Dagur - 09.03.2000, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 - 3
SUÐURLAND
Olil Ambel íþrótta-
inadiir HSK
Olil Ambel er sigursæl, enda hefur hún sópað til sín fjöldanum öllum af
verðlaunum að undanförnu.
Hestakonan Olil
Amble heldur áfram
að sópa tH sín verð-
laimiun fyrir góðau
árangur á sl. ári. Nú
síðast var hún valin
íþróttamaður HSK.
Olil Amble úr hestamannafélag-
inu Sleipni var kjörinn Iþrótta-
maður HSK f>TÍr árið 1999 en
kjörið var kunngjört á héraðs-
þingi sambandsins sem haldið
var fyrir skömmu. OIil náði þeim
frábæra árangri á sl. ári að verða
heimsmeistari í fjórgangi á hest-
inum Kjark frá Horni á heims-
leikum íslenska hestsins sem
haldnir voru i Þýskalandi og auk
þess varð hún þriðja í tölti á
sama móti. Þá var hún kjörin
hestaíþróttakona ársins, íþrótta-
maður Sleipnis og íþróttamaður
Arborgar.
Iþróttamenn úr fjölmörgum
greinum komust á hlað í valinu á
Iþróttamanni HSK og fengu þeir
allir verðlaunagripi til eignar frá
Landsbankanum - Landsbréfum
á Selfossi. I öðru sæti varð sund-
maðurinn Friðfinnur Kristinsson
frá Selfossi, Bjarni Skúlason
júdómaður á Selfossi varð sá
þriðji og í fjórða sæti Vigdís Guð-
jónsdóttir frjálsíþróttamaður af
Skeiðunum varð í fjórða sæti.
Ingólfur Snorrason karatemaður
á Selfossi varð hinn fimmti, Stef-
án Geirsson glímumaður úr Hvöt
varð sjötti, Guðmundur Þór
Gunnarsson bridsmaður frá Sel-
fossi sjöundi, Pétur Ingvarsson
körfuknattleiksmaður úr Hamri
varð í áttunda sæti, níundi varð
Reynir Guðmundsson badmin-
tonmaður frá Flúðum og tíunda
sætið vermdi Jóhann Guð-
mundsson handknattleiksmaður
á Selfossi.
-SBS.
Pétur ráðinn
forstöðmnaður
Pétur Hjaltason hefur verið ráð-
inn sem forstöðumaður útibús
Sparisjóðs Vestmannaeyja sem
senn opnar á Selfossi. Um langt
árabil hefur Pétur, sem er 46 ára,
unnið við ýmis verkefni á sviði
viðskipa og stjórnunar og mun
hann fara fyrir Iiði starfsmanna,
sem áætlað er að verði þrír til
Ijórir í upphafi. Að uppbyggingu
þessa útibús stendur Sparisjóð-
urinn í Vestmannaeyjum í sam-
vinnu við Kaupþing og SP-fjár-
mögnun, dótturfyrirtæki spari-
sjóðanna, sem ekki hafa áður
haft starfsemi á Suðurlandi en á
því var talin orðin full þörf.
Einsog áður hefur komið fram
í Degi keypti Sparisjóður Vest-
mannaeyja á sfðasta ári 150 fer-
metra húsnæði á jarðhæð í ný-
byggingu Duganda að Austurvegi
6 á Selfossi og mun starfsemin fá
þar inni. „Þetta glæsilega hús-
næði og staðsetning við aðalgöt-
una á Selfossi mun leiða til stór-
aukinnar þjónustu við hina fjöl-
mörgu viðskiptavini Kaupþings,
SP - fjármögnunar og sparisjóð-
anna á Suðurlandi. Að auki verð-
ur boðið uppá þjónustu Alþjóða
líftryggingafélagsins,“ segir í
fréttatilkynningu. -SBS.
Sundkeimsla í heitum pottum
„Það hefur verið mikil kæling á
vatninu hér í lauginni að undan-
förnu svo það er með naumind-
um hægt sé að halda henni op-
inni,“ sagði Sigurður Þorsteins-
son forstöðumaður í sundlaug-
inni Laugaskarði við Hveragerði í
samtali við Dag. Svo kalt er vatn-
ið að varla hefur verið hægt að
synda í lauginni f vetur, en hún
er ein af fáum 50 metra laugum
landsins og þarf því mikið vatns-
magn í hana.
Þetta ástand hefur nokkuð
komið við sundkennslu skóla-
barna í Hveragerði og á dögun-
um var kennslan flutt úr lauginni
sjálfri í heitu pottana. Þar voru
börnunum kennd helstu sund-
tökin - við heldur óvenjulegar að-
stæður. Sigurður Þorsteinsson
sagði að þetta hefði þó engu stór-
kostlegu raskað og vildi sem
minnst úr málinu gera. -SBS.
Freyvangsleikhúsið Eyjafjarðarsveit
10 mín. akstur frá Akureyri
Fló á skinni
gamanleikurinn víðfrægi eftir Georges Feydeau.
Leikstjóri Oddur Bjarni Þorkelsson.
Sýning
föstudaginn 10. mars kl 20.30
laugardaginn 11. mars kl. 20.30
Barnaafsláttur, hópafsláttur
og enn betra verð fyrir eldri borgara.
Miðapantanir í síma 463-1195
frá kl 16.00 sýningardagana.
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á
Hótel Selfossi, föstudaginn 24. mars 2000 og hefst kl.
14:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa
að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en
14 dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík, 3. mars 2000.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Ungir jafnaðarmenn
Laugardaginn 11. mars verður stofnuð ungliðahreyfing
Samfylkingar sem hefur hlotið nafnið Ungir jafnaðarmenn -
samtök Samfylkingarfólks. Félög ungra jafnaðarmanna um
land allt taka þátt í stofnun nýju ungliðahreyfingarinnar og
teljast félagsmenn þeirra stofnfélagar í Ungum jafnaðar-
mönnum - samtökum Samfylkingarfólks.
Þeim sem ekki hafa áhuga á að vera í nýju hreyfingunni er
bent á að hægt er að breyta skráningu sinni fram að stofn-
fundi. Félagsmenn ráða hvort þeir segja sig úr því Félagi
ungra jafnaðarmanna sem þeir eru í eða séu áfram félags-
menn en verði ekki skráðir flokksmenn í Samfylkingunni og
Ungum jafnaðarmönnum - samtökum Samfylkingarfólks.
Þeir sem hafa frekari spurningar eða vilja breyta skráningu
sinni eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu
Alþýðuflokksins í síma 552 9244 (fax 562 9155) eða senda
tölvupóst á ungir@jafnadarmenn.is.
Samband ungra jafnaðarmanna
Glíma
Grunnskólamót GLÍ
Meistaramót íslands
Haldið helgina 11-12 mars 2000.
Laugardaginn 11. mars. Kl. 10:00 verður Grunnskólamót
GLÍ haldið í íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum Grafarvogi.
Keppt verður í 5-10. bekk og hafa allir Grunnskólar á land-
inu rétt til þátttöku. Engin takmörk eru á fjölda keppenda frá
hverjum skóla. Áætlað er að mótinu Ijúki kl. 14:30. Enginn
þátttökugjöld eru fyrir keppendur.
Meistaramót íslands verður haldið á sama stað á sunnu-
deginum og hefst keppni kl. 10:00. Þar er keppt undir
merkjum íþróttafélaga en ekki Grunnskólanna. Engin tak-
mörk eru á fjölda keppenda frá hverju félagi. Þátttökugjald
er 250 kr. fyrir hvern keppanda.
Flokkaskipting er eftirfarandi: 11-12 ára, 13-14 ára og 15-
16 ára.
Lokaskráning er á staðnum 30 mín fyrir keppni en skólar á
landsbyggðinni þurfa að skila inn skráningu fyrir hádegi
föstudaginn 10. mars, vegna gistingar.
Tilkynna á skráningar í síma: 487 6524
eða e-mail ( elingu@ismennt.is )
Nánari upplýsingar gefur Torfi Þálsson starfmaður GLÍ í
síma 898 9177 eða e-mail ( gli@toto.is )
Glímusamband íslands