Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra tekur á móti
vikingaskipinu íslendingi. Skipið
siglir þaðan til 12 hafnarborga
og bæja á Nýfundnalandi þar sem
haldnar verða margvíslegar
sýningar og hátíðir. Þaðan siglir
(slendingur alla leið til New York.
í L'Anse aux Meadows verður
endurgert víkingaþorp með á
annað hundrað „leikurum".
Islendingur leiðir hópsiglingu og
leikritið Ferðir Guðriðar verður
sýnt í höfuðborg Nýfundnalands,
St. Johns.
5.-7. ágúst
Gimli: íslendingadagurinn haldinn
hátíðlegur, heiðursgestur verður
forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson.
8.-13. september
Boston: Aðalvettvangur viðburða
f Boston verður New England
Aquarium, risastór sædýra- og
skemmtigarður við höfnina.
Víkingaskipið Islendingur verður
helsta aðdráttarafl garðsins þessa
viku en jafnframt verða leik-
sýningar, myndlistarsýningar,
tónleikar auk þess sem efnt verður
til viðamikillar fiskréttakynningar
á fjölmörgum veitingastöðum í
borginni. I Museum of Fine Arts
verður haldin íslensk kvikmynda-
hátíð.
11.-18. október
Washington: I helsta menningar-
húsi Bandaríkjanna, Kennedy
Center, verður einn af há-
punktum tónleikaferðar
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Efnt til margvislegra Islands-
kynninga, m.a. í tengslum við
komu víkingaskipsins íslendings.
16.-25. október
New York: Islandsvika tengd
opnun nýs norræns húss í
borginni, Scandinavia House
væntanlega að viðstöddum öllum
norrænu þjóðhöfðingjunum.
Forsetafrúin, Hillary Clinton, tekur
á móti víkingaskipinu íslendingi.
Jafnframt verður efnt til íslenskra
tónleika, leiksýninga, fyrirlestra,
Ijóðakynninga, kvikmyndahátíðar
og sett upp viðamikil vöru- og
þjónustusýning.
20.-27. október
Winnipeg: Hátíðahöld til að
minnast þess að 125 ár eru liðin
frá því að Islendingar settust fyrst
að í Gimli. Þar verður jafnframt
opnað menningarsafnið Nýja
Island, en íslensk stjórnvöld hafa
lagt í það fé. Ný húsakynni fyrir
íslenska bókasafnið við háskólann
í Manitoba verða tekin í notkun.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Islands í Winnipeg.
Allar nánari upplýsingar
um dagskrána eru á
heimasíðunni
www.leifur-eiriksson.org