Dagur - 06.11.1999, Síða 4

Dagur - 06.11.1999, Síða 4
IV-LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999 J&gur LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1999 -V - '( GIVHNLAND ’V BRATTAHLIÐ ISLAND REYKJAVIK Tákn endurfundanna er sigling víkingaskipsins íslendings um Grænland og Kanada til Bandaríkjanna Vor og sumar 2000 ENDURE UNDIR GIMLI WINNIPEG KANADA Október 2000 Eitt þúsund ár eru liðin frá því islendingar og Ameríkumenn hittust fyrst; frá því Leifur Eiríksson, Guðríður Þorbjarnardóttir og fleiri stórhuga íslendingar sigldu vestur. Löngu síðar, fyrir 125 árum, námu íslendingar land í Vesturheimi og nefndu það Nýja-ísland. Árið 2000 er því tími endurfunda, við fögnum afmæli þessara sögulegu viðburða og eigum í leiðinni fræðandi endurfundi við sameiginlega sögu þjóðanna. FJÖLBREYTT DAG5KRÁ Á vegum Landafundanefndar hafa nú verið skipulagðir um 230 íslenskir viðburðir á tæplega 70 stöðum í Bandaríkjunum og Kanada á næsta ári og ber þar hæst tónleika, listsýningar, kvikmyndavikur, sögusýningar, málþing og leiksýningar, auk útgáfu margmiðlunarefnis, kvikmynda og bóka. Dagskráin hefur að markmiði að kynna lifandi íslenska menningu í Vesturheimi, efla tengsl við Vestur-íslendinga og aðra (slandsvini og styðja við markaðsstarf fyrirtækja. viltu TAKA þátt? Dagskráin er nú þegar mótuð í stórum dráttum, en þeir sem vilja nýta sér viðburðina á eigin vegum er velkomið að slást í för. Kynntu þér helstu atriði dagskrárinnar hér á síðunni og fáðu nánari upplýsingar á heimasíðunni www.leifur-eiriksson.org 5EATTLE OTTAWA 12. apríl 2000 MINNEAPOLI5 LEIFUR EIRIKSSON NYEUNDNA- _____LAND • BOSTON 5ALT LAKE CITY September 2000 NEWYORK WA5HINGTON 1000-2000 BANDARIKIN Desember 1999 20.október 2000 Apríl-maí 2000 11.-18. október 2000 Landafundanefnd, Aðalstræti 6 sími 575 2020 fax 575-2025 E-mail: millennlumQfor.stjr.is. vefsíða www.leifur-eiriksson.org L05 ANGELE5 ATLANT5 HAE Útgáfustarfsemi, bókakynningar, myndlistarsýningar, sjónvarpsmyndir, leiksýningar, tónlistarviðburðir, málþing og ráðstefnur að ógleymdum vöru-og þjónustusýningum og fyrirlestrum sem vekja athygli á framsæknu og fjölbreyttu nútímasamfélagi á íslandi. Eftirfarandi eru dæmi úr dagskrá Landafunda- nefndar, með fyrirvara um breytingar. 3.-9. desember New York: Kvikmyndahátíð í Quad Theater á Manhattan. Nýjar kvikmyndir auk þess helsta sem Islendingar hafa gert á kvik- myndasviðinu. Viðstaddur opnun: Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Islenskir kvikmynda- höfundar verða á hátiðinni. Snemma í apríl Minneapolis: Kvikmyndahátíð, leiksýningar fyrir börn og fullorðna. (slandsvika, kynning á framleiðsluvörum og þjónustu. 12. apríl Ottawa: Museum of Civilization, eitt glæsilegasta menningarsafn í heimi. Forsætisráðherra Davíð Oddsson afhendir forsætisráð- herra Kanada, Jean Chrétien, Tryggvason geimfari verður viðstaddur. 20. apríl Reykjavík: Opnunarsýning Þjóðmenningarhússins við Hverfis- götu. Sýningin fjallar um siglingar og landafundi íslendinga á mið- öldum. 29. apríl styttu Ásmundar Sveinssonar af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra. Hátíðahöld til að minnast fyrsta barnsins í Ameríku af evrópskum uppruna. Bjarni Washington: Glæsileg og viða- mikil sýning á sögu og menningu víkinga á norður- og vesturslóðum í Smithsonian safninu. Einstakt safn muna frá helstu söfnum á Norðurlöndum. Frá íslandi koma dýrgripir frá stofnun Árna Magnússonar og Þjóðminja- safninu. Rakin saga landafunda í máli og myndum. Þessi vikinga- sýning mun ferðast til stærstu borga Bandaríkjanna á næstu tveimur árum. Búist er við tug- milljónum gesta. 4. -10. maí Los Angeles: Kvikmyndahátíð í hinu víðfræga kvikmyndahúsi Egyptian Theater við Hollywood Bouleward. Allt það nýjasta og besta úr íslenskri kvikmyndagerð Á sama tíma málþing um tengsl Islendingasagna og Hollywood, popp- og jasstónleikar, tiskusýningar og leiksýningar. íslenski hesturinn fær umfjöllun og jafnframt verða haldnar kynningar á íslenskri vöru og þjónustu. 24. maí Washington: Opnun stærstu sýningar sem haldin hefur verið á íslenskum handritum erlendis í Library of Congress, þingbókasafni Bandaríkjanna í Washington, Living and Reliving the Sagas: lcelandic Life and Legend. Sýningin sem er unnin af Árnastofnun og Landsbókasafni/ Háskólabókasafni er fyrst sett upp hér á landi og fer frá Washington til Cornell og þaðan til Winnipeg. 17. júní Reykjavik: Víkingaskipið íslendingur heldur af stað í kjölfar Leifs Eiríkssonar áleiðis til Græn- lands og þaðan til austurstrandar Kanada og Bandaríkjanna. 15.-20. júlí Brattahlíð á Grænlandi: Hátíðahöld með þátttöku stórs hóps víkinga þegar víkingaskipið fslendingur kemur við á leið vestur. Miðpunktur hátíðahald- anna verður kirkja Þjóðhildar og bær Eiriks rauða sem eru tilgátu- hús sem íslendingar standa að. 28. júlí-20. ágúst Nýfundnaland, L'Anse aux Meadows: Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra tekur á móti vikingaskipinu íslendingi. Skipið siglir þaðan til 12 hafnarborga og bæja á Nýfundnalandi þar sem haldnar verða margvíslegar sýningar og hátíðir. Þaðan siglir (slendingur alla leið til New York. í L'Anse aux Meadows verður endurgert víkingaþorp með á annað hundrað „leikurum". Islendingur leiðir hópsiglingu og leikritið Ferðir Guðriðar verður sýnt í höfuðborg Nýfundnalands, St. Johns. 5.-7. ágúst Gimli: íslendingadagurinn haldinn hátíðlegur, heiðursgestur verður forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson. 8.-13. september Boston: Aðalvettvangur viðburða f Boston verður New England Aquarium, risastór sædýra- og skemmtigarður við höfnina. Víkingaskipið Islendingur verður helsta aðdráttarafl garðsins þessa viku en jafnframt verða leik- sýningar, myndlistarsýningar, tónleikar auk þess sem efnt verður til viðamikillar fiskréttakynningar á fjölmörgum veitingastöðum í borginni. I Museum of Fine Arts verður haldin íslensk kvikmynda- hátíð. 11.-18. október Washington: I helsta menningar- húsi Bandaríkjanna, Kennedy Center, verður einn af há- punktum tónleikaferðar Sinfóníuhljómsveitar íslands. Efnt til margvislegra Islands- kynninga, m.a. í tengslum við komu víkingaskipsins íslendings. 16.-25. október New York: Islandsvika tengd opnun nýs norræns húss í borginni, Scandinavia House væntanlega að viðstöddum öllum norrænu þjóðhöfðingjunum. Forsetafrúin, Hillary Clinton, tekur á móti víkingaskipinu íslendingi. Jafnframt verður efnt til íslenskra tónleika, leiksýninga, fyrirlestra, Ijóðakynninga, kvikmyndahátíðar og sett upp viðamikil vöru- og þjónustusýning. 20.-27. október Winnipeg: Hátíðahöld til að minnast þess að 125 ár eru liðin frá því að Islendingar settust fyrst að í Gimli. Þar verður jafnframt opnað menningarsafnið Nýja Island, en íslensk stjórnvöld hafa lagt í það fé. Ný húsakynni fyrir íslenska bókasafnið við háskólann í Manitoba verða tekin í notkun. Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands í Winnipeg. Allar nánari upplýsingar um dagskrána eru á heimasíðunni www.leifur-eiriksson.org

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.