Dagur - 07.01.2000, Síða 2

Dagur - 07.01.2000, Síða 2
2 - FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 . I , L (ÍÍÍ2_ ÆgsypfLgM Vínartónleikar í Háskólabíói Sinfóníuhljómsveit (slands heldur Vínartónleika í Háskólabíói í kvöld kl. 20.00 og á morgun kl. 17.00. Á sunnudaginn 9. janú- ar verða tónleikarnir fluttir í íþróttahúsinu á Egilsstöðum ki. 16.00 . Einsöngvarar með hljómsveitinni eru Margarita Halasa sópran og Wolfram Igor Derntl tenór. en hljómsveitarstjóri er Gert Meditz. Á efnisskránni eru fjölmörg verk eftir Struss feðgana Jóhann eldri og yngri. Sá yngri hefur þó vinninginn. Síðustu Vínartónleikarnir sem fyrirhugaðir eru að sinni verða í Háskólabíói þann 14. janúar kl. 18.30. Velkomin á Vínartónleika Karlakór Akureyrar - Geysir bíður nú enn á ný til nýárstónleika á Akureyri í byrjun árs til að létta af fólki ákveðnum skammdeg- isdrunga og til að gefa því kost á að njóta frábærrar tónlistar, Vínartónlistarinnar, sem upphaf sitt á í borginni Vín í Austumki þar sem Dóná svo blá streymir hjá. Fleiri og fleiri hafa notið Vínartónlistar á síðustu árum, ekki síst fyrir tilverknað frábærra nýárstónleika frá Vín sem sjónvarpsá- horfendum hefur verið boðið upp á allra síðustu ár. Vínartón- ieikarnir verða í íþróttaskemmunni á Akureyri laugardaginn 8. janúar nk. klukkan 20.30 og sunnudaginn 9. janúar klukkan 16.00. Með kórnum leikur Hijómsveit Akureyrar en konsert- meistari er Anna Podhajska. Einsöngvarar með Karlakór Akur- eyrar - Geysí eru Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran og Þorgeir J. Andrésson, tenór. Einsöng úr röðum kórfélaga syngja Gísli Baldvinsson og Guðmundur Þorsteinsson. Stjórnandi er Roar Kvam. Skissur af regni „Skissur af regni" er yfirskrift sýningar á verkum danska lista- mannsins Bjarne Werner Sör- ensen sem opnuð verður í dag 7. janúar kl. 20.00. Verkin á sýningunni eru öll unnin á síð- ustu árum og eru valin með það fyrir augum að íslenskir list- unnendur fái yfirlit yfir verk hans. Listamaðurinn vinnur jöfnum höndum að málverki og grafík. „Ég vinn með málverkið eins og höggmynd, ég ræðst að því frá öllum hliðum," er haft eftir honum í blaðaviðtali. Yfir- skrift sýningarinnar, Skissur af regni endurspeglar sýn hans á viðfangsefni sitt og tilraun hans til að festa á léreftið það sem í raun er óstöðvandi, sífellt á hreyfingu. Sýning Bjarne stend- ur til 24. janúar í Hafnarborg sem opin er frá 12.00 -18.00 alla daga nema þriðjudaga en þá er lokað. Akureyrarbær Akureyringar Söfnun jólatrjáa Vinsamlega setjið jólatrén (ekki þó gervijólatrén) út á gangstétt fyrir hádegi (kl. 12:00) laugardaginn 8. jan. 2000. Starfsmenn áhaldahúss og umhverfisdeildar safna þeim saman, kurla og nota þau á göngustíga í bænum. Þeir sem ekki geta nýtt sér þessa söfnun eiga að fara með jólatrén í sérmerktan gám á gámasvæðinu við Hlíðarfjallsveg. Jólatrén eru verðmæti sem ekki má henda, þó að þau hafi lokið hlutverki sínu í jólahaldinu. Akureyrarbær HVAD ER A SEYfll? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TONLIST Selló og píanó í Salnum Hrafnkell Orri Egilsson, sellóleikari og Sezi Seskir, píanóleikari halda tónleika í Salnum, Kópavogi sunnudaginn 9. janú- ar klukkan 20:30. Á efnisskránni eru sónata fyrir píanó og selló op. 5 nr. 1 í F-dúr eftir Ludwig van Beethoven, sónata fyrir selló og píanó eftir Claude Debussy, tónverkið Mavi Anadolu eftir Ilhan Baran og sónata í a-moll ,ArpeSgI°ne< D. 821. eftir Franz Schubert. Tónskáldið Ilhan Baran er fæddur í Art- vin nálægt Svartahafinu í Tyrklandi árið 1934. Hann stundaði nám í tónsmíðum við Konservatoríið í Ankara hjá A. Adnan Saygun, og síðan framhaldsnám í París hjá Henri Dutilleux við Ecole Normale de Musique. Verk hans hafa verið flutt víða um heim, m.a. í Frakklandi, Þýska- landi, Bandaríkjunum og Ástralíu. Verk- ið Mavi Anadolu er í þremur þáttum, Vinningar í jólahappdrætti Sjálfsbjargar Dregið var 31. desember 1999. Fólksbifreið Toyota Yaris sol free árg. 2000 kr. 1.249.000 28466 29523 Ferðavinningur með Úrval Útsýn að verðmæti kr. 130.000 2980 7388 17676 24229 35883 38733 44615 45571 48198 57594 5872 16579 21028 34475 36667 39734 45085 45880 50914 58825 7210 17459 22562 35160 38114 44171 45289 47549 53597 59560 öruúttekt að eigin vali frá Kringlunni kr. 30.000 622 4144 11995 21527 23200 30890 38220 44362 51321 54716 625 4285 12300 21622 23356 30944 38291 45941 51659 55189 758 4706 13888 21668 24107 31446 39307 46082 52536 55248 1282 5591 14670 21708 24811 35002 40935 46999 52664 56560 1614 6789 14789 22047 24943 35417 41631 48049 52733 56680 2400 8857 14928 22124 27440 35452 42756 48565 52737 59373 2802 9243 15184 22588 27986 35493 43271 48994 54056 3628 10116 15718 22944 28539 36617 43505 49204 54140 3990 10202 17026 23069 29835 36813 44226 50618 54613 Þökkum fyrir veittan stuðning „Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Hátúni 12, Reykjavík s: 552-9133“ f t«;U jI ' Ájí Vindurinn við Svartahafið, Sálmur og Tyrkneskt Aksag (sem er tyrknesku rytmi). Þetta verk verður nú frumflutt á Islandi. Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla Reykja- víkur árið 1996, þar sem Gunnar Kvar- an var aðalkennari hans. Síðastliðin þijú ár hefur hann stundað framhaldsnám við Tónlistarháskólann í L,beck, Þýska- landi hjá prófessor Ulf Tischbirek. Hrafnkell hefur spilað á tónleikum á Is- landi og erlendis, m.a. með Sinfóníu- hljómsveit íslands, Caput-hópnum og á Schleswig-Holstein tónlistarhátíðinni, í Þýskalandi. Hann var valinn sein fulltrúi Tónlistarháskólans í L^beck í Erasmus- kammerhljómsveitinni í maí 1999, og tók þátt í frumflutningi á óperu Kar- olínu Eiríksdóttur, Maður lifandi í Borg- arleikhúsinu í júní síðastliðnum. Hrafn- kell hefur tekið þátt í námskeiðum í sellóleik hjá m.a. Christophe Beau, Marc Coppey, David Geringas og Sieg- fried Palm, og í kammermúsik hjá Walt- er Levin. Sezi Seskir píanóleikari er fædd í Ankara, Tyrklandi og lauk lokaprófi frá Konservatoríinu í Ankara árið 1998, þar sem aðalkennari hennar var Kamuran G^ndemir. Hún stundar nú framhalds- nám við Tónlistarháskólann í L^beck hjá prófessor Konstanze Eickhorst. Sezi Seskir hefur komið fram á tónleikum víða í Tyrklandi, m.a. sem einleikari með Sinfóníu-hljómsveit Istanbúl-borgar, og tekið þátt í námskeiðum í píanóleik, m.a. í Obersldorf, Þýskalandi hjá pró- fessor Konrad Elser. Irafár á Gauk á Stöng Lau. 8.1. hleypur „ Irafár „ í mann- skapinn enda sveitt ball framundan með nýju söngkonunni Birgittu Hauk- dal. I beinni á www.xnet.is. Sun. 9.1 & mán. 10.1 rifjar „ Bjarni Tryggva „ upp liðna öld á sinn alkunna dónahátt. Þri. 11.1 verða tónleikar að hætti hússins. Mið. 12.1 ætlar „ Leynifjelagið „ að hefja nýja öld með nýju efni í bland við eldri perlur. Það ætti enginn að láta þetta band fram hjá sér fara enda Iöngu þekkt fyrir frábærann flutning. I beinni á www.xnet.is Fim. 13.1 „ SSSól „ í beinni á www.xnet.is Framundan eru, Moli Flugu, Sóldögg, Undryð og Dúndurfréttir Minnum á heimasíðu okkar þar sem allar nánari upplýsingar er að fá á www.islandia.is/gaukurinn SÝNINGAR íslensk grafík Á morgun, laugardaginn 8. janúar opna nemendur á þriðja ári í grafík- deild Listaháskóla Islands sýningu í gallerí Islensk grafík í Tryggvagötu 17, hafnarmegin kl. 16.00. Sýningin ber yfirskriftina Hraun og er nálgun þeirra á þvi viðfangsefni í hina ýmsu miðla. Þeir sem að sýningunni standa eru; Bjarni Björgvinsson, Díana M. Hrafns- dóttir, Elva J. Th. Hreiðarsdóttir, Lilja Karlsdóttir, Sigurður Ilrafn Þorkels- son, Sírnir H. Einarsson, Stella Sigur- geirsdóttir og Þuríður Una Pétursdótt- ir. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Síðasti sýingar- dagur er sunnudagurinn 30. janúar. Málverk og ljósainnsetning Sýning á málverkum og Ijósainnsetn- ingu eftir Vigni Jóhannsson Iistmálara verður opnuð laugardaginn 8. janúar kl. 13.55, í Ásmundarsal, Listasafni ASI að Freyjugötu 41. Sýningin verð- ur opin til 23! janúar 2000 alla daga Vantar sumarhús til leigu Orlofsheimilasjóður Læknafélags íslands auglýsir eftir tveimur sumarhúsum til leigu í tólf vikur í sumar frá 1. júní. Æskileg staðsetning er Skagafjörður, Eyjafjörður, Þingeyjarsýslur og Hérað. í samningnum þarf að felast ákveðin þjónusta. Læknafélag íslands, Hlíðarsmára 8, Kópavogur. r

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.