Dagur - 29.12.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 29.12.1999, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGVR 29. DESEMBER 1999 Akureyrarbær Deiliskipulag vegna bílgeymslna í suðurhluta Mýrarhverfis á Akureyri. =p==T====f= isrd ‘LS1! 'MWm 0® ral Mj- X 0 n. J 1 P . 0 ö.. ( U j| CBbCfj Ifl & Í))É|éíj LsJíJi A\ ’ jj . . _ /' .ujJ-JUU TJL! NBlRiQSiæ ölsBI Með vísan til greinar 6.2.3 í skipulagsreglugerð auglýsir Akureyrarbær tillögu að deiliskipulagi vegna bílgeymslna í suðurhluta Mýrarhverfis á Akureyri. Skipulagssvæðið afmarkast af Mýrarvegi að vestan, Hamarsstíg að norðan, Byggðavegi að austan og Þingvallastræti að sunnan. í tillö- gunni eru afmarkaðir byggingarreitir fyrir bílgeymslur. Uppdráttur er sýnir tillöguna ásamt skýringarmyndum og greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis í upplýsingaand- dyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 9. febrúar 2000, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 miðvikudaginn 9. febrúar 2000. Athugasemdum skal skila til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. Tillöguna má einnig kynna sér á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/. Skipulagsstjóri Akureyrar JJagur Dugur MIDVIKUD AGU R 29. DESEMBER 1999 - 3 24. (/eAe/ri/e/' m9 ameins- félagsins Yaris Sol 5 dyra. Verðmæti 1.198.000 kr. 145200 • 1466^7 Bifreið eða greiðsla upp í íbúð, 1.000.000 kr. 28038 Úttekt hjá verslun eða ferðaskrifstofu, 100.000 kr. 578 20626 38903 49587 72467 96071 117376 134210 1870 22092 39897 50967 73037 97792 118100 134694 2493 24485 39982 55064 74847 98062 118682 136338 4242 25773 40012 60667 75912 98365 119571 137215 4943 26512 40702 61610 76892 98900 120197 138932 6833 26656 41160 62057 77540 101162 120369 139390 8009 27548 41490 62234 81497 101846 120687 140517 8240 27603 41802 63619 82593 101971 123366 141895 9300 28535 42090 63957 82755 102880 124267 142407 9385 30238 43146 64320 84863 103724 124541 142990 11147 30818 43245 64799 85507 105307 125686 143382 11274 31545 43991 66072 87842 107069 126679 143524 11672 31657 44083 67919 87945 108264 129313 143780 15482 33131 44450 68974 89726 108959 129623 143915 18268 33633 44735 69115 91307 111302 129710 143998 18502 35108 47148 69523 91346 113082 130623 145364 19465 35443 48678 69616 92097 114915 130716 145790 19902 37440 49012 69997 92211 115563 131093 20378 38817 49480 70517 92523 116404 132211 i ffffHi/i/Kwiei/ui/é/cuju/f/jaAÁtu1 íasu/smö/wum/ o eif/an sí/alnáuj Krabbameinsfélagið Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, sími 540 1900. VÍKURBLAÐIÐ ■...................■.......... ■ Starfshópur um vímuefnavarnir hefur áhyggjur af aukinni vímuefnanotkun á staðnum. Hugleiðiiig um vúnuefnavamir Agætu Húsvíkingar og nærsveitamenn! Eins og flestum ykkar mun nú kunnugt hef’ur verið starfandi á Húsavík um nokkurra ára skeið Starfshópur um vímuefnavarnir. Höfuðmarkmið þessa hóps er að halda gangandi umræðunni um þessi mál og fá foreldra og alla þá sem á einhvern hátt starfa með unglingum og ungu fólki til að vera á varðbergi gagnvart þessum vágesti. T'il þess hafa verið farnar marg- ar leiðir, en of langt mál væri að telja þær allar upp hér. Sem dæmi má þó nefna þemaviku í Borgar- hólsskóla, útgáfu segla með hvatningarorðum, hugmyndasam- keppni, fyrirlestra, foreldrarölt og nú síðast möppur sem gefnar voru nokkrum unglingadeildum í Borg- arhólsskóla. Framan á möppunum var til að mynda notuð mynd úr áðurnefndri samkeppni. í hópnum um vímuefnavarnir á Húsavík eru nú starfandi fulltrúar frá Félagsþjónustu Þingeyinga, Borgarhólsskóla, lögreglunni, heilsugæslunni og frá Framhalds- skólanum á Flúsavík. Okkur sem störfum í þessum hópi finnst það í rauninni vera skylda hvers sveitar- félags að halda úti starfshópi sem þessum og hefur Húsavíkurbær staðið myndarlega að því að styðja við bakið á okkur með árlegum fjárframlögum. Einnig hafa fyrir- tæki hér í bæ stutt við bakið á starfsemi hópsins af miklum myndarskap. Hópurinnn hefur töluverðar áhyggjur af því að vímuefnanotk- un virðist vera með mesta móti nú meðal unglinga og ungs fólks og eigum við fyrst og fremst við sígar- ettureykingar, áfengisnotkun og svokallað munntóbak. Um þetta eru þeir aðilar sem umgangast unglinga á þeirra vettvangi, t.d. f félagsmiðstöð, sammála. Það sem helst er framundan hjá starfshópnum er einmitt að búa til sameiginlega stefnu gegn notkun vímuefna sem gildir allsstaðar þar sem börn og unglingar eru annars vegar. I þessu sambengi kemur Iþróttafélagið Völsungur sterkt inn í þetta dæmi og hugmyndin er að gera „plakat" með myndum af t.d. fólki sem skarað hefur fram úr á einhvern hátt. Þetta plakat á að minna okkur á að vímuefni (í hvaða mynd sem þau birtast) eru óæskileg í allri siíkri starfsemi. Starfshópurinn er sammála því að aukin þátttaka f íþróttum skili sér í minni notkun vímuefna og hefur hópurinn rætt það hvernig auka megi þátttöku í íþróttum. Að lokum þctta. Er ekki tíminn framundan, jólafríið og áramótin, tilvalinn til að setjast niður og ræða þessi mál af fullri alvöru og í hreinskilni, en þó í vinsamlegum tóni? Við vitum að því lengur sem hægt er að halda unglingum frá þessum efnum, jrví minni líkur eru á því að þeir ánetjist þeim. Megið þið eiga friðsamleg ára- mót. Starfshópur um vímuefnavamir á Húsavík. Aramótasfleóm á Hitsavfk Það verða ýmsir afþreyingar- kostir í boði á Húsavík á nýársnótt. A Hótelinu verður áramótadansleikur þar sem Danshljómsveit Húsavíkur leik- ur fyrir dansi (hvað annað?). Á ballinu á Gamla Bauk leika og syngja Jósi, Valmar, synir Dóra og dætur Steina. I Hlöðufelli verður svo áfengis- og vímefna- laus dansleikur fyrir 16-18 ára og þar sér Færibandið um fjör- ið. Tómstundanefnd, Starfs- hópur um vímuefnavarnir og Afmælisnefnd Húsavíkur stend- ur fyrir þessum unglingadans- Ieik. Og fjörinu er ekki lokið þó nýtt ár gangi í garð. Laugar- dagskvöldið 1. janúar árið 2000 er Gömludansaklúbburinn með ball á Hótelinu. A sunnudaginn verður jólaball Kvenfélagsins, kaffisamsæti og kynning á dag- skrá afmælisárs Húsavíkur í íþróttahúsinu. Þrettándagleði verður 6. janúar á vegum Af- mælisnefndar, Völsungs, skáta og Leikfélags Húsavíkur. Og Harmonikufélag Húsavíkur stendur svo fyrir nýársfagnaði að Breiðumýri 8. janúar. Skemmtanafíklar hafa sem sé úr miklu að moða á H úsavík um áramót og fyrstu daga nýrrar aldar. js Myndarleg- arÆílir Þingeyinga Áttunda bindi af því mikla og stórmerka verki Ættum Þing- eyinga er komið út. Indriði Indriðason fræðimaður var upphafsmaður og hönnuður að þessari ritröð og grunnur þess og nieginuppistaða eru handrit Indriða. Á síðustu árum hefur Brynjar Halldórsson séð um að húa handritin til prentunar og auka við þau, sérstaklega því sem gerst hefur eftir 1950. Viðmiðunin sem Indriði notaði í upphafi þegar svara þurfti spurningunni, „hverjir eru Þingeyingar?", var að nota þjóðskrá 1950 og allir sem jrar voru á skrá fæddir f Þingeyjar- sýslu, skyldust kallast Þingey- ingar svo og afkomendur þeirra. Þessi regla hefur verið notuð síðan. I þessu áttunda bindi er rak- in ætt Bergs Runólfssonar, en að auki eru þar viðbætur og leiðréttingar við sjöunda bindið og nafnaskrá. Bókin er 384 síð- ur og myndir af yfir 1000 manns prýða hana. Að sögn Brynjars er bókin þegar komin til umboðsmanna og verður einnig fáanleg í verslunum. Stefnt er að því að næsta bindi komi út að ári og heildarsafnið mun örugglega telja tíu bindi að lágmarki. js Víkurblaðið áendir leáeiidiim öínum aij ‘Dagá íuiglleilar áramátakmðjur með þakk jyrir áiiægjiileg &am&kiptí á árinii &ei n er að Ííða . n9999**'» *****»*:*.*.■&*'!■}•.- :----* "> y".;'"’" i'TT'^r .■ 1—rrr A Útsendingar bæjarstjórnar funda Bæjarstjórnarfundir eru haldnir 2. og 4. þriðjudag hvers mánaðar kl. 16 og er þeim útvarpað. Útsendingartíðni: FM 104,5 Kópavogsbær Smiðjuvegur 4b, 4c, 4d, og 4e - deiliskipulag Tillaga að deiliskipulagi lóðanna nr. 4b, 4c, 4d og 4e við Smiðjuveg auglýsist hér með samkvæmt 25. gr. skipu- lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. í tillögunni felst að vesturmörk sameiginlegrar lóðar húsanna breytist, þannig að þau færast 7 metra í austur, þ.e. nær húsunum, til að rýma fyrir nýrri aðkomu frá Skemmuvegi. Uppdrættir, ásamt skýringarmyndum, verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 2, 4.hæð, frá kl. 9- 15 alla virka daga frá 18. nóvember 1999. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 10. janúar árið 2000. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frest, teljast samþykkir tillögunni Kópavogi, 16. nóvember 1999. Skipulagsstjóri Kópavogs '('i'riiii annili.Hnnir;nTTr Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks 2000 Kvenfélag Sauðárkróks efnir til dægurlagakeppni sem lýkur með úrsli- takvöldi í Sæluviku 5. maí 2000. Öllum er heimil þátttaka. Verk mega ekki hafa birst eða verið flutt opinberlega áður. Þátttakendur skili verkum sínum undir dul- nefni og láti rétt nafn og heimilisfang fylgja með í vel merktu lokuðu umslagi ásamt þátt- tökugjaldi kr. 1000. Síðasti skilafrestur er til og með 2. febrúar 2000. Innsendar tillögur skulu merktar: „Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks”, pósthólf 93, 550 Sauðárkrókur. Hver höfundur getur aðeins átt eitt lag í úrslitakeppni. Kvenfélagið áskilur sér allan rétt til hvers kyns útgáfu á þeim tíu lögum sem komast í úrslit. HITAVEITA SUÐURNESJA BREKKUSTÍG 36 PÓSTHÖLF 225 260 NJARÐVÍK SÍMI 421 5200 Aðalbókari Hitaveita Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa aðalbókara á skrifstofu fyrirtækisins í Njarðvík. Helstu þættir starfsins eru: • Skráning fjárhagsbókhalds og merking hluta þess. • Sér um að mótteknir reikningar séu komubókaðir. • Gjaldfærir alla samþykkta og áritaða reikninga. • Umsjón með helstu bankareikningum og afstemmingu launakerfis við fjárhagsbókhald, í samvinnu við aðalgjald- kera. • Vinnur allar almennar afstemmingar fjárhagsbókhalds. • Aflar og gefur öðrum deildum og forstöðumönnum upplýsingar. • Aðstoðar og leysir af við launabókhald. • Leysir aðalgjaldkera af í fríum og forföllum og grípur inn í önnur störf eftir óskum yfirmanna. Æskilegt er að viðkomandi umsækjandi hafi: • Reynslu af almennum skrifstofustörfum. • Unnið við Fjárhagsbókhald. • Góða reynslu og þekkingu á tölvuvinnslu. • Þekkingu á launakerfum. • Skrifstofu- eða viðskiptanám. • Geti unnið sjálfstætt. • Góða framkomu og lipurð í mannlegum samskiptum. Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst, helst ekki síðar en í febrúar 2000. Launakjör eru samkvæmt samningi Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Hitaveitu Suðurnesja á Brekkustíg 36, í Njarðvík og skulu umsóknir berast þangað eigi síðar en 10.janúar 2000. Allar nánari upplýsingar veitir fjármálastjóri í síma 422 5200 Fh. Hitaveitu Suðurnesja. Fjármálastjóri. WWW.VÍSÍF.IS FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR r i i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.